Matvælið
Matís
0
Í Matvælinu er fjallað um nýsköpun og rannsóknir í matvælaframleiðslu. Sérfræðingar Matís fá hér tækifæri til að ræða á opinskáan hátt spennandi og mikilvægar matvælarannsóknir. Umfjöllunin snýst meðal annars um aukið matvælaöryggi og betri lýðheilsu. Þátturinn miðlar innsýn í starf Matvís og hvernig rannsóknir geta stutt við þróun í matvælaframleiðslu.
Episodes
-
Sjálfbærari fiskveiðar og verndun vistkerfa 26.09.2025 1h 10mHaraldur Arnar Einarsson, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun og Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftlagsmála hjá Brim komu til okkar í Matvælið og ræddu meðal annars hafrannsóknir, sjálfbærar fiskveiðar, verndun vistkerfa og aðlögunarhæfni í sjávarútvegi.MarineGuardian verkefnið hefur það að markmiði að efla sjálfbærar fiskveiðar og stuðla að verndun sjávarvistkerfa í Atlantshafi og Norðuríshafi, með aukinni þekkingu og þróun lausna sem draga úr meðafla, brottkasti, olíunotkun, neikvæðum áhrifum á botnvistkerfi, auka afla á sóknareiningu, og tryggja bætta gagnaöflun og úrvin... -
,,Við getum haldið áfram að segja að íslenskt lambakjöt sé best" 16.08.2024 39mHafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri markaðsstofunnar Íslenskt lambakjöt og Óli Þór Hilmarsson verkefnastjóri hjá Matís eru viðmælendur í Matvælinu að þessu sinni en fyrr á árinu luku þeir vinnu við rannsókn á nýtingarhlutfalli og efnainnihaldi lambakjöts og aukaafurða. Verkefnið var unnið af Matís og markaðsstofunni Íslenskt lambakjöt í nánu samstarfi við afurðastöðvar bæði á norður- og suðurlandi. Verkefninu var hrundið af stað til þess að mögulegt væri að leggja fram ný og traust gögn til að koma í stað þeirra 20-30 ára gömlu gagna sem alla jafna var stuðst við og voru orðin úrelt. Skortur... -
Plastrannsóknir - ,,Það þurfa öll lönd að gyrða sig í brók, fara að mæla þetta og segja stopp!" 27.06.2024 43mSophie Jensen, verkefnastjóri í faghópi Matís sem fæst við lífefni, hefur unnið að flestum plasttengdum verkefnum sem unnin hafa verið hjá fyrirtækinu. Hún er algjör viskubrunnur í málum sem tengjast plastvandanum í samfélaginu, umhverfisvænum lausnum þegar kemur að pökkunarefnum fyrir matvæli, leiðum til að minnka plast á heimilum og áhrifum plasts á fólk.Þessi þáttur er sérlega fróðlegur og fjallar um málefni sem snertir okkur öll - plast! -
„Þetta eru eiginlega faðernispróf". Erfðagreiningar á eldislaxi á Íslandi 25.01.2024 34mSæmundur Sveinsson er fagstjóri erfða hjá Matís og í þessum þætti af Matvælinu ræðir hann um erfðagreiningar á laxi og verkefni þeim tengdumÍ þættinum fer hann yfir lífsferil íslenska laxins og erfðafjölbreytileika hans eftir vatnasvæðum, erfðagreiningar á strokulöxum úr sjókvíaeldi og erfðagreiningar á laxi fyrir svokallaða fiskrækt svo eitthvað sé nefnt. Sæmundi er lagið að fjalla um þessi mál á auðskiljanlegan og skemmtilegan hátt svo að óhætt er að mæla með hlustun fyrir öll! -
Betri nýting hliðarhráefna - „þetta er ekki bara eitthvað drasl sem við þurfum að díla við" 11.01.2024 38mHildur Inga Sveinsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís er viðmælandi að þessu sinni. Hún fjallar um verðmætin sem leynast í hráefnum sem við getum fengið út úr matvælavinnslu en eru þó ekki aðal efnið sem við erum að vinna með; svokölluð hliðarhráefni. Allt þetta tengir hún við evrópska samstarfsverkefnið Accelwater sem hún vinnur að um þessar mundir.Ísland hefur lengi verið framarlega í nýtingu hliðarhráefna og eitt af þeim hráefnum sem áhugavert er að meta bæði með tækifæri til verðmætasköpunar og umhverfismál fyrir augum er vatn frá t.d. fiskvinnslum og landeldisstöðvum. Verkefnið Accelwater sn... -
