Karfan
Karfan
0
Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.
Episodes
-
Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan 01.11.2026 1h 51mNýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í íslenska körfuboltanum. Farið er ítarlega yfir stöðu liðanna í Bónusdeild karla eftir síðustu umferð og rýnt í hverjir áttu góða viku og hverjir áttu slæma viku. Þá er komin ný uppfærsla á styrkleikalista þáttarins yfir bestu bandarísku leikmenn deildarinnar, þar sem nýtt nafn hefur tekið yfir toppsætið. Umræðan um ... -
Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli 25.10.2026 1h 35mNýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir Jón Frí og Mummi Jones í settið til Davíðs Elds og taka stöðuna eftir enn eina viðburðaríka viku. Farið er ítarlega yfir leiki síðustu umferðar í Bónusdeild karla og heitustu fréttir vikunnar reifaðar. Sérstök rýni er lögð á sóknarleik liðanna á hálfum velli (half-court offense) – hvaða lið eru að keyra kerfin sín af bestu nákvæmninni og hver eru í vandræðum þegar hraðaupphlaupin eru tekin í burtu. Þá beina félagarnir ... -
The Uncoachables: I Don't Watch The News (or Read It) 23.10.2026 1h 3mHelgi and David are back in Rabbrýmið after the first few rounds on either side. Our power rankings (not predictions) are compared to how the table is right now and we talk about teams looking a little raw and unprepared. Stjarnan and Grindavík on the men's side are talked down as they have been doing poorly and Haukar and Keflavík on the women's side get no love from us to start the season. Helgi and David have missed some news stories which comes up in a funny fashion during the recording a... -
Aukasendingin: Bestu kanarnir, fimm ljósir punktar og uppgjör á síðustu umferð 18.10.2026 1h 27mNýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mæta þeir JónFrí og Strikerinn Árni Jó í stúdíóið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í boltanum. Farið er ítarlega yfir fréttir vikunnar og leiki nýliðinnar umferðar í Bónusdeild karla. Sérfræðingar þáttarins taka fyrir bestu bandarísku leikmenn deildarinnar til þessa, stilla upp lista yfir fimm helstu ljósu punktana á upphafsvikum tímabilsins, rýna í bikarkeppnina og velta upp ýmsum brennandi spurningum. úr bolt... -
Aukasendingin: Ofsaviðbrögð eftir fyrstu umferð, er Kane ennþá týndur og hrun Stjörnunnar? 12.10.2026 1h 13mNýr þáttur af Aukasendingunni er mættur í loftið eftir fjöruga opnunarumferð í Bónusdeild karla. Mummi Jones og Óli Dós mæta að þessu sinni til leiks og rýna í allt það helsta úr fyrstu leikjum tímabilsins ásamt Davíð Eldi. Farið er yfir tíu atriði sem fyrsta umferðin kenndi okkur og velt upp spurningum um stöðu mála í deildinni: hversu slök var Stjarnan á sínum fyrsta leikdegi, geta Keflvíkingar í raun orðið virkilega góðir í vetur og eru Njarðvíkingar í vandræðum? Þá er rætt um atvinn... -
Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn 05.10.2026 1h 40mNýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið. Davíð Eldur stýrir umræðunni að þessu sinni og fær JónFrí til sín, auk þess sem fleiri sérfræðingar leggja orð í belg. Í þættinum er farið yfir komandi tímabil í Bónusdeild karla og leikinn um Meistara meistaranna. Þá er rýnt í félagaskiptagluggann og hvaða hreyfingar komu mest á óvart fyrir veturinn. Einnig er tekinn léttur topp fimm listi yfir þau lið í gegnum tíðina sem reyndu að kaupa titilinn án árangurs, ásamt ýmsu öðru sem bar á góma í ... -
Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns 29.09.2026 58mNýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur og fer körfuboltaveturinn af stað af fullum þunga. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni voru þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó sem fóru yfir allt það helsta. Farið var yfir fréttir vikunnar og boltann sem er þegar byrjaður að rúlla í Bónusdeild kvenna, þar sem sérstaklega var rýnt í sigurleik KR gegn Stjörnunni. Þá beindust sjónirnar að Meistarakeppni KKÍ um helgina þar sem Grindavík og KR mætast í Meistara meistaranna í karlaflokki,... -
Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir 22.09.2026 1h 6mNýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru þeir Jón Frí og Strikerinn Árni Jó, sem mættu vel gíraðir til að greina stöðuna fyrir komandi átök í Bónusdeild karla. Í þættinum er tekin söguleg yfirferð á gengi nýliða í efstu deild allt aftur til ársins 1996 og rýnt í hvernig nýliðum gengur almennt að fóta sig meðal þeirra bestu. Þá er farið ofan í saumana á lagaskiptingu deildarinnar fyrir komandi tímabil: Hvaða lið geta raunverulega orðið me... -
Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára 17.09.2026 1h 37mNýjasti þáttur Aukasendingarinnar er lentur í loftinu þar sem farið er yfir allt það heitasta í íslenska körfuboltanum. Gestir og sérfræðingar þáttarins að þessu sinni eru Heisi Högg og JónFrí. Spennan fyrir komandi tímabili í Bónusdeild karla heldur áfram að magnast og í þættinum birtir þríeykið uppfærða spá fyrir veturinn í ljósi nýjustu vendinga. Þá er rýnt í félagaskiptamarkaðinn og teknir fyrir fimm leikmenn sem þeir væru til í að sjá, og telja alls ekki ólíklegt, að færi sig um set á ko... -
The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion 11.09.2026 1h 17mHelgi and David are back after the summer (and a missed end-of-season podcast) in a new studio, Rabbrýmið. First, congratulations to Grindavík men's and Njarðvík women's for winning the championships last season. Then we touch on the two NT men's games that were just played. We do our power rankings for the top divisions, we sometimes agree (sometimes not) and the median is found through mathematics (after the recording). Big moves are discussed and we're just glad to be back! Enjoy! Hosts: ... -
Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða 08.09.2026 1h 39mNýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir sviðið í íslenska boltanum. Í þetta skiptið mættu þeir Heisi Högg og Mummi Jones sem gestir þáttarins og fór þríeykið yfir víðan völl fyrir komandi átök í Bónusdeild karla. Í þættinum er litið um öxl og stærstu móment síðasta tímabils gerð upp, áður en sjónum er beint að komandi leiktíð: Hvar er mesta pressan fyrir veturinn, hvaða félög/leikmenn/þjálfarar finna mest fyrir hitanum og hverjir mega alls ekki misstíga sig?... -
Aukasendingin: Þungur róður Íslands, ungt blóð í Bónusdeildinni og erfiðasta leikjaplanið 01.09.2026 1h 15mNýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM sem fram fóru á dögunum gegn Serbíu og Tyrklandi. Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla. Rýnt í hvaða lið standa frammi fyrir erfiðustu byrjuninni í fyrstu umferðunum og tekin góð umræða um efnilega, unga leikmenn sem búast má við að fái tækifæri á gólfinu í vetur. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan ás... -
Aukasendingin: Risaleikir hjá landsliðinu, slúður og uppfærð spá fyrir Bónusdeildina 25.08.2026 1h 18mNýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið þar sem farið er yfir allt það helsta í íslenskum körfubolta. Rýnt er í stórleiki karlalandsliðsins í undankeppni HM, en fram undan eru gríðarlega sterkir andstæðingar þar sem liðið mætir Serbíu í Belgrad á föstudag og tekur svo á móti Tyrklandi á mánudag, auk þess sem stuttlega er litið yfir nýafstaðinn æfingaleik gegn Finnlandi. Aðaláhersla þáttarins liggur þó í Bónusdeild karla þar sem birt er uppfærð spá fyrir komandi leiktíð. Litlar br... -
Aukasendingin: Snemmbúin spá fyrir Bónus deild karla 2026-27 10.07.2026 1h 12mEftir kærkomið sumarfrí er Aukasendingin loksins mætt aftur í tækin og klár í slaginn fyrir nýtt körfuboltatímabil. Í þessum fyrsta þætti eftir pásuna er farið yfir helstu fréttir og hræringar síðustu vikna, en það er af nógu að taka eftir mánuð í dvala. Strákarnir hita rækilega upp fyrir tímabilið 2026-27 og kafa djúpt í leikmannamarkaðinn þar sem rýnt er í hverjir eru komnir, hverjir eru farnir og hvernig styrkleikahlutföllin á milli liðanna hafa breyst. Stærsti hlutinn er þó tileinkaður ve... -
Sjötti maðurinn: Uppgjör, verðlaunahátíð og rýnt í sumarmarkaðinn 28.05.2026 1h 3mNýjasti þáttur hlaðvarpsins Sjötti maðurinn er nú kominn í loftið. Í þættinum setjast þeir Ögmundur Árni, Mikael Máni og Gunnar Bjartur niður og gera upp nýafstaðið tímabil í körfuboltanum af sinni alkunnu snilld. Farið er yfir helstu hápunkta og dramatíkina sem einkenndi veturinn, auk þess sem strákarnir veita sín eigin verðlaun fyrir tímabilið og rýna í það sem stóð upp úr hjá liðunum. Auk þess að horfa til baka hleypa þeir hlustendum í ferðalag fram í tímann og spá í spilin fyrir næsta vet... -
Aukasendingin: Nýjasta orðið á götunni og verðlaunahafar tímabilsins opinberaðir 25.05.2026 1h 19mAukasendingin fékk góða gesti í hlaðvarpið þegar Strikerinn og Jónfrí mættu til að ræða málin. Í þættinum var farið yfir allt það helsta og rýnt í nýjasta slúðrið um leikmanna- og þjálfarabreytingar í Bónus og fyrstu deildunum á Íslandi. Auk þess að kryfja félagaskiptamarkaðinn fóru gestir og stjórnendur í árlega verðlaunaafhendingu þáttarins, þar sem meðal annars voru veitt verðlaun fyrir besta formanninn, besta leikmanninn, versta erlenda leikmanninn og senu ársins, ásamt því að verðlauna b... -
Aukasendingin: Grindavík og Njarðvík fagna, Pargo sturlaður og Baldur í Forsetahöllina 19.05.2026 1h 13mNýjasti þáttur Aukasendingarinnar er mættur í loftið og er óhætt að segja að nóg sé um að vera. Stjórnandi þáttarins Davíð Eldur fékk góða gesti í stúdíóið að þessu sinni, þá Jónfrí og Strikerinn Árna Jó. Helstu umræðuefni þáttarins eru nýkrýndir Íslandsmeistaratitlar Njarðvíkur og Grindavíkur, ásamt því að farið er yfir helstu fréttir vikunnar og rýnt í önnur hlaðvörp sem tengjast íþróttinni. Þá var einnig vikið að sveitastjórnarkosningunum og áhrifum þeirra, sem og ráðningu Baldurs sem nýs ... -
Aukasendingin: Kane, slúður, vanstilling og Grindavík í þremur 14.05.2026 1h 29mÍ nýjasta þætti Aukasendingarinnar, hlaðvarps Körfunnar, kafa þeir Jónfrí og Strikerinn Árni Jó ofan í sviðsmyndina sem gæti blasið við í úrslitakeppni Bónus deildarinnar strax í kvöld og á morgun. Spennan er á suðupunkti þar sem tímabilið gæti hreinlega klárast ef Njarðvík nær að knésetja Hauka og Grindavík fylgir því eftir með sigri á Tindastól á morgun. Sérstök athygli er vakin á ótrúlegu gengi Grindavíkur og rýnt í það hvaða lykilþættir liggja að baki frammistöðu þeirra, ásamt því a... -
Sjötti maðurinn: Oddaleikir, úrslitaeinvígið og góð vika / slæm vika 08.05.2026 47mÍ þessum síðasta þætti af Sjötta manninum er farið yfir oddaleiki í úrslitakeppni Bónus deildar karla. Grindavík tryggði sér sæti í úrslitum eftir mikla baráttu og Tindastóll fylgdi þeim eftir með sigri á Stjörnunni. Nú er stóra stundin runnin upp og hitað er rækilega upp fyrir sjálft úrslitaeinvígið milli Tindastóls og Grindavíkur sem er að hefja göngu sína, en búast má við mikilli spennu og troðfullum húsum í þeirri rimmu. Auk úrslitakeppninnar í efstu deild er rýnt í lokabaráttuna í fyrstu... -
Aukasendingin: Oddaleikjaspenna, hið fullkomna úrslitalið og er Baldur á leið úr Garðabænum? 07.05.2026 1h 17mNýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn út, en hann er hægt að nálgast hér fyrir ofan, sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar. Í þessum þætti Aukasendingarinnar er kafað djúpt í dramatíkina sem fylgdi oddaleikjum undanúrslitanna í Bónus deild karla. Mummi Jones og Jónfrí mæta í stúdíóið og fara yfir magnaðan sigur Tindastóls á Stjörnunni, ásamt því hvernig deildarmeistarar Grindavíkur lögðu Val að velli í oddaleik í HS Orku höllinni. Rýnt er í hvað fór úrskeiðis hjá tapliðun...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.