Gímaldið

Gímaldið

Gímaldið
ประเทศ Iceland
แนวเพลง News
ภาษา IS
จำนวนตอน 64
ล่าสุด 01.06.2026

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

ตอน

  • Sirkabát #17: Dýrtíð á Íslandi 01.06.2026 42นาที
    Hvað þýðir það þegar sagt er Ísland sé orðið 84 prósent dýrara en aðrar Evrópuþjóðir? Nýlega birti stéttarfélagið Viska greiningu sem sýndi fram ískyggilega þróun í verðlagi hér landi. Vörur og þjónustu umtalsvert dýrari hér landi en í nágrannaþjóðunum og verðlag hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndunum. Þáttastjórnendur fara ofan í saumanna á verðlagsmælingum og ályktunum sem draga má út frá alþjóðlegum samanburði. Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson sjá um þáttinnViðmælandi er Gylfi Magnússon prófessorGímaldið gefur út Sirkabát. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • Áhrif ESB-aðildar fyrir budduna og bókhaldið 25.05.2026 35นาที
    Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar um: Aukin viðskipti og umsvifBreytingar á verðlagiLærra matvöruverðBetri lánakjörBreytta eftirspurn eftir vinnuafliBreytt landslag í hagstjórnÝmis áhrif fyrir lífeyrissjóði. Umsjón með þættinum hafa Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir. Ítarleg umfjöllun fylgir þættinum á vef Gímaldsins.Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. 
  • Gímaldið kíkir í pakkann: Samningsmarkmið utanríkismálanefndar 23.05.2026 29นาที
    Gímaldið rýnir í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar um ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið  aðildarviðræðna við ESB, ákveði þjóðin að þær skuli hefja á ný. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir óvenjuleg einkenni nefndarálitsins og hvernig það bætir upp snubbótta tillögu utanríkisráðherra. Meðal umræðuefna í þættinum: Dramatískar lýsingar í umsögnum fyrrverandi stjórnmálamannaÁhersla á sérbókun um yfirráð yfir auðlindumSérlausn um séríslenskt fiskveiðistjórnsvæðiHeimskautalandbúnaður og landbúnaðarstyrkirMiklir fjármunir frá Brussel til landsbyggðarUndanþágur um íslenska refinn, hvalinn og flugsamgöngurÍsland áfram herlaust og fullráða í varnarmálumÍtarlegri umfjöllun er um efni þáttarins á vef Gímaldsins. Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • R-listinn með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn 19.05.2026 32นาที
    Er hin svokallaða hægri sveifla á landinu jafn skýr og af er látið, eða er kannski vinstri sveifla sem öllum er að yfirsjást? Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir halda áfram að rýna í kosningaúrslitin og velta upp áhugaverðum vinklum og spurningum:Flokkar R-listans fá meira fylgi í Reykjavík en SjálfstæðisflokkurinnVelgengni Miðflokksins er birtingarmynd klofningsins frá Framsókn fyrir átta árumVinstri græn eru að stimpla sig aftur inn í umræðuna bæði í kosningunum og landsmálunumVinstri flokkarnir hafa enn vinninginn í landsmálunum og hafa bætt meira við sig en hægri flokkarnirHefði Samfylkingunni gengið betur með Guðmund Inga Þoroddsson innanborðs?Verður Jónas Már Torfason næsti varaformaður Samfylkingarinnar?Hvað gera kosningaúrslitin fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur og stöðu hennar í Sjálfstæðisflokknum?Er slakt gengi Framsóknar í kosningunum nýjum formanni flokksins að kenna? Tölfræðin sem stuðst er við í þættinum er frá Brynjólfi Gauta Guðrúnar Jónssyni, tölfræðingi þáttarins Sirkabát, en Brynjólfur heldur úti vefsíðunni metill.is  Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • Kosningaúrslitin: Lesið á milli línanna 17.05.2026 30นาที
    Hægri sveifla fór yfir landið í sveitarstjórnarkosningum. Gímaldið rýnir í niðurstöðurnar með tölfræðingnum Brynjólfi Gauta og stjórnmálaskýrandanum Aðalheiði Ámundadóttur. Í þættinum er meðal annars rætt um þetta:Meirihlutar féllu víða um land og hægri sveiflan er staðreyndSamfylkingin er næst stærsti flokkurinn í sveitarstjórnum á eftir SjálfstæðisflokknumSjálfstæðismenn eru í sókn og Píratar horfnir af stjórnmálasviðinuSamfylkingin og fleiri borga fyrir mistök í kosningabaráttunniGuðlaugur Þór gæti séð sér leik á borði og nýtt niðurstöðuna til að fara í formannsslagMiðflokkurinn og Viðreisn festa sig í sessi í flokkakerfinuSilja Sóley Birgisdóttir er ný stjarna í stjórnmálumSanna Magdalena kann að hafa komið Vinstri grænum til bjargar í ReykjavíkUmsjón með þættinum hefur Eyrún MagnúsdóttirÞátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • Næsti kafli í Reykjavík og það sem við hefðum átt að tala meira um 15.05.2026 37นาที
