Kerfið
RÚV Hlaðvörp
0
Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Episodes
-
Betrun 8. þáttur - Konur í fangelsum 17.11.2026 1hHlutfall kvenna í fangelsum landsins hefur aldrei verið hærra. Um 75% kvenfanga eru af erlendum uppruna og þær eru af ólíkum þjóðernum. Rannsóknir sýna, að félagsleg staða kvenna í fangelsum er yfirleitt slæm, og þær takast oftar á við geðræn veikindi og sjálfsskaða, en karlar í afplánun. Viðmælendur í þættinum eru Andri Þór Sturluson, Arndís Vilhjálmsdóttir, Hreinn Hákonarson og Þóra Björg Sirrýjardóttir. Guðrún Hálfdánardóttir hefur umsjón með Betrun og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður þáttaraðarinnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Betrun 7. þáttur - Áhrif áfalla 10.11.2026 1hMargir þeirra sem eru dæmdir í fangelsi ljúka afplánun á Vernd en eitt af skilyrðum þess að fá heimild til þess er að vera án vímuefna, í vinnu eða öðrum úrræðum o.s.frv. Fortíðin mótar marga í fangelsiskerfinu og snemmtæk íhlutun hefði breytt mörgu. Exit er nýtt verkefni fyrir fólk sem hefur lokið afplánun en flestir þeirra sem enda í fangelsi eru með vímuefnavanda. Viðmælendur: Guðmundur Gíslason, Hafdís Guðmundsdóttir og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir er umsjónarmaður Kerfisins á Rás 1 og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more informati... -
Betrun 6. þáttur - Draumur fangavarðar 03.11.2026 1hJón Ingi Jónsson fangavörður á sér draum um að auka vægi verklegrar kennslu á Litla-Hrauni því hann gerir sér grein fyrir mikilvægi náms og vinnu í fangelsum landsins. Í þættinum er farið í heimsókn á trésmíðaverkstæðið á Litla-Hrauni og rætt við afbrotafræðing og framkvæmdastjóra Verndar um stöðu mála á Íslandi þegar kemur að fangelsum landsins. Viðmælendur í þættinum eru Helgi Gunnlaugsson, Jón Ingi Jónsson og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir er umsjónarmaður og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður þáttaraðarinnar Betrun. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Betrun 5. þáttur - Bílageymsla verður fangageymsla 27.10.2026 1hFá dómsmál hafa vakið jafn mikla athygli í íslenskri nútímaréttarsögu og Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Tryggvi Rúnar Leifsson sat í gæsluvarðhaldi í rúm fjögur ár eða yfir 1500 daga í tengslum við rannsókn málsins. Þar af í einangrun í Síðumúlafangelsinu á annað ár. Viðmælendur í þættinum eru Hreinn Hákonarson og Tryggvi Rúnar Brynjarsson. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Betrun 4. þáttur – Lög og réttur á tímum upplýsingarinnar 20.10.2026 56mUm miðja 18. öldina fjölgaði dómum á Íslandi og því fjölgaði föngum í haldi sýslumanna og af þessu hlaust mikill kostnaður. Sýslumennirnir sendu því konungi bænaskrá og töldu að besta lausnin á þeim mikla kostnaði sem fylgdi sakamönnum væri fundin, einfaldlega að taka þá af lífi. Þetta fæli líka í sér tímasparnað. Í stað þess að þurfa að fara með sakamanninn með sér fram og aftur um landið gæti sýslumaður bæði fellt og fullnægt dómnum á einum og sama deginum. Davíð Þór Björgvinsson, Hrannar Hólm, Hreinn Hákonarson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Dagsk... -
