Fram og til baka
RÚV
0
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi ásamt hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður og fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu. Að því loknu fær hann góða gesti í Fimmuna, þar sem þeir segja frá fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra. Um er að ræða dagskrá í umsjón Felix Bergssonar í hlaðvarpsformi.
Episodios
-
Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar 03.10.2026 1h 57mglæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson hefur náð frábærum árangri heima og heiman og selt ótrúlegan fjölda af bókum. Þessum ferli hafa fylgt ferðalög og Ragnar segir hlustendum Fram og til baka af fimm löndum sem hafa haft áhrif á hann og líf hans. Þar kennir sannarlega margra grasa þegar við förum frá Bútan til Seychelles eyja með viðkomu í heimalandi Agöthu Christie Í síðari hlutanum hyllum við afmælisbarnið Jake Shears og heyrum sögu glyshljomsveitarinnar Scissor Sisters. -
Adda Baldurs knattspyrnuhetja 26.09.2026 1h 57mFimma dagsins er frá Öddu Baldursdóttur knattspyrnukonu og sérfræðingi sem segir okkur af fimm leikjum sem breyttu lífinu. Og þeir leikir eru sannarlega af ýmsum toga, allt frá erfiðu tapi yfir í leiki sem færðu liðinu Íslandsmeistaratitil. Svo tölum við líka um allt hitt, fjölskyldulífið og fötluð börn. Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður það sem gerðist á deginum -
Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur 19.09.2026 1h 57mÞættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu merkilega safni. Gunnar Tómas var gestur Felix í Fimmunni að þessu sinni og talaði auðvitað um fimm kvikmyndir en spjallið fór um víðan völl að vanda. -
Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin 12.09.2026 1h 57mUppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar pælingar um lífið og tilveruna og hún var gestur Felix í Fimmunni. Hún talaði um fimm uppistönd sem breyttu lífinu og þar kenndi sannarlega margra grasa, allt frá fyrsta uppistandinu í London sem reyndist mikið frægðarför yfir í versta uppistand allra tíma í matsalnum í Borgarholtsskóla. Í síðari hlutanum fjallaði Felix um það sem gerðist á deginum -
Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins 05.09.2026 1h 57mBergur Ebbi Benediktsson hefur sent frá sér nýja bók um Öld ímyndunaraflsins og hann kom í Fimmu hjá Felix og ræddi fimm tölvur sem höfðu áhrif á líf hans og fjölskyldunnar. Spjallið fór eins og vera ber um víðan völl og við sögu komu ýmis ævintýri á magnaðri ævi. Í síðari hlutanum minntist umsjónarmaður látinna snillinga, Dolly Parton, Tim Curry og Freddy Mercury en hann hefði orðið áttræður í dag. Að auki koma Harpa Þorvaldsdóttir úr hljómsveitinni Brek í spjall með nýtt lag undir hendinni -
10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST 29.08.2026 1h 57mÞennan laugardaginn í Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín þá Snorra Þór Stefánsson og Hauk Örn Brink sem saman skipa dúettinn HAUSST, en þeir gáfu út sitt fyrsta lag nú á dögunum. Við ræddum við þá um tilkomu samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum. Þá fengu umsjónarmenn þáttarins líka góða heimsókn frá þeim Söru Rut Arnardóttur og Stefáni Gunnlaugi Jónssyni frá Improv Ísland. Þau fóru í saumana á því hvað spuni er og kynntu okkur fyrir dagskrá haustins hjá grínhópnum sem fagnar einmitt 10 ára afmæli þetta árið. -
