Kastljós
RÚV
0
Kastljós er frétta- og umræðuþáttur RÚV þar sem fjallað er um það sem er efst á baugi hverju sinni. Í þættinum eru teknir fyrir helstu fréttir og málefni dagsins, oft með viðtölum við gesti í myndveri Kastljóss. Umsjónarmenn krufa málin ítarlega og leitast við að varpa ljósi á ólíkar hliðar þeirra. Þátturinn er hluti af dagskrá RÚV og miðlar fréttum og greiningu á íslenskum samtímaefnum.
Episodes
-
Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða 20.11.2026 14mSkiptar skoðanir eru á ákvörðun borgarstjórnar um að loka fyrir heitt vatn og rafmagn í hjólhýsabyggð við Sævarhöfða þegar vetur er að ganga í garð. Aðeins fjögur eru eftir í byggðinni. Þau dvelja þar í leyfisleysi.Rætt við Einar Þorsteinsson formann borgarráðs og Silju Sóleyju Birgisdóttur borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins.--Þú getur horft á Kastljós í heild sinni í spilara RÚV og inn á ruv.is -
Blikur á lofti á byggingarmarkaði 19.11.2026 13mRætt við Þorstein Víglundsson formann Samtaka iðnaðarins og Eggert Þröst Þórarinsson sérfræðing hjá Acro verðbréfum um þrönga stöðu í efnahagsmálum og vanda á byggingarmarkaði.--Þá var einnig rætt við rússneska tónlistarkonu sem sat í fangelsi fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu ognorska leikarann Tobias Sandelmann sem er íslenskum sjónvarpsáhorfendum að góðu kunnur.Þú getur horft á Kastljós í heild sinni í spilara RÚV og inn á ruv.is -
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra 18.11.2026 17mRætt við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar, um brotthvarf þingmanna úr flokknum, stöðu flokksins og ríkisstjórnarinnar í kjölfar þessara tíðinda.--Í þættinum var einnig rætt við Vilhjálm Þorsteinsson, stofnanda máltæknifyrirtækisins Miðeindar, sem hlaut á þessu ári verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu. Þú getur horft á Kastljós í heild sinni inn á spilara RÚV og á ruv.is -
Úrsögn Ingvars Þóroddssonar, Dagur íslenskrar tungu 17.11.2026 23mIngvar Þóroddsson alþingismaður hefur sagt sig úr Viðreisn og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, aðeins nokkrum vikum eftir að Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar. Áður hafði Guðmundur Ingi Kristinsson sagt sig úr Flokki fólksins. Við fjöllum um hvað þetta þýðir fyrir Viðreisn og stjórnarsamstarfið með Eiríki Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.Dagur íslenskrar tungu er í dag. Stjórnvöld hafa sent ákall til tölvurisans Apple um að hleypa íslensku inn í stýrikerfi fyrirtækins. En á sama tíma og stjórnvöld eru í sókn í tæknimálum óttast Háskóli Íslands um rekstrargrundvöll íslen... -
Grindvíkingar og tillögur Þórkötlu 13.11.2026 13mFasteignafélagið Þórkatla kynnti nýlega endurkaupaáætlun og býðst Grindvíkingum að kaupa aftur fasteignir sem félagið keypti af íbúum. Grindvíkingur segir að líta þurfi á málið öðrum augum, málið snúist um endurreisn en ekki fasteignaviðskipti.Pétur Markan bæjarstjóri Grindavíkur og Kristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur, voru gestir Kastljóss. -
Níðingar á netinu, nafnbreytingabann 12.11.2026 17mÍ Kastljósi var rætt við Maríu Rún Bjarnadóttur sérfræðing í tæknirétti og stafrænu kynferðisofbeldi um barnaníðinga og leiðir sem þeir nota til að nálgast börn á internetinu.Þá var rætt við þingmann Flokks fólksins sem vill þrengja að möguleikum dæmdra barnaníðinga til nafnbreytinga.Kastljós heimsótti einnig Gallerí suð, minnsta sýningarrými landsins. Þú getur horft á Kastljós í heild sinni inn á ruv.is og í spilara RÚV. -
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra 11.11.2026 16mRætt er við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra um stöðuna í Landsvirkjun eftir uppsögn Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Staða stjórnar fyrirtækisins rædd og samskipti innan fyrirtækis og við ráðuneyti fjármála. -
Dýravelferð 10.11.2026 13mMyndefni innan úr svínabúi Stjörnugríss eftir innbrot hefur vakið athygli og spurningar um dýravelferð. Formaður Bændasamtaka Íslands og Formaður Samtaka um dýravelferð ræddu um málið í Kastljósi.--í þættinum var einnig rætt við bandaríska lögfræðiprófessorinn og metsöluhöfundinn Cass R. Sunstein sem er í stríði við leðju í opinbera kerfinu.Í Kastljósi var þá rætt við aðstandendur tónleikaverksins Fólk þar sem fornar kvæðarímur falla fullkomlega að raftónlistartakti og trylltum dansi.Þú getur horft á Kastljós í heild sinni inn á ruv.is og í spilara RÚV. -
ÁTVR á tímamótum 06.11.2026 13mÝmsar breytingar gætu verið í farvatninu hjá ÁTVR á borð við heimsendingarþjónustu. Í Kastljósi var rætt við forstjóra ÁTVR um erfiðan rekstur og breytingar. Hún vill að ríkisstjórnin skýri þá lagalegu óvissu sem umlykur málaflokkinn í ljósi fjölda vefverslana með áfengi. Þá var Kastljós í beinni útsendingu frá Airwaves og í þættinum var líka heimsótt sýning sjötíu myndhöggvara.Þú getur horft á Kastljós í heild sinni í spilara RÚV. -