Betrun 3. þáttur - Fangaflutningar til Finnmerkur 13.10.2026 55mEins og ekkert sé sjálfsagðara þá eru fimm konur og tólf karlar sett á skip í Kaupmannahöfn og send nánast á heimsenda. Ætli það hafi talist betrun meðal embættismanna að senda fanga norður í Barentshaf í stað þess að leyfa þeim að snúa heim til Íslands? Viðmælendur í þættinum eru Eiríkur Hermannsson, Halldór Guðmundsson, Már Jónsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Betrun 2. þáttur – Brennimerktir og ærulausir 06.10.2026 58mAðstæður almúgafólks um aldamótin 1800 voru skelfilegar eftir hörmulegt tíðarfar um áratugaskeið. Langflestir þeirra sem voru sendir í afplánun í Kaupmannahöfn höfðu gerst sekir um þjófnað, jafnvel bændur sem aldrei höfðu gerst sekir um óráðvendni. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson og Sigríður Hjördís Jörundsdóttir. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Betrun 1. þáttur – Íslendingar í dönskum þrælakistum 29.09.2026 55mMálefni fanga í nútíð og fortíð eru umfjöllunarefni þáttaraðarinnar Betrun. Í þáttunum er meðal annars fjallað um Íslendinga sem enduðu í þrælakistum Kaupmannahafnar á átjándu og nítjándu öld. Meirihluti þeirra átti ekki afturkvæmt og endaði ævina í Stokkhúsinu enda aðbúnaðurinn þar skelfilegur. Viðmælendur í þættinum eru: Eiríkur Hermannsson, Hrannar Hólm, Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og Þráinn Farestveit. Guðrún Hálfdánardóttir annaðist dagskrárgerð og Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
5. þáttur - Börn sem hafa sérstöðu 16.06.2026 1hBörn eru allskonar og í fullkomnum heimi ætti það ekki að skipta neinu máli. Þau fengju einfaldlega þjónustu við hæfi, svona eins og lög gera ráð fyrir. En kerfið hefur átt erfitt með að laga sig að breyttum heimi. Viðmælendur í þættinum eru: Guðbjörg Rut Þórisdóttir, Meyvant Þórólfsson og Sara Rós Kristinsdóttir. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
4. þáttur - Ræður kerfið við verkefnið? 09.06.2026 59mKerfið er fyrir meðaltalsnemandann sem getur ákveðna hluti en þeir sem ráða ekki við það verkefni eiga á hættu að falla á milli kerfa. Börn sem eru á biðlistum eru með skilgreindan vanda en það vantar nákvæma skilgreiningu á hvers eðlis hann er. Þegar loksins kemur að lokagreiningu hefur barnið jafnvel beðið í fimm ár, fyrst eftir forgreiningu hjá sveitarfélagi og síðan hjá ríkinu. Viðmælendur í þættinum eru Bóas Valdórsson og Sigurður Árni Reynisson. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
3. þáttur - Staðan versnar bara 02.06.2026 57mEmbætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar barna sem teljast til staðalfrávika frá meðaltalinu á normalkúrfunni. Gestir þáttarins eru Salvör Nordal og Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
2. þáttur - Barist fyrir lífi barnsins 26.05.2026 1hÞað tekur á að passa ekki inn í kerfið, ekki bara fyrir barnið, heldur alla fjölskylduna. Því við viljum öll það besta fyrir börnin okkar og erum reiðubúin að berjast með kjafti og klóm fyrir þeirra lífi. Já, svo þau lifi af. Því börn sem eru á jaðrinum, jafnvel hrakin þangað af öðrum, eru í stöðugri hættu. Helga Guðmundsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir eru viðmælendur í þættinum. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
1. þáttur - Börn og biðlistar 19.05.2026 59mBörnin sem passa ekki inn í kerfið, börnin á biðlistum. Börnin sem þurfa að hafa meira fyrir hlutunum en önnur í almenna skólakerfinu. Börnin sem eru á jaðrinum. Þetta eru börnin sem þurfa mest á öflugu kerfi að halda. Kerfi sem ekki hafnar þeim heldur styður þau. Anna-Lind Pétursdóttir og Kristján Ketill Stefánsson eru viðmælendur í þættinum en Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
5. þáttur - Verkmennaskólinn á Akureyri 07.04.2026 58mVerkmenntaskólinn á Akureyri, VMA, er einn stærsti iðn- og verkmenntaskóli landsins. Eins og víða annars staðar er kennt í öllum skúmaskotum en stjórnendur skólans hugsa í lausnum og eru í góðu samstarfi við vinnustaði á Akureyri þar sem hluti kennslunnar fer fram. Viðmælendur í þættinum eru: Ásta Fönn Flosadóttir, Benedikt Barðason, Elsa Eiríksdóttir, Gunnar Möller, Jóhann Gunnar Jóhannsson og Kristjana Stella Blöndal. Auk þess er rætt við nemendur í VMA. Lydía Grétarsdóttir er tæknimaður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