Tónaflóð og enski boltinn 22.08.2026 1h 57mÍ þessum þætti af Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín sparkspekingana Kjartan Atla Kjartansson og Kristjönu Arnarsdóttur til að ræða enska boltann sem fór af stað um helgina. Svo er Menningarnótt haldin hátíðleg um helgina og Tónaflóð, tónleikar Rásar 2, verða á sínum stað á Arnarhóli. Þar kemur fram úrvalslið tónlistarmanna, þar á meðal JóiPé og Króli, sem kíktu í stúdíó til Nönnu og Felix þar sem þau ræddu til að mynda upphaf samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum. -
Töðugjöld á Hellu og hátíðir um land allt 15.08.2026 3h 17mFram og til baka tyllti niður fæti á Töðugjöldum á Hellum í þætti dagsins en Felix hitti gesti og gangandi í Íþróttahúsinu þar sem samfélaginu var boðið í morgunmat í tilefni af hátíðinni. Hafdís Sigurðardóttir Söring og Eiríkur V Sigurðsson settust hjá honum í spjall. Við heyrðum líka í Unni Birnu Bassadóttur sem tekur þátt í Blómstrandi dögum í Hveragerði og Nanna Guðrún hringdi í Kára Viðarsson á Hellissandi en þar stendur yfir mikil sólmyrkvahátíð. Að lokum skoðuðu umsjónarmenn kvikmyndir sumarsins og hámhorf haustsins með kvikmyndablaðamanninum Oddi Ævari Gunnarssyni. -
Hinsegin gleði, Leikur einn og Hvanneyrarhátíð 08.08.2026 3h 17mHinsegin dagar ná hápunkti um helgina og settu sinn svip á lagavalið í þætti dagsins hjá Felix og Nönnu. Í tilefni hátíðarinnar fengu þau til sín tónlistarmanninn Torfa sem ætlar einmitt að koma fram á Pride balli í Gamla bíó í kvöld ásamt Páli Óskari, Álfgrími og fleiri góðum gestum. Þá leit uppistandarinn og fræðarinn Sóley Kristjánsdóttir einnig við og ræddi við þau um ferilinn og spennandi verkefni á döfinni. Þá voru auðvitað fleiri hátíðir í gangi víða um land. Umsjónarmenn þáttarins hringdu vestur á Suðureyri í Elfar Loga Hannesson sem kemur að skipulagningu hátíðarinnar Act Alone sem fer fram um helgina. Þá slógu þau einnig á þráðinn hjá Ragnhildi Helgu Jónsdóttur sem sagði þeim frá Hvanneyrarhátíð sem fer fram um helgina. -
Neistaflug, Innipúkinn og Unglingalandsmót UMFÍ 01.08.2026 3h 17mVerslunarmannahelgin og íslensk tónlist var í hávegum höfð hjá þeim Felix og Nönnu í þætti dagsins. Þau slógu á þráðinn hjá Maríu Bóel Guðmundsdóttur sem er stödd í Neskaupsstað þar sem Neistaflug fer fram um helgina. Þá fengu þau til sín þau Kolbrúnu Óskarsdóttur og Hrannar Mána Ólafsson, Kusk og Óvita, í hljóðver en þau ætla að koma fram á Innipúkanum í kvöld. Þar verður líka Unnsteinn Manúel og félagar í Retro Stefson en umsjónarmenn þáttarins vöktu hann með símtali í morgunsárið og fengu að heyra af stemningunni í Vestmannaeyjum þar sem hljómsveitin spilaði í gær. Svo er líf og fjör á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðarkróki en Felix og Nanna heyrðu í Auði Ingu Þorsteinsdóttur sem kom að skipulagningu mótsins. -
