Blanda – hlaðvarp Sögufélags

Blanda – hlaðvarp Sögufélags

Sögufélag
Country Iceland
Genres History
Language IS
Episodes 46
Latest 19.10.2026

Blanda er hlaðvarp Sögufélags. Ætlunin er að Sögufélag komi sögunni með öllum sínum spennandi viðburðum, óvæntu atburðarás og dularfullu fyrirbærum á framfæri við þig.

Episodes

  • #65 Anna Agnarsdóttir og Bréfið sem leiddi til byltingar
    #65 Anna Agnarsdóttir og Bréfið sem leiddi til byltingar 19.10.2026 41m
    Bréfið sem leiddi til byltingar eftir Önnu Agnarsdóttur fjallar um hinn stutta en ævintýralega valdatíma Jörundar hundadagakonungs á Íslandi, allt frá því að dramatískt bréf Magnúsar Stephensen dómstjóra til Sir Joseph Banks hrinti atburðarásinni af stað árið 1807. Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Önnu um bókina, sem er hluti af Seríu Sögufélags.Kaldastríðsborg eftir Rósu Magnúsdóttur hefst á sögulegum leiðtogafundi Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjov í Reykjavík haustið 1986. Bókin kemur út á 40 ára afmæli leiðtogafundarins og fjallar um Reykjavík sem vettvang kalda menningarstríðsins sv...
  • #64 Reykjavík - Kaldastríðsborg?
    #64 Reykjavík - Kaldastríðsborg? 01.10.2026 30m
    Haustið 1986 funduðu Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, um afvopnunarmál í Höfða. Kaldastríðsborg kemur út á 40 ára afmæli leiðtogafundarins og fjallar um Reykjavík sem vettvang kalda stríðsins. Við sögu koma heimsfrægir listamenn og sérlundaðir skákmenn, amerískur bjór og ungverskir strætisvagnar.
  • #63 - Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?
    #63 - Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar? 27.08.2026 1h 34m
    Var Sturlungaöld mesti ófriðartími Íslandssögunnar?Í samstarfi Blöndu, hlaðvarpi Sögufélags og Íslandssögunnar, hlaðvarpi Jóns Kristins Einarssonar, ræða þeir saman Sverrir Jakobsson prófessor og Jón Kristinn um Sturlungaöld og hvort hún hafi verið mesti ófriðartími Íslandssögunnar? Spjall þeirra leiðir okkur nær ríkjandi söguskoðun.
  • #62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi
    #62 - Stefán Pálsson og förufólk í Laugarnesi 10.07.2026 1h 25m
    Förufólk í Laugarnesi: Fyrir um hundrað árum settist dularfull fjölskylda að í Laugarnesi með vísi að dýragarði. Fljótlega voru þau talin sígaunar og vöktu mikla athygli víða um land. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson hefur skoðað sögu þeirra og rekur hér þessa ævintýralegu frásögn í samtali við Markús Þórhallsson.
  • #61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára
    #61 Valur Gunnarsson og Bandaríkin 250 ára 29.06.2026 1h 30m
    Bandaríkin verða 250 ára í sumar og af því tilefni ræddi Markús Þórhallsson við Val Gunnarsson sagnfræðing um upphaf þessa volduga ríkis, sögu þess og þróun.
  • #60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi
    #60 Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þurfamenn fá mannréttindi 03.06.2026 34m
    Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur um bók hennar, Þurfamenn fá mannréttindi, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um sögu fátækrahjálpar á Íslandi, með sérstakri áherslu á Reykjavík, en í forgrunni er þýðingarmikil breyting á fátækralögum árið 1927 og breyttar hugmyndir um mannréttindi þeirra sem þurftu að þiggja opinbera aðstoð.
  • #59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn
    #59 Arnþór Gunnarsson og Hringvegurinn 03.06.2026 43m
    Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Arnþór Gunnarsson um bók hans, Hringvegurinn, en hún er önnur af fyrstu bókunum í nýrri ritröð, Seríu Sögufélags. Bókin fjallar um íslenska samgöngusögu á landi, í lofti og á sjó og hefst á hinni sögulegu vígslu Skeiðarárbrúar 1974 en með henni var lokið við hringveginn um Ísland, sem lengi hafði ekki verið til í villtustu draumum landsmanna.
