Víðsjá

Víðsjá

RÚV
Країна Ісландія
Жанри Мистецтво
Мова IS
Епізодів 572
Останній 15.10.2026

Víðsjá er íslenskur menningarþáttur sem fjallar um listir og menningu. Umsjónarmennirnir Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir varpa ljósi á það sem efst er á baugi hverju sinni, skoða menningu nær og fjær frá ólíkum sjónarhornum og setja skapandi miðla undir smásjána.

Епізоди

  • Sally Rooney, Hugvekja um söfn og samfélag, Ókunnugt fólk/rýni 15.10.2026 48хв
    Ætti Þjóðminjasafnið að kaupa úlpu sem Ágústa Johnson reynir að selja á facebook? Af hverju gengur illa að varðveita torfbæi? Eru söfn í nægu samtali við samtímann? Þetta eru nokkrar þeirra fjölmörgu spurninga sem dúkka upp við lestur bókarinnar Hugvekjur um söfn og samfélag eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði. Þar tekur hann saman skrif frá þrjátíu ára ferli, en í bókinni eru ekki eingöngu fræðilegar pælingar heldur einnig persónuleg afstaða þar sem höfundur teflir fram gagnrýnum viðhorfum sem fara um víðan völl. Greinarnar snerta á menntun, eignarhaldi, inngildingu, ferðaþjónustu og sjálfbærni svo eitthvað sé nefnt. Við ræðum við Sigurjón Baldur i þætti dagsins. Við kynnum okkur einnig mál írska rithöfundarins Sally Rooney, en bækur hennar hafa verið teknar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við Palestine Action. Og Gauti Kristmannsson rýnir í Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson.
  • Konur í ljósmyndun, Halldór Eldjárn og kliðharpa, Húsið hlýskeið/rýni 14.10.2026 53хв
    Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt og virðist vera forvitinn um allt, en kannski sérstaklega allt sem tengist hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið hans sameinast í hljóðfærum sem hann hefur dundað sér við að smíða frá grunni upp á síðkastið, rafpípuorgeli og rafhörpu, og sem koma við sögu á tónleikasýningu í kvöld. VIð heimsækjum Halldór í þætti dagsins. Einnig er rætt við þær Æsu Sigurjónsdóttur og Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur um konur í ljósmyndun en út er komin bókin Striving for indipendence, Nordic Women Studio Photograpers 1860-1920. Sölvi Halldórsson rýnir í Húsið hlýskeið eftir Hjálmar Sveinsson.
  • Jórunn Viðar og tónlist haustsins 13.10.2026 56хв
    Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings sendu frá sér árið 2001. Pétur Eggertsson ræðir við Árna Heimi um nýútkomna ævisögu Jórunnar Viðar, en Jórunn kom víða við á ferlinum og samdi margar helstu perlur íslenskra tónbókmennta - en ævi hennar hefur ekki áður verið gerð jafn ítarleg skil þrátt fyrir þau miklu áhrif sem hún hafði á tónlistarlífið.
  • Svört orkídea, Sex ed, Öld ímyndunaraflsins og Fegursta blómið 12.10.2026 53хв
    Fegursta blómið er breiðskífa sem tónskáldið Helgi Rafn Ingvarsson sendir frá sér á næstunni. Á plötunni vefur hann tónlist sína saman við texta eftir rómantísk, módernísk og gleymd skáld. Í upphafsverkinu Fegursta blómið fléttar hann til dæmis saman textabrotum úr skáldsögum Halldórs Laxness við kórflutning Schola Cantorum. Platan er væntanleg á streymisveitur á á vínyl. Bergur Ebbi gef nýverið frá sér bók sem kallast Öld ímyndunaraflsins, þar sem gervigreindin er meðal annars viðfangsefnið, en bókin er hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina, eins og segir á bókakápu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins. Við heyrum einnig leikhúsrýni, en Sjöfn Asare Hauksdóttir fór á kynfræðslukarnivalið Sex Ed sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Ljóðabókin Svört Orkídea eftir hina færeysku Vónbjörtu Vang hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Bókin er þriðja ljóðabók Vang, en áður hafa komið út Millumlendingar 2011, og Djúpini 2017. Það er vestfirska bókaútgáfan Skriða sem gefur út Svarta Orkídeu, og Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir sem þýddi. Rætt er við Móheiði í þættinum.
