Aldrei las ég Laxness
RÚV Hlaðvörp
0
Bókaklúbburinn Aldrei las ég Laxness hefur það markmið að lesa allar skáldsögur Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð og ræða þær með góðum gestum. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Umsjónarmenn eru Tómas Ævar Ólafsson og Silvía Sif Ólafssdóttir.
Епізоди
-
04: Salka Valka 15.05.2026 1год 41хвSalka Valka kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932. Sölku skrifaði Halldór Laxness fyrst sem hugmynd að kvikmynd á meðan hann dvaldi í Bandaríkjunum þar sem hann var í viðræðum við framleiðsluöflin í Hollywood um að gera kvikmynd um þessa sterku konu á buxum. Skáldsagan verður síðan til eftir að Halldór snýr aftur heim án kvikmyndasamnings og breytast þá drættir sögunnar umtalsvert en Salka Valka segir í mjög stuttu máli uppvaxtarsögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, á Óseyri við Axlarfjörð. Hún er lausaleiksbarn sem glímir við mikið mótlæti á heljarinnar umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar.Samlesari Sölku Völku í þessum þætti af Aldrei las ég Laxness er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari en inn á milli samtalsins verða einnig innlegg frá Ástu Kristínu Benediktsdóttur, bókmenntafræðingi, um hinsegin lestur á Sölku Völku sem og innlegg frá Unni Ösp Stefánsdóttur leikkonu, leikskáldi og leikstjórna, um leikgerð sem hún gerði við fyrri hluta sögunnar og vangaveltur um afdrif Sölku eftir sögulok bókarinnar.Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
03: Vefarinn mikli frá Kasmír 15.05.2026 1год 17хвVefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins.Vefarinn mikli frá Kasmír er umdeild bók. Stuttu eftir útgáfu birtust tvær frægir og mjög ósammála dómar um hana í sama tímariti annar rómaði hana með orðum eins og: „Loksins, loksins tilkomumikið skáldverk, sém ris eins og hamraborg upp úr flatneskju íslenzkrar ljóða- og sagnagerðar síðustu ára! Ísland hefir eignazt nýtt stórskáld.“ Hinn dómurinn súmmaði bókina upp í tvö orð: „Vélstrokkað tilberasmjör.“Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
02: Undir Helgahnúk 23.03.2026 1год 2хвUndir Helgahnúk kom út árið 1924. Verkið skrifaði Halldór Laxness í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið. Skáldsagan er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar, sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer í framhaldi að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur.Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans. Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:https://www.facebook.com/groups/1247768283945537Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
01: Barn náttúrunnar 20.02.2026 53хвÍ þessum þætti ræðum fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelm Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Популярний у
Цей подкаст також потрапляв у чарти подкастів у цих країнах.