Mannlegi þátturinn
RÚV
0
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Episodes
-
Þrjátíu ára upptökur fundust á Þjóðskjalasafninu, alþjóðlegi slagdagurinn og Jónatan um Jóhann G. 29.10.2026 52m3toOne tilraunaverkefnið hófst árið 1995 og því rétt um 30 ár liðin frá því þeir Egill Ólafsson, Sigurður Gröndal og Ingólfur Guðjónsson sömdu lög og spiluðu og tóku upp í tveimur sumarbústöðum. Tilefnið var löngun til að skapa tónlist sem sigldi aðeins utan við meginstrauma þess tíma. Árin liðu og ekkert gerðist en árið 2024 var ákveðið að reyna að finna upptökurnar og þær fundust á Þjóðskjalasafninu og nú árið 2026, 30 árum eftir upptökurnar, er tónlistin komin út á vínilplötu og á streymisveitum. Þeir félagar komu til okkar í dag og við fengum að heyra meira af þessu ævintýri í dag. Í dag er alþjóðlegi slagdagurinn og Heilaheill vill vekja athygli, eins og gert er um allan heim, á fyrstu einkennum heilablóðfalls, sem eru: sjóntruflun og skyntap, lömun útlima, andlitslömun og glatað mál. Saman koma þessi einkenni í skammstöfunina S-L-A-G. Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans og Þórir Steingrímsson, formaður Heilaheilla, komu til okkar í dag og fræddu okkur um fyrstu einkennin og snjallforritið Heilaheill sem hægt er að fá ókeypis í snjallsíma. Jónatan Garðars kom svo til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag var komið að tónlistarmanninum Jóhanni G. Jóhannssyni. Hann samdi mikinn fjölda laga sem urðu gríðarlega vinsæl og fylgja þjóðinni enn og við heyrðum þrjú þeirra í þættinum og Jónatan sagði okkur frá ævi Jóhanns og tónlistarferli hans. Tónlist í þættinum: Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson) Mother / 3toOne (Egill Ólafsson, Ingólfur Sv. Guðjónsson og Sigurður Gröndal) Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson) Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti Páls Postula úr fyrra Kórinthubréfi) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Fjármál og ADHD, Stefán og ættfræðigrúsk og vísindaspjall um svefn kóngulóa 28.10.2026 50mHvert fóru peningarnir? Þessi spurning er yfirskrift erindis sem Valdís Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi heldur á málþingi ADHD samtakanna á föstudaginn. Þar talar hún um margvíslegar áskoranir þess að vera með ADHD og hvernig það hefur áhrif á það hvernig við notum peninga og líður í kringum þá. Þar getur hvatvísi, gleymska, forðun og óöryggi spilað stórt hlutverk. Valdís kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu. Hverra manna ert þú? Þetta er spurning sem við Íslendingar spyrjum gjarnan hvert annað. Í dag er hægt að nýta gagnagrunna og skjalasöfn á netinu til að afla upplýsinga um sögu fjölskyldu þinnar allt að 200 ár aftur í tímann. Það er hægt að bera saman upplýsingar við lýsingar sagnfræðinga og annarra á lífskjörum og möguleikum almennings til að takast á við fátækt, barnadauða, vistarbönd, farsóttir og harðindi. „Þínu fólki tókst það – því annars værir þú ekki hér“, segir Stefán Halldórsson rekstrarhagfræðingur og félagsfræðingur en hann stendur fyrir námskeiði hjá Endurmenntun HÍ sem haldið verður í næstu viku. Stefán kom í þáttinn í dag og talaði um ættfræðigrúsk. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á svefni kóngulóa. Þar kom ýmislegt í ljós sem rímar við það sem við sjáum hjá okkur, mannfólkinu, sem kom á óvart, en vekur vonir um að niðurstöðurnar geti svarað spurningum um svefn sem geta nýst okkur. Tónlist í þættinum: Sjaddi Mollo / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Magnús R. Einarsson) Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson) Ættin mín / Raggi Bjarna og Bjarni Ara (Bjarni Hafþór Helgason) Þú ert vagga mín haf / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Freymóður Jóhannsson (12.september), texti Reinhardt Reinhardtsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Steinunn um Hallgrím og Guðríði, Ísaksskóli 100 ára og veðurspjall með Einari 27.10.2026 52mÞað er 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju og það er dánardægur