Morðcastið

Morðcastið

Unnur Borgþórsdóttir
Country USA
Genres True Crime, Comedy
Language IS
Episodes 327
Latest 28.05.2026

Morðcastið er podcast þar sem fjallað er um íslensk og erlend sakamál á léttum nótum.
Þátturinn kemur út á hverjum fimmtudegi.

Til að hafa samband:
mordcastid@gmail.com
instagram.com/mordcastid
twitter.com/mordcastid

Episodes

  • Orð dagsins er: Bílstjóri 28.05.2026 42m
    Góðan daginn, miðvikudaginn.  Í dag fer Bylgja með okkur til Noregs hvar rútuferð fer úrskeiðis. Ekkert bílslys, en margar aðrar uppákomur.  Góðan daginn, miðvikudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til draumalandsins Noregs, hendir okkur upp í rútu sem endar síðan í bústað hjá gamalli konu.  Reyndar ekki hjá öllum - því miður.  Þolandi: Audun Bøland Gerandi: Ónefndur aðili Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate, Fulltingi og Giggó.
  • Orð dagsins er: Varalitur 21.05.2026 1h 8m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Chicago og segir okkur frá morðingja sem vill ekkert heitar en að láta stoppa sig. Þó varla, af því hann heldur áfram að drepa.    Algjörlega ruglað mál, algjörlega vanhæf lögregla.  Þáttur dagsins er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Fulltingi, Nettó og Giggó.   Gerandi: William Heirens  Þolendur: Josephine Ross, Francis Brown og Suzanne Degnan.
  • Orð dagsins er: Doktor 13.05.2026 49m
    Í dag segir Bylgja frá mikið lærðri konu, geðstirðri og óþægilegri í samskiptum. Framtíðin fer ekki alveg eins og hún sá fyrir sér svo einn daginn ákveður hún að þetta sé komið gott.  Margt skrítið gerist, ýmislegt hræðilegt, allt merkilegt. Gerandi: Amy Bishop Þolendur: Gopi Podila, Maria Ragland Davis, Adriel D. Johnson Sr. og kannski bróðir hennar Seth.  Þátturinn var í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og Fulltingi.  Fyrir óklippta þætti, í mynd og áskriftarþætti þá mælum við með að kíkja inná www.pardus.is/mordcastid  
  • Orð dagsins er: Víngerð 06.05.2026 48m
    315. Orð dagsins er: Víngerð Í þætti dagsins segir Unnur okkur frá algjörum hrotta, mögulega þeim versta sem við höfum heyrt af hingað til. Hann hefði gjarnan mátt halda sig við víngerðina og frá vopnunum, en því miður tekur hann svakalega margar hörmulegar ákvarðanir í lífinu. Mikið kaos, margt hræðilegt. Þátturinn var í boði Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Fulltingi. Gerandi: Ramón Bojórquez Salcido Þolendur: Angela, Sofia, Carmina og Teresa Salcido. Marion Louise, Ruth og Maria Richard og Tracy Toovey.
  • Orð dagsins er: Barnapíutæki 30.04.2026 49m
    Góðan daginn, fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur um víðan völl, aðallega samt til fortíðar í gamlan þátt hjá Unni, en það er bara gaman. Þátturinn er í boði: Ristorante, Happy Hydrate, Nettó og Fulltingi
  • Orð dagsins er: Rúm 23.04.2026 50m
    Góðan daginn, fimmtudaginn. Þáttur dagsins á sínar hæðir og lægðir, margt hræðilegt en sumt betra.  Unnur segir okkur frá máli þar sem maður fær þráhyggju fyrir skólastelpu, eltir hana heim og rænir henni.  Merkilegt, hræðilegt, ömurlegt og frábært allt í senn.  Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Happy Hydrate og Fulltingi.  Þolandi: James, Denise og Jayme Closs. Gerandi: Jake Thomas Patterson.
