Stóra myndin

Stóra myndin

Stóra myndin
Country Iceland
Genres History
Language IS
Episodes 2
Latest 20.11.2026

Stóra myndin er íslenskt hlaðvarp sem tengir málefni samtímans við sögu, heimspeki og mannlegt eðli. Þar er fjallað um hringrás sögunnar, ris og fall menningarheima og lærdóm fortíðarinnar. Í þættinum er horft á stóru myndina frekar en að festast í málefnum líðandi stundar. Rætt er um hugsuði og tímabil allt frá Móses til nútímans, svo sem Platón, Cíceró, Rómaveldi, Dante, Machiavelli, Shakespeare og René Girard. Einnig eru teknar fyrir bækur og einstakir hugsuðir.

Episodes

  • #9 - Stríð og undirróður
    #9 - Stríð og undirróður 20.11.2026 2h 41m
    Hvað fær mannkynið til að hefja blóðug stríð aftur og aftur ef allir sjá að samningar spara bæði líf og fé? Hvað heldur samfélögum raunverulega saman þegar á reynir - og hvernig getur andstæðingur brotið niður heila þjóð innan frá án þess nokkurn tímann að mæta á vígvöllinn?Í þessum þætti förum við í yfirgripsmikinn leiðangur yfir tvö þúsund og fimm hundruð ára sögu og skoðum rauða þráðinn í mannlegu eðli og átökum. Við hefjum vegferðina hjá Sun Tzu og Þúkýdídesi í fornöld, könnum hvers vegna heimsveldi eins og Róm hrynja að innan frekar en á vígvelli, og hvernig Vestfalíufriðurinn reyndi að r...
  • #8 - Sterku guðirnir og brotalamir frjálslyndis
    #8 - Sterku guðirnir og brotalamir frjálslyndis 12.11.2026 2h 30m
    Hvað fær okkur til að láta eigin hagsmuni víkja fyrir einhverju stærra en okkur sjálfum? Hvers vegna fórna foreldrar öllu fyrir börnin sín? Hvað heldur þjóð raunverulega saman þegar á reynir? Og hvað gerist þegar við hættum að trúa á nokkurn skapaðan hlut sem krefst af okkur fórn og sjálfsaga?Í bókinni Return of the Strong Gods notar R. R. Reno hugtakið „sterku guðirnir“ um þau bönd sem binda okkur saman: fjölskylduna, ættjarðarástina, trúna og sannleikann. Reno heldur því fram að skiljanlegur ótti við nýtt ofstæki eftir síðari heimsstyrjöld hafi með tímanum snúist upp í tortryggni gagnvart æt...
  • #7 - Fjórða lotan - The Fourth Turning
    #7 - Fjórða lotan - The Fourth Turning 06.11.2026 2h 30m
    Er sagan bein lína fram á við eða gengur hún í lotum? Geta góðir tímar skapað veikleika, geta samfélög gleymt því sem fyrri kynslóðir lærðu og hvað gerist þegar traust, stofnanir og sameiginleg gildi veikjast á sama tíma?Í þættinum ræðum við bókina The Fourth Turning eftir William Strauss og Neil Howe og kenningu þeirra um að samfélög gangi í gegnum um 80–100 ára kynslóðahringrásir. Hver hringrás skiptist í fjórar lotur: uppbyggingu, vakningu, upplausn og að lokum krísu. Samkvæmt kenningunni stöndum við nú í fjórðu lotunni - vetrinum.Við skoðum hvernig kynslóðir mótast af þeim heimi sem þær al...
  • #6 - Hægrimenn eru vinstrimenn
    #6 - Hægrimenn eru vinstrimenn 22.10.2026 1h 45m
    Hvað þýðir að vera hægri eða vinstri? Er verið að tala um skatta, eignarrétt og stærð ríkisins - eða fjölskyldu, trú, innflytjendamál, þjóð, kyn, málfrelsi og Evrópusambandið?Í þættinum rekjum við uppruna hugtakanna til frönsku byltingarinnar árið 1789, þegar hægri og vinstri lýstu einfaldlega sætaskipan í þingsal. Síðan skoðum við hvernig merking orðanna hefur færst í meira en tvær aldir og hvers vegna skoðun sem áður þótti frjálslynd eða vinstrisinnuð getur síðar lent hægra megin, án þess að skoðunin sjálf hafi breyst.Við förum yfir efnahagslega hægri-vinstri ásinn, menningar- og siðferðismá...
  • #5 - Andkristur eða ragnarök?
