LANGA - hlaðvarp

LANGA - hlaðvarp

Snorri Björns
Country Iceland
Language IS
Episodes 98
Latest 05.11.2026

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

Episodes

  • 108. Hægði á sér og varð bestur í heimi? Andreas ALMGREN, Jess MCCLAIN og USA maraþonsenan 05.11.2026 1h 47m
    Arnar Péturs tók 360 gráðurnar á frammistöðu Andreas Almgren í New York maraþoninu, hvernig hann sneri meiðslahrinu (beinbrot, vonbrigði og alvöru álagsmeiðsli) yfir í heimsmeistaratitil, bandarísku maraþonsenuna og stórkostlega endurkomu Jess McClain.
  • 107. Andrea Kolbeins: „Ég veit að ég get svo miklu miklu betur." 30.10.2026 1h 49m
    Ef þú hlustar vandlega á þennan þátt þá gætirðu áttað þig á því að þú getur gjörbreytt lífi þínu til hins betra með því að ráðast á það sem er að stoppa þig.
  • 106. Sigurður Tómas: Íslandsmet í 24 tímum, hraðasta hlaup í Kona, sub3 maraþon, sub5 LV, sub10 Ironman 27.10.2026 2h 22m
    Sigurður Tómas er rafmagnverskfræðingur sem telur að "flestir væru betur settir með meiri sársauka í þeirra lífi."Ég veit hvað þið eruð að hugsa... þessi gæi yrði góður í úthaldsíþróttum. Sigurður hefur náð lengra en flestir á þeirri hillu: Nýbakað Íslandsmet í 24 tíma hlaupi (undir 6 pace í sólarhring), sub3 maraþon í Ironman (einn af tveimur Íslendingum 👀), hraðasti hlaupatími Íslendings í Kona, 9:06 Ironman, sub5 Laugavegur, 10. sæti í Julian Alps 120km og fleiri fleiri áskoranir sem við kryfjum í þessum þætti.
  • 105. Bakgarðs-kapítalistar, dulúð yfir félagi 100km hlaupara og Asía tekur yfir utanvegahlaup 23.10.2026 1h 51m
    Fræga fólkið, grínistarnir og einkaþoturnar eru mættar í bakgarðinn, Steindi Jr. er tilbúinn til þess að deyja við að reyna að fá 100km derruna, heimsmet (í nafni ástarinnar) og Íslandsmet fellur í sömu keppninni, Andrea keppir í Kóreu og stærstu nöfn trail senunnar (Jim Walmsley, Courtney Dauwalter, Tove Alexandersson, Remi Bonnet...) eru mætt til Kína! Eru Kínverjar að reyna að skáka UTMB senunni eða munu bakgarðshlaupinn verða fyrri til?
  • 462km bakgarður, LJÓSIN SLOKKNA, 0mm drop á ofurskó og besta Kona hingað til 21.10.2026 2h 16m
    LANGA snýr aftur við mjög langt tilefni, POST-LANGA-DEPRESSION, er bakgarðurinn toppa sig? Einlægur Þorleifur, endurkoma Mari, hvaða mælikvarði spáir best fyrir um árangurinn þinn í bakgarðinum, POST-LANGA-DEPRESSION, eru ofurskór að slíta hásinarnar á þér? Tárvotur Gustav Iden er maður fólksins og Íslandsmet í 24 klukkustunda hlaupi.
  • 103. TOBBI vill að þú sýnir karakter, egódauði í ultrahlaupum, hvernig talaru við sjálfan þig og 2-0 fyrir UTMB 22.09.2026 1h 12m
    Tobbi er búinn að tryggja sér miða í UTMB 2027, hlaupið sem að kláraði hann tvö ár í röð, og nú er kominn tími til að ganga í gin ljónsins í þriðja skipti og loka þessum kafla. Við ræðum væntingastjórnun og sjálfstal í löngum ultrahlaupum, hvernig Elísa snerist frá því að hætta í CCC, að vera með hátt gólf eða hátt þak, Ben Dhiman og hans óvanalega nálgun á íþróttina, tveggja höfuðljósaframmistöðu í Julian Alps og markmið Tobba í götumaraþoni undir lok árs.
  • 102. Af hverju æfir Klæbo ekki í zone 2? Steindi í Bakgarðinum, Almgren heimsmeistari, Johaug og BLUMMENFELT 20.09.2026 1h 48m
    Rígurinn á milli Steinda og Latsa nær dýpra en ég hélt, 360° greining á 5 hringja Bakgarðs-frammistöðu, Tobbi er kominn í UTMB 2027, Klæbo æfir ekki í zone 2 til að passa upp á samsetningu vöðvaþráðanna sinna (vísindahorn Latsa), mikill ávinningur af 20 æfingum í hita, Theresa Johaug eignast barn í janúar og hleypur hraðast allra evrópskra kvenna á heimsmeistaramótinu (1:08 🤯), Blummenfelt tapaði en stal allri athyglinni, Andreas Almgren er bestur í heimi og The Icelandic Hypetrain eru að æfa eins og skepnur!