  • Anne Carson og Ölver 08.10.2026 52хв
    Kanadíska skáldið Anne Carson hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundaverki sínu, en með glettnu samtali við hina klassísku hefð hafi henni tekist að skapa nýja tegund samtímabókmennta. Við kynnumst nýja nóbelskáldinu í dag, ræðum við Ragnar Helga Ólafsson, rithöfund, sem hefur gefið út og þýtt verk hennar og rifjum upp rýni Gauta Kristmannssonar í verk hennar; Albertine æfingarnar. Þá komum við einnig við á sportbarnum Ölveri í Glæsibæ en á morgun verður hægt að fara þangað að sjá fótboltadanssýninguna “Ég er kominn heim” eftir Birtu Ásmundsdóttur. Við ræðum við hitti danshöfundinn Birtu og tvo aðra aðstandendur verksins, þær Ingu Maríu Olsen dansara og Önnu Róshildi Benediktsdóttur Böving, tónskáld.
  • Steinunn Þórarins í Úkraínu, Fuglinn bókaforlag, Íslandsklukka, Gunnella/rýni 07.10.2026 54хв
    Við fáum óvenjulega ferðasögu frá Steinunni Þórarinsdóttur í þætti dagsins en hún opnaði nýverið sýningu á stríðsminjasafninu í Kænugarði. Þar sýnir hún verkið Brynjur, sem var fyrst sett upp í New York árið 2018 en hefur ferðast um heiminn síðan. Ný skáldsaga Steinars Braga, Frelsarinn, kemur út hjá bókaforlaginu Fuglinum í ár en að útgáfunni standa þeir Halldór Armand og Einar Aðalsteinsson. Þeir segja að fyrirkomulag ríkisstyrkja til bókmennta ýti nú höfundum út í útgáfubransann. Við heyrum í Halldóri í þætti dagsins. Einnig verður rætt við Halldór Guðmundsson um Íslandsklukku Laxness og Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Gunnellu í Tjarnarbíói.
  • Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill 06.10.2026 52хв
    Nína okkar kærasta Nína er titill sýningar sem stendur yfir á Listasafni Reykjanesbæjar. Á sýningunni er ljósi varpað á Nínu Sæmundsson sem hinsegin listamann og eru mörg verk frá ferli Nínu til sýnis, en einnig var starfandi listafólki úr hinsegin samfélaginu boðið að vinna verk á sýninguna út frá verkum Nínu. Sýningarstýrurnar, þær Viktoría Guðnadóttir og Ynda Eldborg segja frá í þætti dagsins. Heimildamyndin Eyríki eftir Nikolai Galitzine er portrett af Grímsey og óður til fólksins sem hana byggir og elskar. Þegar best lét, bjuggu þar 120 manns en nú er framtíð byggðarinnar tvísýn. Dögg Mósesdóttir, framleiðandi myndarinnar, lítur við. Og Haukur Þorgeirsson fjallar um Tokkarísku, Indó-Evrópska tungu sem hvarf af vörum fólks fyrir meira en 1000 árum.
  • Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson 05.10.2026 52хв
    Skúli Sverrisson byrjaði ungur að leika á rafbassa. Hann stundaði nám við tónlistarskóla FÍH en samferða námi lék hann með hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, djasspíanóleikara, fyrir dansi í naustinu. Síðar nam Skúli bassaleik við Berkley College of Music í Boston en að loknu námi flutti hann til New York borgar og bjó þar um árabil en heldur nú til í miðborg Reykjavíkur. Á ferli sínum hefur Skúli komið víða við. Hann hefur gefið út margar plötur undir eigin nafni og starfað með listamönnum á borð við Lou Reed, Laurie Anderson, Ryuichi Sakamoto, Allan Holdsworth, Blonde Redhead, Jóhanni Jóhannssyni og Hildi Guðnadóttur. Skúli hefur þá einnig samið tónlist fyrir kvikmyndir og leikhús sem og stýrt plötuupptökum. Hann er einn af stofnendum plötuútgafunnar og listarýmisins Mengis og hefur verið listrænn stjórnandi staðarins frá upphafi.
  • Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía 01.10.2026 51хв
    „Soldið eins og ef Prúðuleikararnir myndu sjá um kynfræðslu,“ segir Margrét Erla Maack, sviðslistakona og ein af driffjöðrum fullorðinssirkússins Sex Ed sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Í verkinu sameinast íslenska kabarettsenan senunni frá New York, en bandaríski hópurinn Visceral Abstractions lýsir sér sem absúrdísku sirkus- og brúðuleikhúskollektívi sem blandar saman brúðum, líkama, loftfimleikum, húmor og súrrealískri sviðslist. Við ræðum þetta og meira til við Margréti Erlu í þætti dagsins; líkamleika á tímum gervigreindar, áhrif hægri sveiflu á burlesque heiminn, fæðingarþunglyndi og fíflaskap. Einnig verður rætt við Unu Sveinbjarnardóttur um nýlega plötu hennar Ea Fantasíu, sem hljóðrituð var um hávetur í Reykholtskirkju og svo heyrum við rýni í nýja ljóðabók Jakobs Stachowiak, Meðan borgin blánar.
  • Víðsjá þrítug 30.09.2026 51хв
    Í tilefni af 30 ára afmæli Víðsjár flökkum við vítt og breitt í tíma með hjálp tækninnar. Heyrum erindi frá Víðsjárkempum síðustu þrjátíu ára.
  • Netárásir, Svikasögur, Pollar 28.09.2026 55хв
    Netárásir hafa verið áberandi í íslenskum bókmenntaheimi undanfarnar vikur. Undanfarna daga hafa átt sér stað árásir á bókmenntavefsíðurnar Lestrarklefann, norðdahl.org og Starafugl. Við mælum okkur mót við umsjónarmenn Lestrarklefans sem og Eirík Örn Norðdahl og ræðum þessar árásir. Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Svikasögur eftir Maríu Reyndal sem frumsýnt var í síðustu viku í Borgarleikhúsinu. Elísabet Brynhildardóttir segir frá Pollum, nýju útilistaverki sínu sem prýðir almenningsgarð á gamla strætóreitnum í Borgartúni.
  • Haustbækur, Bríet Bjarnhéðins, Ástin ein taugahrúga 24.09.2026 50хв
    Á sunnudag verður haldið verður upp á afmæli Bríetar Bjanhéðisdóttur, sem fæddist á þessum degi fyrir 170 árum. Það er félagið Leikhúslistakonur 50+ sem hafa gert dagskrá af þessu tilefni, sem kallast - Bríet, blómin og Hannes. Edda Þórarinsdóttir leikkona og Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur segja frá í þætti dagsins. Við heyrum rýni Trausta Ólafssonar á kammeróperunni „Ástin ein taugahrúga: enginn dans við ufsaklett“ og fáum meðmæli með góðum haustbókum.
  • Aldrei las ég Laxness / Heimsljós II 23.09.2026 53хв
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Í síðustu viku komumst við aðeins hálfa leið með stórvirkið Heimsljós sem fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti ræðum við Bára Gísladóttir, tónskáld, um seinni bindin tvö: Hús skáldsins og Fegurð himinsins. Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið. Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
  • Pétur Ben, Sanskrít, Inga Lísa Middleton 22.09.2026 53хв
    Í handprentuðum bláleitum ljósmyndum teflir Inga Lísa Middleton saman stærstu og smæstu lífverum hafsins, hvölum og svifþörungum, og varpar ljósi á samspil þeirra. Sýninginí Loftskeytastöðinni kallast Hafið á öld mannsins, og hefur að geyma verk sem nú þegar hafa ferðast víða um heim. Víðsjá hitti Ingu Lísu við verkin og spurði út í vinnuferlið og innblásturinn, en við sögu koma þýskur efnafræðingur og breskir fagurkerar frá viktoríutímanum. Pétur Ben, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og ræðir lífið og listina, plötuna Painted Blue og komandi tónleika í Hljómahöllinni. Haukur Þorgeirsson málfræðingur og pistlahöfundur heldur áfram að ræða frænkur íslenskunnar. Að þessu sinni heyrum við af tengslum íslensku og sanskrít og hinum heilaga drykk sem ránfuglinn færði guðunum.
  • Spássían, Nýtt Eldhús eftir máli, Bob Dylan 21.09.2026 50хв
