Handkastið

Handkastið

Handkastið
Country Iceland
Genres Sports
Language IS
Episodes 352
Latest 06.11.2026

Podcast by Handkastið, a show dedicated to handball. It covers handball-related topics, likely including match analyses, player interviews, and discussions about the sport.

Episodes

  • Nýtt vopn í Reyni Þór og þróun handboltans 06.11.2026 50m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp landsins Íslands og Úkraínu á miðvikudaginn. Ísland setti markamet í Laugardagshöllinni. Ómar Ingi kominn í 400 marka klúbbinn. Reynir Þór með frábæra innkomu og gæti verið nýtt vopn fyrir Snorra Stein. Leikgleðin lak af Jóni Bjarna í hans fyrsta heimaleik með landsliðinu. Haukar eru á toppi Olís deildinnar og spila í Evrópu um helgina. Hvað hefur komið okkur mest á óvart í Olís deildunum, Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Landsleikjavika og línur farnar að skýrast í Olís deildinni 02.11.2026 1h 15m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastins og gerðu upp handboltahelgina hér heima og erlendis. Strákarnir Okkar spila í vikunni í Laugardagshöllinni og eru örfáir miðar ennþá til sölu. Arnar Pétursson vonast eftir að fá að halda vegferðinni áfram með kvenna landsliðið. Landsliðsstrákar orðaðir við hin og þessi félög í Evrópu. Haukar fóru illa með KA í toppslagnum. Fáliðaðir Eyjamenn unnu frábæran sigur á Stjörnunni. Vandræði Frammara halda áfram eftir tap gegn Víking. Eyjakonur unnu Gróttu án Birnu Berg. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Arnar Pétursson ræðir EM hópinn - vegferðina og framtíð sína sem landsliðsþjálfari Íslands 30.10.2026 12m
    Ítarlegt viðtal við Arnar Pétursson þjálfara íslenska kvennalandsliðsins en í hádeginu í dag kynnti hann 17 manna EM hóp sinn fyrir komandi stórmót. Arnar Pétursson tók við íslenska kvennalandsliðinu í ágúst árið 2019 og er því á sínu sjötti ári með liðið. Hann er á leið á sitt fjórða stórmót í röð en samningur hans við HSÍ rennur út eftir mótið. Hann ræddi EM hópinn, framtíðina, stöðuna á leikmönnum hópsins, vegferðina og framtíð sína sem þjálfara íslenska landsliðsins.
  • Besta byrjun Hauka síðan 2000 og Selfoss á síðasta séns 29.10.2026 1h 12m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp heila umferð í Olís deild karla sem fram fór í vikunni. Haukarnir geta ekki hætt að vinna leiki og stefna á bestu byrjun síðan árið 2000. KA fór í Kaplakrika og rassskellti FH. Selfoss eru á síðasta séns hjá Séffanum. ÍBV fóru fáliðaðir í Virkið og tóku bæðin stigin með sér til Eyja. Gunnar Róberts hafði hægt um sig í þessari umferð en þá mætti Arnór Snær til leiks. Olís deild kvenna er að fara aftur af stað eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Sérveitin verður heima og Haukar ætla ekki að tapa leik 26.10.2026 1h 3m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Gunnar Róbertsson heldur áfram að vera allt í öllu þegar Valur vann ÍBV. Guðjón Valur var fyrstur til að vinna Flensburg í þ´ýsku úrvalsdeildinni. Haukar ætla sér langt í Evrópu þetta árið. Línur eru farnar að skýrast í Olís deild karla. Tvær umferðir framundan í vikunni hjá körlunum. Stelpurnar fara aftur af stað í vikunni eftir landsleikjahlé. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • 18 ára á meðal markahæstu leikmanna Evrópu og hverjir hafa komið mest á óvart? 