  • #58 Þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi
    #58 Þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi 13.05.2026 1h
    Markús Þórhallsson ræðir við sagnfræðiprófessorana Erlu Huldu Halldórsdóttur og Ragnheiði Kristjánsdóttur um þær þjóðaratkvæðagreiðslur sem haldnar hafa verið á Íslandi. Þær leggja einkum áherslu á viðamikla og óvenjulega þjóðaratkvæðagreiðslu um lýðveldisstofnun og upptöku nýrrar stjórnarskrár árið 1944.
  • #57 Sumarliði R Ísleifsson og Grænland
    #57 Sumarliði R Ísleifsson og Grænland 24.04.2026 1h 15m
    Mannlíf og stjórnmál nútímans á Grænlandi, hörð náttúruöflin og ævintýraheimur norðursins ber vitaskuld á góma ásamt fjölmörgu öðru forvitnilegu í samtali Sumarliða R Ísleifssonar prófessors emeritus og Markúsar Þórhallssonar fréttamanns og sagnfræðings.
  • #56 Ný og spennandi ritröð Sögufélags væntanleg
    #56 Ný og spennandi ritröð Sögufélags væntanleg 16.02.2026 25m
    Gunnar Þór Bjarnason, Kristín Svava Tómasdóttir og Rósa Magnúsdóttir ræða um Seríu Sögufélags, nýja ritröð stuttra bóka sem hefur göngu sína í vor, en hún er byggð á dönsku ritröðinni 100 danmarkshistorier.
  • #55 Samfélag átjándu aldar – Hvað segja þau okkur?
    #55 Samfélag átjándu aldar – Hvað segja þau okkur? 29.01.2026 1h 12m
    Jón Kristinn Einarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, þjóðskjalavörð og fyrrv. forseta Sögufélags, um rannsóknir hennar á samfélagi átjándu aldar. Þau spjalla um þéttbýlismyndum á Íslandi fyrir tíma iðnvæðingar, ullarvinnslu og viðreisnaráætlanir átjándu aldar, efnahagshugsun upplýsingarinnar, kameralisma og ýmislegt fleira.
  • #54 Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir um Piparmeyjar
    #54 Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir um Piparmeyjar 02.12.2025 48m
    Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur sagnfræðing og höfund bókarinnar Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi. Bókin er jöfnum höndum saga ógiftra íslenskra kvenna og saga Reykjavíkurstúlkunnar Thoru Friðriksson, skarpgreindrar konu með stóra drauma sem hún fékk ekki tækifæri til að láta rætast fyrr en á miðjum aldri, eftir að hún var búin að rækja skyldur sínar við stórfjölskylduna. Hvaða augum leit fólk piparmeyjar um aldamótin 1900 og hvaða augum litu þær sig sjálfar? Höfðu þær eitthvert raunverulegt val í lífinu? Og hvað með ástina?Þáttu...
  • #53 Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga?
    #53 Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga? 25.11.2025 54m
    Af hverju varð 1. desember ekki þjóðhátíðardagur Íslendinga. Allt um það í þessum nýja Blönduþætti Sögufélags.Markús Þórhallsson ræðir við Pál Björnsson, sagnfræðing og prófessor við Háskólann á Akureyri, um nýjustu bók hans, Dagur þjóðar: Þróun 17. júní hátíðarhalda á 19. og 20. öld. Páll greinir frá hvernig 17. júní varð að þjóðhátíðardegi Íslendinga snemma á 20. öld, segir frá öðrum dögum sem hefðu einnig geta orðið þjóðhátíðardagur og einnig hvað varð til þess að fæðingardagur sjálfstæðishetjunnar Jóns Sigurðssonar varð ofan á án ákvörðunar yfirvalda. Markús og Páll ræða líka margt það sem...
  • #52 Kristín Svava Tómasdóttir um Fröken Dúllu
    #52 Kristín Svava Tómasdóttir um Fröken Dúllu 19.11.2025 41m
    Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. En hver var Dúlla Knudsen? Hér verður það rætt í hlaðvarpi sem er samstarf Sólarinnar, hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu, og Blöndu, hlaðvarpi...