    Síðasti þátturinn í röðinni Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er kominn í loftið. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir útlitið fyrir Reykjavík og málin sem þær hefðu viljað meiri umræðu um fyrir kosningar. Töfratalan 12 sem allt snýst umSviptingar í síðustu könnun fyrir kosningarMeirihlutaþreifingar gætu orðið meira spennandi en kosningarnarHvernig munu hægri vindar fara með ReykjavíkHvað verður um BorgarlínuSorphirðan og ítalska mafíanViðkvæmustu hóparnir sem gleymdustUmsjón þáttar: Erla Hlynsdóttir og Aðalheiður ÁmundadóttirBörn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • Við þurfum að geta rekið samfélagið fyrir okkur öll 15.05.2026 50นาที
    Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lifir og hrærist í samfélagi jaðarsettra hópa. Hún er framkvæmdastjóri Samhjálpar og stjórnarkona í samtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Hún segir það tvennt ólíkt að reka fyrirtæki og að reka samfélag, og að Reykjavík spili í annarri deild en önnur sveitarfélög þegar kemur að þjónustu við jaðarsett fólk. Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðrúnu Ágústu í nýjasta þætti af Börn og bílastæði þar sem fjallað er um ábyrgð samfélags, pólitíkina í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, kaffistofu Samhjálpar og svörin sem EAPN fékk frá framboðunum um áherslur í málefnum fátæks fólks.Börn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. 
  • Eru tölur í kosningabaráttu til að upplýsa eða sannfæra? 14.05.2026 42นาที
    Í þættinum fara Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason úr hlaðvarpinu Sirkabát yfir nokkrar áhugaverðar tölur sem tengjast sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu ásamt Eyrúnu Magnúsdóttur.Íbúar höfuðborgarsvæðisins eyða tæpum fjórum sólarhringum á ári í umferð – en er þetta stór tala? Við hvað á að miða?Hvernig stendur Reykjavík fjárhagslega og hvaða sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sker sig úr þegar kemur að fjárhagsstöðu?Aðeins eitt sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu nær að koma meira en helmingi eins árs barna í leikskólaHvaða forsendur gefa menn sér þegar þeir ramma inn vandamálin og hvernig eru tölur notaðar til að sannfæra frekar en upplýsa?Góð ráð til kjósenda þegar leggja á mat á tölur sem varpað er fram í kosningabaráttuBörn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • Á borgin að fela einkaðilum verkefnin eða sjá um þau sjálf? 13.05.2026 26นาที
    Í þættinum er rætt við prófessor í stjórnmálafræði um þá leið sveitarfélaga að útvista verkefnum til einkaaðila. Hvaða flokk­ar vilja fela einka­að­il­um verk­efnin í Reykjavík?Hvaða flokk­ar vilja að borg­in vinni öll verk sjálf? Kostn­að­ur við út­vist­un verk­efna er oft van­met­inn og sparnaður ofmetinnEftirliti með einkaaðilum sem veita opinbera þjónustu er ábótavant Kjörnir fulltrúar missa yfirsýn og vald yfir málaflokkum sem útvistað erGestur: Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði. Umsjón: Aðalheiður ÁmundadóttirBörn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • Hinsegin bókmenntir í brennidepli á bókmenntahátíðinni Queer Situations 13.05.2026 24นาที
    Ásta Kristín Benediktsdóttir bókmenntafræðingur hefur sérhæft sig í hinsegin bókmenntum. Hún segir bókmenntir ekki hlutlausar heldur sýni þær okkur ákveðna mynd af samfélaginu. Hinsegin bókmenntahátíðin Queer Situations fer fram í maí og þar er Ásta með erindi sem ber yfirskriftina: Hver má skrifa (um) hinsegin bókmenntir? Vangaveltur um væntingar og tjáningarfrelsi. Erla Hlynsdóttir ræðir við Ástu í nýjasta þætti Bókapressunnar.Hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • Málefnin sem kjósendur leggja áherslu á — Skipulagsmál á toppnum 11.05.2026 29นาที
    Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru þeir tveir málaflokkar sem flestir íbúar leggja áherslu á vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, hvort sem litið er til Reykjavíkur, nágrannasveitarfélaga borgarinnar, eða íbúa á landsbyggðinni.  Þetta sýna niðurstöður Þjóðmálakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði, lét gera könnunina og hefur unnið úr niðurstöðunum, en honum hefur fundist vanta umræðu í aðdraganda kosninga um hvað kjósendum sjálfum finnst mikilvæg málefni.Meðal þess sem spurt var um er ánægja með þjónustu sveitarfélaganna, afstöðu til Borgarlínu og afstöðu til þéttingar byggðar í Reykjavík. Erla Hlynsdóttir ræðir við Rúnar um niðurstöðurnar.Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið.  
  • Gísli Marteinn: Reykjavík á að bera sig saman við aðrar höfuðborgir 09.05.2026 53นาที
    Margt kemur Gísla Marteini Baldurssyni spánskt fyrir sjónir í umræðu flokkanna um skipulagsmál í Reykjavík.  Í þættinum Börn og Bílastæði er rætt við Gísla Martein um Reykjavík í samanburði við aðrar borgir og þau öngstræti sem umræðan um skipulagsmál er komin í í aðdraganda kosninga.Er raunhæft að bera Reykjavík saman við aðrar borgir? Hvernig væri Reykjavík ef þéttingin væri eins og í París?Af hverju töldu Barselónabúar að þar væri ekki hægt að hjóla?Stærð borga máli og almenningssamgöngurMikilvægi þéttingar byggðar og óreiðan í umræðunniFara mislæg gatnamót og blómleg hverfi saman?Umsjónarmaður þáttarins er Aðalheiður Ámundadóttir.Á Gímaldinu má lesa útdrátt úr hlaðvarpsviðtalinu.Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
  • Bannorðin í stefnuskrám flokkanna og sundlaugar ofar Sundabraut 06.05.2026 33นาที
    Rýnt í stefnuskrár flokkanna í borginni. Eru þær innantóm loforð eða fullar fyrirheitum um það sem koma skal?Þættinum stýra Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir.Fjallað er um:Sundlaugar oftar nefndar en Sundabraut í stefnuskránumNokkur bannorð virðast vera í stefnum flokkannaAllir vilja bæta leikskóla en greinir á um það hvort rekstrarform leysir vandaFlokkar sem hafa stutt samgöngusáttmála hafna honum korter í kosningarBörn og bílastæði er kosningaþáttur Gímaldsins. Hann er öllum opinn en við hvetjum þig til að gerast áskrifandi. Það tekur enga stund <3 Þú getur líka lagt til frjálst framlag Þú getur líka skráð þig fyrir reglulegu fréttabréfi Gímaldsins 
  • Sirkabát #16: Mælingar á atvinnuleysi 04.05.2026 27นาที
    Hvort eru atvinnulausir rúmlega níu þúsund eða nálega átján þúsund talsins? Tvær stofnanir hafa umsjón með að telja fjölda hverju sinni, Vinnumálastofnun og Hagstofa Íslands. Mælingar beggja stofnana á atvinnuleysi fylgjast venjulega að. Nú ber hins vegar svo við að munur á mælingunum hefur aukist mikið á sama tíma og fólki án vinnu hefur fjölgað vegna kólnunar í hagkerfinu. 
  • „Það er enginn að segja að allir eigi að hætta að keyra“ – Bílastæði og borgarumhverfi 02.05.2026 51นาที
    Tölum um bílastæði! Bílastæði hafa verið í brennidepli í kosningabaráttu á höfuðborgarsvæðinu. En hvað eru bílastæði? Hvaða tilgangi þjóna þau í borgarumhverfi og hvaða áhrif hefur það ef við fjölgum þeim stöðugt? Eyrún Magnúsdóttir ræðir við sérfræðinga um fyrirbærið bílastæði og skoðar hugmyndir annarra borga um bílastæði og tengsl þeirra við skipulag borga en einnig við líðan íbúa og heilsu. Viðmælendur í þættinum eru Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt í skipulagsfræði við LBHÍ og fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar, og Herdís Sigurgrímsdóttir, stjórnmálafræðingur og ráðgjafi á umhverfis- og skipulagssviði hjá VSÓ ráðgjöf.Börn og bílastæði eru kosningaþættir Gímaldsins þar sem áhersla er lögð á að greina málefni frekar en að fjölga upphrópunum í umræðunni. Þættirnir eru öllum opnir en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. 
  • Er umræðan um borgina á villigötum? – Kosningaþátturinn Börn og bílastæði hefur göngu sína 28.04.2026 26นาที
