Hlaðvarp Lyfjastofnunar

Hlaðvarp Lyfjastofnunar

Lyfjastofnun
Country Iceland
Language IS
Episodes 35
Latest 23.10.2026

Hlaðvarpið fjallar um lyf og lyfjanotkun frá ýmsum sjónarhólum. Tekið er á málefnum sem tengjast öruggri og skynsamlegri notkun lyfja. Viðtöl og umræður varpa ljósi á hlutverk Lyfjastofnunar og það sem snertir almenna lyfjanotendur. Þátturinn er gerður af Lyfjastofnun.

Episodes

  • 35. Peptíð - Hjalti Kristinsson 23.10.2026 33m
    Peptíð virðast vera á allra vörum nú um stundir, umtal um þessi efni sem ganga kaupum og sölum eftir óhefðbundnum leiðum og eru sögð bæta heilsu og útlit með ýmsu móti. En hvað eru peptíð ? Hjalti Kristinsson er doktor í lyfjafræði, sérfræðingur hjá Lyfjastofnun, og hann útskýrir hvað peptíð eru. Þetta séu efnakeðjur sem finnast í líkamanum en hafi líka verið nýtt í lyfjagerð um árabil, í meira mæli þó á síðari tímum. Og skyndilega jókst áhugi almennings svo um munaði, og margir virðast óhræddir við þá áhættu sem fylgir því að verða sér úti um það sem selt er sem peptíð utan löglegra leiða, og sprauta efnunum í líkamann. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 34. Hugtakið lyf - Viðar Guðjohnsen 11.11.2024 28m
    Þótt flestir telji sig vita hvað lyf er, skiptir skilgreining hugtaksins miklu mál. Það getur til að mynda komið við sögu í sakamálum og einnig þegar verið er að greina á milli fæðubótarefna og lyfja. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og sérfræðingur hjá Lyfjastofnun rýndi í hugtakið lyf í ritgerð sinnitil ML gráðu í lögfræði við Háskólann á Bifröst í vor. Hann segir frá í þessum þætti hlaðvarpsins. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 33. ADHD lyf í stórum skömmtum - Vilhjálmur Hjálmarsson; sérfræðingar Lyfjastofnunar í lyfjagát 27.05.2024 35m
    Umræða um lyfjameðferð við ADHD kemur nokkuð reglulega upp, nú síðast með þeim upplýsingum að um fimmtungur ávísana á ADHD lyf sé upp á stærri skammta en ráðlagðir eru samkvæmt þeim rannsóknum sem markaðsleyfi byggja á. Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar er rætt um þessi mál við Vilhjálm Hjálmarsson, formann ADHD samtakanna, og Guðrúnu Stefánsdóttur og Guðrúnu Selmu Steinarsdóttur, sérfræðinga hjá Lyfjastofnun sem m.a. sinna vinnslu aukaverkanatilkynninga. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 32. Lyfjaendurskoðun - Einar Stefán Björnsson 16.11.2023 21m
    Umfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda á málþinginu var Einar Stefán Björnsson, prófessor við HÍ og lyflæknir á Landspítala. Hann fræðir hér um hvernig slík endurskoðun fer fram, talar um að þessum þætti lækninga mætti sinna í meira mæli, og hver ávinningurinn getur orðið. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 31. Um heiti lyfja - Brynjar Örvarsson 20.09.2023 23m
    Hvernig eru heiti lyfja valin, eru einhver viðmið sem þarf að fara eftir ? Þessum og fleiri spurningum er beint til Brynjars Örvarssonar, lyfjafræðings og sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Hann hefur um árabil setið í nefnd hjá Lyfjastofnun Evrópu þar sem fjallað er um tillögur að lyfjaheitum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 30. Að ferðast með lyf - Viðar Guðjohnsen 06.07.2023 17m
    Ákveðnar reglur gilda þegar ferðast er með lyf milli landa. Þær eru að einhverju marki mismunandi eftir löndum og heimssvæðum. Gott er að glöggva sig á þessum reglum áður en haldið er af stað, ferðalangar gætu þurft að gera grein fyrir lyfjunum sem þeir hafa meðferðis ef til tollskoðunar kemur. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og eftirlitsmaður hjá Lyfjastofnun fer yfir helstu reglur sem gilda á þessu sviði. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 29. Lyf við sumartengdu ofnæmi - Erla Hlín Henrysdóttir 12.06.2023 14m
    Í þessum þætti í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar er fjallað um lyf við sumartengdu ofnæmi, ofnæmi vegna frjókorna og skordýrabita. Erla Hlín Henrysdóttir, lyfjafræðingur í samskiptadeild Lyfjastofnunar, segir frá því að ýmis lyf sem geta slegið á óþægindi vegna þessa séu í boði, þar á meðal lausasölulyf. Hún hvetur fólk til að afla sér upplýsinga um lyf áður en notkun þeirra hefst. Benda má á lyfjafræðinga og lyfjatækna apótekanna, og fylgiseðla sem finna má á lyf.is. Grein um sumartengt ofnæmi má lesa á vefnum lyfjastofnun.is. Umsjón hlaðvarps: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 28. Að þiggja ódýrari valkost í stað ávísaðs lyfs - Ólöf Þórhallsdóttir 08.02.2023 14m