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra, kosningar í Bandaríkjunum. 05.11.2026 27mRætt við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra um dómsmál, lögreglumál, útlendingamál og innri mál flokks hennar, Viðreisnar. Fjallað um úrslit kosninga í Bandaríkjunum 3. nóvember þar sem kosið var til bæði fulltrúadeildar og öldungadeildar, auk annarra embætta víða um landið.Þú getur horft á Kastljós í spilara RÚV. -
Almannavarnabæklingur og bændur á Barðaströnd 04.11.2026 19mAlmannavarnabæklingur, bændur á Barðaströnd og sýningin Í skugga átaka.Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf í dag út bækling þar sem landsmenn eru beðnir að vera viðbúnir. En viðbúnir hverju nákvæmlega og af hverju núna? Runólfur Þórhallsson, sviðstjóri almannavarnasviðs Ríkislögreglustjóra sat fyrir svörum.Kastljós tók hús á bændum á Barðaströnd sem eru almennt frekar vel undirbúin, enda oft þurft að takast á við ófærð og rafmagnsleysi. Býlið er ekki afskekktara en gengur og gerist á Vestfjörðum, en það er þó um fjallveg að fara til þess að komast í næsta þéttbýli.--Í þættinum var einnig... -
Fátækt barna 03.11.2026 17mMennta- og barnamálaráðuneytið hefur lagt fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun gegn fátækt barna. Stefnan byggir meðal annars á nýrri skýrslu á vegum Háskóla Íslands, þar sem fram kemur að um 10.500 börn á Íslandi búa á heimilum undir lágtekjumörkum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, Kjartan Ólafsson, félagsfræðingur og einn höfunda umræddrar skýrslu, og Hildur Oddsdóttir, varaformaður EAPN, samtaka gegn fátækt, fara yfir málið.---Í þættinum var einnig fjallað um Stóru stærðfræðikeppnina en þar reyna 12 þúsund grunnskólabörn um allt land að leysa hátt í 2 milljóni... -
Kosningar í Bandaríkjunum 30.10.2026 13mÖrfáir dagar eru til kosninga í Bandaríkjunum þar sem mikið er í húfi. Í Kastljósi var rætt við Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur, aðjúnkt við Háskólann á Bifröst og Hafstein Einarsson doktor í félagstölfræði. Þau rýndu í þau ríki sem vert er að fylgjast með í aðdraganda kosninga.-Þá var í Kastljósi rætt við vinnustaðasálfræðing um hópuppsagnir.Dáðadrengirnir í Iceguys syngja sinn svanasöng með kvikmynd sem frumsýnd var í kvöld og fjallað var um í þættinum.Þú getur horft á Kastljós í heild sinni í spilara RÚV. -
Félags- og húsnæðismálaráðherra um leigubremsu 29.10.2026 16mRætt við Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um leigubremsu og önnur mál sem hann stendur fyrir.-Í þættinum var einnig rætt við Ejler Borch, 101s árs andspyrnuhetju frá Danmörku, síðasta andspyrnumanninn úr síðari heimsstyrjöldinni sem enn er á lífi. Þá er danssýningin Púðlusafnið á dagskrá. Þú getur horft á Kastljós í heild sinni í spilara RÚV. -
Hildur Björnsdóttir og Pétur Marteinsson - Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg 28.10.2026 19mTugum starfsmanna hjá Reykjavíkurborg var sagt upp í gær. Þetta er þriðja uppsagnarhrinan hjá borginni eftir að nýr meirihluti tók við í vor. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík voru gestir Kastljóss. -
Breytingar á einkunnakerfinu 27.10.2026 10mRætt við Jón Pál Haraldsson, skólastjóra Laugalækjarskóla um innleiðingu nýs einkunnarkvarða. -
Brotthvarf forstjóra Landsvirkjunar 23.10.2026 13mFráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, Hörður Arnarson, ræddi um starfslok sín í Kastljósi kvöldsins. -
Bókmenntaþjóð á krossgötum 22.10.2026 19mTil eru leikskólar á Íslandi þar sem ekki er gert ráð fyrir bókakaupum vegna fjárskorts. Í Kastljósi greinum við frá nýrri skýrslu um bókakost skólabókasafna og almenningssafna og lestrarmenningu þjóðarinnar. Unnar Geir Unnarsson safnstjóri Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal og Margrét Tryggvadóttir ræddu efni skýrslunnar. -
Hver mun hagnast á öld gervigreindar? 21.10.2026 16mGervigreind er þegar farin að hafa áhrif á hvernig við vinnum og spáð er að áhrif hennar á vinnumarkaðinn eigi eftir að verða víðtæk. En hverjir hagnast á því og hverjir tapa? Verður gervigreind til þess að draga úr ójöfnuði, auka hann eða búa jafnvel til nýja tegund ójöfnuðar? Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði við HÍ, og Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörður, ræða áhrif gervigreindar á vinnumarkað og réttlát umskipti. -
Högg, uppbyggileg réttvísi 20.10.2026 20mRætt við Jacob Dunne sem banaði syni Davids Hodgkinson í Bretlandi árið 2011. Sú atburðarás og sættir þeirra eru efniviður leikristins Högg sem Magnús Geir Þórðarson leikstýrir. Kristín Skjaldardóttir reifar uppbyggilega réttvísi og Ragna Bjarnadóttir ræðir hvað gert er til að styrkja fanga til umbóta á lífi sínu.Mömmurnar Katrín Hannesdóttir, Karen Birgisdóttir, Birgitta Rún Sveinbjörnsdóttir og Guðný Lára Bragadóttir lýsa þeirri reynslu að eiga allar sameiginlegt að búa í sama húsi og hafa átt tvíbura á síðustu tveimur árum.Í þættinum er viðtal á ensku en þú getur fundið textaða útgáfu og ho...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.