Kaffitíminn með ASÍ-UNG

Kaffitíminn með ASÍ-UNG

ASÍ-UNG
Country Iceland
Language IS
Episodes 6
Latest 03.11.2026

Kaffitíminn með ASÍ-UNG er vettvangur þar sem fjallað er um málefni íslensks vinnumarkaðar út frá sjónarhóli ungs fólks. Tekið er á réttindum, skyldum, stéttarfélögum og samfélagsmálum sem snerta ungt fólk á vinnumarkaði í dag. Þátturinn veitir innsýn bak við tjöldin í verkalýðshreyfingunni, fjallar um mál líðandi stundar og fær góða gesti í heimsókn. Markmiðið er að setja flókin mál vinnuréttarins fram á léttan og skemmtilegan hátt. Þátturinn er bæði fræðandi og aðgengilegur.

Episodes

  • Afhverju er svona dýrt að vera ungur?
    Afhverju er svona dýrt að vera ungur? 03.11.2026 26m
    Launin hækka, en afhverju finnst okkur við samt ekkert eiga meira eftir um mánaðarmót? Í þessum þætti af Kaffitímanum með ASÍ-UNG fáum við Róbert Farestveit, hagfræðing á skrifstofu ASÍ, í spjall til að ræða fjárhagslega stöðu ungs fólks og reyna að gera efnahagsumræðuna aðeins skiljanlegri. Við ræðum meðal annars um kaupmátt, verðbólgu og hvers vegna opinberar tölur um stöðu heimilanna endurspegla ekki alltaf upplifun fólks af eigin fjárhag. Við skoðum sérstaklega hvaða áhrif húsnæðiskostnaður, háir vextir og erfið staða á húsnæðismarkaði hafa á ungt fólk og hvort það sé í raun dýrara að vera...
  • Kaffisopi með forsetaframbjóðanda: Georg Páll Skúlason
    Kaffisopi með forsetaframbjóðanda: Georg Páll Skúlason 08.10.2026 19m
    Kaffitíminn með ASÍ-UNG – Forsetaframboð: Georg Páll SkúlasonFramundan er þing Alþýðusambands Íslands þar sem meðal annars verður kosinn nýr forseti sambandsins.Af því tilefni fáum við forsetaframbjóðendurna í Kaffitímann með ASÍ-UNG til að kynnast þeim betur og heyra þeirra sýn á framtíð verkalýðshreyfingarinnar.Í þessum þætti ræðum við við Georg Pál Skúlason um ástæður framboðsins, hvað þurfi að breytast í starfi ASÍ og hvernig forseti hann vilji vera. Við förum meðal annars yfir stöðu ungs fólks innan hreyfingarinnar, valddreifingu, formlegt og óformlegt vald og hvernig hægt sé að tryggja b...
  • Kaffisopi með forsetaframbjóðanda: Arnaldur Grétarsson
    Kaffisopi með forsetaframbjóðanda: Arnaldur Grétarsson 08.10.2026 21m
    Kaffitíminn með ASÍ-UNG – Forsetaframboð: Arnaldur GrétarssonFramundan er þing Alþýðusambands Íslands þar sem meðal annars verður kosinn nýr forseti sambandsins.Af því tilefni fáum við forsetaframbjóðendurna í Kaffitímann með ASÍ-UNG til að kynnast þeim betur og heyra þeirra sýn á framtíð verkalýðshreyfingarinnar.Í þessum þætti ræðum við við Arnald Grétarsson um ástæður framboðsins, hvað þurfi að breytast í starfi ASÍ og hvernig forseti hann vilji vera. Við förum meðal annars yfir stöðu ungs fólks innan hreyfingarinnar, valddreifingu, formlegt og óformlegt vald og hvernig hægt sé að tryggja br...
  • Fjórði sopinn - fræðslu- og tengsladagar
    Fjórði sopinn - fræðslu- og tengsladagar 31.03.2026 1h 1m
    Í þessum þætti fara Elsa og Svanfríður yfir síðasta viðburð ASÍ-UNG sem haldinn var dagana 19. - 20. mars.Þær ræða húsnæðismál, menntamál, leikskólamál, barneignir og fleira
  • Þriðji sopinn - leikskólamál
    Þriðji sopinn - leikskólamál 10.03.2026 39m
    Í þessum þætti ræðum við leikskólamál og umræðuna sem hefur verið í fjölmiðlum. Skemmtileg og lifandi umræða
  • Annar sopinn - réttindi, skyldur og stéttarfélög
    Annar sopinn - réttindi, skyldur og stéttarfélög 22.02.2026 27m
    Í þessum þætti ætlum við að spjalla um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og fara aðeins yfir stéttarfélögin og hlutverk þeirra
  • Fyrsti sopinn - hver, til hvers og afhverju?
    Fyrsti sopinn - hver, til hvers og afhverju? 21.02.2026 11m
    Í þessum fyrsta þætti af Kaffitímanum með ASÍ-UNG förum við aðeins yfir það hver við erum, hvaðan við komum og hvert við ætlum að stefna

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.