Vikulokin

Vikulokin

RÚV
Country Iceland
Genres News
Language IS
Episodes 52
Latest 21.11.2026

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Episodes

  • Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur
    Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur 21.11.2026 57m
    Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00. Í fyrsta hluta þáttarins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, vistaskipti Ingvars Þóroddssonar og náttúru- og innviðagjald. Þar eru gestir Eiríkur Björn Björgvinsson þingmaður Viðreisnar og Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Í öðrum hluta ræða Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Páll Pálsson fasteignasali stýrivaxtaákvörðun, húsnæðismarkaðinn og fjárlög. Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum og Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræð...
  • Samgöngumál, Grindavík og tæknitruflanir
    Samgöngumál, Grindavík og tæknitruflanir 14.11.2026 57m
    Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00. Í fyrsta hluta verður rætt við Ara Edwald, borgarfulltrúa Miðflokksins og Pál Val Björnsson, kennara og fyrrverandi þingmann, meðal annars um stöðu Grindavíkur, samgöngumál og umferðartafir í Reykjavík. Bára Hlynsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og Guðmundur Jóhannsson tæknispekúlant ræða truflanir hjá Microsoft, hneyksli hjá Nvidia og tölvuleikinn Grand Theft Auto 6 í öðrum hluta. Í þriðja hluta verður rætt við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra um samgöngumál og byggða...
  • Verslunarrekstur, virkjanir og stjórnmálin
    Verslunarrekstur, virkjanir og stjórnmálin 07.11.2026 57m
    Verslunarrekstur, virkjanir og staðan í stjórnmálunum verða rædd í Vikulokum dagsins. Viðskiptaumhverfið og verslunarrekstur hér á landi verður til umræðu í fyrsta hluta Vikulokanna. Gísli Þór Sigurbergsson, eigandi Fjarðarkaupa og Guðrún Jóhannesdóttir, eigandi Kokku ræða Ingvar Þór Björnsson. Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, og Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, ræða raforkuframleiðslu og virkjunarkosti í öðrum hluta þáttarins. Í lokin mæta Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík, og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og...
  • Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki
    Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki 31.10.2026 57m
    Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps meirihlutans og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, mætast í fyrsta hluta þáttarins. Í öðrum hluta þáttarsins mæta Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps, til að ræða um auknar álögur á atvinnulíf á Suðurlandi og breytingar á loftbrú. Í síðasta hlutanum ræða Guðmundur Fylkisson lögreglumaður og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna um hótanir o...
  • Mótmæli í Evrópu, menntamál og tíðindi af þingi
    Mótmæli í Evrópu, menntamál og tíðindi af þingi 24.10.2026 57m
    Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meðal þess sem er til umræðu í vikulokunum í dag. Gestir í fyrsta hluta eru Björn Jón Bragason, kennari við Verzlunarskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík, Jökull Sólberg Auðunsson, frumkvöðull, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB. Í öðrum hluta er rætt við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um nýja aðgerðaáætlun í menntamálum og breytingar á einkunnakerfi. Í þriðja hluta ræða þingmennirnir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfs...
  • Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans
    Samkeppnismál, staðan í stjórnmálunum og aðferðir Seðlabankans 17.10.2026 57m
    Umfjöllun Kveiks um meinta markaðsmisnotkun Ölgerðarinnar, ummæli varaseðlabankastjóra um aðgerðir til að auka atvinnuleysi og úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar eru meðal þess sem verður í brennidepli í Vikulokunum. Rætt verður við Mána Pétursson, umboðsmann og stjórnarmann KSÍ, Svandísi Svavarsdóttur, ritstjóra og fyrrverandi ráðherra, og Sigurð Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðing í fyrsta hluta, meðal annars um Ölgerðina, illviðri í vikunni og úrslitaleik um að komast á HM í Brasilíu. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ræðir Seðlabankann, verkalýðshreyfinguna og...
  • Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ
    Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ 10.10.2026 57m
    Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag. I. hluti: Kjarasamningar, vinnumarkaður og leigubremsa Aldís Guðný Sigurðardóttir, sérfræðingur í samningatækni Már Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði Sigurður Pétursson, sagnfræðingur og kennari við Menntaskólann að Laugarvatni II. hluti: ASÍ Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í stafrænni miðlun og frambjóðandi til embættis forseta ASÍ III. hluti: Vikan á þingi Sandra Sigurð...
  • Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður
    Kjaramálin, Landsvirkjun, gervigreind og friður 03.10.2026 57m
    Kjaramál og atvinnuleysi, Landsvirkjun og samtal forseta Íslands og ungs fólks eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Þátturinn er í þremur hlutum. I. hluti: Kjaramál og atvinnuleysi Arna Lára Jónsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Björgin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ II. hluti: Landsvirkjun og Hörður Arnarson Andrés Jónsson, almannatengill og stjórnendaráðgjafi Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur III. hluti: Rætt um samtal, gervigreind og frið Halla Tómasdóttir, forseti Íslands Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra st...
  • Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn
    Atvinnuvegaráðherra, pólitík í íþróttum, skilaboðin og skítapotturinn 26.09.2026 1h 2m
    Í fyrsta hluta Vikuloka dagsins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, skítapottinn og skilaboðin. Viðmælendur eru Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli og fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttir og Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur. Í öðrum hluta er rætt við Willum Þór Þórsson, forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, meðal annars um Heimi Hallgrímsson, Ísrael, forvarnir og landsleik. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra...
  • Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja
    Kosningalög, bankaskattur og verkfall flugvirkja 19.09.2026 57m
    Í fyrsta hluta var rætt við Vilhjálm Árnason bæjarstjóra Reykjanesbæjar og Karólínu Helgu Símonardóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði um húsnæðismál Tækniskólans sem hafa verið mikið til umræðu undanfarna daga. Þau ræddu einnig fyrirhugaða brottvísunarstöð, breytingar á kosningalögum og verkfall flugvirkja. Bankaskattur sem boðaður var í nýju fjárlagafrumvarpi var í brennidepli í öðrum hluta þar sem rætt var við Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins, Jón Guðna Ómarsson, bankastjóra Íslandsbanka, og Gylfa Magnússon hagfræðiprófessor. Að lokum var rætt við Óskar Einarsson, formann Flug...
  • PISA, þingveturinn og samband Íslands við Bandaríkin
    PISA, þingveturinn og samband Íslands við Bandaríkin 12.09.2026 57m
    I. hluti: PISA - Sigrún Jóna Grettisdóttir, kennari í Árbæjarskóla - Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, nemi - Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla II. hluti: Þingsetning og fjárlög - Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins - Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar - Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins III. hluti: Samskipti Bandaríkjanna og Íslands - Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands - Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og áhugamaður um bandarísk stjórnmál
  • Fjárlög, fjölmiðlar og málefni barna
    Fjárlög, fjölmiðlar og málefni barna 05.09.2026 57m
    Í Vikulokunum í dag var rætt um fjárlög og kjaramál, fjölmiðlalandslagið og þær fréttir sem hafa snúist um börn og ungmenni í vikunni, aukna áfengisdrykkju, útivistartíma og annað. Fyrsti hluti: - Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra Annar hluti: - Birkir Karl Sigurðsson, stjórnandi hlaðvarpsins Chess after dark - Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins - Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður á Sýn Þriðji hluti: - Erlingur Sigvaldason, frístundaráðgjafi og kennaranemi - Árni Guðmundsson, sérfræðingur í æskulýðsmálum - Þóranna Rósa Ólafsdóttir, skólastjóri Rimaskóla
  • Kjördagur, uppsagnir og kjaramál
    Kjördagur, uppsagnir og kjaramál 29.08.2026 1h 18m
    Í Vikulokunum í dag var rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu. Ingvar Þór Björnsson hefur þáttinn á að ræða þjóðaratkvæðagreiðsluna við Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing, Guðmund Heiðar Helgason, almannatengil og Ragnheiði Kristjánsdóttur, sagnfræðing. Í öðrum hluta voru uppsagnir Reykjavíkurborgar í vikunni ræddar. Þar voru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar gestir þáttarins. Í þriðja hluta voru kjaramál í brennidepli þegar Ingvar tók á móti Arnaldi...