    Oft er hægt að draga úr lyfjakostnaði með því að velja ódýrara sambærilegt lyf. Lyfjastofnun raðar lyfjum í svokallaða skiptiskrá og þar eru flokkuð saman sambærileg lyf í sama viðmiðunarverðflokki, sem þó geta verið á mismunandi verði. Þetta er það sem um ræðir þegar sjúklingum er boðið samheitalyf í apóteki, þ.e. sama lyf frá öðrum framleiðanda. Þá er um ódýrari valkost að ræða en lyfið sem læknirinn ávísaði. Í hlaðvarpsþættinum fræðir Ólöf Þórhallsdóttir, lyfjafræðingur og sviðsstjóri Umsókna- og samskiptasviðs Lyfjastofnunar, um frumlyf og samheitalyf, hvernig ódýrari valkostur verkar á sama hátt og ávísaða lyfið, og hvernig slíkur valkostur kemur bæði sjúklingnum og samfélaginu til góða. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 27. Lyf fyrir lítil börn í Afríku - Sveinbjörn Gizurarson 21.12.2022 15m
    Sveinbjörn Gizurarson prófessor í lyfjafræði segir frá verkefni sem hann hefur unnið að síðustu sex ár, við að þróa nýtt lyfjaform malaríulyfs, og koma á fót lyfjaverksmiðju í Malaví. -Þessi saga fylgdi óvænt með sem bónus þegar rætt var við Sveinbjörn um líftæknilyfshliðstæður í síðasta hlaðvarpsþætti. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 26. Líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður - Páll Þór Ingvarsson og Sveinbjörn Gizurarson 09.11.2022 40m
    Í þessum þætti er fjallað um líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður. Töluverður munur er á líftæknilyfjum (e. biologics) og eldri hefðbundnum lyfjum. Þau síðarnefndu eru efnasmíðuð sem kallað er, líftæknilyfin framleidd með aðstoð lífvera. Líftæknilyfshliðstæður (biosimilars) eru síðan nokkurs konar samheitalyf líftæknilyfja. -Rætt er við Pál Þór Ingvarsson lektor og Sveinbjörn Gizurarson prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 25. Aðgerðir Lyfjastofnunar til að sporna gegn lyfjaskorti - Rúna Hauksdóttir Hvannberg 14.10.2022 14m
    Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir frá þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að sporna gegn lyfjaskorti, og undirstrikar að eitt af hlutverkum stofnunarinnar samkvæmt lyfjalögum er að sinna eftirliti með framboði lyfja. Meðal þess sem eflt hefur verið er lyfjaskortsteymið, en það miðlar upplýsingum um fyrirsjáanlegan skort á vef stofnunarinnar og leitar lausna til að draga úr áhrifum skorts. Ýmis konar einföldun vegna skráningarferla hefur komið til, og til skoðunar er hvernig rafrænar lausnir geta orðið til að draga úr líkum á lyfjaskorti. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 24. Lyf, ferðalög og sól - Jana Rós Reynisdóttir 16.06.2022 13m
    Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar verður rætt um lyf í sumartengdu samhengi. Lyf meðferðis á ferðalögum til annarra landa annars vegar, lyf og sólarljós hins vegar. Hvað má t.d. taka lyf með sér til langs tíma á ferðalögum til útlanda, og síðan er vakin athygli á því að sum lyf geta valdið húðútbrotum ef sá sem þau notar er óvarinn fyrir sólarljósi. -Jana Rós Reynisdóttir er deildarstjóri samskiptadeildar Lyfjastofnunar fer yfir það helsta í þessum málum í þættinum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 23. Ópíóíðar - Magnús Karl Magnússon og Sigríður Zoëga 15.03.2022 41m
    Í byrjun árs var í fjölmiðlum fjallað um misnotkun ópíóíð-lyfja hérlendis, um svipað leyti og margir landsmenn horfðu á sjónvarpsþáttaserínuna Dopesick. Sú þáttaröðrekur sögu ópíóíðafaraldursins í Bandaríkjunum sem rekja má til vafasamrar markaðssetningar framleiðandans Purdue Pharma á lyfinu Oxycontin. Í þessum hlaðvarpsþætti er fjallað um ópíóíða. Hvers konar lyf eru þetta, hvernig verka þau á líkamann, hvað gerir að verkum að þau slá svo mjög á sársauka og eru jafn ávanabindandi og raun ber vitni. Rætt er við Magnús Karl Magnússon prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og Sigríði Zoëga, sérfræðing í hjúkrun á verkjamiðstöð Landspítala. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 22. Hvernig er metið hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar ? – Hrefna Guðmundsdóttir 19.01.2022 27m