Hallgríms Péturssonar í dag. Við heyrðum um ævi Hallgríms, ástir og átök og einnig um mikilvægi Hallgrímskirkju í dag. Steinunn Jóhannesdóttir leikkona og rithöfundur kom í þáttnn í dag og talaði um Hallgrím og minntist líka á Guðríði, konu Hallgríms en á næsta ári verða 400 ár liðin frá Tyrkjaráninu en nú hefur bók Steinunnar „Reisubók Guðríðar“ verið þýdd yfir á ensku. Um 2000 gestir lögðu leið sína í Ísaksskóla fyrir skemmstu þegar 100 ára afmæli skólans var fagnað. Þar komu saman fyrrverandi og núverandi kennarar, starfsfólk og nemendur og velunnarar skólans. Sigríður Anna Guðjónsdóttir skólastjóri kom til okkar í dag og sagði okkur sögu Ísaksskóla og því hvernig það atvikaðis að skólinn sé aftur orðinn eigandi að því húsnæði sem verið hefur heimili skólastarfsíns um áratuga skeið. Svo var að veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Haustlægðir koma og fara, svo eru veðrabrigði framundan og að lokum rifjaði Einar upp ofsaveður sem fór yfir landið fyrir næstum nákvæmlega 90 árum með miklum afleiðingum, til dæmis í Hafnarfirði. Tónlist í þættinum í dag: Sveitapiltsins draumur / Hljómar (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Allt mitt líf / Elly (erlent lag, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Koffort þungt sem blý / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson) Þrjú tonn af sandi / Haukar (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Vala og Tyrkland, Jónas Árnason frá 1947 og Árni Friðriksson lesandi vikunnar 26.10.2026 51mVala Þórsdóttir leikkona og höfundur kom til okkar í dag, en það eru ekki margir sem vita af því að verk eftir hana hafa verið talsvert oft sett á svið í Tyrklandi alveg frá árinu 2002 þegar einleikur hennar Háaloft var frumsýndur í Izmir, en Háaloft hefur verið sett upp nánast árlega í Tyrklandi og er nú leikið af mjög þekktri leikkonu. Vala hefur margoft farið til Tyrklands síðan þá og fer nú aftur í desember þar sem hún kennir og verður viðstödd dagskrá á verkum hennar sem verða sýnd henni til heiðurs. Vala sagði okkur frá hvernig þessi tenging hennar við Tyrkland komst á í upphafi og fleiru sem hún er að bralla nú og á næstunni. Við heyrðum svo 80 ára gamalt hljóðbrot úr safni Útvarpsins sem flutt var sunnudagskvöldið 27.júlí árið 1947 af Jónasi Árnasyni dagskrárgerðarmanni. Erindið var í þættinum Heyrt og séð og fjallaði meðal annars um póst- og skeytaþjónustu á landinu, vegakerfið í Hvalfirðinum og fleira og hann var aldeilis ekki að liggja á skoðunum sínum. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV sagði okkur frá þessu erinidi og leyfði okkur að heyra það. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Árni Friðriksson enskukennari við Menntaskólann á Egilsstöðum og leikskáld, söngvari, leikari og fleira. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Árni sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum: East of Eden (Austan Eden) e. John Steinbeck Þú sem ert á jörðu e. Nínu Ólafsdóttir Oryx and Crake e. Margaret Atwood Það sem kann að leynast í eyra mínu e. Mosab Abu Toha Ray Bradbury Tónlist í þættinum í dag: Hvað með það? / Stefán Hilmarsson, Raggi Bjarna og Pétur Kristjánsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Hvað vita þeir? / Björgvin Halldórsson og Jón Jósep Snæbjörnsson (erlent lag, texti Karl Mann) Hvað er að? / Elly Vilhjálms (Jón Múli, texti Jónas Árnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Guðmundur Andri föstudagsgestur og búðarferðanostalgía í matarspjallinu 23.10.2026 52mFöstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur. Hann hefur reynslu á mörgum sviðum, er fyrrverandi alþingismaður, var blaðamaður, ritstjóri og þáttagerðarmaður í útvarpi auk þess að vera söngvari og gítarleikari í hljómsveitinni Spaðar. Við fengum hann til að fara með okkur fram og aftur í tíma, í ræturnar í Vogunum og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum hann til að segja okkur frá því hvað hann er að bralla þessa dagana. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Þar var nostalgían fyrirferðamikil og mislangar og misvelheppnaðar búðarferðir. Auk þess sem við hélldum áfram að blaða í Eldhúsbókinni góðu. Tónlist í þættinum í dag: Þú ert / Guðmundur Andri Thorsson með Tómasi R. Einarssyni og hljómsveit (Tómas R. Einarsson, texti Sigurður Guðmundsson) Haustvísa / Guðmundur Andri Thorsson (Guðmundur Andri Thorsson) Sól í sinni / Guðmundur Andri Thorsson (Guðmundur Andri Thorsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Stella í orlofi fertug, Bleikur jazz og Jónatan um Henna Rasmus 22.10.2026 53mÍ næsta mánuði verður blásið til afmælisveislu í Salnum í Kópavogi í tilefni þess að fjörutíu ár eru frá því kvikmyndin Stella í orlofi var frumsýnd. Stella er fertug! Þessi bráfyndna mynd hefur fylgt þjóðinni í fjóra áratugi og ósjaldan er gripið í óborganlegar setningar úr myndinni eins og „ Boðið er búið, Bára er komin í bleyti og majónesan er orðin gul“, Lionsklúbburinn Kiddi með berjatýnurnar til sölu og „Fru Stella, veskan min er horfin“ og margar fleiri. Við rifjum upp þessa dásamlegu mynd hér á eftir í tilefni afmælisins. Sólveig Arnarsdóttir leikkona, sem var aðeins 13 ára þegar hún lék í myndinni, kom í þáttinn ásamt Hildi Berglindi Arndal og Thelmu Marín Jónsdóttur. Það er Bleikur október og á sunnudaginn verða tónleikar sem nefnast Bleikur Jazz þar sem allur aðgangseyrir mun renna til Ljóssins, endurhæfinga- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Það verður Agnar Már Magnússon jazzpíanóleikari sem leiðir tónleikana í Vídalínskirkju en þar er hann nýtekin við starfi organista. Við ræddum við Agnar um nýja starfið og umfang þess og hvernig það er að færa sig af flyglinum yfir á orgelið. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var komið að lagahöfundinum Henna Rasmus, hann samdi fjölda laga og er líklega þekktastur fyrir lagið Viltu með mér vaka. Jónatan sagði okkur frá ferli Henna í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Ferðalangur til frambúðar / Stefán Hilmarsson (Stefán Örn Gunnlaugsson, texti Friðrik Sturluson) Stella í orlofi / Diddú (Valgeir Guðjónsson) Órar/Agnar Már Magnússon(Agnar Már Magnússon) Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, ljóð Tómas Guðmundsson) Viltu með mér vaka / Lummurnar (Henni Rasmus, texti Valborg Bentsdóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Húmanískar útfarir, Virk í starfi og vísindaspjallið um aukaverkanir þyngdarstjórnunarlyfja 21.10.2026 53mVið fræddumst í dag um húmanískar eða veraldlegar útfarir eins og þær eru kallaðar hjá Siðmennt. Inga Auðbjörg K. Straumland er athafnastjóri hjá Siðmennt, við fengum hana til að segja okkur frá því hvernig þær ganga fyrir sig, hver er munurinn á þeim og kirkjulegum útförum í þættinum í dag. VIRK stendur fyrir ráðstefnu á næstunni um það hvernig við nýtum tækifærin í forvörnum og starfsendurhæfingu til að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu til vinnu. Virtir erlendir sérfræðingar í vinnusálfræði og vinnulæknisfræði flytja fyrirlestra en einnig mun Virk kynna nýtt úrræði sem nefnist Virk í starfi nýja þjónustuleið sem veitir einstaklingum á vinnumarkaði aðgang að fræðslu, ráðgjöf og þjónustu vegna erfiðleika sem hafa áhrif á starfsgetu þeirra. Markmiðið er að grípa snemma inn í ferlið, áður en vandinn verður of stór, og lágmarka þannig brottfall af vinnumarkaði. Vgdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK kom í þáttinn. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem sýnir að það séu tengsl á milli svokallaðra GLP-1 lyfja og naglaskemmda. En dæmi um GLP-1 lyf er t.d. Ozempic og svipuð lyf sem eru mikið notuð í dag til þess að létta sig. Edda útskýrði þetta fyrir okkur í dag og hvað þetta þýðir. Tónlist í þættinum í dag: María Ísabel / Hljómsveit Ingimars Eydal (erlent lag, texti Ásta Sigurðardóttir) Sail On / Regína Ósk Óskarsdóttir (Jóhann Helgason) Kom út 2004 Boat Behind / Kings of Convenience (Erlend Øye og Eirik Glambek Bøe) Nei sko / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Ráðstefna um ME o.fl. og Samfélagsgarðar 20.10.2026 53mHeimsþekktir sérfræðingar sækja Ísland heim í næstu viku til að tala á ráðstefnunni Brú milli heimsálfa. Þetta eru leiðandi, innlendir og erlendir, sérfræðingar á sviði ME, langvinns Covid, umhverfisveikinda og POTS sem þar munu koma saman og miðla nýjustu þekkingu úr rannsóknum og klínísku starfi. En áhugi á þessum sjúkdómum hefur aukist verulega á síðustu árum, ekki síst í kjölfar heimsfaraldursins. Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir kom ásamt Helgu F. Edwardsdóttur, formanni ME félags Íslands í þáttinn og sögðu okkur frá ráðstefnunni og stöðunni þegar kemur að þessum sjúkdómum. Samfélagsgarðar hafa verið byggðir upp víða í nágrannalöndum með það að markmiði að nýta vannýtt svæði betur, skapa aðstæður fyrir meiri útiveru, efla tengsl fólks og bæta lífsgæði. Eyrún Gígja Káradóttir er sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun og hún skrifaði grein á miðilinn akureyri.net þar sem hún viðrar hugmynd sem áður hefur komið fram þar í bæ og bendir á að hægt sé að breyta vannýttu svæði í samfélagsgarð þar sem fólk á öllum aldri gæti komið saman, ræktað, hreyft sig og notið útiverunnar. Við ræddum við Eyrúnu og einnig við forstöðukonu matjurtagarða Akueyrar, Heiðrúnu Sigurðardóttur, en þær báður eru partur af hópi sem hefur verið myndaður um hugmyndina og vill þrýsta á bæjaryfirvöld að koma þessu í gagnið. Tónlist í þættinum í dag: Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Söngur um lífið / Rúnar Júlísson (Boudleaux Bryant, texti Rúnar Júlíusson Barn / Ragnar Bjarnason (Ragnar Bjarnason, ljóð Steinn Steinarr) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Sæunn Kjartansdóttir og gáfaða dýrið og Birgir Tjörvi lesandi vikunnar 19.10.2026 50mHvernig stendur á því að við erum það sem við erum og gerum það sem við gerum, oft þvert á alla skynsemi? Við töluðum í dag við Sæunni Kjartansdóttur hjúkrunarfræðing og sálgreini, en hún spyr einmitt þessara spurninga og leitast við að svara þeim á námskeiði sem hún er með hjá Endurmenntun HÍ, og hún fjallaði um í bók sinni, Gáfaða dýrið, þar sem hún hjálpar lesandanum að átta sig betur á sjálfum sér og öðru fólki, skilja samskipti og samfélagið og takast á við streitu, ótta og einmanaleika. Þar kemur einmitt dýrið í okkur til sögunnar. Sæunn útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum í dag. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn er Birgir Tjörvi Pétursson lögmaður og nú rithöfundur, en þessa dagana kemur út hans fyrsta skáldsaga, Skuggar af Kili þar sem söguhetjan leggur í rannsókn á uppruna sérkennilegra reglna sem móðurfjölskylda hans hefur farið eftir í 250 ár. Svo segir hann okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Birgir talaði um eftirfarandi bækur og höfunda. Þöglu myndirnar, Pensilskrift og Ótíð í víti eftir Gyrði Elíasson. The Wind-Up Bird Chronicle e. Murakami Bróðir minn ljónshjarta e. Astrid Lindgren Stephen King Tónlist í þættinum í dag: Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann og Þórður Árnason, texti Þórður Árnason) This fire! / Tina Dickow og Emilíana Torrini (Tina Dickow) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Selma Björns föstudagsgestur og matarspjall í beinni frá Róm 16.10.2026 54mFöstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngkonan, leikkonan, leikstjórinn og athafnastjórinn Selma Björnsdóttir. Hún hefur auðvitað sungið fyrir þjóðina á flestum sviðum landsins, náði í annað sætið í Eurovision og nú síðast frumsýndi hún nýja gamansýningu þar sem hún, ásamt Björk Jakobsdóttur og Sölku Sól, þær kalla þetta sketsa og uppistandssýningu með frumsömdum lögum. Sýningin Bíddu bara - Þetta reddast! Og 25.október heldur hún tónleika í Salnum til heiðurs Dolly Parton, sem hún hefur haldið mikið upp á lengi. Selma sagði okkur í dag frá þessari sterku tengingu sem hún hefur við Dolly og kánrtítónlist. Við flökkuðum aðeins með henni aftur í tímann og fengum hana líka til að segja okkur frá starfi sínu sem athafnastjóri hjá Siðmennt, nýju sýningunni og tónleikunum í dag. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, en hún er stödd í Rómarborg og Selma Björns sat áfram með okkur þar sem Sigurlaug sagði okkur í beinu sambandi frá rjúkandi rómarmat. Tónlist í þættinum í dag: 9 to 5 / Dolly Parton (Dolly Parton) I will Always Love You / Dolly Parton (Dolly Parton) Islands in the Stream / Dolly Parton og Kenny Rogers (Barry Gibb, Robin Gibb & Maurice Gibb) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