4. þáttur FSu og MK 31.03.2026 56mÍslenska skólakerfið er bóknámsmiðað og lítil áhersla á verk- og starfsnám í grunnskóla. Þetta er meðal annars að hafa áhrif á áhuga ungmenna á slíku námi. En á síðustu árum hefur áhugi á starfsnámi aukist sem þýðir að fáir 18 ára og eldri komast inn í vinsælustu greinarnar. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Guðríður Hrund Helgadóttir, Haraldur Sæmundsson, Soffía Sveinsdóttir, Sigursveinn Sigurðsson og Stella Blöndal. Jafnframt er rætt við nemendur Matvælaskólans og gesti á opnu húsi í MK. Tæknimaður er Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more informati... -
3. þáttur Tækniskólinn 24.03.2026 56mAukinn áhugi er á starfsnámi meðal ungs fólks þrátt fyrir að íslenskt menntakerfi sé mjög bóknámsmiðað. Um leið er þrengt að starfsnámi þegar kemur að húsnæðismálum. Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og býður upp á fjölbreytt starfsnám. Viðmælendur í þættinum eru: Elsa Eiríksdóttir, Hildur Ingvarsdóttir, Kristjana Stella Blöndal, Þráinn Óskarsson og nokkrir nemendur í Tækniskólanum. Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
2. þáttur - Skortur á faglegri forystu 17.03.2026 57mÞað þarf aðhald í skólakerfinu og skólastjórnendur þurfa að nýta niðurstöður Matsferilsins til að skoða hvað gangi ekki nægjanlega vel og hvernig sé hægt að stíga inn og veita aðstoð. Fagleg forysta, eða réttara sagt skortur á henni, er meðal þess sem er rætt um í öðrum þætti Kerfisins. Viðmælendur í þættinum eru Anna Kristín Sigurðardóttir og Auður Soffía Björgvinsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
1. þáttur Mælingar og margt fleira 10.03.2026 57mMjög er rætt um menntamál og fólk hefur ólíkar skoðanir á stöðu skólakerfisins í dag, ekki síst í grunnskólanum. Það er rætt um kennsluaðferðir, símanotkun í skólum, samræmd próf og námsmat í tölum eða bókstöfum. Hvort fimmtán ára drengir séu upp til hópa ólæsir og sífellt verri útkomu í PISA. Það hefur aftur á móti minna farið fyrir umræðu um hvers vegna hlutfall íslenskra nemenda sem búa yfir afburðahæfni lækkar á sama tíma og nemendum sem ekki ná meðalhæfni fjölgar. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more informat... -
7. Virði íslensks stúdentsprófs 30.11.2025 43mBorið hefur á því að stúdentsprófin uppfylli ekki kröfur sem erlendir háskólar gera eftir að að námið var stytt í þrjú ár. Fjarnám, samræmi og ósamræmi milli skólaeinkunna og mikilvægi þess að nýta tæknina til góðra verka. Viðmælendur í þættinum eru: Anna Helga Jónsdóttir, Atli Ársælsson, Árni Ólason, Eyrún Arnardóttir, Guðjón Hreinn Hauksson, Hjálmar Gíslason, Magnús Þorkelsson, Matthildur Ársælsdóttir, Miriam Petra Ómarsdóttir Awad og Sólveig Hannesdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
6. Við erum alls konar 23.11.2025 42mVið erum alls konar og skólakerfið á að spegla þennan fjölbreytileika. Nemendum á starfsbrautum framhaldsskólanna hefur fjölgað gríðarlega undanfarinn áratug sem og nemendum með erlendan bakgrunn. Nánast allir halda áfram námi að loknum grunnskóla og það getur verið áskorun að mæta öllum. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Askur Örn Margrétarson, Árni Ólason, Berglind Halla Jónsdóttir, Eyrún Arnardóttir, Gunnlaugur Magnússon, Hildur Ýr Ísberg, Hjálmar Gíslason, Kristín Þóra Möller, Magnús Þorkelsson, Sigríður Anna Ólafsdóttir og Þóra Þórðardóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more i...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.