    Til að lyf og bóluefni komist á markað þurfa lyfjafyrirtæki að senda gögn úr rannsóknum sem lyfjayfirvöld yfirfara. Í Evrópu fer sú vinna fram á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu, meginvinnan í ýmsum sérfræðinganefndum. Í þessum hlaðvarpsþætti er sagt frá vinnu og verklagi í þeim helstu, með verkefnin sem snúa að COVID-19 faraldrinum sérstaklega í huga; hvernig unnið er að því að meta hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar. Sérfræðingar Lyfjastofnunar taka þátt í starfi þessara nefnda. Einn þeirra, Hrefna Guðmundsdóttir yfirlæknir Lyfjastofnunar, segir hér frá starfi þriggja nefnda, m.a. sérfræðinganefndinni sem ráðleggur með hvaða hætti skal rannsaka lyf og bóluefni hjá börnum. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 21. Saga bólusetninga á Íslandi - Haraldur Briem 17.12.2021 28m
    Fjallað er um sögu bólusetninga á Íslandi, bólusetningar barna fyrst og fremst. Byrjað er á að rifja upp upphafið að þeirri byltingu í lýðheilsumálum sem kúabólusetningin var, framtak frumkvöðulsins Edwards Jenner. Síðan rakið hvenær byrjað var að bólusetja gegn helstu smitsjúkdómum á Íslandi, í frásögn Haraldar Briem fyrrverandi sóttvarnalæknis. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
  • 20. COVID-19: Örvunarbólusetningar - Björn Rúnar Lúðvíksson 24.11.2021 19m
    Rætt er við Björn Rúnar Lúðvíksson yfirlækni á ónæmisfræðideild Landspítalans og prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Björn Rúnar skýrir hvers vegna örvunarskammtur til viðbótar við fullbólusetningu er mikilvægur, hvaða rannsóknir liggja fyrir um áhrif örvunarskammts, og hverjar niðurstöður þeirra eru. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  • 19. COVID-19: Bólusetning barna og unglinga 12-15 ára - Valtýr Stefánsson Thors 27.08.2021 21m
    Rætt við Valtý Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalækni um hvað rannsóknir segja um bólusetningu þessa aldurshóps, um aukaverkanir bæði algengar og sjaldgæfari, hugsanlegar áhyggjur foreldra, og mat á því hvort kostir bólusetningar vegi þyngra en mögulegir ókostir. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  • 18. Meira um bóluefni gegn COVID-19 - Ingileif Jónsdóttir 18.06.2021 38m
    Nú er tæplega hálft ár síðan fyrsta bóluefnið gegn COVID-19 fékk íslenskt markaðsleyfi, sem og frá bólusetningarátakinu sem hófst nokkrum dögum síðar. Við ætlum því að nýju að ræða um bóluefnin í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar, þau bóluefni sem hafa verið notuð hérlendis. Um með hvaða hætti þeim er ætlað að ræsa ónæmiskerfið til varna, um virkni þeirra, og hugsanlegar aukaverkanir sem þeim geta fylgt. -Rætt er við Ingileif Jónsdóttur, prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, og deildarstjóra hjá Íslenskri erfðagreiningu í smit- og bólgusjúkdómum. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  • 17. Bóluefni gegn COVID-19 - Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Kolbeinn Guðmundsson 15.12.2020 23m
    Fjallað um þróun bóluefna gegn COVID-19. Hvernig öllum ferlum hefur verið flýtt, þar á meðal matsferlum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), og rætt um áhyggjur fólks af hinni hröðu framvindu. Þá er sagt frá hvernig þeim bóluefnum sem hafa komið við sögu hjá EMA fram til þessa er ætlað að verka í líkamanum til að kalla fram ónæmi gegn sjúkdómnum. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra Lyfjastofnunar, og Kolbein Guðmundsson yfirlækni stofnunarinnar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir
  • 16. Lyf á meðgöngu og við brjóstagjöf - Guðrún Stefánsdóttir 06.10.2020 13m
    Þegar kona verður barnshafandi er að mörgu að hyggja í því sem snýr að heilsufari. Eitt af því er lyfjanotkun, hvað er óhætt og hvað þarf að varast í þeim efnum. Því eins og segir á vef heilsugæslunnar berast flest lyf sem mælast í blóði móður, í gegnum fylgjuna til fóstursins. -Rætt er við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, teymisstjóra í matsdeild Lyfjastofnunar, og einn helsta sérfræðing stofnunarinnar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. - Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.