Menningarpúlsinn
RÚV Hlaðvörp
0
Menningarpúlsinn er hlaðvarp þar sem farið er yfir menningarlíf landsins í lok hverrar viku. Rætt er um menningu vikunnar sem er að líða, það sem er efst á baugi í menningunni þessa stundina og hvað er framundan um helgina. Umsjónarmaður er Júlía Margrét Einarsdóttir. Þátturinn er í boði RÚV.
Episodes
-
Föðurlandið, jólabækur og notalegar bíóferðir 06.11.2026 50mGestir Erlu Bjargar eru Dorothee Kirch markaðs- og þróunarstjóri Listasafns Íslands, Grímur Hákonarson kvikmyndagerðarmaður og Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins. Rætt er um myndina Fatherland eða Föðurlandið ásamt spjalli um jólabókaflóðið, helgarrúnt á listasöfn og nýja kvikmynd Gríms sem gerist í Kópavogi upp úr miðri síðustu öld. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Högg, hlutverk menningar í mannlegum tengslum og bókasöfn 02.11.2026 53mGestir Erlu Bjargar Gunnarsdóttur voru Vigdís Másdóttir kynningar- og markaðsstjóri Kópavogsbæjar, Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Pétur Blöndal blaðamaður og ljóðagrúskari. Umræðan snerist meðal annars um Högg í Þjóðleikhúsinu og hlutverk bókasafna í samfélaginu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Grasrótin, gjörningar, Fasteignamartröðin og Þjóðarópera 23.10.2026 50mGestir Gígju Hólmgeirsdóttir í Menningarpúlsinum voru þau Pétur Guðjónsson leikstjóri, Sindri Swan leikari og Freyja Reynisdóttir myndlistarmaður. Þátturinn var sendur út frá Akureyri og umræðan snérist um menningarlífið fyrir norðan. Spjallað var um grasrótina sem er að eflast, Fasteignamartröðina hjá Leikfélagi Akureyrar auk frumsýningar Undir sömu stjörnu hjá Þjóðaróperunni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Óli K. og Digger 19.10.2026 54mGestir Fríðu Þorkelsdóttur eru Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, Daníel Daníelsson, rithöfundur og Guðrún Elsa Bragadóttir, kvikmynda- og bókmenntafræðingur. Þau ræddu um ljósmyndasýningu Óla K. í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og kvikmyndina Digger. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Ný plata frá Alaska1867 og Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum 19.10.2026 50mÍ menningarpúlsi vikunnar er rætt um 1867 nýja breiðskífu frá tónlistarkonunni Alaska1867, og sýninguna Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum. Umsjónarmaður er Kristján Guðjónsson og gestir eru Anna Dröfn Ágústsdóttir, Álfheiður Karlsdóttir og Birgir Þórarinsson, betur þekktur sem Biggi Veira. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Bíó og kammer 02.10.2026 55mBíómenning og kammertónlist er til umræðu í þætti vikunnar, gestir þáttarins sáu kvikmyndirnar Paper Tiger (Pappírstígur) og Club Kid (Partípabbi) á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) og fóru á upphafstónleika Kammermússíkklúbbsins í vetur sem fagnar 70 ára starfsafmæli um þessar mundir. Viðmælendur: Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndafræðingur og lektor, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður og Tumi Torfason tónlistarmaður.Umsjón: Pétur Eggertsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Fjallaklifur, angist nútímamannsins í eldhúsinu og þráin eftir að eignast barn 25.09.2026 49mGestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru þau Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona, Urður Hákonardóttir tónlistarkona og Valur Grettisson fjölmiðlamaður. Rætt var um Varkár, nýja sannsögulega skáldsögu Margrétar Bjarnadóttur, Hinsta ferðin á K2 sem er opnunarmynd RIFF og Nýtt eldhús eftir máli eftir Friðgeir Einarsson sem er sýnt í Kassanum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Gervigreind, einmanaleiki, súrmæður, U2 og Bíó Paradís 18.09.2026 50mGestir Júlíu Margrétar að þessu sinni voru Sólveig Arnarsdóttir leikkonar, Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur. Rætt var um Gunnellu í Tjarnarbíói, Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba, hljómsveitina U2 og 79 af stöðinni. Menningarstofnanirnar Tjarnarbíó og Bíó Paradís voru mærðar og nútímalist sett í samhengi við gervigreind og einmanaleikann sem faraldur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Tyrfingur Tyrfingsson, ritskoðun á list, Ólafur Kárason og PISA 11.09.2026 49mViðmælendur Júlíu Margrétar voru þau Steinunn Sigurðardóttir skáld, Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur og Agnar Jón Egilsson leikari. Rætt var meðal annars um slaufunarmenningu, ritskoðun á list, ólíkindatólið Tyrfing Tyrfingsson, Heimsljós, nýja bók Steinunnar Sigurðardóttur og PISA könnunina. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Um tímann og vatnið, Breadcrumbs og Barbara Hannigan 07.09.2026 51mGestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir rithöfundur og Árni Pétur Guðjónsson leikari. Rætt var meðal annars um kvikmyndina Um tímann og vatnið, leikritið Breadcrumbs í Tjarnarbíó, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eiríksþing, til minningar um Eirík Guðmundsson. Fram fór ljóðalestur í beinni útsendingu auk þess sem Ormstunga í Þjóðleikhúsinu, trúnó við jöklasérfræðing og margt fleira bar á góma. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Radíusbræður, Dollywood, Jazzátíð og Vaka þjóðlistahátíð 28.08.2026 48mGestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru tónlistarfólkið Óttarr Proppé, Salóme Katrín og Ragnheiður Gröndal. Fjallað var um Stein Ármann Magnússon heitinn, íslenkan húmor, Alley Cats grínistans Ricky Gervais, Dolly Parton, Jazzhátíð í Reykjavík og margt fleira. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Í skóm drekans, afmæli Reykjavíkurborgar og menningarnótt 21.08.2026 49mÍ þessum fyrsta þætti var fjallað um heimildarmyndina Í skóm drekans. Haldið var upp á 240 ára afmæli Reykjavíkur og 200 ára kaupstaðarafmælið árið 1986 var rifjað upp, þegar Reykjavíkurborg bauð upp á 200 metra köku í miðbæ Reykjavíkur. Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru þau Þórdís Gísladóttir rithöfundur, Úlfur Eldjárn tónlistarmaður og Stefán Ingvar Vigfússon uppistandari. Rætt var um myndlist, uppistand og hámhorf í flugvélum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.