  • Orð dagsins er: Voodoo 16.04.2026 47m
    Góðan daginn, fimmtudaginn.  Það er rétt rúmlega hörmungin í dag þegar að Bylgja fer með okkur til Bandaríkjanna og segir okkur frá fjölskylduföður sem tekur margar hræðilega slæmar ákvarðanir. Sumt virðist frábært, en líkt og blómin heima hjá Bylgju þá var allt á hraðri niðurleið. Þáttur dagsins var í boði Nettó, Ristorante, Fulltingi, Happy Hydrate og Weetabix. Óklipptan þátt og í mynd má finna inná www.pardus.is/mordcastid Gerandi í þætti dagsins: Mesac Damas Þolendur: Guerline, Meshach, Marven, Maven, Megan og Morgan Damas.     
  • Orð dagsins er: Kaos 09.04.2026 49m
    Góðan daginn, fimmtudaginn.  Þáttur dagsins er kaótískur í meira lagi. Bylgja ætlaði að segja okkur mál sem kom síðan í ljós að Unnur sagði árið 2022. En það var allt í lagi, af því að í staðinn fáiði að hlusta á Unni segja Elínu frá málinu sem tekið var fyrir í live þættinum á Akureyri.  Skítredding af bestu gerð! Þátturinn var í boði Fulltingi, Nettó, Happy Hydrate og Ristorante.  Fyrir enn kaotískari og óklipptan vikuþátt getiði farið inná www.pardus.is/mordcastid.  Gerandi: Stephen Christopher Stanko Þolendur: Laura Ling og Henry Turner.
  • Orð dagsins er: Píanó 02.04.2026 42m
    Góðan daginn, fimmtudaginn.  Við erum stödd í Squamish í Bresku Kólumbíu í Kanada í dag og Unnur segir okkur frá barnastjörnu sem gerði garðinn frægan í Riverdale, en varð síðan enn þekktari fyrir margfalt alvarlegri hlut. Alveg hrikalega sorglegt og ömurlegt mál í dag. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Happy Hydrate, Nettó, Weetabix og Fulltingi. Óklipptan þátt vikunnar, áskriftarleið og ýmsa aðra þætti getið þið fundið inná www.pardus.is/mordcastid Gerandi: Ryan Grantham Þolandi: Barbara Waite
  • Orð dagsins er: Winston 26.03.2026 54m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Gjaldkeri í banka og bílasali ganga lífið hönd í hönd með eina dúllu sér við hlið.  Bylgja segir sögu ungra hjóna sem eiga lífið framundan og allt er æði. En svo fer annað þeirra út á lífið með vinnufélaga og allt fer í handaskolum. Þáttur dagsins var í boði Nettó, Happy Hydrate, Ristorante og Anamma. Óklipptan þátt getiði fundið inná www.pardus.is/mordcastid Gerandi: Reginald Reed Þolandi: Selonia Reed
  • Orð dagsins er: Öskubuska 19.03.2026 44m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur alla leið til Rússlands, aftur, en í þetta skiptið segir hún frá fjölskylduföður sem finnst látinn á heimili sínu. Hið ógeðslegasta og ömurlegasta mál, og mörgum spurningum ósvarað. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Weetabix. Óklipptan þátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid Gerendur: Krestina, Angelina og Maria Khachaturyan Þolandi: Mikhail Khachaturyan
  • Orð dagsins er: Úsbekistan 12.03.2026 40m
    Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Yndislegur smiður og fjölskyldufaðir fer í æðislega norðurljósaferð á kayaknum sínum.  Lætur eiginkonu sína vita seint og illa, en svo fer einhvern vegin allt í pat.  Þáttur dagsins er í boði Anamma, Happy Hydrate, Nettó og Ristorante. Þolandi og gerandi: Ryan Borgwardt