    Spássían nefnist haustsýning Hafnarborgar 2026. Sýningin felur í sér endurmat á möguleikum sýningarrýmisins, sem er gjarnan nálgast sem hlutlaus bakgrunnur, og skilgreinir það í staðinn sem virkan þátttakanda í sýningunni. Víðsjá ræðir við Daníel Ágúst Ágústsson, einn þeirra listamanna sem eru með verk á sýningunni. Sjöfn Hauksdóttir rýnir í leikverkið Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einarsson sem sýnt er í Kassanum um þessar mundir. Og við hugum að góðvini jafnt sem óvini þáttar Bob Dylan.
  • Vaka og Varkár 17.09.2026 54хв
    Ein af fyrstu bókunum til að flæða inn fyrir dyr ríkisútvarpsins í komandi jólabókaflóði er skáldsagan Varkár eftir rit- og danshöfundinn Margréti Bjarnadóttur. Verkið fjallar um þrána eftir því að eignast barn og þá miklu óvissu og ókyrrð sem fylgir því að missa fóstur. Margrét mun heimsækja okkur í hljóðstofu í síðari hluta þáttar og segja frá bókinni. Fyrst förum við uppeftir í Kópavog þar sem Þjóðlistahátíðin Vaka stendur yfir. Á morgun heldur þjóðlagahópurinn Umbra tónleika ásamt þremur norskum tónlistaramönnum, Ingrid Lingaas Fossen, Vegar Vårdal og Vegard Hansen. Víðsjá hitti nokkra úr því fríða föruneyti og fékk innsýn í heim norska hljóðfærisins langeleik.
  • Aldrei las ég Laxness / Heimsljós 16.09.2026 55хв
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga, og fylgir vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljós,/himinstjörnur tindra./Eina þreyi eg þig. Gestur Aldrei las ég Laxness er Bára Gísladóttir, tónskáld sem búsett er í Kaupinhavn. Við tengjumst landa á milli með hjálp nútímatækni og vísinda og ræðum verkið í bærilega góðu hljóði. Hins vegar verður aðeins fjallað um helming verksins í þættinum. Viðsjá mun því ljúka yfirferð á Heimsljósi næsta miðvikudag. Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
  • Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós 15.09.2026 52хв
    Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki. Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu Björnsdóttur, Glundroða, í heimagalleríinu 1.h.v. að Lönguhlíð 19 og rýnir í sýninguna í myndlistarpistli sínum. Þá leggur Halldór Guðmundsson rithöfundur línurnar fyrir bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness sem heldur áfram á miðvikudag. Halldór segir frá högum Halldórs á 4. áratug síðustu aldar þegar hann er að skrifa sín stærstu verk og forvitnast er um aðdraganda skáldsögunnar Heimsljóss sem verður á dagskrá bókaklúbbsins í Víðsjá á morgun.
  • Open og sýningarstjórnun 14.09.2026 59хв
    Víðsjá kemur við á gjörningi í Open, listamannareknu rými í vesturbænum, þar sem sýningin Lesbíur frá Agoo opnaði um helgina. Pétur Eggertsson ræðir við þær Karin Itturalde Nurnberg og Hildigunni Birgisdóttur um sýninguna. Við hugum að starfi sýningarstjórans. Daria Sól Andrews mun segja frá ferli sínum sem sýningarstjóri, rekja stöðu sýningarstjórnar hér á landi sem og afhjúpa þá margræðu möguleika sem leynast í starfinu.
  • Robert le Diable og Breadcrumbs 10.09.2026 50хв
    Fyrir tæpum 200 árum var frumflutt ópera sem hafði feykileg áhrif á tónlistarsöguna en er að mestu gleymd og vanrækt á okkar dögum: Robert le Diable eftir Giacomo Meyerbeer. Egill Arnarsson, ritstjóri, mun fjalla um óperuna í þltti dagsins og setja í samhengi við hina svokölluðu risaóperu (grand opéra) en það óperuform stóð í mestum blóma um 1830 til 1850. Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, segir frá upplifun sinni af verkinu Breadcrumbs eftir Jennifer Haley í leikstjórn Juliette Louste. En verkið er sýnt í Tjarnabíói um þessar mundir.

Популярний у

Цей подкаст також потрапляв у чарти подкастів у цих країнах.