Silfrið
RÚV Hlaðvörp
0
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Episodes
-
Bláa bylgjan og Viðreisn í vörn 09.11.2026 46mSvanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vg, og Jón Trausti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimildarinnar eru gestir Silfursins í kvöld. Það er af mörgu að taka á vettvangi vikunnar. Hvernig bregst Bandaríkjaforseti við stórsigri demókrata í síðustu viku og hvaða áhrif hefur það á alþjóðamálin? Viðreisn hefur átt í vök að verjast og spjótin beinast að fjármálaráðherra og stjórn Landsvirkjunar. Vinstri græn héldu flokksráðsfund um helgina. Hver er staða vinstrisins, sem hefur verið utanþings í tvö ár? Og Jón Trau... -
Ögurstund í Ameríku 02.11.2026 47mÞingkosningarnar á þriðjudaginn gætu valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum. Vinsældir Donald Trumps mælast í sögulegu lágmarki og kjósendur gætu látið frambjóðendur repúblikana gjalda þess, jafnvel í ríkjum sem jafnan hafa verið helstu vígi flokksins. En hvað gerist síðan á kjördag, og hverju breytir það ef demókratar ná meirihluta í báðum deildum þingsins? Og hvaða líkur eru á því að forsetinn virði niðurstöður kosninganna? Gestir Silfursins spá í bandarísku kosningaspilin: Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur í New York Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri almannatengslafyrirtækisin... -
Aðför að landsbyggðinni? 27.10.2026 45mHallar á landsbyggðina í verkum ríkisstjórnarinnar? Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og jafnvel talað um aðför í því sambandi. Sem dæmi eru nefnd breytingar á Loftbrú, hækkun veiði- og kílómetragjalds, náttúru- og vinnviðagjald, sameining lögregluembætta og fleira. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, fara yfir stöðuna í Silfrinu í kvöld. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more in... -
Heilbrigð þjóð í hraustum líkama 19.10.2026 46mSilfrið í kvöld verður helgað heilbrigðismálunum. Landspítalinn sér sig knúinn til að skera niður um tvo milljarða miðað við fjárlagafrumvarpið, heimilislæknar gagnrýna niðurskurð til heilsugæslunnar, og uppi eru nýjar hugmyndir um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Hvernig er best að skipuleggja og fjármagna það svo það þjóni þörfum þjóðarinnar? Gestir þáttarins eru Alma Möller heilbrigðisráðherra, Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuhússins, Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands. Umsjón með þættinum hefur Sigrí... -
Samtal við forsetann 12.10.2026 46mHalla Tómasdóttir, forseti Íslands, er gestur Silfursins. Um helgina stóð hún fyrir viðburðinum Tölum saman, þar sem ungt fólk ræddi hvernig samfélag það sér fyrir sér og hvernig við nýtum gervigreind til góðs. Þá átti hún fund með alþjóðlegum leiðtogum í Höfða í gær, í tilefni af því að 40 ár voru liðin frá Höfðafundinum. Í síðari hluta þáttar erum við á vettvangi dagsins með þeim Hallgrími Helgasyni, rithöfundi, Ásthildi Sturludóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, og Höllu Hrund Logadóttur, alþingismanni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Atvinnuleysi á tímum gervigreindar og Anne Applebaum 05.10.2026 43mMeira en 180 manns misstu vinnuna í hópuppsögnum í september. Stór hluti þeirra eru forritarar og tölvunarfræðingar; auk þess sem bankastarfsmenn og opinberir starfsmenn, t.d. lögfræðingar hafa verið að missa vinnuna í smærri uppsagnarlotum. Er áhrifa fjórðu iðnbyltingarinnar, gervigreindarbyltingarinnar, farið að gæta á íslenskum vinnumarkaði? Hvernig er best að bregðast við þeim nýju kröfum sem gervigreindin gerir á vinnustöðum landsins? Gestir þáttarins eru Ásta Ásgeirsdóttir deildarstjóri greiningardeildar Vinnumálastofnunar, Hjálmar Gíslason formaður starfshóps um nálgun stjórnvalda í mál... -
Siðferðislegt hugleysi og heimurinn í dag 28.09.2026 49mRæða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna vakti heimsathygli um helgina, þar sem hún sneri ásökunum Benjamíns Netanyahus um siðferðislegt hugleysi upp á hann sjálfan, og gagnrýndi þá þjóðarleiðtoga sem stunda stríðsrekstur og brot á alþjóðalögum. Silfrið verður helgað umræðu um framtíð alþjóðakerfisins, friðsamlegs samstarfs þjóða heims og stöðu Íslands í heiminum. Rætt verður við Þorgerði Katrínu, auk þess sem Friðjón Friðjónsson almannatengill, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Helgi Steinar Gunnlaugsson blaða... -
