Með lífið í lúkunum

Með lífið í lúkunum

HeilsuErla
Country Iceland
Language IS
Episodes 161
Latest 23.10.2026

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð áhrif á samferðafólk sitt. Markmiðið er að skapa rými fyrir einlægt og opið spjall til þess að kynnast sem fjölbreyttustum leiðum til þess að huga að heilsunni, t.d. varðandi geðheilsu, líkamlega heilsu, mataræði, svefn, raddheilsu, tannheilsu, fjárhagslega heilsu, sköpunargleði, kynheilbrigði og margt fleira.

Episodes

  • 130. Dugnaður drepur. (Heilsuorlof, ofurkonan, mygla og leitin að heilsunni). Guðrún Hafþórs 23.10.2026 1h 29m
    Í þessum þætti ræðir Erla við alveg hreint dásamleg stelpukonu, Guðrúnu Hafþórs, um lífið og tilveruna, heilsumissi, streitu, myglu, áhrif áfalla, leitina að heilsunni, um ofurkonuna og dugnaðinn sem drepur! Á Instagram síðu sinni deilir Guðrún raunveruleikanum á einlægan og hispurslausan hátt undir slagorðinu „vott jú sí is vott jú get“. Þar fjallar hún um lífið eins og það er í heilsuorlofi, bæði hæðir og lægðir og reynir að smita gleði og dreifa glimmeri. Þessi þáttur er einnig í mynd og v...
  • Eru skjáir að ræna okkur félagslegum töfrum? Viðar Halldórsson (Heilsumoli 50) 15.10.2026 39m
    Í þessum Heilsumola ræðir Erla við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands um nýju bókina hans “How Digital Screen Use Alienates Human Societies: A treatise on social magic and its decadence”. Bókin fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar og varpar ljósi á þá þversögn hvernig fjölbreyttari og víðtækari samskiptahættir hafa stuðlað að auknu samskiptaleysi og firringu, sem birtist meðal annars í auknum einmanaleika og angist, pólariseringu og á...
  • 129. Þú getur ekki hafnað þér til heilsu. Guðni Gunnarsson 09.10.2026 1h 22m
    Í þættinum ræðir Erla við Guðna Gunnarsson um vitund, athygli, ábyrgð, viðnám, höfnun, þakklæti og hvað þarf að gera til þess að vera virkur þátttakandi í eigin lífi. Guðni hefur verið áberandi í umræðunni um heilsu, hreyfingu, jóga og sjálfsrækt um árabil. Guðni sem notar íslenskuna svo fallega með skilgreingum á orðum sem við notum hugsunarlaust, hefur meðal annars skrifað bækurnar Máttur athyglinnar, Máttur viljans og Máttur þakklætis. Hann hefur í gegnum tíðina talað mikið um athygli, áby...
  • 128. Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum? Kristján Þór Gunnarsson 25.09.2026 1h 49m
    Í þættinum ræðir Erla við Kristján Þór Gunnarsson, heimilislækni um áhrif lífsstíls á heilsu, samfélagssjúkdóma, skaðsemi gjörunninna matvæli á almenna heilsu, næringarlæsi, stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og hver eða hvað ber ábyrgð á versnandi heilsu þjóðarinnar, hvernig við getum mögulega snúið þeirri þróun við og um leið fjölgað heilbrigðum æviárum. Erla og Kristján ræða einnig um heildræna heilsu og hvernig þættir eins og svefn, mataræði, hreyfing, streitustjórnun, félagsleg s...
  • 127. Að virða ekki eigin mörk endar með kulnun. (Kærleikur, umhverfisvernd, hormónaraskandi efni og meðvitund). Heiðrún Birna Rúnarsdóttir. 12.09.2026 1h 30m
    Í þættinum ræðir Erla við Heiðrúnu Birnu Rúnarsdóttur. Heiðrún hefur verið ötull talsmaður fyrir umhverfisvernd og er stofnandi og eigandi Grænu stofunnar sem er eina umhverfisvottaða hárgreiðslustofan á Íslandi. Þær stöllur ræðu um áhrif þess að alast upp í sveit, hvaðan áhuginn og virðingin fyrir umhverfinu spratt, hvernig gildi okkar geta verið leiðarvísir í lífi og starfi og hve mikilvægt það er að setja sér og öðrum mörk. Við ræddum einnig um muninn milli á umhverfisvottaðra vara o...