23.10.2026 1h 11m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Gunnar Róbertsson er 5. markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið vann Pólland í leik sem fór fram í kyrrþey í Póllandi. Línur farnar að skýrast í Meistaradeild Evrópu. Afturelding missti 2 leikmenn í meiðsli gegn KA. Markvarsla neðstu liða Olís deildinnar er áhyggjuefni. Nóg af handbolta um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Yfirvinna í Eyjum og allt undir á Selfossi 19.10.2026 1h 17m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hérlendis og erlendis. Var eitthvað óvænt í landsliðshóp Snorra Steins? Þarf að breyta félagsskiptaglugganum í Evrópu? Þórsarar náðu 50% árangri í Eyjum um helgina en það var nóg að gera hjá dómaraparinu. Stjarnan er að koma öllum á óvart í upphafi tímabilsins. Hafdís mætti aftur í markið hjá Val og lokaði búrinu. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Valur með svarta beltið í Evrópu og fimm mestu harðhausar Olís-deildanna 15.10.2026 1h 3m
    Sérfræðingurinn fékk Sigurjón Friðbjörn og Gunnar Val beint af grillinu í Rapyd-stúdíóið. Farið var yfir fyrstu tvo leikina í 6.umferð Olís-deildar karla og spáð í spilin í næstu leiki auk þess sem spa´ð var í spilin í 6.umferð í Olís-deild kvenna. Farið var yfir frammistöðu Vals og FH í Evrópudeildinni. Í lokin var farið yfir fimm mestu harðhausana í Olís-deildum karla og kvenna og var Sérfræðingurinn fenginn til að blind ranka leikmennina. Þar var mikið hlegið og mikið fjör.
  • Facebook færslur og hvað er í gangi hjá Fram? 12.10.2026 1h 10m
    Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Ásgeir Jónsson settust í Rapyd-stúdíó-ið og fóru yfir Facebook færslur, Olís-deild kvenna, Powerade-bikar karla, spáðu í spilin fyrir næstu umferð í Olís-deild karla og sitthvað fleira í þessum þætti. Erlingur Richardsson er ósigraður í Þýskalandi og óskum við honum til hamingju með það að hætti Maggi Stef. Valur og FH verða í eldlínunni í Evrópudeildinni þar sem Valur er í dauðafæri að koma sér í kjörstöðu í sínum riðli. Arnar Pétursson og Rakel Dögg Bragadóttir settust við lyklaborðið a´ dögunum og skrifuðu Facebook-færslur sem farið var vel yfir. Þá var velt fyrir sér þeirri ákvörðun Þórs að spila tvo leiki á tveimur dögum í Vestmannaeyjum um næstu helgi.
  • Þjálfarinn ræður og hvað er að fæðast í Mosfellsbænum? 08.10.2026 1h 1m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum. Arnar Pétursson er búinn að velja landsliðshópinn og hann ræður. Haukar og Afturelding eru mættir í 8 liða úrslit Powerade bikarsins. Fáum við óvænt úrslit í hinum leikjum 16 liða úrslitanna? Gidsel jafnaði markametið og Emil Nilsen er allt önnur skepna hjá Veszprém. Heil umferð í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Evrópa truflaði ekki og markaskor nær nýjum hæðum í Olís deildinni 05.10.2026 1h 6m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó´ Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Valur og FH létu ekki Evrópuleikina trufla sig og unnu sigra í Olís deildinni. HK vann sigur á Stjörnunni í svokölluðum fjögurra stiga leik. Þrjú lið eru á toppi Olís deildar kvenna með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Botnbaráttan mun vera æsispennandi hjá stelpunum í vetur. Álaborg skíttapaði gegn GOG í dönsku deildinni um helgina. Strákarnir okkar eru hættir að vera í liði umferðarinnar í Þýsklandi. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Fjárhagsvandamál hjá Val og voru menn sviknir í Eyjum? 02.10.2026 1h 11m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum hérlendis og erlendis. Orri Freyr er á leiðinni til Guðjóns Vals. Veszprem eru heimsmeistarar félgasliða. Mönnum var heitt í hamsi fyrir Vestan. Sissi kveður Val með 13 titla í farteskinu. Fram eru í mikilli brekku eftir 18 marka tap gegn UMFA. KA og Haukar með góða sigra í 5.umferðinni. Mikill handbolti alla helgina bæði hjá strákunum og stelpunum. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Þjálfaraskipti og krísufundur í Olís deild karla 28.09.2026 1h 6m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Ásgeir Jónsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og gerðu upp handbolta helgina hér heima og erlendis. Valur og FH byrja Evrópuævintýrið í vikunni. Mikið um óvænt úrslit í Olís deild karla. Hvernig eru liðin í Olís deild karla að hefja tímabilið? Erlingur Richardsson hefur tekið við þjálfun hjá Minden í Þýskalandi og fengum við þær upplýsingar í miðjum þættinum. Olís deild kvenna hefst aftur í vikunni. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • 307 daga bið Stjörnunnar á enda og nennir enginn að spila vörn lengur? 24.09.2026 1h 2m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis. Haukar unnu FH en gerðu sitt besta til að kasta leiknum frá sér. Stjarnan vann loksins í Olís deildinni eftir 307 daga bið. Einar Jónsson var virkilega ósáttur með sína menn. Afturelding fór illa með Selfyssinga. HK fór til Eyja og stal báðum stigunum. Einars Braga hornið hóf göngu sína í Handkastinu. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Jóhanna í hefndarhug og það styttist alltaf í sigurleik 21.09.2026 1h 2m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis. Magdeburg tapaði óvænt gegn Melsungen. Elítuhópurinn æfði um helgina. Haukar vinnu stórleikinn í kvennaboltanum um helgina. Meiðsli herja á leikmenn og þjálfarateymi KA/Þórs. Fram tapaði niður 9 marka forskoti. FH og Haukar mætast í st´órleik á fimmtudaginn. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Þór með montréttinn og kveður Gunnar Róbertsson okkur í janúar? 16.09.2026 1h 7m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Björn Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 3.umferð í Olís deild karla. Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að taka yfir þessa deild. Siggi Dan bjargaði stigi fyrir Stjörnuna fyrir austan fjall. Þórsarar unnu KA á útivelli í kvöld og eru með montréttinn fyrir norðan næstu dagana. Haukar eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga. Heil umferð fer fram í Olís deild kvenna um helgina. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Markametið slegið og undarlegustu félagsskipti síðustu ára 14.09.2026 1h 2m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi. Víkingar verða byrja leikina. Hvað var KA að spá að reyna ekki að halda í Magnús Dag? Markametið slegið á Hlíðarenda? Verður Einar Jónsson að fara að róa sig? Valskonur svöruðu eftir slæma byrjun með þægilegum sigri á ÍBV. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastins.
  • Aron til bjargar og Eyjamenn með veskið á lofti 10.09.2026 53m
    Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum hér á Íslandi og erlendis. Aron reddar Íslendingum og mætir til landsins í janúar. Arnar Pétursson hefur valið æfingarhóp fyrir landsliðið. Danskir dagar í Þorpinu þegar Þórsarar unnu sinn fyrsta leik í vetur. FH kastaði frá sér sigri í Mosfellsbænum. Nóg af handbolta alla helgina bæði í karla og kvenna. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Óvæntustu úrslit síðari ára og 2010 árgangurinn er mættur til leiks 07.09.2026 1h 9m
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum. Haukar mættu til leiks með látum. Það tók 2 sólarhringa að klára leik Aftureldingar og Víkings. Selfoss kom öllum á óvart og unnu Íslandsmeistaranna. Stelpurnar voru með skotleyfi um helgina. Lið umferðanna opinberuð. Þetta og miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
  • Valur slapp með skrekkinn og ný nöfn í deild þeirra bestu 04.09.2026 1h 1m
    Olís-deild karla er farin af stað og hinar deildirnar hefjast um helgina. Boltinn er farinn að rúlla í Evrópu. Óvænt félagaskipti síðustu daga og nýtt félag í Grill66-deildinni. Sérfræðingurinn, Einar Ingi og Kiddi Bomba fóru yfir allt það helsta í Rapyd stúdíóinu.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.