  • 101. Besta frammistaða allra tíma, Ben Dhiman deep dive, skóleikurinn breytist og Courtney er búin. 04.09.2026 1h 51m
    Ben Dhiman æfir sig á skíðum, rústar UTMB og segir að við höfum lifað á steinöld hvað varðar frammistöður í 100 mílna hlaupum - má skjóta svona fast á Kilian og Walmsley þegar þú nærð lang bestu frammistöðu allra tíma? Gulli tók út Chamonix (sem er sprungið) og Egill kemur með fréttir af sviptingum hjá skóframleiðendum Slúður um íslenskt UTMB hlaup, minkur sást í Heiðmörk og allar helstu fréttir sem úthaldsíþróttafólk landsins þarf að fá veður af.
  • 100. Elísa Kristins – stálheiðarlegt CCC uppgjör 02.09.2026 47m
    Elísa Kristinsdóttir gerir upp frumraun sína í CCC, stærsta 100km hlaupi heims, á stálheiðarlegan máta. Hún er hvergi af baki dottin og frumflytur svakalega keppnisdagskrá sem er framundan og hlutina sem hún þarf að laga fyrir tilraun tvö.
  • 99. Baldvin Þór - Íslandsmet á EM 21.08.2026 1h 15m
    Baldvin gerir upp viðburðarríkt Evrópumeistaramót, þar sem hann setti Íslandsmet í 10.000m, og vegferðina fram að mótinu. Við förum yfir æfingabúðirnar, rauðrófu+koffín kokteilinn fyrir keppni, VLOG fram að Ólympíuleikunum, hvernig hann bregst við æfingum í háfjallalofti, að hafa áhyggjur alla keppnisvikuna, yfirburði Andreas Almgren, taktíkina í keppninni og möguleikann á því að hlaupa nálægt 13 mínútum í 5km hlaupi í næsta mánuði!
  • Elísa í CCC, Baldvin á Íslandsmeti, Arnar á brautarmeti? og ÍBR vill ekki hraða tíma 18.08.2026 2h 7m
    ÍBR virðist ætla að breyta 10km götuhlaupinu í 10km hindrunarhlaup - Reykjavíkurmaraþonið samt alltaf best mælda, best skipulagða og best tímatekna hlaup landsins.Endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Íslandsmet Baldvins, 800m rimman, ALMGREN og viðburðarríkt Evrópumeistaramót gert upp.SLÚÐUR um miðbik þáttar sem mun ekki fara framhjá neinum íþróttaáhugamanni á næstu dögum.Er Arnar Pétursson skemmtilegasti maðurinn í hlaupasenunni? Á hann brautarmetið í Laugaveginum?Elísa og Andrea eru komnar til Chamonix - Andrea lifir í einhverskonar draumi og Elísa var fædd til þess að gera góða hluti í CCC.
  • 97. Jón Diðriksson - Maðurinn sem setti markið hærra 14.08.2026 1h 35m
    „Hver er þessi Jón Diðriksson?“Sveitastrákurinn úr Borgarfirði sem setti Íslandsmet í öllum greinum frá 800m og upp í 10km götuhlaup. Jón setti markið svo hátt fyrir þá sem á eftir komu að metin hans stóðu sum hver í meira en 40 ár og eitt þeirra stendur enn þann dag í dag, þó það hafi verið sett fyrir algjöran misskilning!“Það var bara regla… maður var aldrei ánægður. Maður vildi alltaf hlaupa betur - og hraðar”
  • 96. Stundin er runnin upp: Baldvin og Hlynur reima skóna, Arnar hamrar Laugaveginn og sub2 maraþon sjokk 07.08.2026 1h 29m
    Gunnar Páll er sendur til Birmingham í nafni LANGA hlaðvarps þar sem hann mun fylgjast með Baldvini Þór keppa í 10.000m og Hlyni Andréssyni í maraþoni fyrir Íslands hönd.Evrópumeistaramótið er feykna sterkt í ár en Gunni Palli upplýsir þig um allt sem þú þarft að vita fyrir mótið: Meiðsli og endurkoma Jakob Ingebrigtsen, Baldvin héraði 5km á 15mín og mældist 1,7mmol í mjólkursýru, Nordås er hættur í þjálfun hjá Gjert Ingebrigtsen, Hlynur virðist leggja allt í sölurnar, Keely Hodgkinson ógnar ósnertanlega metinu, Andreas Almgren (LANGA favorite) mun skrúfa upp í 10.000m fyrir Baldvin, Femke Bol lengir og Gunni Palli mun, þó það sé þyngra en tárum taki, missa af maraþon göngunni.Það var í þokkabót ekki annað hægt en að bera undir Gunnar tímann hans Arnars á Laugaveginum og fá viðbrögð við stórbætingu á heimsmetinu í maraþoni.