  • Kvennakvöld HeilsuErlu (Heilsumoli 49) 10.09.2026 5m
    Kvennakvöld HeilsuErlu í samstarfi við Femarelle og Nutrilenk verður haldið á Spírunni í Garðheimum laugardaginn 10.október. Þetta verður ekkert venjulegt kvöld… því get ég lofað. 😉 Hlátur. Fræðsla. Tónlist. Matur. Stemmning. Miðasala er hafin hér. Húsið opnar kl.18:15 Fordrykkur og kvöldmatur* innifalinn. Formleg dagskrá hefst kl.19 og lýkur um kl.22. Erla Guðmundsdóttir- Heildræn heilsaEdda Björgvins- Húmor og heilsaElísabet Reynis- Næring og heilsaHalldóra Skúla- Hormónar og heilsaKvöldi...
  • Sterkur september- heilsuáskorun (Heilsumoli 48) 05.09.2026 4m
    Langar þig að koma þér aftur í þínar góðu venjur eftir sumarfrí og þarft smá aðhald? Taktu þátt í Sterkum september og nærðu þig andlega, líkamlega og félagslega sterkur líkami 💪🏻 sterkur hugur 🧠 sterk næring 🌱 sterk tengsl 🫶 = Sterk heild! Taktu þátt! Þetta er afar auðvelt. Hér er hlekkur á sniðmátið af áskoruninni.Prentaðu út blaðiðSkrifaðu inn þær venjur sem þig langar að tileinka þér í september. (1-10 venjur)Merktu við daglega. Þetta snýst ekki um fullkomnun, bara að gera sitt besta ...
  • 126. Að treysta líkamanum aftur. (Saga um meiðsli, mótlæti, seiglu og sjálfsmynd). Sara Sigmundsdóttir 30.08.2026 2h 29m
    Í þessu viðtalið ræðir Erla við Söru Sigmundsdóttur afrekskonu í CrossFit um ótrúlega þrautargöngu hennar síðastliðin ár. Saga Söru snýst alls ekki bara um CrossFit heldur einnig um meiðsli, mótlæti, seiglu, pressu, sjálfsmynd, andlegt þol og það að læra að þekkja sjálfa sig og treysta líkama sínum aftur. Síendurtekin meiðsli og mótlæti hafa breytt sýn hennar á lífið og hún hefur nú fundið nýjan tilgang. ✨ Settu 10.október í dagatalið! ✨ Kvennakvöld HeilsuErlu á Spírunni. Það ve...
  • 125. Fordómar þrífast í þögninni. (Fíkn, jaðarsetning, meðvirkni, viðhorfsbreyting, meðvitund og von). Hlynur Kristinn Rúnarsson 16.08.2026 1h 11m
    Í þessum þætti ræðir Erla við Hlyn Kristinn Rúnarsson, pabba, lögfræðing, fíkniráðgjafa og stofnanda félagasamtakanna Það er Von um fíkn, hvað hún er í raun og veru, hvernig hún getur haft áhrif á einstaklinginn sjálfan og fólkið í kringum hann og hvers vegna við þurfum að tala um hana með meiri skilningi og minni skömm. Þetta er ekki auðveld umræða en hún er mikilvæg. Ég vona að þetta samtal veki upp samkennd og skilning en kannski fyrst og fremst minnki fordóma. Takk til ykkar sem hlusti...
