Ráðhúsið

Ráðhúsið

Samband íslenskra sveitarfélaga
Country Iceland
Language IS
Episodes 24
Latest 19.11.2026

Hlaðvarp um sveitarstjórnarmál.

Episodes

  • 34. Reynslusaga úr öldungaráði Reykjanesbæjar - Kristján Gunnar Gunnarsson
    34. Reynslusaga úr öldungaráði Reykjanesbæjar - Kristján Gunnar Gunnarsson 19.11.2026 21m
    Viðmælandi þáttarins er fulltrúi félags eldriborgara á Suðurnesjum í öldungaráði Reykjanesbæjar og segir okkur frá sinni reynslu af því að koma nýr inn í öldungaráð, hvernig hægt er að hafa raunveruleg áhrif í málefnum eldra fólks og hvernig sveitarfélög geta eflt starfsemi öldungaráða sinna.
  • 33. Netöryggi sveitarfélaga - Björgvin Sigurðsson
    33. Netöryggi sveitarfélaga - Björgvin Sigurðsson 29.10.2026 37m
    Í þessum þætti er rætt við Björgvin Sigurðsson, verkefnisstjóra stafrænnar þjónustu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um net- og upplýsingaöryggi sveitarfélaga. Farið er yfir ógnir, viðbragð og ábyrgð.
  • 32. Börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn - Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
    32. Börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn - Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir 15.10.2026 27m
    Í Ráðhúsi dagsins er rætt við Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar um reynslu sveitarfélagsins af því að taka á móti og þjónusta börn með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Halldóra starfar einnig hjá Reykjanesbæ í þessum málaflokki og deilir með okkur dýrmætum fróðleik sem nýst gæti öðrum sveitarfélögum.
  • 31. Föruneyti barna - Líf Lárusdóttir
    31. Föruneyti barna - Líf Lárusdóttir 01.10.2026 24m
    Í Ráðhúsi dagsins ræðir Finnur við Líf Lárusdóttur, bæjarfulltrúa Akraneskaupstaðar, um innleiðingu þeirra á Föruneyti barna. Farið er yfir árangur, áskoranir og tækifæri fyrir önnur sveitarfélög sem felast í innleiðingu þessa mikilvæga verkefnis sem stuðlar að aukinni vellíðan barna með betri samskiptum og áherslu á leik.
  • 30. Í beinni frá Akureyri: Hvað er í gangi á Landsþingi 2026?
    30. Í beinni frá Akureyri: Hvað er í gangi á Landsþingi 2026? 24.09.2026 22m
    Í þessum óhefðbundna Ráðhússþætti erum við í beinni frá Landsþingi Sambandsins 2026 á Akureyri. Rætt er við Hjördísi Ýr Johnson, Skúla Helgason, Braga Bjarnason og Róbert Ragnarsson sem stýrðu umræðum í mismunandi hópum stefnumörkunarvinnu sveitarstjórnarstigsins fyrir árin 2026-2030.
  • 29. Litið um öxl - Jón Björn Hákonarson
    29. Litið um öxl - Jón Björn Hákonarson 23.09.2026 32m
    Í Ráðhúsinu að þessu sinni ræðir Finnur við Jón Björn Hákonarson, fráfarandi fomann Sambandsins, um árangur og áskoranir sveitarstjórnarstigsins á liðnu kjörtímabili. Farið er um víðan völl og gerir Jón Björn m.a. grein fyrir sinni framtíðarsýn fyrir sveitarstjórnarstigið og veitir nýjum formanni, nýrri stjórn og nýkjörnum sveitarstjórnarfulltrúum góð ráð.
  • 28. Þingmálaskrá 2026-2027 - Valgerður Rún Benediktsdóttir
    28. Þingmálaskrá 2026-2027 - Valgerður Rún Benediktsdóttir 17.09.2026 20m
    Í þessum þætti af Ráðhúsinu ræðir Bryndís við Valgerði Rún Benediktsdóttur, yfirlögfræðing Sambandsins, um þingmálaskrá vetrarins 2026–2027. Hvaða mál skipta sveitarfélög mestu máli, hverju þarf að fylgjast sérstaklega með og hvernig geta sveitarfélög haft áhrif á lagasetningu?
  • 27. Húsnæði við hæfi
    27. Húsnæði við hæfi 03.07.2026 30m
    Í þessum þætti af Ráðhúsinu er gestur þáttarins Saga Guðmundsdóttir, aðalhagfræðingur Sambandsins og fjöllum við um nýbirta skýrslu sem ber nafnið Húsnæði við hæfi og er afrakstur starfshóps undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Hópurinn lagði til breytingar á reglugerð um húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk og tillögur að aðgerðum sem hvoru tveggja hefur það markmið að uppfylla þörf fatlaðs fólks fyrir sértæk húsnæðisúrræði.
  • 26. Gagnainnviðir: undirstaðan að gagnadrifnum ákvörunum.
    26. Gagnainnviðir: undirstaðan að gagnadrifnum ákvörunum. 19.06.2026 35m
    Í þessum þætti af Ráðhúsinu fjöllum við um uppbygging á gagnainnviðum Sambandsins, þ.e. upplýsingaveitu Sambandsins og gagnalón og hvernig gögn geta nýst sveitarfélögum og Sambandinu í starfi og hagsmunagæslu. Gestir þáttarins eru Sólveig Ástudóttir Daðadóttir, starfsmaður Sambandsins, og Óttar Guðmundsson frá Gangverk, sem er samstarfsaðili Sambandsins í þessari vinnu.
  • 25. Orkuskipti sveitarfélaga: Grípum tækifærin! - Ottó Elíasson
    25. Orkuskipti sveitarfélaga: Grípum tækifærin! - Ottó Elíasson 04.06.2026 29m