  • #51 Davíð Ólafsson og Mynd og hand. Skólasaga 1939-1999.
    #51 Davíð Ólafsson og Mynd og hand. Skólasaga 1939-1999. 23.10.2025 40m
    Í þættinum ræðir Kristín Svava Tómasdóttir við Davíð Ólafsson, sagnfræðing og dósent við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, um nýútkomna bók hans og Arndísar S. Árnadóttur, Mynd og hand. Skólasaga 1939–1999. Í þættinum spjalla Kristín Svava og Davíð vítt og breytt um bókina og sögu Myndlista- og handíðaskóla Íslands, allt frá því að hann hóf að starfa í fjórum geymsluherbergjum í kjallara við Hverfisgötu árið 1939 og þar til hann var lagður niður samhliða stofnun Listaháskóla Íslands árið 1999.
  • #50 Jón Karl Helgason og Tindátarnir
    #50 Jón Karl Helgason og Tindátarnir 06.10.2025 28m
    Forsíðugrein Sögu að þessu sinni fjallar um myndabókina Tindátanna eftir Nínu Tryggvadóttur og Stein Steinarr sem Ragnar í Smára gaf út árið 1943. Í Blöndu að þessu sinni ræðir Haukur Ingvarsson við höfund greinarinnar, Jón Karl Helgason bókmenntafræðing.Meðal þess sem ber á góma er sú merkilega forspá sem í bókinni felst. Nína og Steinn spá þar ekki aðeins fyrir um endalok Adolfs Hiltlers heldur einnig fund leiðtoga bandamanna, þeirra Stalíns, Roosevelts of Churchills, sem fram fór í borginni Yalta vorið 1945.
  • #49 Anna Agnarsdóttir og sjálfsævisaga Klemensar Jónssonar
    #49 Anna Agnarsdóttir og sjálfsævisaga Klemensar Jónssonar 26.09.2025 58m
    Í þessum þætti Blöndu ræðir Markús Þórhallsson við Önnu Agnarsdóttur, prófessor emerítus í sagnfræði, um sjálfsævisögu Klemensar Jónssonar sem Sögufélag gefur út og hún ritstýrir ásamt Áslaugu systur sinni. Klemens var af fátæku fólki kominn sem tryggði honum þó þá bestu menntun sem möguleg var á seinni hluta 19. aldar. Þessi föðurafi systranna komst til metorða á umbrota- og breytingatímum í íslensku samfélagi. Hann var framfarasinnaður og djarfhuga að sögn Önnu, „hann var alltaf iðinn“ segir hún. Sjálfsævisagan er hispurslaus, bæði um stjórnmál, gleði og harm Klemensar og um menn og málefni...
  • #48 Vilhelm Vilhelmsson um Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld
    #48 Vilhelm Vilhelmsson um Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld 11.07.2025 48m
    Var vistarbandið ánauð og vinnuhjú þrælar? Um það skeggræða höfundur bókarinnar Sjálfstætt fólk. Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld, Vilhelm Vilhelmsson og Markús Þórhallsson.
  • #46 Skafti Ingimarsson um Nú blakta rauðir fánar
    #46 Skafti Ingimarsson um Nú blakta rauðir fánar 27.06.2025 54m
    Ævar Kjartansson ræðir við höfundinn, Skafta Ingimarsson, um bók hans, Nú blakta rauðir fánar, m.a. hvers vegna kommúnistahreyfingin á Íslandi var jafn öflug og raun ber vitni einnig um valdabaráttuna innan hreyfingarinnar og togstreituna milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar, sem fram kom í starfi hennar.
  • #47 Valgerður Pálmadóttir um Mörk - Norræna sagnfræðiþingið 13.-15. ágúst
    #47 Valgerður Pálmadóttir um Mörk - Norræna sagnfræðiþingið 13.-15. ágúst 27.06.2025 33m
    Mörk (grænser / borders) er yfirskrift Norræna sagnfræðingaþingsins sem haldið verður í Háskóla Íslands dagana 13–15 ágúst. Dagskráin er gríðarlega fjölbreytt og spennandi en meðal efna sem fjallað verður um eru: Samskipti manna og dýra, umhverfissaga, stríð og friður, menning og stjórnmál miðalda, kalda stríðið í nýju ljósi, söguskoðun, minni og stjórnmál, áskoranir í sögukennslu og norræn einsöguhefð.Ása Ester Sigurðardóttir og Valgerður Pálmadóttir úr skipulagsnefnd Norræna sagnfræðingaþingsins 2025 ræða saman um dagskrána og mikilvægi þingsins fyrir íslenska sagnfræði í léttu spjalli!

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.