Tveir á toppnum
Tveir á toppnum
0
Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu. Þættirnir eru óvenju góð flétta þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.
Episodes
-
#172 - Skrímsladeildin 13.11.2026 1hSkrímsladeildin á sviðið að þessu sinni: Russell Brand, David Walliams, virkir í athugasemdum og Godzilla (Minus Zero) að því ógleymdu að Oddur segir frá sínum fyrstu og mjög svo ánægjulehu kynnum af mömmustráknum Norman Bates. -
#171 - Patrick Stewart RIP 05.11.2026 51mTveir á toppnum minnast Sir Patrick Stewart, missa sig aðeins yfir MobLand, fríka út á langdreginni leitinni að næsta Bond og missa sig í hefðbundnu stefnulausu blaðri um það sem helst fram streymir á gláprásunum. -
#170 - Iceguys: The Movie 30.10.2026 52mHannes Þór Halldórsson leikstjóri heiðrar okkur með nærveru sinni í annað sinn, í þetta skiptið í tilefni af Iceguys kvikmyndinni. Ræðum myndina án spilla í sögulegum þætti af Tveir á toppnum sem er líka hægt að horfa á! -
#169-Halloween - Blóðugustu bitarnir 29.10.2026 52mHrekkjavakan er á laugardaginn og Tveir á toppnum tromma því hér upp með sérstakan 2EXTRA-Heví spesíjal Halloween-þátt með því besta úr Hrekkjavökuþáttum síðustu ára (#18, #74 og #124). Suddalega sundurtættur og hryllilegur þáttur sem veitir einnig greinargott yfirlitt yfir hryllingsglápsþroskasögu Odds. -
#168-Slow Horses 6 og allt hitt 22.10.2026 1h 5mLoksins, loksins! fá Tveir á toppnum löglegt og gullhúðað tækifæri til þess að fjalla um Slow Horses snilldina á Apple TV. Hér er gerð heiðarleg tlraun til þess að gera seríu 6 upp og ná um leið að fjalla um allt hitt. Og þá meinum við ALLT! -
#167- The Brink of War 15.10.2026 50mÍ þessum þætti má segja að Tveir á toppnum séu í raun „Two on the Summit“ enda í hvínandi kaldastríðsfílíng, með stjórnmálafræðinginn Eirík Bergmann á línunni, þegar þeir tækla Reykjavíkurdramað The Brink of War með þá Míkhaíl Gorbatsjof og Ronald Reagan í forgrunni bíómyndarinnar um sögulegan fund þeirra í Höfða 1986. -
#166-Digger 08.10.2026 54mDiggarðu Digger eða ekki? Þar er efinn sem þessi þáttur gereyðir enda ekki í kot vísað þegar Tveir á toppnum fá alhliða bransameistarann Jón Gunnar Geirdal til þess að ræða þessa umtöluðu, umdeildu og að því er virðist stórkostlega misskildu mynd. -
#165-Meiriháttar kombakk! 01.10.2026 1h 10mTveir á toppnum bæta fyrir messufall síðustu viku með því að troða bókstaflega ÖLLU í þennan 70 mínútna endurkomuþátt eftir langt veikindaleyfi Tóta. Hvað gerði Oddur á meðan og er eitthvað til í því að Tóti hafi verið meðferð og logið sig veikan á meðan? Þetta er þátturinn með öll svörin! -
#164-Ekkjuvogur og Apple TV á Íslandi 17.09.2026 1h 6mEmmy-verðlaunin eru í brennidepli þáttarins og þá sérstaklega sigurvegari hátíðarinnar, Apple TV, sem er nú loks aðgengilegt á Íslandi með eðlilegum og fullkomlega löglegum hætti. Fagnaðarlæti Odds yfir þessum tímamótum eru dálítið ýkt en fastasti fastagestur þáttarins og maðurinn sem uppgötvaði Ekkjuvogsþættina á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, nálgast tíðindi vikunnar af sinni alkunnu yfirvegun. -
#163-Frjálst og óháð bull 02.09.2026 1h 2mFrjáls tími hjá Tveimur á toppnum þar sem Oddur og Tóti leyfa sér stjórnlausan og ómarkvissan kjaftavaðal. Reyna að selja notuð nagladekk og barnaföt á milli þess sem hrært er í gláppottum líðandi stundar, fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar er minnst og Tóti klárar Mickey Rourke fyrirlestur síðasta þáttar. -
#162-Síðasti þáttur fyrir Dómsdag 28.08.2026 43mTveir á toppnum breyta um stefnu í síðasta þætti sínum fyrir Dómsdaginn 29. ágúst þegar alþjóðastjórnmálafræðingurinn Oddur Ævar er fenginn til að ræða kosti og galla ESB-aðildar. Þó finnst einnig pláss til að minnast Dollyjar Parton og Tims Curry en Tóti er síðan stöðvaður í miðjum fyrirlestri um Mickey Rourke. -