    Kosningaþáttur Gímaldsins rúllar af stað. Hann heitir Börn og bílastæði!Stór hluti verkefna sveitarfélaga snýst um börn, velferð þeirra, menntun og lífsgæði. Miðað við umræðu fyrir þessar kosningar mætti þó halda að börn þrái fyrst og fremst eitt: bílastæði! Í þáttunum verða málefnin í forgrunni en frambjóðendur fá frí. Í fyrsta þætti fara Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir yfir fjölbreyttan vettvang kosningabaráttunnar, hlutverk fjölmiðla í þessu nýja landslagi.  Þær spyrja hvort þolinmæði fyrir sérhagsmunum sé að aukast aftur eftir að óþol fyrir slíku rauk upp úr öllu valdi í kjölfar efnahagshrunsins og hvaða þjónustu fjölmiðlar ættu helst að veita kjósendum til að undirbúa þá fyrir kosningarnar. Á að láta frambjóðendum og jafnvel hagsmunaaðilum eftir að skilgreina vandamálin sem þarf að leysa? Eða eiga fjölmiðlar kannski frekar að rýna í málefnin, greina þau og skýra út.Hægt er að hlusta á fyrsta þátt Barna og bílastæða í spilaranum hér efst í fréttinni og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Börn og bílastæði er hugsaður fyrir forvitið fólk sem er þreytt á upphrópunum og rifrildum og leitar í staðinn að dýpri skilningi á þeim málefnum sem eru í brennidepli fyrir kosningarnar og reyndar líka málefnum sem fáir eru að tala um en skipta íbúa máli. Þættirnir verða öllum opnir en við hvetjum þig til að gerast áskrifandi að Gímaldinu eða leggja til frjálst framlag 
  • „Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið 18.04.2026 38นาที
    „Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum.Í þættinum, sem Gímaldið gefur út, kemur meðal annars fram:Umsögn með orðalaginu átti aldrei að fara í loftið og sú sem skrifaði þessi orð taldi að þeim yrði slepptÍ tölvupósti var sagt að arkitektinn sé „að láta danskan arkitektúr hafa allt of mikil áhrif“ á sigBorghildi hafði verið sagt upp störfum hjá borginni þegar umsögnin var skrifuð og starf hennar lagt niðurUnnið er með byggingarheimildir eins og óveiddan kvótaHröð uppbygging samhliða eftirgjöf í byggingarreglugerð hefur dregið úr gæðum í nýbyggingumMilliliðir milli framkvæmdaaðila og skipulagsyfirvalda hafa bæst við á undanförnum áratugGera þarf kröfu um að hönnun bygginga liggi fyrir fyrr í ferlinuHagar hefðu getað sýnt meiri metnað í uppbyggingu á byggingunni sem nefnd hefur verið Græna gímaldiðInnanhúss hjá borginni var Græna gímaldið í upphafi kynnt sem „höfuðstöðvar stórfyrirtækis“Þátturinn er öllum opinn en Gímaldið – sem að hluta til dregur nafn sitt af Græna gímaldinu – er fjölmiðill í áskrift. Hlustaðu á þáttinn ...og ef þú vilt meira svona efni þá hvetjum við þig til að gerast áskrifandi eða leggja til frjálst framlag á www.gimaldid.is 
  • Sigríður Andersen ræðir ESB-tillögu stjórnarinnar og stöðuna í stjórnarandstöðu 14.04.2026 24นาที
    Sig­ríð­ur Á And­er­sen formaður þingflokks Miðflokksins seg­ir ESB-­­til­lög­u ríkisstjórnarinnar þurfa að taka breyt­ing­um í með­för­um þings­ins en telur að þing­menn meiri­hlut­ans séu of háð­ir ráð­herr­um sín­um. Hún býst við átökum í utanríkismálanefnd á lokaspretti þingvetrar. 
  • Birgir Ármannsson tekur til máls um fundarstjórn forseta 09.04.2026 43นาที
    Hvaða herr­um þjón­ar for­seti Al­þing­is og hver ræður dagskrá þingsins í raun og veru? Hvernig býr meirihlutinn sig undir málþóf og hvernig heldur forseti sönsum þegar allt verður vitlaust? Þess­um spurn­ing­um og mörg­um öðr­um svar­ar Birg­ir Ár­manns­son, fyrr­ver­andi þing­for­seti í við­tali um leikja­fræð­ina á Al­þing­i.
  • Þjálfuð til að berjast gegn eigin þjóð: Þórdís Kolbrún segir frá skipulögðum barnsránum 02.04.2026 32นาที
    Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir ræð­ir skipu­lögð barns­rán Rússa í Úkra­ín­u; Um börn­in sem num­in hafa ver­ið á brott og eru rænd upp­runa sín­um með heila­þvott­i, hvern­ig unn­ið er að end­ur­heimt þeirra og hvern­ig Evr­ópa og al­þjóða­sam­fé­lag­ið geti og eigi að bregð­ast við.Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi hér 

ยอดนิยมใน

พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย