Heimsglugginn

Heimsglugginn

RÚV
Country Iceland
Genres News
Language IS
Episodes 107
Latest 19.11.2026

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni í þessum hlaðvarpsþætti frá RÚV.

Episodes

  • Sterk staða Meloni á Ítalíu
    Sterk staða Meloni á Ítalíu 19.11.2026 22m
    Óstöðugleiki var einkenni ítalskra stjórnmála áratugum saman eftir síðari heimsstyrjöldina. Ríkisstjórnir komu og fóru ótt og títt. Það ber því nýrra við að sami forsætisráðherrann sitji í fjögur ár eins og raunin er með Georgiu Meloni. Hún varð fyrsta konan til að leiða ríkisstjórn þegar hún tók við 2022 og er óskoraður leiðtogi hægriafla á Ítalíu. Aðalheiður Ámundadóttir, blaðamaður á Gímaldinu, sem býr á Ítalíu, var gestur Heimsgluggans. Þau Bogi Ágústsson ræddu ítölsk stjórnmál, efnahagslíf og horfur, mun á Suður- og Norður-Ítalíu, afstöðu ítalskra stjórnmálamanna til Evrópu og stríðsins í...
  • Friður ekki fyrirsjáanlegur í Úkraínu
    Friður ekki fyrirsjáanlegur í Úkraínu 12.11.2026 21m
    Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu í Heimsglugganum við Boga Ágústsson um nokkuð af því sem er efst á baugi í erlendum fréttum, stríð Rússlands við Úkraínu og friðarviðræður, stjórnmálastöðuna í Bandaríkjunum þar sem Demókratar bættu enn einu öldungadeildarþingsætinu við sig og hafa nú 55, stjórnarmyndunartilraunir í Svíþjóð og Ísrael, kosningaúrslit á Nýja-Sjálandi og óróleika í grænlenskum stjórnmálum.
  • Demókratar vinna stórsigur í kosningum í Bandaríkjunum
    Demókratar vinna stórsigur í kosningum í Bandaríkjunum 05.11.2026 42m
    Silja Bára Ómarsdóttir, háskólarektor og prófessor í alþjóðastjórnmálum, og Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddu úrslit kosninganna í Bandaríkjunum við Boga Ágústsson í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þátturinn var tvöfalt lengri en venjulega.
  • Kosningar í fjórum ríkjum
    Kosningar í fjórum ríkjum 29.10.2026 24m
    Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku. Bogi segir að túlka megi úrslitin í Brasilíu og Serbíu sem tap þjóðernissinnaðra pópúlista þar sem ungt fólk hafi tekið mikinn þátt og verið virkt í kosningabaráttunni.
  • Mikil seigla í hagkerfi heimsins
    Mikil seigla í hagkerfi heimsins 08.10.2026 23m
    Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu efnahagsmála heimsins. Gylfi segir að vaxtahækkanir víða að undanförnu séu ekki góðar fréttir en hagkerfi heimsins hafi sýnt mikla seiglu undanfarin ár. Það sé ótrúlegt hvað mikið geti gengið á án þess að við lendum í óviðráðanlegri krísu. Jafnvel þegar kreppur skelli á eins og eftir hrunið 2008 hafi flest hagkerfi verið fljót að jafna sig.
  • Allt í hnút á Norður-Írlandi
    Allt í hnút á Norður-Írlandi 01.10.2026 23m
    Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu mótmælenda í bænum Portadown. Sólveig þekkir afar vel til málefna á Írlandi og Bogi Ágústsson ræddi við hana í Heimsglugganum. Göngur Óraníu-reglunnar hafa mjög oft orðið tilefni blóðugra átaka. Þessi ganga í Portadown, sem kennd er við Drumcree-kirkjuna þar sem hún hefst, hefur verið bönnuð í næstum 30 ár. Sólveig segir sérkennilegt að leyfa hana aftur. Undir lokin var rætt um stjórnarkreppuna í Svíþjóð þar sem engin lausn vi...
  • Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
    Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús 24.09.2026 24m
    Eftir áralanga ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland og hótanir um að hertaka landið og innlima hefur verið undirritaður samningur á milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands um varnir Grænlands. Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlensk-íslensku Ingu Dóru Guðmundsdóttur og Rasmus Gjeddsø Bertelsen, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við Norðurslóðaháskólanna í Tromsø. Inga Dóra segir Grænlendingum létt, Rasmus er ósammála flestum sem hafa tjáð sig um samninginn og segir a...
  • Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð
    Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð 17.09.2026 23m
    Það var ýmislegt á dagskrá Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 í dag. Fyrstu ráðherrar Norður-Írlands, Skotlands og Wales, sem öll hafa sjálfstæði á dagskránni, hittust í Cardiff og samþykktu að „tími Westminster væri senn á enda“. Þá ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson um nýja skýrslu um öfugþróun lýðræðis, kosningar í Rússlandi og Serbíu og stjórnmálastöðuna í Svíþjóð. Þar er ljóst að hægri stjórn Ulfs Kristersson hefur misst meirihluta sinn og að Magdalena Anderson, formaður Jafnaðarmanna, reynir að mynda stjórn. Það verður ekki auðvelt því flokkarn...
  • Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta
    Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta 10.09.2026 22m
    Í Heimsglugga vikunnar var rætt um refsiaðgerðir tólf vestrænna ríkja vegna fyrirætlana um enn auknar byggðir Ísraelsmanna á herteknu palestínsku landi. Þá var rætt um feðgana Harald og Hákon Noregskonunga og þátttöku konungborinna í þjóðmálaumræðu og í lokin var talað um hörkuspennandi kosningabaráttu í Svíþjóð.
  • Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál
    Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál 03.09.2026 22m
    Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Þau ræddu árásir Rússa í Leipzig og fleiri aðgerðir þeirra og möguleg viðbrögð Vesturlanda. Þá ræddu þau mótmæli danskra bænda gegn nýjum lögum sem takmarka áburðarnotkun vegna áhrifa sem köfnunarefni í áburðinum hefur á lífríki hafsins. Sjórinn við strendur Danmerkur er svo súrefnislaus að hann er nánast lífvana, fiskar, krabbar og aðrar lífverur í hafinu hafa hreinlega drepist eða flúið. Þá var rætt um fyrsta fyrirspurnartíma Andy Burnhams sem forsætisráðherra Bretl...
  • „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“
    „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“ 27.08.2026 32m
    Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddu breytt öryggisumhverfi frá sjónarhóli smáríkja í Heimsglugganum. Baldur líkir Bandaríkjaforseta við mann sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi. Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins: Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki og breytt öryggisumhverfi Evrópu. Baldur og Vilborg verða í pallborði og ræða þessi mál þar. Þau voru sammála um að Íslendingar komist ekki hjá því að auka útgjöld til varnarmála. Bogi ræddi einnig um van...
  • Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð
    Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð 20.08.2026 22m
    Bandaríkjaforseti hefur í þessari viku hótað að gera árásir á bandamenn í Óman, fyrirskipað að dregið skuli úr hlut Bandaríkjanna í heræfingum í Suður-Kóreu og kallað einhvern harðsvíraðasta einræðisherra veraldarinnar vin sinn. Þetta bætist ofan á misheppnaða stefnu í Mið-Austurlöndum, árásargjarna tollastefnu, fjandskap við bandamenn, hótanir um yfirtöku Grænlands og allt annað. Trump kvaðst við upphaf seinna kjörtímabils síns ætla að verða boðberi friðar og krafðist þess að fá friðarverðlaun Nóbels. Fréttaskýrandi BBC segir að arfleifð hans gæti orðið eilífðarstríð við Íran. Í Svíþjóð er al...
  • Farage tekst á við ruslatunnu
    Farage tekst á við ruslatunnu 13.08.2026 23m
    Aukakosningar eru í Clacton-kjördæminu á Englandi í dag þar sem kosið er til breska þingsins. Efnt var til kosninganna þar sem Nigel Farage leiðtogi Reform, Umbótaflokksins, sagði af sér þingmennsku. Hann býður sig aftur fram en enginn stóru flokkanna býður sig fram því þeir telja afsögn og framboð Farage sýndarmennsku. Því hefur helsti keppinauturinn verið Count Binface, Fötufés greifi. Hann kemur ætíð fram í búningi með ruslatunnulíki á höfðinu. Count Binface hefur verið nefndur Fötufés, Ruslgrímur, Tunnuhaus og Tunnufés í íslenskum fjölmiðlum. Við heyrðum í Heimsglugganum nokkur brot úr við...
  • „Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál
    „Slær frá sér eins og blindur risi“ – Árásir Rússa á Úkraínu og bresk stjórnmál 02.07.2026 23m
    „Slær frá sér eins og blindur risi,“ sagði Bogi Ágústsson um Vladimír Pútín og árásir Rússa á Úkraínu í hefndarskyni fyrir árásir Úkraínumanna á olíuiðnað Rússa. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu líka við Boga um bresk stjórnmál. Keir Starmer lætur senn af embætti forsætisráðherra og allar líkur eru á að Andy Burnham taki við. Starmer þótti óvenjuröggsamur í fyrirspurnartíma forsætisráðherra í þinginu í gær og lét andstæðinga Verkamannaflokksins fá það óþvegið. Í lokin var stuttlega minnst bresk-kanadíska söngvarans David Clayton-Thomas sem lést í síðustu viku. Hann öð...