Ódysseifskviða og Bræðslan á Borgarfirði Eystri 25.07.2026 3h 17mÍ þætti dagsins voru umsjónarmennirnir Felix og Nanna á sitt hvorum enda landsins. Nanna var á sínum stað í Efstaleitinu en Felix var staddur á Borgarfirði Eystri þar sem Bræðslan fer fram um helgina. Þangað fékk hann til sín góða gesti. Hann ræddi við Ásgeir Heiðar Áskelsson, skipuleggjanda Bræðslunnar og Jódísi Skúladóttur, fyrrverandi þingmann og formann Hinsegin hátíðarinnar á Austurlandi sem fer fram þessa dagana. Þá komu ekki síður góðir gestir í hljóðverið í Efstaleitinu. Þangað fékk Nanna til sín Sigrúnu Mathiesen, kvikmyndagerðarkonu sem sagði frá upplifun sinni af setti á tökum á kvikmyndinni The Odyssey sem var að hluta til tekin upp hér á landi. Strákarnir í Múr kíktu við og töluðu um væntanlegt tónleikaferðalag en þeir eru einnig að troða upp á lokakvöldi hátíðarinnar Rokk í Reykjavík í kvöld. Að lokum slógu umsjónarmenn á þráðinn hjá tónlistarmanninum Ásgeiri sem var einmitt á leið austur þar sem hann ætlar að koma fram á Bræðslunni. -
Þjóðhátíðarlögin og grasasnarnir í Jackass 18.07.2026 3h 17mÍ þessum þætti af Fram og til baka skoða Felix og Nanna hátíðir víða um land. Franskir dagar á Fáskrúðsfirði fagna 30 ára afmæli og í tilefni þess heyrðu þau í Alberti Eiríkssyni og ræddu hátíðina. Þau fengu til sín Bergsvein Arilíusson og fóru yfir árin með Pöpum sem koma fram á bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar um helgina. Það styttist í þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og í tilefni þess tóku umsjónarmenn snúning á þjóðhátíðarlögum. Þá kíkti til þeirra Margrét Júlía Ingimarsdóttir, eyjakona, sem hefur aldrei látið sig vanta í dalinn og ræddi meðal annars hvað gerir gott þjóðhátíðarlag. Að lokum fengu þau til sín blaðamanninn og menningarrýninn Magnús Jochum Pálsson sem fór með þeim yfir nýjustu og mögulega síðustu myndina í Jackass kvikmyndabálknum. -
Heimsmeistaramótið og hátíðir um land allt 11.07.2026 3h 17mUmsjónarmenn Fram og til baka kynntu sér hátíðir á landinu og ræddu við Áskel Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Landsmóts hestamanna sem fer fram þessa helgina á Hólum í Hjaltadal. Þá fengu þau til sín söngdívurnar Selmu og Hönsu sem ræddu samstarfið í gegnum árin og sumardjassinn á Jómfrúnni. Heimsmeistaramótið í fótbolta er á allra vörum þessa dagana og til þess að ræða fótboltann kíkti meðal annars Kári Tulinius, fótboltanörd, til þeirra í stúdíó sem hefur verið að skrifa skemmtilega fótboltapistla fyrir Guardian. Að lokum kíkti blaðamaðurinn Erla María Markúsdóttir við sem hefur fylgst grannt með heimsmeistaramótinu og rýndi meðal annars í töskusafn Erlings Haaland. -
Afmæli Bandaríkjanna og nýr umsjónarmaður 04.07.2026 3h 15mÁ fjórða júlí hófst nýr kafli í sögu Fram og til baka þegar þátturinn lengdist um rúma klukkustund og nýr umsjónarmaður Nanna Guðrún Sigurðardóttir settist við hljóðnemann með Felix. Gestur þáttarins, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, þekkir vel til í Bandaríkjunum og sagði af kynnum sínum af landi og þjóð. Þá vitnaði hún í hina 250 ára gömlu sjálfstæðisyfirlýsingu. Svo hringdu umsjónarmenn út um landið í Jóhannes Kristbjörn sem var með ísbíllin á Dalvík og Guðbjörgu Ríkey sem er að fara að gifta sig í Kjósinni. Fulltrúi þáttarins á erlendri grundu, Malín Eyfjörð Ægisdóttir var svo á línunni frá Hróarskeldu -
Fimman í frí og sumarstemmning 27.06.2026 1h 57mFram og til baka er í sumarskapi og Fimman var send í frí fram í lok ágúst. En Felix er á sínum stað og fylgist vel með því sem er að gerast um landið og miðin. Við heyrðum af því sem gerðist á deginum, hringdum í Hilmar Oddsson og heyrðum nýtt lag með Melchior. Svo var rætt um Sumarjazz á Jómfrúnni og beina útsendingu RÚV frá tónleikum Tómasar R Einarssonar og Bogomil Font í dag. -