  • Orð dagsins er: Gúllas 05.03.2026 38m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins förum við til Rússlands og Unnur segir Elínu frá máli sem gestir 5 ára afmælis Morðcastsins hafa nú þegar heyrt. Virkilega áhugavert mál og ómögulegt að deila ekki með fleirum, en í þætti dagsins daga tveir rokkarar alveg hrottalegar ákvarðanir í staðinn fyrir að fá sér bara einn kebab t.d. Þáttur dagsins er í boði Ristorante, Weetabix, Nettó og Happy Hydrate. Óklipptan þátt og áskriftarþætti má finna inná www.pardus.is/mordcastid Þolandi: Karina Barduchyan Gerendur: Maxim Golovatskikh og Yury Mozhnov
  • Orð dagsins er: Maðkur 26.02.2026 59m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Bylgja frá einu ótrúlegasta máli sem við höfum heyrt af, í öllum þessum þáttum! Ung kona lendir í flugslysi og lifir af í fjölda daga í Amazon, gleraugnalaus og í einum skó. Alveg ótrúlegt og margfalt meiri seigla en flest okkar hafa að geyma. Þáttur dagsins var í boði Nettó, Happy Hydrate, Ristorante, Dineout og Anamma. 
  • Orð dagsins er: Símhringing 19.02.2026 1h 3m
    Góðan daginn, fimmtudaginn. Í dag, sem oftar, erum við staðsett í Bandaríkjunum. Það gerast margir hræðilegir hlutir, margar undarlegar ákvarðanir eru teknar en ótrúlegt en satt eru líka góðir og jákvæðir hlutir sem gerast. Sem er alltaf frábært. Þáttur dagsins er í boði: Dineout, Nettó, Ristorante, Weetabix og Happy Hydrate  
  • Orð dagsins er: Blý 12.02.2026 57m
    Í Bandaríkjunum (WHAT?!?!) verður æðislega sæt, góð og dugleg stelpukona ofsalega veik. Rætt er um hræringa og fæðubótarefni, leiðinlegar tengdamæður og jólahátíðir. Ásamt vangaveltum um það hvort kírópraktorar eru læknar eða miðlar. Kaos og kjaftæði alla daga. Þáttur dagsins er í boði Anamma, Nettó, Happy Hydrate, Ristorante og Dineout
  • Orð dagsins er: Endurbætur 05.02.2026 48m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur til Bandaríkjanna eins og eiginlega alltaf, í raunveruleikasjónvarp og í sturtu. Ekkert af þessu gott og hefur hræðilegar afleiðingar í för með sér. Kona er frábær, maður er vondur - við höfum heyrt þetta alltof oft.  Þáttur dagsins var í boði Ristorante, Happy Hydrate, Weetabix, Nettó og Dineout.  Fyrir óklippta þætti degi fyrr ásamt áskriftarþáttum og öðru aukaefni bendum við á www.pardus.is/mordcastid
  • Orð dagsins er: Blaðakona 29.01.2026 53m
    Góðan daginn, fimmtudaginn Í þætti dagsins hverfum við aftur til fortíðar í margskonar skilningi orðsins. Unnur segir frá máli sem gerist í Bandaríkjunum árið 1997 þegar ung háskólastelpa var myrt og málið er óleyst í fjölda ára, en þátturinn sjálfur var jafnframt tekinn upp fyrir einhverju síðan. Þáttur dagsins er í boði Happy Hydrate, Ristorante, Nettó og Weetabix. Kíkið inná www.pardus.is/mordcastid fyrir óklippta þætti, áskriftarþætti og annað blaður.
  • Orð dagsins er: Sýra 22.01.2026 56m
    Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur til Bandaríkjanna (sjokker) og segir ykkur frá algjörlega hrikalegu máli. Margir ungir menn taka mjög misgáfulegar ákvarðanir með vægast sagt hræðilegum afleiðingum. Þáttur dagsins er í boði Nettó, Ristorante, Happy Hydrate og Weetabix
  • Orð dagsins er: Peggarar 15.01.2026 41m
    Í Winnipeg logar heldur glatt í heilu húsi og það virðist eiga rætur að rekja til konu sem hatar tengdamóður sína.  Þátturinn er í boði Ristorante, Nettó, Anamma og Happy Hydrate.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.