Ellefu Bíó
Sharkfood Inc.
0
Hugleikur Dagsson fær til sín góða gesti og spyr þau 11 spurninga um mikilvægustu bíómyndirnar í lífi þeirra.
ตอน
-
33: Reynir Lyngdal 16.04.2026 1ชม. 30นาทีLeikstjórinn Reynir Lyngdal læddist í Ellefu hellinn og spjallaði um þær helstu kvikmyndir sem hafa kitlað hann á einn eða annan hátt í gegnum lífsgönguna.
-
32: Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir 09.04.2026 1ชม. 18นาทีAnimation drottningin og heims-skaparinn og Ormhildarsagnaritarinn Þórey Mjallhvít fór yfir helstu kvikmyndir sjálfs síns með Hulla.
-
31: Einar Baldvin Arason 01.04.2026 1ชม. 26นาทีHÆSTvirti leikstjórinn Einar Baldvin Arason tjattar við Hugleik um sín markverðustu ræmugláp. Tékkið á HÆST í sjónvarpi Símans.
-
30: Krummi Björgvinsson 26.03.2026 1ชม. 16นาทีKrummi og Hulli tala um kvikmyndir eins og þeir hafa aldrei gert annað.
-
29: Rán Flygenring 19.03.2026 1ชม. 16นาทีTeiknarinn og höfundurinn Rán Flygenring tjattaði við Hullsuna um allskonar sem við kemur hreyfiræmum hennar lífs.
-
28: Karen Briem 12.03.2026 1ชม. 24นาทีBúningahönnuðurinn, listakonan og megabeiban Karen Sonja Mayen Briem deilir sínum mikilvægustu kvikmyndatitlum með manninum sínum.
-
27: Hannes Óli Ágústsson 05.03.2026 1ชม. 29นาทีHugleikur spjallar við stórleikarann og kvikmyndaunnandann Hannes Óla um allar myndirnar sem skipta einhverju máli!
-
26: Emil Hjörvar Petersen 13.11.2025 1ชม. 25นาทีVísindaskáldið, Hryllingshrottinn og draumavefjarinn Emil Hjörvar Petersen fór á kvikmynda-trúnó með Hulla í hlaðvarpsholunni.
-
25: Jóhann Alfreð Kristinson 06.11.2025 1ชม. 20นาทีHinn mikli Jóhann Alfreð, grínistinn með gullhjartað, kom sér fyrir í kastkitrunni hans Hulla og fór yfir ellefubíó listann.
-
24: Sigtryggur Baldursson 30.10.2025 1ชม. 11นาทีKjuðakitlarinn, kátínuspreðarinn og spékoppasportarinn Sigtryggur Baldursson hlammaði sér í fangið á Hulla og fabúleraði eins og honum einum er lagið um kvikmyndir tilveru sinnar.
-
23: Gagga Jónsdóttir 24.10.2025 1ชม. 6นาทีLeikstjórinn, höfundurinn og framleiðandinn Gagga Jóns settist í kitruna hans Hulla Dags og spekúleraði um eftirminnilegustu og athyglisverðustu kvikmyndirnar að sínu mati.
-
22: Króli 16.10.2025 1ชม. 21นาทีSviðslistamaðurinn og rímnagjammarinn Kristján Óli Haraldsson kom sér fyrir andspænis Hullanum og ræddu um þær ræmur sem einhverju máli skipta.
-
21: Friðgeir Einarsson 09.10.2025 1ชม. 25นาทีFriðgeir í Kriðpleir spjallaði við Hugleik í Ellefu Bíó um Ellefu bíómyndir (plús fleiri) sem ein eða önnur áhrif hafði á hann.
-
20: Níels Thibaud Girerd 02.10.2025 1ชม. 25นาทีNilli og Hulli eiga saman góða samræðustund um allskonar bíómyndir og það er gaman.
-
19: Andrea Jóns 25.09.2025 1ชม. 6นาทีPlötusnúður Íslands ræddi við Hugleik um allar þær kvikmyndir sem einhverju máli skipta.
-
18: Snorri Helgason 17.09.2025 1ชม. 17นาทีLilla Snorran tittade på Lilla Hullan och pratade om allskonar skemmtilegt bíó. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
-
17: Benni Hemm Hemm 12.09.2025 1ชม. 27นาทีTónlistarmaðurinn og ljúflingurinn Benedikt Hermann Hermannsson kom sér fyrir í kastkitru Hulla litla og hvíslaði að honum sínum helstu vangaveltum hvað kvikmyndir varðar.
-
16: Sóley Kristjánsdóttir 04.09.2025 1ชม. 19นาทีGrínistinn Sóley Kristjánsdóttir, fánaberi miðaldursins, þylur sínar helstu kvikmyndaupplifanir í hlaðvarpskompu Hulla.
-
15: Jóhann Ævar Grímsson 05.06.2025 1ชม. 23นาทีHefnandinn og höfundurinn Jóhann Ævar Grímsson, AKA ÆvorMan, AKA GrímsÆvintýrið, AKA Ævar hinn Grái býður Hulla heim til sín og ræðir við hann um ellefu mikilvægustu myndirnar í lífi sínu ásamt vörubílsfarmi af honorary mentions.
-
14: Emmsjé Gauti 22.05.2025 1ชม. 27นาทีÞjóðskáldið Gauti Þeyr Másson sækir Hulla heim í hlaðvarpshreiðrið og fer gaumgæfilega yfir smekk sinn hvað kvikmyndir varðar.
ยอดนิยมใน
พอดแคสต์นี้ปรากฏในชาร์ตพอดแคสต์ของประเทศเหล่านี้ด้วย