Íslenskar búfjártegundir - erfðagreiningar og kynbótstarf 21.12.2023 26mSæmundur Sveinsson, fagstjóri erfða hjá Matís er viðmælandi í þessum þætti af Matvælinu og hann fjallar um erfðarannsóknir og kynbætur á íslenskum búfjártegundum á þann hátt að öll geta skilið og haldið athyglinni vel!Á Íslandi eru sumir búfjárstofnar séríslenskir á meðan aðrir eru innfluttir. Nautgripir, hestar, sauðfé og geitur eru alfarið af íslenskum stofnum og það felur í sér að íslenskir aðilar eru þeir einu í heiminum sem sinna kynbótum á þessum fjórum búfjártegundum. Hjá Matís hefur aðallega verið unnið með þrjár tegundir, þ.e. nautgripi, hesta og sauðfé og rannsóknir á þessum stofnum... -
Verkaður hákarl - þjóðarréttur íslendinga? 14.12.2023 21mSnorri Páll Ólason vann að rannsóknum á hákarlsverkun, kæsingu og þurrkun, í meistaraverkefni sínu sem hann vann hjá Matís í samstarfi við Bjarnarhöfn ferðaþjónustu, stærsta framleiðanda á kæstum hákarli á Íslandi með styrk frá Matvælasjóði.Spjallið við Snorra er fróðlegt og skemmtilegt þar sem hann fer til dæmis yfir menninguna í kringum hákarlsát, vísindin sem liggja að baki því að verkun á hákarli er nauðsynleg fyrir neyslu þar sem kæsingin er bæði varðveisluaðferð og afeitrunarferill, lífseigar mýtur um kæsingu og margt fleira. -
ÍSGEM: Upplýsingaveita um innihaldsefni matvæla 22.11.2023 35mÓlafur Reykdal og Eydís Ylfa Erlendsdóttir eru sérfræðingar í Íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla: ÍSGEM. Þau eru viðmælendur í þessum þætti af Matvælinu, hlaðvarpi Matís um rannsóknir og nýsköpun í matvælaframleiðslu. Í þættinum ræða þau um sögu ÍSGEM og tilgang gagnagrunnsins en sögu hans má rekja aftur til ársins 1987 þegar næringarefni ýmissa matvæla voru skráð í fyrsta skipti á Íslandi. Þau ræða jafnframt um gildi ÍSGEM og koma inn á það hvers vegna mikilvægt er að fólk á Íslandi hafi aðgang að sannreyndum, og gæðametnum upplýsingum um matvæli og næringarefni í opnum aðgangi.... -
Við erum að reyna að nota fólk eins og mælitæki... en fólk er ekki mælitæki - Skynmat Matís 10.11.2023 36mAðalheiður Ólafsdóttir, skynmatsstjóri Matís er viðmælandi í nýjum þætti af Matvælinu, hlaðvarpi Matís um rannsóknir og nýsköpun í matvælaframleiðslu. Hún ræddi allt það sem í skynmatinu felst, af hverju það er mikilvægt og fyrir hver. Hún sagði auk þess sögur af þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún hefur fengist við sem skynmatsstjóri, allt frá því að meta mýkt og lykt af andlitskremi yfir í að meta galtarlykt af kjöti, eiginleika próteindufts úr krybbum og bragð og áferð af þara. Spjallið er létt og skemmtilegt og afar fróðlegt!Þáttastjórnandi er Ísey Dísa Hávarsdóttir -
Saltfiskur fyrr og nú! 07.02.2023 17mKolbrún Sveinsdóttir verkefnastjóri hjá Matís er gestur í Matvælinu, hlaðvarpsþætti Matís. Farið er um víðan völl þegar kemur að saltfisk, sögu hans og menningu. -
Skítamix! Sjálfbær áburðarframleiðsla 23.11.2022 17mJónas Baldursson verkefnastjóri hjá Matís og Eva Margrét Jónudóttir sérfræðingur hjá Matís ræða hér verkefnið Sjálfbær áburðarframleiðsla, heildstæð nálgun á hringrásarhagkerfið.Rætt er um næringarefni áburðar, frumniðurstöður tilrauna og hvort að verkefnið hefði í raun átt að heita Skítamix. Farið er yfir sjálfbærni ferla með því að nýta aukaafurði úr ýmsum iðnaði, meðal annars moltu, kjötmjöl, kúamykju, fiskeldiseyru, kjúklingaskít og mannaseyru.Við fáum að heyra hvað kom á óvart og mikilvægi þess að gera áburðarframleiðslu sjálfbæra. -
Erfðabreytingar á örverum 09.08.2022 19mGestir hlaðvarpsþáttarins Matvælið að þessu sinni eru þeir Björn Þór Aðalsteinsson, verkefnastjóri hjá Matís og Tryggvi Stefánsson, aðstoðarframkvæmdarstjóri hjá Algalíf. Í þættinum fara þeir yfir markaðsleg og rannsóknarleg sjónarmið í tengslum við erfðabreytingar á örverum. -
Gæði og eiginleikar hrossakjöts 08.07.2022 27mMatvælafræðingurinn Eva Margrét Jónudóttir hefur rannsakað gæði og eiginleika hrossakjöts í nokkur ár. Hún segir frá helstu niðurstöðum og viðhorfi neytenda til hrossakjöts.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.