Egill Andrason og árin sem mótuðu hann 20.06.2026 1h 57mSviðslistamaðurinn og tónlistarmaðurinn Egill Andrason hefur vakið mikla athygli fyrir ljúfa framkomu og dugnað á undanförnum árum og þeir sem fylgjast með leikhúsi upplifa að hann sé eiginlega í öllum verkum! Egill fann sér samt tíma til að koma í fimmu og tala um fimm ártöl sem mótuðu hann. Samtalið fór víða og árunum fylgdi tónlist. Í síðari hluta þáttarins hringdi Felix í dúx ME, Ínu Berglindi Guðmundsdóttur, en hún er líka tónlistarkona og hefur nýlega sent frá sér sitt fyrsta frumsamda lag. Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum. -
Sigurður Flosason og kennararnir 13.06.2026 1h 57mKennarar eru Sigurði Flosasyni tónlistarmanni hugleiknir en hann hefur mörgum kennt í gegnum árin. Fimman hans fjallaði um kennara sem hafa haft djúp áhrif á líf hans og leikurinn berst frá lúðrasveitum og Tónmenntaskólanum í Reykjavík til Bandaríkjanna, Indiana og New York. Svo heiðrum við afmælisbörn dagsins og skoðum hvað gerðist á deginum -
Hreimur Örn smurði samlokur til að sjá stjörnurnar 06.06.2026 1h 57mHreimur Örn Heimisson er einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar og gleður enn með nýrri tónlist og spilamennsku um allt land. Hreimur gaf sér tíma til að kíkja í morgunkaffi í Fram og til baka og tala um fimm tónleika sem höfðu djúp áhrif á líf hans. Sagan berst úr Landeyjunum þar sem Sálin var í heimsókn um víðan völl og endar á tónleikum með Paramore í London. Í síðari hluta þáttarins kemur Jakob E Jakobsson vert á Jómfrúnni í heimsókn en Sumardjazzinn dásamlegi er að fara í gang í dag og RÚV ætlar að fylgjast vel með í sumar. -
Lára Sóley listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík 30.05.2026 1h 57mHúsvíkingurinn Lára Sóley Jóhannsdóttir er komin með mikla reynslu af stjórnun menningarviðburða þrátt fyrir ungan aldur og starfar nú sem listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hennar fyrsta hátíð er einmitt að byrja í dag og Lára Sóley kom í fimmu í tilefni dagsins. Þar ræddi hún fimm listviðburði sem hafa haft áhrif á líf hennar og það fór frá Tónlistarveislu á Húsavík yfir í Víking Heiðar á Proms Svo hringdum við í Samúel Jón Samúelsson en hann á stórt tónverk með 500 krakka lúðrasveit á opnunarhátíð Listahátíðar í dag -
Finnbogi Pétursson myndlistarmaður 23.05.2026 1h 57mFinnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins á dögunum og þótti sýning hans í Hveragerði, Skjálfti, skara fram úr. Í umsögn dómefndar sagði: "Finnbogi vann hugmyndina að verkinu með tengdaföður sínum, jarðskjálftafræðingnum Ragnari Stefánssyni, sem jafnan var kallaður skjálfti. Þeir hugðust vinna með jarðfræðilega virkni Hveragerðis, meðal annars með tæki sem Ragnar hafði þróað. Áður en hugmyndin að sýningunni var fullunnin lést Ragnar en til að heiðra minningu hans kom Finnbogi eldrauðu duftkeri fyrir í rýminu og vísar þannig í nærveru ástvinar." Finnbogi kemur í fimmu og talar um fimm vörður í lífinu sem breyttu öllu.
Popular en
Este podcast también aparece en las listas de podcasts de estos países.