Krakkaheimskviður
RÚV Hlaðvörp
0
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Episodes
-
Kanadíski skógarbjörninn sem varð Bangsímon 14.11.2026 13mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða höldum við upp á aldarafmæli Bangsímons. Við kynnumst sögu þessa góðkunna bjarnar og eiganda hans, Christopher Robin. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Löndin sem vilja sjálfstæði frá Englendingum 07.11.2026 14mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við til Bretlands og heyrum af merkilegum fundi þriggja leiðtoga í haust. Við skoðum hvers vegna Norður-Írland, Skotland, Wales og England eru í ríkjasambandi og hvort líklegt er að það samband verði leyst upp. Fréttamaðurinn Bogi Ágústsson er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Hvernig fara kosningar í Bandaríkjunum? 31.10.2026 15mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas miðkjörtímabilskosningarnar sem verða í Bandaríkjunum í næstu viku. Hvernig ætli þær fari og um hvað er verið að kjósa? Fréttamaðurinn Þorgils Jónsson er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Hrekkjavökuupphitun Krakkaheimskviða 24.10.2026 14mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við um allan heim og skoðum hrekkjavökutengdar fréttir. Hvers vegna eru graskerin minni í ár og hvernig býr maður til búninga? Það er hryllilegt stuð í þætti dagsins! Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Nýr íslenskur Nóbelsverðlaunahafi 17.10.2026 13mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða kynnumst við nýjasta Nóbelsverðlaunahafa Íslendinga, ljóðskáldinu Anne Carson. Hver er hún og hvers vegna býr hún á Íslandi? Við skoðum líka suður-afríska lögfræðinginn sem fékk friðarverðlaun Nóbels og hvað það er sem hún heldur að hafi landað henni þeim. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Heimsókn Marco Rubio og 40 ár frá leiðtogafundi 10.10.2026 17mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða heyrum við af merkilegri heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands og tengslum hann við 40 ára gamla atburði. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Ný kattategund í fyrsta sinn í heila öld 03.10.2026 12mÍ þessum þætti Krakkaheimkviða kynnumst við nýrri kattartegund, þeirri fyrstu sem finnst í meira en hundrað ár! Við skoðum heimkynnum hans og heyrum af því hvernig hann fannst og vísindamanninum sem rannsakaði hann. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Ólympíumótið í skák og Íslendingurinn sem vann Magnus Carlsen 26.09.2026 13mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Ólympíumótið í skák sem lýkur nú um helgina. Vignir Vatnar, stórmeistari í skák og liðsmaður íslenska hópsins í Úsbekistan, er gestur þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Hvernig breytti 9/11 heiminum? 19.09.2026 14mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða minnumst við þess að nýlega voru 25 ár liðin frá mannskæðustu hryðjuverkum sögunnar. Hvað var það sem gerðist 11. september 2001 og hvernig breyttu þessir atburðir heiminum? Fréttamaðurinn fyrrverandi Logi Bergmann Eiðsson er viðmælandi þáttarins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Nýr kóngur í Noregi 12.09.2026 15mÍ þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas norsku konungsfjölskylduna. Haraldur fimmti Noregskonungur lést í lok ágúst og á miðvikudaginn í síðustu viku var hann jarðaður. Hver var hann og hver er það sem tekur við? Allt um það í þætti dagsins. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Sumarfréttir, ráðuneytiskötturinn Larry og hvað er framundan í haust? 05.09.2026 12mÍ þessum fyrsta Krakkaheimskviðuþætti sumarsins fara Karitas og Birta yfir helstu fréttir sumarsins, kynnast forsætisráðuneytiskettinum Larry og skoða hvaða fréttamál eru framundan í haust. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: Ránið á Louvre 29.08.2026 16mÍ næstu viku hefst ný þáttaröð af Krakkaheimskviðum. Í dag ætla ég þess vegna að rifja upp uppáhaldsfréttina mína frá síðasta vetri, um ránið á Louvre. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: Evrópusambandið 22.08.2026 15mÍslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu núna í lok ágúst um það hvort við viljum skoða inngöngu í Evrópusambandið. Það er því ekki úr vegi að rifja upp umfjöllun frá því í vor um ESB, eftir sögulegar kosningar í Ungverjalandi. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: Saga símans 15.08.2026 15mVissuð þið að í dag, 16. ágúst, eru nákvæmlega 32 ár frá því að fyrsti snjallsíminn var kynntur til sögunnar? Í mars voru svo 150 ár frá allra fyrsta símtalinu, við rifjum upp þáttinn um sögu símans í dag. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: Sólmyrkvi 08.08.2026 15mÁ miðvikudaginn verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á stórum hluta Íslands. Stjörnu-Sævar sagði okkur allt um hann í júní. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: Aðför gegn transfólki 01.08.2026 13mNæstu helgi er Reykjavík Pride, Gleðigangan sjálf. Af því tilefni er gott að kynna sér aftur bakslagið sem hefur orðið í réttindum hinsegin fólks, umfjöllun frá því í maí 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: Eftirnöfn í Færeyjum 25.07.2026 15mÍ næstu viku - nánar tiltekið 28. og 29. júlí, er þjóðhátíð Færeyinga og því er tilvalið að heyra aftur umfjöllun um eftirnafnahefð Færeyinga frá því í mars 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: Umhverfisáhrif gervigreindar 18.07.2026 14mÍ lok mánaðar, 28. júlí, er alþjóðadagur náttúruverndar. Af því tilefni rifjum við upp hver umhverfisáhrif gervigreindar eru í þætti frá því í febrúar 2025. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: Pöndur 11.07.2026 15mHvers vegna eru pöndur mikilvægar í samskiptum milli landa og hvað er eiginlega dýradiplómasía? Við rifjum upp það sem við lærðum um þessa ofurkrúttlegu sendiherra í vetur í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
SUMAR: AirBNB-bann 04.07.2026 15mSumarið er tími ferðamanna en mörg hafa skoðanir á því hvar og hvernig þeir dvelja á fjölförnum stöðum. Við rifjum upp umfjöllun um AirBNB-bann í Barcelona í þætti dagsins. Ég heiti Karitas og þetta eru Sumar-Krakkaheimskviður. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.