  • Kjaramál, hernaður og þjóðaratkvæðagreiðsla
    Kjaramál, hernaður og þjóðaratkvæðagreiðsla 22.08.2026 57m
    Í Vikulokunum 22. ágúst var rætt um kjaramál, hernað og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Í fyrsta hluta mættu Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Í öðrun hluta voru viðmælendur Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, Stefán Pálsson, hernaðarandstæðingur, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur. Í þriðja hluta þáttarins mættu Birta Karen Tryggvadóttir, hagfræðingur, og Gréta María Grétarsdóttir, verkfræðingur.
  • Hanna Katrín Friðriksson, Orri Hauksson og Þorsteinn Guðmundsson
    Hanna Katrín Friðriksson, Orri Hauksson og Þorsteinn Guðmundsson 15.08.2026 57m
    Í Vikulokunum var farið yfir fréttir vikunnar, almyrkvann og aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar o.fl. Við greinum stöðuna í samfélaginu og ræðum sálarlíf klofinnar þjóðar. Gestir voru Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Orri Hauksson, verkfræðingur og fjárfestir og Þorsteinn Guðmundsson, leikari og sálfræðingur. Umsjón: María Sigrún Hilmarsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
  • Jóhannes Þór Skúlason, Trausti Hjálmarson og Erlingur Erlingsson
    Jóhannes Þór Skúlason, Trausti Hjálmarson og Erlingur Erlingsson 08.08.2026 57m
  • Hermann Guðmundsson, Kolbrún Bergþórsdóttir og Jónas Hagan
    Hermann Guðmundsson, Kolbrún Bergþórsdóttir og Jónas Hagan 01.08.2026 57m
    Gestir Vikulokanna eru Hermann Guðmundsson framkvæmdastjóri Kemi og fyrrverandi forstjóri N1, Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður, bókmenntagagnrýnandi og pistlahöfundur og Jónas Hagan Guðmundsson fjárfestir, frumkvöðull og stjórnarmaður í hreyfingunni Já til að sjá. Þau ræddu meðal annars komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildaviðræður Íslands við ESB, minnkafár í Mosfellsbæ og viðtal forsætisráðherra við breska hlaðvarpið Rest is Politics. Umsjón: Urður Örlygsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  • Aðalsteinn Baldursson, Arnheiður Jóhannsdóttir og Karl Frímannsson
    Aðalsteinn Baldursson, Arnheiður Jóhannsdóttir og Karl Frímannsson 25.07.2026 57m
    Gestir Vikulokanna eru Aðalsteinn Baldursson, formaður Framsýnar, stéttarfélags Þingeyinga, Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og Karl Frímannsson skólameistari Mennatskólans á Akureyri. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  • Guðmundur Hálfdánarson, Birna Þórarinsdóttir og Sigrún Davíðsdóttir
    Guðmundur Hálfdánarson, Birna Þórarinsdóttir og Sigrún Davíðsdóttir 18.07.2026 57m
    Gestir Vikulokanna eru Guðmundur Hálfdánarson prófessor, Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi og Sigrún Davíðsdóttir fjölmiðlakona. Þau ræddu meðal annars sviptingar í breskum stjórnmálum, átökin við Persaflóa og loftslagsmál. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson
  • Snærós Sindradóttir og Halldór Benjamín Þorbergsson
    Snærós Sindradóttir og Halldór Benjamín Þorbergsson 11.07.2026 57m
    Gestir Vikulokanna eru Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Halldór Benjamín Þorbergsson einn stofnanda Áfram-Ísland. Þau ræddu komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB. Umsjón: Höskuldur Kári Schram Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.