  • 124. Konur eru alls konar. (Áhrif næringar, svefns, streitu, álags og endurheimtar á frammistöðu og heilsu). Lára Hafliðadóttir. 11.08.2026 1h 13m
    Í þættinum ræðir Erla við Láru Hafliðadóttir um konur í íþróttum og áhrif næringar, svefns, streitu, kvenheilsu, álags og endurheimtar á frammistöðu og almenna heilsu, bæði andlega og líkamlega. Þær stöllur ræða um alls kyns mýtur varðandi þjálfun og hreyfingu, hvort að það sé munur á konum og körlum, hvort að æfa þurfi á mismunandi hátt eftir því hvar konar er stödd í tíðarhringnum, hvernig æfingar henta á breytingarskeiði og fleira. Á vef verkefnisins má finna fjölda faglegra fræðslum...
  • Hugleiðingar um venjur - ertu fórnarlamb eigin væntinga? (Heilsumoli 47) 04.08.2026 17m
    Hlaðvarpið er orðið 3 ára og Season 4 er mætt. TAKK öll fyrir að hlusta! Í þessum heilsumola velti ég upp spurningunum: Af hverju er svona erfitt að breyta venjum? Hvernig get ég gert góða hegðun auðveldari og slæma hegðun erfiðari? Hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að byrja? Hvernig verður eitthvað að venju? Venjur móta líf okkar meira en við gerum okkur grein fyrir. Við hugsum oft um stórar ákvarðanir sem það sem mótar lífið okkar. Hvar við búum. Hvað við lærum. Hvaða starf við veljum en í r...
  • 123. Ekki láta samviskubitið éta þig. (Uppeldi, mörk, samskipti, skjánotkun og hegðunarvandi). Jasmín Guðrún Abu Libdeh 25.07.2026 1h 24m
    Í þessum þætti ræðir Erla við Jasmín Guðrúnu foreldraþjálfa um samskipti, uppeldi, skjánotkun, mörk, tengsl, samviskubitið fræga og áhrif þess á velferð og heilsu barna. Virkiega skemmtilegt og fræðandi spjall. Þið finnið Jasmín á TikTok þar sem hún setur inn alls konar fræðsluefni og er einnig nýbyrjuð með hlaðvarpið Orlofið þar sem rætt er um foreldrahlutverkið af einlægni. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. HeilsuErla mælir mikið með vörum frá New...
  • Það er ekki til hættulaus kyrking! María Hjálmtýsdóttir. (Heilsumoli 46) 15.07.2026 19m
    Í þessum heilsumola kom hún María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari í spjall til Erlu til að ræða um nýtt átak og vitaundavakningu varðandi hættu kyrkinga, en átakið ber sama heiti og hlaðvarpið og vakti því sérstakan áhuga minn. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að ky...
  • 122. Spilafíkn er dauðans alvara. (Kvíði, þunglyndi, skömm og sjálfsvígshugsanir). Börkur Reykjalín Brynjarsson 10.07.2026 1h 4m
    Nýlega settumst við Börkur Reykjalín Brynjarsson niður og ræddum um kvíða og þunglyndi, burnout, spilafíkn, skömm, sjálfsvígshugsanir og fleira. Hann segir í viðtalinu á einlægan hátt frá fallegri en sorgleg lífsreynslu þegar hann leitaði til Píeta samtakanna eftir að lífið hafði leikið hann grátt. Berki finnst mikilvægt að ræða opinskátt um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Það er skömmin sem dregur allt of marga til dauða en einungis 10% þeirra sem eru með spilafíkn leita...
  • 121. Það velur enginn að vera með offitu. (Sjúkdómurinn offita, megrunarmenning, matarsuð, átkastaröskun og fordómar). Rut Eiríksdóttir 27.06.2026 1h 6m
    í þættinum ræðir Erla við Rut Eiríksdóttur hjúkrunarfræðing um sjúkdóminn offitu. Rut segir frá megrunarmenningu í æsku, erfiðum bróðurmissi og hvers vegna hún stofnaði SFO samtök fólks með offitu. Þær stöllur ræða um skilgreininguna á sjúkdómnum, hlutverk erfða og umhverfis, matarsuð, átkastaröskun og fordóma. Rut hefur glímt við offitusjúkdómin frá barnæsku og alin upp í megrunarmenningu. Aðeins þrettán ára gömul þróaði Rut með sér átröskun og eftir að hafa barist áfram í áraraðir og ...