Trumpískar vindmyllur og tjóðruð gervigreind 21.09.2026 45mEftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar nokkurra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróuninni. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og orkuöflun fyrir hana orðnar mikilvægur drifkraftur hagvaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Hvaða áhrif hefði það á heimsbúskapinn - og Ísland - ef hægt yrði á kapphlaupinu? Og hversu mikla orkuöflun á kostnað náttúruauðlinda er hægt að réttlæta? Andri Snær Magnason rithöfundur, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, og Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri hjá Deloitte, fóru yfir stöðuna. Bjartsýni... -
Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög 14.09.2026 47mFjárlagafrumvarpið og þingmálaskrá vetrarins verða efst á baugi í Silfrinu í kvöld. Eru hallalaus fjárlög lykillinn að lægri verðbólgu eða eru skatta- og gjaldskrárhækkanir olía á eldinn? Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Sigurjón Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson fara yfir stöðuna Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 08.09.2026 58mÞjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið.Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsso... -
Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu 01.09.2026 56mMeirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Kjör almennings og viðsjár í veröldinni 01.09.2026 52mKjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi. Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum.Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. S... -
Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið 01.09.2026 1h 3mFólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn. Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags o... -
Formenn takast á um aðildarviðræður 01.09.2026 1hSilfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi - Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir - mætast í beinni útsendingu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum? 09.06.2026 58mHvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst? Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu. Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í a... -
35. þáttur: Hvað myndi það þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið 05.06.2026 50mÍ þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið.Gestir þáttarins:Dagur B. Eggertsson þingmaður SamfylkingarinnarHanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr ViðreisnLilja D. Alfreðsdóttir formaður FramsóknarflokksinsSigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar 18.05.2026 57mSilfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
33. þáttur: Um hvað er kosið? Sveitarstjórnarmálin í fókus 12.05.2026 45mÞjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
32. þáttur: Kosningabaráttan á fullu 05.05.2026 49mÍ fyrri hlutanum rýnum við sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram eftir tæpar tvær vikur. Gestir:Sunna Sæmundsdóttir fréttastjóri á fréttastofu SýnarEva Marín Hlynsdóttir prófessor í stjórnmálafræði Magnús Geir Eyjólfsson þingfréttamaður RÚVBryndís Ísfold Hlöðversdóttir ráðgjafiÍ seinni hlutanum er rætt við blaðamanninn og rithöfundinn Evan Osnos um stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
31. þáttur: Umhverfisumræðan sem hvarf 28.04.2026 46mUm 2500 manns eru talin hafa tekið þátt í Grænu göngunni 2026 á sumardaginn fyrsta. Stjórnvöld voru harðlega gagnrýnd fyrir áherslur sínar í umhverfis- og orkumálum, og fyrir að standa ekki vörð um íslenska náttúru. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í Silfrið ásamt Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur formanni Landverndar, Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrverandi orkumálastjóra, og Finni Beck framkvæmdastjóra Samorku. Umsjón hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.