Video rekkinn

Video rekkinn

Ragnar Aðalsteinn og Hildur Evlalía
Країна Ісландія
Мова IS
Епізодів 127
Останній 05.10.2026

Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau spjalla um lífið og tilveruna og ræða síðan nýjustu myndina sem þau sáu í Laugarásbíó, oft með hressilegum húmor. Hægt er að fylgjast með þættinum á Facebook-síðu Video Rekkans.

Епізоди

  • #126 Onslaught (2026), Coyote vs ACME (2026) og Digger (2026) 05.10.2026 1год 20хв
    Í þætti dagsins er eiginlega bara bíó. Við fjöllum um B+ myndina Onslaught, 80´s splatter thriller (ný mynd samt 😂 )sem engin aðdáandi slíkra mynda ætti að láta framhjá sér fara.Við fjöllum um Coyote vs ACME, eina skemmtilegustu fjölskyldumynd ársins. Síðast ekki síst fjöllum við um Digger, mynd sem virðist ætla að tvístra fólki í tvær fylkingar, meistarastykki eða hörmung! :) ATH það er algjörlega bannað að hlusta á þáttinn eftir mínútu 56 ef þú ert ekki búin að sjá Digger, BANNAÐ 🙈   Við viljum líka nota tækifærið og benda fólki á heimasíðuna okkar sem var að fara í loftið. En þar kennir ýmisa grasa, endilega kíkið á www.videorekkinn.is
  • #125 Borðaskipulag MH, The Invite (2026) og Primetime (2026) 28.09.2026 1год 8хв
    Í þætti dagsins fáum við til okkar góða gesti, en það eru MH-ingarnir Ragnheiður Gréta og Egill Arnarsson. Við fáum aðeins að skyggnast inn í MH lífið, fáum að kynnast borða skipulaginu og hvort týpuálagið sé mikið. En mestum tíma verjum við í að fjalla um bíómyndina Primetime. En sökum þess að aðeins þáttastjórnendur höfðu farið á The Invite í vikunni fékk hún aðeins minna rými en hún átti skilið í lok þáttar. 
  • #124 Sérstakur gestur Óskar Styrmir - Resident Evil (2026) 21.09.2026 1год 22хв
    Í þætti vikunnar fjöllum við um nýjustu Resident Evil-myndina, sem kom út fyrir skemmstu. Við treystum okkur ekki ein í þetta verkefni og fengum því mesta tölvuleikjasérfræðing sem við þekkjum í þáttinn til að hjálpa okkur að kryfja málin.
  • #123 Viðtal við Höskuld, leikstjóra Hvar er draumurinn og Pressure (2026) 14.09.2026 53хв
    Það er af nógu að taka í þessum nýjasta þætti Video Rekkans. Við byrjum þáttinn á stuttu viðtali við Höskuld Þór Jónsson, leikstjóra Hvar er draumurinn, en við fjölluðum einmitt um þá mynd í síðasta þætti. Við fjöllum einnig stuttlega um heimildarmyndina Þetta er ekkert mál sem nú fagnar 20 ára afmæli og er af því tilefni aftur komin í bíó. En mestum tíma verjum við í umfjöllun okkar um hina stórkostlegu bíómynd Pressure, eða Loftþrýstingur á íslensku, æsispennandi mynd um veðurfræðing sem bjargar mannslífum.
  • #122 Aftur næstum bara bíó og Tony (2026) og Hvar er draumurinn? (2026) 07.09.2026 51хв
    Þetta er orðið að nær vikulegum viðburði hjá okkur að skella sér tvisvar í bíó, og að þessu sinni tókum við fyrir Tony, sem fjallar um eitt sumar í lífi lífskúnstnersins Anthony Bourdain. Svo var ekki verra að hin myndin sem við sáum var ný, íslensk söngvamynd með lögum Sálarinnar hans Jóns míns, Hvar er draumurinn? En meira um þetta allt saman í nýjasta þætti Video Rekkans.
  • #121 Eiginlega bara bíó, Motor City (2026) og Um tímann og vatnið (2026) 31.08.2026 1год
    Að þessu sinni tekur Video Rekka tvíeykið fyrir tvær mjög ólíkar myndir sem voru frumsýndar í vikunni. Annars vegar Motor City, sem er tilraun til að gera 90mín hasarmynd án þess að talað sé í myndinni, hinsvegar fórum við á frumsýningu á nýrri íslenskri heimildarmynd, Um tímann og vatnið.
  • #120 Menningarnótt, berjamó og The End of Oak Street (2026) 24.08.2026 59хв
    Í þætti dagsins ræðum við nýafstaðna Menningarnótt, haustið sem er að fara að byrja og pökkun í ferðatösku. En mestu tíma verjum við í að fjalla um myndina The End of Oak Street, en þar til aðstoðar fáum við Bíófíkilinn Kjartans Rúnarsson.ATH að það koma spoilers frá 38 mínútu. 
  • #119 Í andakt yfir dumbung sólmyrkvans og One Night Only (2026) 17.08.2026 48хв