  • Djúpslökun 2 (Heilsumoli 45) 19.06.2026 33m
    Ég fékk ósk um að gera Djúpslökun án undirspils/tónlistar og varð að sjálfsögðu við þeirri beiðni. Í amstri dagsins er nauðsynlegt að gefa sér tíma til þess að ,,hlaða batteríin" okkar reglulega, bæði andlega og líkamlega. Við pössum flest að ræftæki okkar séu hlaðin fyrir daginn enn munum við eftir því að hlaða okkur sjálf? Til eru margar leiðir til þess að ,,hlaða" sig en djúpslökun er afar áhrifarík leið til þess að öðlast innri ró og losa um spennu og eða streitu sem situr í líkama...
  • 120. Geðhvarfasýki og heilsa. (Geðrof, bataferli, umræða og fordómar). Anna María Jónsdóttir 12.06.2026 43m
    Í þættinum ræðir Erla við Önnu Maríu Jónsdóttur um Geðhvarfasýki og heilsu en Anna María fór í sitt fyrsta geðrof fyrir um ári síðan. Hún segir okkur frá sjúkdómnum og bataferlinu og hvað það er mikilvægt að tala opinskátt um andlega sjúkdóma til þess að minnka fordóma. Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins: 💙 -HEILSUHILLAN. Breytingarskeið? Femarelle sem fyrsta meðferð. 🌱 -SPÍRAN. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 🐘 -VIRKJA. Töfrandi nám í ...
  • Hvað er hugrekki? Laufey Haraldsdóttir (Heilsumoli 44) 10.06.2026 10m
    Þar sem að Hugrekki hefur verið mér ofarlega í huga síðan ég lauk námi mínu hjá Virkja og þau voru að byrja með hlaðvarpið Virkja spjallið, fékk ég leyfi til þess að deila þessum fallegu hugleiðingum Laufeyjar með ykkur. „Virkja Spjallið“ er podcast um markþjálfun, meðvitund og mannlegan vöxt. Við ræðum uppbyggileg málefni, skoðum eiginleika markþjálfunar og veltum fyrir okkur hvernig við getum innleitt markþjálfahugarfarið í daglegt líf og starf. Hlý og innihaldsrík spjöll fyrir ...
  • 119. The transformative power of strength. (Nutrition, macros, mental toughness, menopause and lifestyle). Pia Marangoni 05.06.2026 1h 21m
    In this insightful interview, Pia Marangoni shares her journey from banking to health and strength coaching, emphasizing the importance of personalized nutrition, resilience, and the transformative power of strength sports. Discover practical tips on pre- and post-workout nutrition, managing menopause and hormonal changes through lifestyle and living in alignment with your true self. Pia Marangoni’s InstagramThe Fiercely Fueled Podcast A huge shoutout to the podcasts sponsors: 💙 -HEILS...
  • 118. Beinþynning er hinn þögli sjúkdómur. (Næring, hreyfing, þyngdarstjórnunaraðgerðir, lyf og beinþéttni). Dr.Sigríður Björnsdóttir 29.05.2026 51m
    Í þættinum ræðir Erla við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni um beinheilsu, hvað ákvarðar beinþéttni og hvers vegna við töpum beinþéttni í kringum tíðahvörf, hinn þögla sjúkdóm sem beinþynning er og hvað við getum gert með lífstíl okkar til þessa að fyrirbyggja eða snúa við þeirri þróun. Þær ræða einnig um áhrif ofþjálfunar, átröskunar, þyngdarstjórnunaraðgerða og lyfja á beinheilsu okkar og hversu mikilvægt það er að reyna að koma í veg fyrir að beinþéttni minnki til þ...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.