    Ottó Elíasson, framkvæmdastjóri Eims, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hann segir okkur frá stóru samstarfsverkefni um orkuskipti á Norðurlandi Eystra og Vestfjörðum (RECET). Við ræðum meðal annars hvernig orkuskipti líta út í samhengi sveitarfélaga, hver ávinningurinn er af orkuskiptum og hvaða afurðir úr RECET verkefninu geta nýst sveitarfélögum um allt land í að stíga sín næstu skref í orkuskiptum og orkunýtni.
  • 24. Eftir kosningar: Þátttaka og næstu skref
    24. Eftir kosningar: Þátttaka og næstu skref 22.05.2026 26m
    Í Ráðhúsi vikunnar ræðum við kosningaþátttöku, hvernig persónukjör og nýliðun móta nýtt landslag og fáum nokkrar góðar ráðleggingar frá Bryndísi Gunnlaugsdóttur, lögfræðings hjá Sambandinu, um fyrstu skref eftir að nýr meirihluti hefur verið myndaður.
  • 23. Kosningatips fyrir kjósendur og kjörstjórnir - Ástríður Jóhannesdóttir
    23. Kosningatips fyrir kjósendur og kjörstjórnir - Ástríður Jóhannesdóttir 12.05.2026 27m
    Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, er gestur Ráðhússins í þessari viku þar sem hún fer yfir helstu atriði komandi sveitarstjórnarkosninga. Við ræðum meðal annars framkvæmd kosninganna, hvað kjósendur þurfa að hafa í huga og hlutverk og ábyrgðir kjörstjórna.
  • 22. Stafræn ráðstefna sveitarfélaga 2026 - Sólveig Ástudóttir Daðadóttir
    22. Stafræn ráðstefna sveitarfélaga 2026 - Sólveig Ástudóttir Daðadóttir 16.03.2026 14m
    Stafræn ráðstefna sveitarfélaga árið 2026 verður haldin þann 25. mars n.k. í Grósku. Í þætti dagsins fáum við Sólveigu Ástudóttur Daðadóttur til að segja okkur frá því helsta sem verður á boðstólnum á ráðstefnunni. Skráningu lýkur föstudaginn 20. mars. https://www.samband.is/vidburdir/stafraen-radstefna
  • 21. Hvað þurfa framboð að hafa klárt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí?
    21. Hvað þurfa framboð að hafa klárt fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí? 05.03.2026 28m
    Í þessum þætti fræðir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar, okkur um framboðsfrest, meðmælalista og hlutverk kjörstjórna við yfirferð framboða. Við komum líka inn á listabókstaf, persónukjör og listakjör - og hvað gerist ef aðeins einn listi býður sig fram.
  • 20. Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja?
    20. Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? 19.02.2026 31m
    Hvað felst í Kveikjum neistann—og hvaða lærdóm geta önnur sveitarfélög dregið af reynslu Vestmannaeyja? Í þessum þætti ræðir Bryndís við Írisi Róbertsdóttur, bæjarstjóra Vestmannaeyja, og í lokin deilir Íris hagnýtum ráðum til þeirra sem vilja kveikja svipaðan neista heima hjá sér. Hlustaðu núna—og deildu þættinum með einhverjum sem hefur áhuga á skóla- og sveitarstjórnarmálum.
  • 19. Brúum bilið - greining á stöðunni!
    19. Brúum bilið - greining á stöðunni! 03.02.2026 31m
    Í desember 2025 kom út skýrslan "Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps" en aðgerðarhópurinn var skipaður af forsætisráðuneytinu í framhaldi af undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Helga María Pálsdóttir sviðstjóri stjórnsýslusviðs hjá Sambandinu kom að vinnu aðgerðarhópsins og fjallar um helstu tillögur.
  • 18. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Árið 2025 gert upp
    18. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Árið 2025 gert upp 08.01.2026 30m
    Í þessum fyrsta þætti ársins er árið 2025 gert upp í hagfræðilegum skilningi út frá sjónarhorni sveitarfélaganna Meðal þess sem er rýnt í eru tölur um fólksfjölgun, skattekjur, innviðafjárfestingar, atvinnuleysi, veltu atvinnugreina og gjaldskrárhækkanir.
  • 17. Virk ungmennaráð eða formsatriði? - Ingimar Guðmundsson
    17. Virk ungmennaráð eða formsatriði? - Ingimar Guðmundsson 18.12.2025 24m
    Virk ungmennaráð eða formsatriði? Í þætti vikunnar er rætt við Ingimar Guðmundsson, verkefnastjóra hjá Sambandinu, um stöðu ungmennaráða og ráðstefnu ungmennaráða sveitarfélaga sem fór fram í byrjun desember.
  • 16. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Hvers vegna er 34 milljarða halli á grunnskólarekstri?
    16. Sögustund með Sögu Guðmundsdóttur: Hvers vegna er 34 milljarða halli á grunnskólarekstri? 09.12.2025 17m
    30 ár eru frá því að sveitarfélögin tóku við rekstri grunnskólanna frá ríkinu og í þætti vikunnar ræðum við söguna, hvers vegna grunnskólar landsins eru reknir með stöðugum halla og hvaða lausnir standa til boða.
  • 15. Hvernig standa sveitarfélögin sig í loftslagsmálum? - Finnur Ricart Andrason
    15. Hvernig standa sveitarfélögin sig í loftslagsmálum? - Finnur Ricart Andrason 20.11.2025 19m
    Í þætti vikunnar er spurt: Hver er staða sveitarfélaga í loftslagsmálum? Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum hjá Sambandinu fer yfir niðurstöður nýrrar skýrslu um stöðu sveitarfélaga í loftslagsmálum.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.