  • Mjólkursýra = óvinurinn eða leynivopnið? Lyfjapróf að næturlagi, Tour De France, HYROX og hitabylgja 23.07.2026 1h 45m
    Af hverju eru hlauparar að æfa undir mjókursýruþröskuldi til þess að forðast mjólkursýru en ætla núna að borða hana? Eru lactate gel næsta byltingin í úthaldsíþróttum eða bara snilldar markaðssetning? Stærsta þrekraun úthaldsíþróttamannsins, Tour de France, er í fullum gangi - hjólarar eru lyfjaprófaðir að næturlagi með ófyrirséðum afleiðingum, Latsi setti hæstu wöttin sín í pedalana eftir stutta og snarpa HYROX blokk í miðju hvíldartímabili og LANGA hlaðvarp fjallar um hjólreiðakeppnir svo lengi sem hlauparar vinni þær.
  • 94. Tove Alexandersson 10.07.2026 37m
    Sú albesta, stigahæsta og æfingaglaðasta er mætt í LANGA hlaðvarp. 30 klukkutíma hlaupavikur, sænska leiðin, rjómaþamb á æfingum, hákolvetnainntaka, magn fram yfir gæði - en stundum gæði framyfir magn, UTMB > götumaraþon, sænska leiðin > norska leiðin og af hverju eru rathlauparar svona góðir í utanvegahlaupum?
  • 93. Arnar Péturs spáir Laugaveginum - hvað gerist, hvað gerist ekki, sub4, sub5, sigurvegarar og pallsætin. 09.07.2026 1h 26m
    Arnar Pétursson kann að hlaupa hraðan Laugaveg og Arnar Pétursson hikar ekki við að spá í spilin um frammistöðu bestu hlaupara Íslands í Laugaveginum um næstu helgi. Ekkert bendir til sub 4 Laugavegs, Tove mun hrista upp í karlaflokknum og keppnin um pallsætin verður gríðarsterk í ár.
  • 92. Offramboð af úthaldi - Synir LANGA létta af sér 28.06.2026 1h 40m
    Western States vannst á sögulega hröðum tíma af mesta myrkrahesti hlaupasenunnar - en það er Elísa Kristinsdóttir sem á afrek helgarinnar og lokar þriðja UTMB sigrinum á 8 mánuðum. Helgin var smekkfull af úthaldsafrekum: Tove vinnur Mont Blanc Marathon á tíma sem fær menn til að spá henni sigri gegn íslensku körlunum í Dyrfjallahlaupinu í næstu viku, Norðmenn sýna enn og aftur að þeir eru bestir í Ironman og LANGA gefur rautt spjald fyrir að skipta um vegalengd í miðju hlaupi.
  • 91. Tilhneigingin til að ofgera sér, beinbjúgur, hjól fyrir hlaupara, WSER og The Swedish Method 25.06.2026 1h 51m
    Handbolta- hjóla- og hlaupadrottningin Ágústa Edda og bakgarðs- og brokkolíspírukóngurinn Andri Guðmundsson mæta í stúdíóið til þess að ræða tilhneiginguna til þess að gera eins mikið og mögulegt er (👀🫵), hjólaæfingar fyrir hlaupara (hvað er hægt að læra af Tour de France hjólara sem hleypur hálft maraþon á 61 mínútu?), REDs og beinmeiðsli sem koma aftan að manni, sterkustu ráslínu í Western States frá upphafi, red zone sprengjuárásir í hjólreiðum, sænsku hlaupasenuna - og leggja síðast en ekki síst drög að Langathoninu.
  • 90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona! 16.06.2026 1h 47m
    Latsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar.Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir beltinu til þess að gefa okkur ferðasöguna og fara yfir helstu vendingar í heimi úthaldsíþrótta.
  • 89. Þorbergur Ingi eftir EM 08.06.2026 1h 10m
    Crazy carb numbers, einkapepparinn Þorsteinn Roy, hærri ITRA stig á Íslandi en í útlöndum, Tobbi vs. Tove (í beinni frá Dyrfjallahlaupinu) og yfirferð á frammistöðu íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í utanvegahlaupum.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.