    Í þætti dagsins ræðum við stóru mál vikunnar sem nú er að líða, sólmyrkvann, Stjörnu-Sævar og ESB.Hildur er með stutt íslenskunámskeið fyrir Ragga og að lokum fjöllum við um rómantísku gamanmyndina One Night Only, en við höfðum sitthvað um hana að segja.
  • #118 Verslunarmannahelgi, Hinsegin dagar og Mamma Mia (2008) 10.08.2026 31хв
    Ekkert messufall í dag, bara smá sein, en í þessum extra stutta þætti ræðum við heima og geima eins og vanalega. Endilega kíki á þetta. En mynd vikunnar er Mamma Mia sem við fórum á í Bíó Paradís :) 
  • #117 Bæjarhátíðir, útilegur og Spider-Man: Brand New Day (2026) 03.08.2026 1год 3хв
    í þætti dagsins ræðum við útilegur, bæjarhátíðir og margt annað.En fyrst og fremst ræðum við nýjustu Marvel myndina Spider-Man: Brand New Day. Í lok þáttar förum við yfir það allra nauðsynlegasta sem þú þarft að horfa á áður en næsta Marvel veisla dettur í hús Doomsday.  
  • #116 Bæjarhátíðir, Bíó Paradís og Muriel's Wedding(1994) 27.07.2026 44хв
    Það var engin bíómynd frumsýnd á Íslandi í nýliðinni viku þannig Video rekka tvíeykið skellti sér á föstudagspartísýningu í Bíó Paradís og kultklassíkina Muriels Wedding.
  • #115 Bæjarhátíðir og meistaraverkið The Odyssey (2026) 20.07.2026 1год 17хв
    Í þætti dagsins höldum við yfirferð okkar um bæjarhátíðir áfram, við ræðum stóra tröppumálið en mestu tíma verjum við í hina epísku ræmu, The Odyssey.
  • #114 Bæjarhátíðir 2 kafli, ESB og Evil Dead Burn (2026) 13.07.2026 1год 2хв
    Í þætti dagsins ræðum við um þegar frægir hitta fræga, bæjarhátíðir um land allt næstu helgi. Við ræðum evrópusambandið á mjög grunnan máta en mestum tíma verjum við að ræða um nýjustu Evil dead myndina Evil Dead Burn.
  • #113 HM hornið, bæjarhátíðir og Minions & Monsters (2026) 06.07.2026 47хв
    Í þætti dagsins förum við á dýptina um bæjarhátíðir sem eru haldnar um allt land. Við ræðum HM í fótbolta og tölum svo smá um nýjustu Minions myndina, Minions & Monsters. Þetta er svona meira bæjarhátíðarþáttur þessa vikuna frekar en kvikmyndahlaðvarp 😂  
  • #112 Bæjarhátíðir og Supergirl (2026 29.06.2026 49хв
    Í þætti dagsins ræðum við bæjarhátíðir á Íslandi af mikilli ástríðu, aðallega af því að okkur finnst myndin sem við ræddum svo afspyrnu leiðinleg. En svona er þetta: nýr mánudagur, nýr þáttur
  • #111 HM í fótbolta, Cruise er góður maður og The Furious (2026) 22.06.2026 53хв
    Í þætti dagsins tölum við um 17 júní, æsta aðdáendur, HM í fótbolta og eina rosalegustu kung fu mynd sem þetta tvíeyki hefur nokkurn tíma séð. 
  • #110 Stöð 2 heimili, útilegur, Obsession og Disclosure day (2026) 15.06.2026 1год 46хв
    Sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum — og við erum tvöfalt fleiri en venjulega, svo við tökum okkur tvöfalt meiri tíma! Á dagskrá eru tjaldstæði, bíóhús og Obsession, en stærsta málið er nýjasta Spielberg-myndin, Disclosure Day!
  • #109 Listgjörningar, frægðarsól Jóhannes Hauks og Masters of the Universe (2026) 08.06.2026 1год
    Í þætti dagsins ræðum við listgjörninga, hetjur samtímans og hetju hvíta tjaldsins — He-Man! Mynd vikunnar er Masters of the Universe .
  • #108 Láréttur tjáningardans, BBQ hátíð, Útskriftir og Backrooms (2026) 01.06.2026 58хв
    Í þætti dagsins fjöllum við um Listahátíð í Reykjavík, grillhátíð í Reykjavík, útskriftir í Reykjavík en svo sögur af landsbyggðinni. Að lokum fjöllum við um sálræna tryllinginn sem er Backrooms.
  • #107 Á Magnús Hlynur heima í Landanum?- kosningaloforð, sól og The Mandalorian and Grogu (2026) 25.05.2026 1год
    Í þætti dagsins fjöllum við um nýliðnar kosningar og greinum ástandið aðeins. Við fjöllum einnig um mikilvægi sólarinnar og hversu vel Magnús Hlynur passar inn á Landann, sumir segja meira að segja að Landinn hafi verið stofnaður honum til höfuðs á sínum tíma.Að lokum fjöllum við um hina stórskemmtilegu Star Wars mynd The Mandalorian and Grogu, mynd sem ætti ekki að svíkja neinn. 

Популярний у

Цей подкаст також потрапляв у чарти подкастів у цих країнах.