100 ára afmæli Fríkirkjuorgelsins og Jónatan Garðars um Ingimar Eydal 15.10.2026 50mÍ maíbyrjun árið 1926 komu til landsins með Lagarfossi 42 kassar frá Þýskalandi. Farmurinn vó 11 tonn og innihélt nýtt orgel fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík. Uppsett kostaði hljóðfærið 41.500 krónur, andvirði tveggja einbýlishúsa, og var langstærsta hljóðfæri landsins. Það var við hæfi enda Fríkirkjan stærsta samkomuhús á landinu á þeim tíma. Í tilefni af 100 ára afmæli þessa orgels stendur nú yfir tónleikaröð í Fríkirkjunni og við hittum Gunnar Gunnarsson núverandi organista við kirkjunna og skoðuðum með honum þetta merkilega hljóðfæri og fræddumst um sögu þess. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var það Ingimar Eydal, en hann var einn þekktasti tónlistarmaður Norðurlands og hljómsveit hans er samofin tónlistarmenningunni þar og skóp einstaka stemningu meðal annars í Sjallanum á Akureyri. Jónatan rakti feril Ingimars eins og honum einum er lagið í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik) Hvínandi vindur / Skólakór Kársnes (Aðalsteinn Ásberg) Á sjó / Hljómsveit Ingimars Eydal, Þorvaldur Halldórsson (Don Wayne, texti Ólafur Ragnarsson) Í sól og sumaryl / Hljómsveit Ingimars Eydal, Bjarki Tryggvason (Gylfi Ægisson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Vínlaus lífstíll, tónlist Kurt Weill og vísindaspjall um hreyfingu og svefngæði 14.10.2026 54mFull af lífi - vínlaus lífsstíll er nafn á námskeiði sem Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingu og Margrét Leifsdóttir arkitekt og heilsumarkþjálfi, hafa staðið fyrir. Þar fara þau yfir ýmsar leiði til að lifa án áfengis, eins og þau orða það þá miðla þau lyklum til að loka dyrum og opna aðrar til betri vegar. Lára G. Sigurðardóttir læknir er gestakennari á námskeiðinu þar fer hún yfir hvaða áhrif það hefur á líkamann að hætta að drekka áfengi í fimm vikur. Margrét og Lára komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. Kurt Weill er eitt áhrifamesta og sérkennilegasta tónskáld 20. aldar. Tónskáld sem samdi óperu-, leikhús-, kabarett- jazz- og dægurtónlist. Hann skapaði tónlistarheim þar sem mörkin milli klassíkur og dægurtónlistar verða óljós. Í tilefni af afmælisári tónskáldsins tóku söngkonurnar Sigríður Thorlacius og Hildigunnur Einarsdóttir saman fjölbreytta tónleikadagskrá með sönglögum og sviðstónlist frá ólíkum tímabilum á ferli hans. Þær komu í þáttinn í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði okkur frá rannsóknum sem sýna fram á tengingu daglegrar hreyfingar og bættra svefngæða. Tónlist í þættinum í dag: Í kjallaranum / KK Sextettinn og Óðinn Valdimarsson (Jón Sigurðsson) The tide is high / Blondie (Holt) Mac the knife / Quincy Jones og Frank Sinatra (Kurt Weill, texti Bertolt Brecht, þýð. Marc Blitzstein) Congratulations / Cliff Richard (Bill Martin & Phil Coulter) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Ráð og óráð við bakverkjum, sjónlýsingar á myndlistarsýningum og veðurspjallið með Hlyni og Einari 13.10.2026 53mVið fræddumst í dag um ráð og óráð við bakverkjum.Jósep Blöndal læknir og stofnandi háls- og bakdeildar SFS í Stykkishólmi og einn fremsti baksérfræðingur þjóðarinnar kom í þáttinn. Fólk með bak- og hálsverki fær ótal ráðleggingar, bæði frá fagfólki, en líka frá ættingjum, vinum og samstarfsfólki. Margar slíkar geta verið vita gagnslausar og jafnvel skaðlegar. Jósep fór betur yfir þessi ráð og órað í þættinum. Við kynntum okkur svo sjónlýsingar á myndlistasýningum. Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona verður einmitt með eina slíka fyrir blinda og sjónskerta á sýningunni Lekir líkamar - sameiginlegir heimar í Listasafni Reykjavíkur á fimmtudaginn, á vitundardegi blindra og sjónskertra. Halla Margrét sagði okkur frá sjónlýsingum og þessari sýningu í dag. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið, og með honum kom gestur, Hlynur Sveinsson sem rekur Veðurstofu Norðfjarðar. Það er leitun að öðrum eins veðuráhugamanni, en hann er einmitt staddur í höfuðborginni af því hann er að sækja námskeið hjá Veðurstofunni. Það er spurning hvort þeir félagar Einar og Hlynur verði svo sammála þegar kemur að veðurspánni framundan hér á fróni. Tónlist í þættinum í dag: Leiðin heim /Björgvin Halldórsson og Hjartagosarnir (C.Pyle, texti Bragi Valdimar Skúlason) Gulnuðu laufin / Sigvaldi Helgi Gunnarsson (Sigvaldi Helgi Gunnarsson, texti Andri Már Sigurðsson) Orðin mín / Sigurður Guðmundsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) The Tide is High / Blondie (J.Holt) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Solla um baunir í mat, viðtal við Albert Guðmundsson frá 1952 og Elín Sigrún lesandi vikunnar 12.10.2026 53mBaunir eru meðal næringarríkustu matvæla sem völ er á og spila stórt hlutverk í heilsusamlegu mataræði. Þær eru einstaklega ríkar af próteini og trefjum og þær styðja við meltingu, hjartaheilsu og stöðugan blóðsykur. En hvernig kemur maður baunum inní matargerðina og þarf til dæmis að leggja allar í bleyti? Sú sem svaraði þessum spurningum var Sólveig Eiríksdóttir, eða Solla í Grænum kosti eða Solla í Gló. Við komum ekki að tómum kofanum hjá henni þegar kom að baunum, frekar en öðru þegar kemur að grænmetisfæði. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom enn með gullmola úr safni Útvarpsins og í dag var það viðtal við knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson í París sem var tekið af Daða Hjörvar 9.febrúar 1952. Albert ræðir þar um feril sinn í Frakklandi, leikform sitt, meiðsli og gang mála í deildar- og bikarkeppnum. Viðtalið var tekið á lakkplötu og var ekki útvarpað fyrr en tæpum mánuði eftir upptöku. Líklega hefur það tekið tíma að senda lakkplötuna til Íslands á þessum tíma. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í dag var Elín Sigrún Jónsdóttir lögmaður og stofnandi fyrirtækisins Búum vel. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elín Sigrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Enginn venjulegur lesandi e. Alan Bennett Ótíð í víti e. Gyrðir Elíasson Varkár e. Margréti Bjarnadóttur Arfur og umhverfi e. Vigdis Hjorth Döstädning e. Margareta Magnusson Ævisaga Gunnars Thoroddsen, e. Guðna Th. Jóhannesson Náðarstund, söguleg skáldsaga um Agnesi Magnúsdóttur, e. Hönnu Kent Tónlist í þættinum í dag: Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Bíldudals grænar baunir / Baggalútur (Valgeir Guðjónsson) Non,je ne regrette rien / Edith Piaf (Dumont & Vaucaire) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Aðalsteinn Ásberg föstudagsgestur og matarspjall um sveskjur 09.10.2026 53mFöstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöfundur og tónlistarmaður. Hann hefur loks lokið að þýða Vísur Svantes, gríðarlega vinsælu bókina og lögin, eftir Benny Anderssen, verkefni sem hefur legið í skúffu hjá honum lengi. Verkið kemur út í bók og á nýjum hljómdiski Svante og haldnir verða tónleikar í Norræna húsinu og Hannesarholti af tilefninu. Aðalsteinn er uppalinn í sveit fyrir norðan en ætlaði sér aldrei að verða bóndi heldur ákvað snemma að verða rithöfundur. Við heyrum tvö lög af nýja diskinum og Aðalsteinn reynir að útskýra fyrir okkur af hverju svona margir tengja við Svante. Svo er það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti en hún ætlar að ræða um sveskjur í mat, eitthvað sem hún hefur aldrei þolað en nú er spurning hvort það hafi breyst? Svo grípum við niður í Eldhúsbókinni en þar má finna ýmsan fróðleik sem nýttist húsmæðrum á sjöunda áratug síðustu aldar og sá fróðleikur eldest ekki allur vel. Tónlist í þættinum í dag: Woman / John Lennon (John Lennon) Drykkjuvísur Svantes / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (Benny Andersen, þýð.texta Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Hamingjudagur Svantes / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson (Benny Andersen, þýð.texta Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Tilfinningagreind og Herramennirnir, kostir húsaskipta og áhrif ADHD á fullorðna 08.10.2026 52mRagnheiður Guðfinna Guðnadóttir, félags og vinnusálfræðingur og stofnandi Hugarheims, er þessa dagana með námskeið þar sem fjallað er um tilfinningagreind og áhrif hennar á líðan, hegðun og samskipti. Og Ragnheiður skoðar viðbrögð, viðhorf, samskiptamynstur og ólík persónueinkenni og hvað getur legið að baki. Ragnheiður útskýrði þetta betur fyrir okkur í þætti dagsins og hvernig hún notar barnasögurnar um Herramennina í þessu samhengi. Snæfríður Ingadóttir fjölmiðlakona hefur áratugareynslu af húsaskiptum og hefur leiðbeint mörgum með þetta fyrirkomulag. Húsaskipti eru hagkvæm og ef rétt er að staðið mjög góð leið til að vera fjarri helstu ferðamannastöðum og kynnast hverfum borga. Við heyrðum í Snæfríði í dag. Hvaða áhrif hafa einkenni ADHD á daglegt líf þeirra fullorðnu einstaklinga sem eru með ADHD? Til dæmis á náin sambönd og ástarsambönd, fjármálin, foreldrahlutverkið og fleira. Framundan er málþing ADHD samtakanna undir yfirskriftinni „Þegar ADHD fylgir þér“ þar sem einmitt þetta verður skoðað. Elín H. Hinriksdóttir, sérfræðingur hjá samtökunum, og Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðstjóri forvarna hjá Virk, komu í þáttinn í dag og sögðu betur frá. Tónlist í þættinum: Regndropar falla (við hvert fet) / Engilbert Jensen (Burt Bacharach, texti Þorsteinn Eggertsson) Yakkety yak smacketty smack / Changes (Jóhann Helgason) Síðasta sjóferðin / Brimkló (Steve Goodman, texti Þorsteinn Eggertsson) Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (Bodleaux Bryant, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Tónlist og sálgæsla, Geðheilbrigðisvika í H.R. og vísindaspjall um örveruflóruna og alzheimer 07.10.2026 51mKirstín Erna Blöndal er söngkona,tónskáld og sálgætir. Hún skrifaði í meistararitgerð sinni frá Listaháskóla Íslands um áherslu á nýjum leiðum i miðlun og tengsl tónlistar við sálgæslu og kannaði mikilvægi tónlistar í sálgæslu syrgjenda við útfarir og í sorgarferlinu. Á síðustu árum hefur hún einnig komið að kennslu og tónlistarsköpun ungra barna og fólks sem glímir við heilabilun. Kirstín Erna sagði okkur betur frá sínum störfum í dag. Alþjóði geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10.október og af því tilefni er Geðheilbrigðisvika HR haldin þessa vikuna og er þetta tíunda árið. Þema vikunnar er „Sítengd en aftengd í heimi tækninnar“ og verður sjónum beint að áhrifum snjalltækja og skjánotkunar á líðan, samskipti og daglegt líf. Eva Rós Gunnarsdóttir og Auður Friðriksdóttir eru sálfræðingar í nemendaráðgjöf HR og þær komu í þáttinn í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá nýrri rannsók sem rannsakar áhrif örveiruflórunnar á Alzheimer. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum: Ennþá man ég hvar / GÓSS (Kai Normann Andersen, texti Bjarni Guðmundsson) Place in the Sun / Stevie Wonder (Stevie Wonder) Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Allt í fína / Karl orgeltríó, Raggi Bjarna og Ragnheiður Gröndal (Karl Olgeirsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas 06.10.2026 50mVið veltum fyrir okkur hugmyndum um karlmennsku í dag með Þórði Kristinssyni kennara og doktorsnema í menntavísindum en hann veltir mikið fyrir sér karlmennskuhugmyndum og hvaða hugmyndir hafa karlmenn um karlmennsku. Hverjar eru fyrirmyndirnar? Nýlega birtust niðurstöður úr rannókn sem var unnin að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu karlmanna á Norðurlöndunum og hugmyndir þeirra um karlmennsku. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið mikla athygli þó það sé rétt að taka fram að sett hafa verið spurningamerki við það hvernig hún var unnin, að úrtakið hafi verið skekkt. En spurningarnar og efnið voru áhugaverð og við ræddum það við Þórð í þættinum. Hver erum við þegar starfstitillinn er ekki lengur til staðar, við starfslok? Hvernig getum við skapað okkur ný tækifæri, nýjan tilgang og hlutverk og um leið haldið félagslegri virkni og tengslum þegar við erum ekki lengur hluti af samfélagi vinnustaðarins. Þetta er allt hluti af því að hætta að vinna, en starfslokin og þau tímamót eru eitt mesta breytingaskeið ævinnar. Við forvitnuðumst um námskeið um fjallar um undirbúning fyrir starfslok sem Steinunn Ragnarsdóttir stjórnunarráðgjafi stendur fyrir, hún sagði okkur frá í þættinum í dag. Jónatan Garðarsson kom svo í þáttinn í dag hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Megas og fór yfir langan feril hans, en Megast lést í sumar. Tónlist í þættinum: Girl From Before / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson) Allur lurkum laminn / Bjarni Ara (Hilmar Oddsson) Spáðu í mig / Megas (Megas, Magnús Þór Jónsson) Tvær stjörnur / Ragnheiður Gröndal (Megas) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar 05.10.2026 51mMenntaskólinn í Reykjavík átti hvorki meira né minna en 180 ára afmæli síðasta fimmtudag. MR hefur borið ýmis nöfn í gegnum tíðina, Lærði skólinn, Reykjavíkurskóli, Latínuskólinn eða Schola Reykjavicensis og svo frá árinu 1937 Menntaskólinn í Reykjavík. Sólveig Guðrún Hannesdóttir rektor MR var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir þessa merkilegu sögu skólans og sagði okkur frá ljósmyndasýningu sem verður allan okktóber þar sem ljósmyndum er varpað á framhlið skólahússins við Lækjargötu. Alþjóðlegi kennaradagurinn er í dag og því var vel við hæfi að kynna tilnefningarnar til Íslensku menntaverðlaunanna í þættinum í dag. Verðlaunaafhendingunni verður svo sjónvarpað frá Bessastöðum 11. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: Fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur, fyrir kennslu, fyrir þróunarverkefni og fyrir Iðn- og verkmenntun. Auk þess verða veitt sérstök hvatningarverðlaun. Guðfinna S Bjarnadóttir stjórnandi og eigandi í LC ráðgjöf og Magnavita kom í þáttinn og kynnti þessar 13 tilnefningar. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elísabet Katrín Friðriksdóttir verkefnastjóri á réttar- og öryggisgeðdeildunum á Kleppi. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Elísabet talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Vaxtarræktarkonan einmanna e. Yukiko Motoya Allt sem við hefðum getað orðið e. Sif Sigmarsdóttur Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur og óútgefna bók með vinnuheitið Umbreyting - leiðarvísir til framtíðar e. Guðrúnu Schmidt Bókin um veginn e. Lao Tse Dísa ljósálfur e. G.T. Rotman Tónlist í þættinum: Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Teach Your Children / Crosby, Stills, Nash and Young (Graham Nash) Gamli skólinn / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR -
Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu 02.10.2026 51mFöstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var tónlistarmaðurinn Þórir Baldursson. Þórir á langan glæstan feril, bæði hér á landi og erlendis þar sem hann hefur unnið með þekktasta tónlistarfólki landsins og heimsþekktum nöfnum eins og Donnu Summer, Giorgio Moroder, Elton John og Grace Jones. Hann er auðvitað einn þriðji af Savanna tríóinu sem naut strax mikilla vinsælda á sjöunda áratugnum. Við litum yfir ferilinn og ferðuðumst aftur í tímann með Þóri í þættinum frá tónleikum sem hann heldur núna 16.október í Austurbæjarbíói sem kallast Tónlistarheimur í meir en hálfa öld. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað, þar var kakósúparædd í dag og ekki voru allir sammála um ágæti hennar svo kíktum við aðeins í Eldhúsbókina góðu. Tónlist í þættinum: Brúðarskórnir / Savanna tríóið (Þórir Baldursson, texti Davíð Stefánsson) C'est Magnifique / (La Bionda - Baldursson og Mazzoli) Í töfrandi heimi / Kjalar Martinsson Kollmar (Þórir Baldursson, texti Kristján Hreinsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.