    #5 - Andkristur eða ragnarök? 15.10.2026 2h 36m
    Hvað ef við björgum heiminum en missum frelsið? Í þessu sjálfstæða framhaldi af síðasta þætti færum við sjónarhornið frá tækjunum í hversdagslífinu yfir á vinnu, vísindi, öryggi og vald. Peter Thiel lýsir tveimur hættum: Ragnarökum ef sífellt öflugri tækni fer úr böndunum, og Andkristi ef óttinn við hörmungar fær okkur til að afhenda fáum aðilum stjórn á öllum hinum.Við spyrjum hvort það sé að hægja á framförum í raunheimum á meðan símar, tölvur og gervigreind þróast hratt. Hvað gerist þegar gervigreindin fær hendur og fer að vinna í raunheimum? Getur vél verið meðvituð? Hvar liggja mörkin mil...
  • #4 - Tækni fletur sálina
    #4 - Tækni fletur sálina 09.10.2026 2h 23m
    Við ræðum hvað gerist þegar tæki leysa vanda en breyta um leið venjum okkar. Bíllinn kemur okkur hratt á milli staða, þvottavélin leysir okkur undan erfiðisvinnu og gervigreind getur hjálpað nemanda að skilja erfitt dæmi. En hvað gerist þegar þægindin taka líka frá okkur færni, athygli eða tíma með fólkinu sem stendur okkur næst?Við förum frá Babelsturninum og eldi Prómeþeifs til Amish-fólks, snjallsíma, læknisfræði og gervigreindar. Við spyrjum, líkt og Neil Postman: Hvaða vandamál leysir ný tækni? Hvaða ný vandamál býr hún til? Hver nýtur hennar og hver getur í raun sagt nei?Ódysseifur lét b...
  • #3 - Brauð og leikar
    #3 - Brauð og leikar 02.10.2026 1h 41m
    Er síminn orðinn okkar eigið Colosseum? Brauð og leikar er gamalt hugtak úr Rómaveldi sem á enn erindi við nútímann. Þá voru það kornúthlutanir og stórkostlegir leikar. Hvað gegnir sama hlutverki í dag? Við ræðum hvernig þægindi og afþreying geta haldið fólki uppteknu á meðan stærri spurningar um vald, frelsi og ábyrgð sitja á hakanum. Við tengjum brauð og leika Rómverja við íþróttir, samfélagsmiðla, endalausar þáttaraðir og fréttaflæði sem gefur okkur stöðugt eitthvað nýtt til að horfa á, gleðjast yfir eða reiðast.Hvenær er afþreying góð hvíld og hvenær verður hún flótti frá eigin lífi? Þarf...
  • #2 - Hermiþrá og René Girard
    #2 - Hermiþrá og René Girard 29.09.2026 2h 13m
    Hvað er hermiþrá (e. Mimetic Desire)? Hvaðan koma langanir okkar ? Hvað langar þig að langa í?Við ræðum hugmyndir fransk-bandaríska hugsuðarins René Girard um hermiþrá, sem meðal annars fjalla um það hvaðan langanir okkar koma og hvernig þær smitast manna á milli. Af hverju verður leikfang skyndilega spennandi þegar annað barn tekur það upp? Eru nútíma áhrifavaldar að spila á eðli mannsins?Hvernig breytist fyrirmynd í keppinaut eða samkeppni í fjandskap? Getur sundraður hópur fundið samstöðu með því að finna sér blóraböggul? Sumir vilja meina að pólitíkusar spili á þetta eðli þegar þeir búa ti...
  • #1 - Ekkert nýtt undir sólinni
    #1 - Ekkert nýtt undir sólinni 29.09.2026 1h 54m
    Geta gamlar sögur hjálpað okkur að skilja nútímann? Hver er drifkraftur sögunnar? Endurtekur sagan sig? Er tíðarandinn lifandi fyrirbæri? Við ræðum gamlar og góðar bókmenntir og skoðum hvað helstu hugsuðir fortíðarinnar höfðu að segja. Hér má til dæmis nefna Biblíuna, Hómer, Platón, Shakespeare, Dostójevskí, Nietzsche, René Girard og sögu Rómaveldis. Við ræðum eðli mannsins og skoðum hvernig það hefur áhrif á samfélög og þróun sögunnar. Öfund, metnaður, freistingar, vald, sjálfsblekking og hjarðhegðun, en líka hugrekki, tryggð og fyrirgefning. Hvernig tengist þetta allt nútímanum, erum við að...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.