Hefnendurnir
Hefnendurnir
0
Hefnendurnir is a podcast by Hefnendurnir. The show appears to be in Icelandic. No further details about topics or format are provided.
Episodes
-
242: DC fríkar út 13.11.2026 1h 9mHulli og Ævar tala um ögrun barnsföðursins, Edgy álfahandrit og unglinganjósnara áður en þeir óttast um framtíð DCU. -
241: Earl Grey Hot To Go 06.11.2026 1h 34mHetjurnar okkar undirbúa sig undir hátíð myrkursins, viðurkenna vanþekkingu sína á Bláu Bjöllunni, pirra sig á pirruðum fuglum, kynnast kanadískum kempum og kveðja kaptein okkar allra. -
240: Sisyfuss og svei 30.10.2026 1h 24mStrákarnir tendra luktirnar í kirkjugarðinum og spangóla fram spooky spælingar um búninga, spá fyrir IRL glæpaöldu á meðan geimerar stela digital bílum, minnast rússnesks siglingafræðings og telja upp hvern hryllinginn á fætur öðrum. -
239: Guli fíllinn í herberginu 23.10.2026 1h 5mSímtal til Svartálfalands, annar hluti! Hefnendurnir heillast af nýjasta afkomenda Jar Jar Binks, ranghvolfa augum yfir fljúgandi typpaleysis-uppbót Musks, gleðjast mismikið yfir gleebooti, hlakka til SodenBatmans og segja bless í bili við grænu luktirnar. -
238: John, Paul, George og Thingo 16.10.2026 1h 7mHefnendurnir skauta á hálum svartálfa-ís, bera sama goðafræði Snorra og Stan Lee, gleðjast yfir yfirvofandi endurkomu Doktorsins, tuða yfir fyrstu persónu Indjána-Jóns, bera sama popp-fernu og ofurhetju-fjarka og fyllast kvíða yfir kross-brenglaðri myndasögumynd. -
237: Stolni svanurinn 09.10.2026 1h 3mHefnendurnir smjatta á hugverkahnupli Aronovskys, spila sjónvarpsþáttaspil, spá í spjótin sem beinast að Colberti, furða sig á földum söngleikjum og sigla enn dýpra inn í spoooooky season -
236: Tinni versus Ástríkur Part VI: Jason Lives 02.10.2026 58mHefnendurnir hringjast milli landa og ræða tengsl Georgs Washington og Michael Myers, flótta Finchers frá flixinu, hæga hesta og áframhaldandi baráttu Tinna við Ástrík. -
235: Stóri Gollum 25.09.2026 1h 13mHefnendurnir flækja fyrir sér innkomu Bullseye, hneykslast á greddu Rómeó og Júlíu, verða vonsviknir yfir geimveruhönnun Birds, flissa að gollum-stærðar-misskilningi Jansons og fatta að Rock og Stifler hafa verið tvisvar saman í mynd. -
234: Horfa á hluti 18.09.2026 56mHefnendurnir horfa á hluti og tala um hlutina sem þeir horfðu í þessum sérstaka "horfa á hluti" þætti. -
233: Geim Spond 11.09.2026 1h 14mHulli og Ævar ræða gleymda Curry fjölskyldu, Ghost Rider teikningar, Star Trek potta, japanska tölvuleiki, blandaðar hnetur og duglega froska. -
232: Heilagar kýr 04.09.2026 1h 23mHefnendurnir ræða um sveiflur Shyamalans, litlausann Potter, kínverskar kýr, gallann við fullkomnar myndir og Peter Pan prump Spielbergs. -
231: King Kong fer til tannlæknis 28.08.2026 1h 20mHefnendurnir snúa fílelfdir aftur úr sumarfríi og ráðast á mikilvægustu málefnin!: Kosningagrafík! Ung X-menni! Stútinn á Knightley! Fjöldafráföll snillinga! Rofin snagagöt! Og góða og græna lampa! -
230: Fín Grey 07.08.2026 1h 53mHulli og Ævar heilsa uppá haustið, segja bless við Blade, segja hæ við Emmu Frost, telja upp sumarlegustu sumarmyndirnar, rýna í persnesk dvergaskegg og fagna nýrri kóngulóarræmu! -
229: Ódysseifs kviðmágar 31.07.2026 1h 44mHetjurnar ræða fall Letós, fregnir San Diego og ferðalag Ódysseifs. -
AFSAKIÐ HLÉ (má bjóða ykkur morb?) 24.07.2026 1h 15mSÖKUM TÆKNILEGRA ÖRÐUGLEIKA er enginn nýr Hefnendaþáttur í dag!!! Til að bæta ykkur það upp ætlum við að pósta sérvöldum þætti að Patreon síðunni okkar. Það er þátturinn um Morbius. Við biðjumst afsökunar og lofum glænýju hefni í næstu viku. Koss. -
228: Friday the thirteenth the thirteenth 17.07.2026 1h 11mHefnendurnir hafa áhyggjur af Tick ruglingi, átta sig á aldri iMax, skipta sér af Skerjagarðsdrama og syrgja Sam. -
227: Quicksilfur Egils 10.07.2026 1h 16mHefnendurnir rannsaka mútanta Íslandssögunnar, rugla saman Carpenter og Gomez, spá í hrukkur Ali G og láta sig dreyma um vélvini framtíðarinnar. -
226: Júdas - Dead and loving it 03.07.2026 1h 15mStrákarnir ræða um Helsinki syndrómið, áhrifavaldarassa, píkuhallir, nornahreima, gervi-wonka, endaleysuframhöld og ofurstelpur. -
225: Edward Woodward if he Couldward 26.06.2026 1h 18mÆvar fer yfir helstu animationfréttirnar í okkar júniversi og Hulli bjargar Marvel Cinematic júniversi En hvorugir botna þeir neitt í quantum júniversi (Hey það er nú einu sinni júní(versi)). -
224: Barna Mad Max 19.06.2026 1h 20mStrákarnir spjalla um óþarft áframhald Austins, meltingarfæri hvals, nýjustu geimverumynd geimverumeistarans, íslenskar poppfötur og Arthúr Björgvin Bollason.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.