  • „Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“
    „Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“ 25.06.2026 22m
    Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut stundaði framhaldsnám í lögfræði í Bandaríkjunum og fylgist afar vel með stjórnmálum þar í landi. Þau ræddu meðal annars deilur innan Repúblikanaflokksins, afleiðingar Íransstríðsins, kosningarnar í nóvember, mögulega vinstri sveiflu innan Demókrataflokksins og óvinsældir Trumps forseta. Sigríður Rut segir mögulegt að vinsældir forsetans geti aukist á ný því að mörgu leyti megi líkja fylgjendum Trumps við sértrúarsöfnu...
  • „Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“
    „Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“ 18.06.2026 22m
    Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian í Frakklandi. Þar var eindregnum stuðningi lýst við Úkraínumenn í vörn þeirra gegn innrásarher Rússa. Erlingur telur óheppilegt ef vopnahléssamkomulag Bandaríkjanna og Írans verður kennt við Versali í ljósi þess að friðarsamningarnir eftir fyrri heimsstyrjöld voru gerðir þar og eru af mörgum taldir ein af meginástæðunum fyrir seinni heimsstyrjöldinni. Erlingur og Bogi ræddu strategíska stöðu Bandaríkjanna og Írans. Ma...
  • „Ég elska verðbólgu…“
    „Ég elska verðbólgu…“ 11.06.2026 23m
    Donald Trump er í klípu, hvorki gengur né rekur í tilraunum hans til að gera varanlegt vopnahlé eða friðarsamning við Írana. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft í för með sér efnahagsörðugleika um víða veröld. Trump viðhafði afar sérstök ummæli er hann sagðist elska verðbólgu sem er bein afleiðing af hækkun olíuverðs. Þetta var til umræðu í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1. Þar var einnig fjallað um hernaðaruppbyggingu Rússa á vesturlandamærum sínum sem Norðurlönd og Eystrasaltsríkin telja ógna sér.
  • Reiði vegna morðs í Bretlandi og ný stjórn í Danmörku
    Reiði vegna morðs í Bretlandi og ný stjórn í Danmörku 04.06.2026 21m
    Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handtekinn. Lögreglan trúði yfirlýsingum morðingjans, sem sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði, og handtók og handjárnaði helsærða námsmanninn sem lést á staðnum. Mette Frederiksen hefur myndað nýja mið-vinstri stjórn í Danmörku. Stjórnin hefur lofað miklum útgjöldum og skattalækkunum við misjafnlega hrifningu hagfræðinga.
  • Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin
    Bismarck, fjárdráttur í Skotlandi, kosningabarátta í Svíþjóð, Íran og Bandaríkin 28.05.2026 23m
    Í Heimsglugganum heyrðum við í Burkard von Müllenheim-Rechberg sem var hæst settur þeirra sjóliðsforingja sem komust lífs af er orrustuskipinu Bismarck var sökkt 1941. Hann var fyrsti ræðismaður Vestur-Þýskalands á Íslandi eftir stríðið. Peter Murrell, fyrrverandi framkvæmdastjóri Skoska þjóðarflokksins, og eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra Skotlands, hefur viðurkennt fjárdrátt upp á 166 milljónir króna. Hjónabandi Murrells og Sturgeon er lokið og hún kveðst ekki hafa vitað um fjárdrátt eiginmannsins og rannsókn hafi leitt í ljós sakleysi hennar. Í Svíþjóð hefur stjórnarandstaðan tæp...
  • Norræn öryggismál og fleira
    Norræn öryggismál og fleira 21.05.2026 24m
    Norræn öryggismál voru í brennidepli í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 og rætt um norrænan sjónvarpsþátt um varnar- og öryggismál. Þátturinn var á dagskrá allra ríkissjónvarpsstöðva Norðurlanda á miðvikudagskvöld, nema RÚV. Þarna voru meðal annarra Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Anders Adlercreutz, ráðherra norrænnar samvinnu í Finnlandi og fleiri ráðamenn og sérfræðingar. Í Heimsglugganum var einnig rætt um utanríkisráðherrafund NATO, freigátukaup Svía, stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku, aukna bjartsýni Úkraínumanna, heim...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.