#161 - House of the Dragon 3 19.08.2026 1h 18mÚtvarpsstjarnan Nanna Guðrún Sigurðardóttir á Rás 2 stígur niður á hlaðvarpsplanið og ræðir 3. vertíð House of the Dragon í Tveimur á toppnum, sjónvarps- og kvikmyndahlaðvarpi upplýsta og djúppælda fólksins! Einnig: Hayden Panettiere, Stallone á Menningarnótt og listi yfir þolgóðar hlaupamyndir fyrir þau sem nenna ekki að púlla Dustin Hoffman og hlaupa Reykjavíkurmaraþonið. -
#160 - Spider-Man: Brand New Day 05.08.2026 1h 17mÁttfættu hlustendur! Velkomin að Marvel-troginu þar sem Spider-Man: Brand New Day er veislukosturinn að þessu sinni. Oddur sleikir út um á meðan Arnar Tómas talar enga tæpitungu þegar hann kennir honum borðsiði. Einnig: Tóti tengir ESB-tryllinginn við Invasion of the Body Snatchers. Sérstakur heiðurgestur: Stefán Atli Sigtryggsson, okkar Marvel-maður í Svíþjóð. -
#159 - Talking Bollocks! 29.07.2026 1h 4mHefðbundin dagskrá trufluð og þætti #159 er droppað á miðvikudegi svo Oddur geti kastað sér head first ofan í Marvel-trogið á fimmtudaginn. Stjórnlaust og tilgangslaust blaður Tveggja á toppnum þar sem verslunarmannahelgin, bláir gaskútar og alls konar annað er tæklað ásamt skúbbi vikunnar: HVAÐA ÞJÓÐÞEKTTA MENNINGARDROTTNING GEKK ÚT AF THE ODYSSEY Í HLÉI???? -
#158 - The Odyssey 23.07.2026 1h 5mÞátturinn sem er búinn að vera u.þ.b. 3200 ár á leiðinni er loksins í höfn! Christopher Nolan er tekinn á beinið og Ódysseifskviðu hans snúið á alla kanta í epískum panel með Illuga Jökulssyni, sem kannast eitthvað aðeins við frumtextann sem myndin byggir á, og Birgi Olgeirssyni, sem hefur aldrei verið jákvæðari en að þessu sinni. -
#157 - Frjáls tími og glápskýrslur 16.07.2026 1h 24mÞátturinn um allt sem hefur ekki komist að í fjarveru Odds ásamt tveimur stórfréttum sem skekið hafa heimsbyggðina; andlát Sam Neill og íslenskt Love Island. -
#156 - Stallone 80 ára 06.07.2026 2h 13mSylvester Stallone, okkar eigin Sly, fagnar 80 ára afmæli í dag, 6. júlí, og ekki annað hægt en sýna honum þann sjálfsagða sóma að rjúfa hefðbundna dagskrá með sérstökum þætti. Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og jafnaldri fyrstu Rocky-myndarinnar, stígur aftur í hringinn og fer með Tóta yfir langan, glæstan en þó brokkgengan feril rómuðustu hasarhetju síðustu áratuga í 130 mínútur sem gerir þáttinn að langlengsta Tveir á toppnum þætti allra tíma. -
#155 - Citizen Vigilante 01.07.2026 1h 18mEldfimur þáttur þar sem Kristinn Theódórsson er kallaður til og fenginn til þess að ræða umtalað furðuverkið og svimandi lélega ruslið Citizen Vigilante jafn vítt og breitt og takmarkaður efniviðurinn leyfir. Myndin og áróðurinn sem hún rekur eru þess eðlis að umræðunum fylgja allar mögulegar og ómögulegar trigger warnings, til hægri og vinstri. -
#154 - Disclosure Day 18.06.2026 1hUndarlegur þáttur hlaðinn sláandi afhjúpunum þar sem hæst ber að Oddur er í gíslingu vondra hvalfangara og missir því af gesti þáttarins sem er af því kalíberi að hann þarfnast ekki kynningar. En við kynnum hann nú samt: Sjáðu-maðurinn sjálfur Ásgeir Kolbeins ræðir við Tóta um nýjustu Spielberg-myndina, Disclosure Day, og alls konar annað mismerkilegt en allt skemmtilegt. -
#153 - Obsession 11.06.2026 1hÖll og afar þeirra obsessa nú yfir Obsession. Maðurinn sem uppgötvaði Obsession á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, lætur sig því ekki vanta í þáttinn og þar sem hermt er að um sérstaka Gen Z-mynd sé að ræða voru sérstakir fulltrúar kynslóðarinnar, Ragga Björt Tótadóttir og Alda Örvarsdóttir, kallaðar til lóðbeint úr MH.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.