Íþróttanæring með Nutreleat

Íþróttanæring með Nutreleat

Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc.
Country Iceland
Genres Sports
Language IS
Episodes 17
Latest 19.10.2026

Hlaðvarp þar sem farið er yfir hin ýmsu málefni í tengslum við íþróttanæringu, íþróttir og þjálfun.

Episodes

  • 26. Kolvetnainntaka við þjálfun, er hún komin útí öfgar?
    26. Kolvetnainntaka við þjálfun, er hún komin útí öfgar? 19.10.2026 58m
    Í þessum þætti spyrjum við einfaldrar en mikilvægrar spurningar: er kolvetnainntaka við þjálfun komin út í öfgar?Hingað til hafa opinberar ráðleggingar legið á bilinu 30-90 g kolvetni á klukkustund. Í dag heyrum við af íþróttafólki sem tekur inn 120 g og jafnvel 150-200 g á klukkustund. Til að svara spurningunni förum við yfir nýja yfirlitsgrein, „From Metabolism to Medals“ eftir Morton og félaga, sem birtist í The Journal of Nutrition árið 2026. Við skoðum hvað núverandi ráðleggingar segja, sem eru allt að 90 g á klukkustund, og hvort efri mörkin gætu verið nær 120 g á klukkustund, að minnsta...
  • 25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón
    25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón 28.09.2026 1h 1m
    Í þessum þætti fáum við til okkar hana Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni hjá Heilsuklasanum. Sigríður starfaði um árabil sem sérfræðingur á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og hefur unnið með fjölda einstaklinga með beinþynningu. Hún stofnaði jafnframt vefinn beinheilsa.is, sem hefur það að markmiði að gera fræðslu um beinheilsu aðgengilega á íslensku.Í þættinum ræðir Sigríður um beinmeiðsli meðal íþróttafólks, en slíkum tilfellum hefur farið fjölgandi á hennar borði. Hún útskýrir hvernig beinin bregðast við þjálfun og álagi, hvað getur legið að baki þegar þau gefa sig og...
  • 24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk
    24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk 14.09.2026 52m
    Í þessum þætti fjöllum við um tímabilaskiptar áherslur í næringu fyrir íþróttafólk, í hverju þær raunverulega felast, hversu breytilegir æfingadagar geta verið með tilliti til orku- og orkuefnaþarfar og hvaða praktísku atriði þarf að hafa í huga.Við förum yfir hvernig hvíldardagar, miðlungserfiðir dagar og erfiðir æfingadagar kalla á ólíka nálgun í næringu, og hvernig hægt er að skipuleggja næringarinntöku útfrá æfingaálagi til að hámarka orku, afköst og endurheimt. Við ræðum líka hvernig fyrirsjáanleiki og skipulag í næringu getur sparað tíma og dregið úr óvissu hjá íþróttafólki sem er að rey...
  • 23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi
    23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi 31.08.2026 1h 19m
    Í þessum þætti fáum við til okkar hann Anton Svein McKee, fyrrverandi landsliðsmann Íslands í sundi og fjórfaldan Ólympíufara. Anton ræðir af einlægni um sundferilinn, sem spannaði yfir áratug á heimsmælikvarða, og flutninginn til Bandaríkjanna þar sem hann hóf nám og æfingar við Alabama-háskóla árið 2013.Hann segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu úti, þeim áskorunum og tækifærum sem fylgdu því að æfa og keppa fjarri heimahögunum, og hvernig hann byggði upp þann feril sem gerði hann að einum farsælasta sundmanni Íslandssögunnar. Þá fer Anton yfir undirbúninginn fyrir Ólympíuleikana, an...
  • 22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur
    22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur 17.08.2026 55m
    Í þessum þætti fjöllum við um heilaskaða í íþróttum, viðfangsefni sem á sannarlega erindi við allt íþróttafólk, foreldra og þjálfara óháð aldri og getustigi.Við förum yfir hvaða áhrif heilaskaði hefur á heilann og starfsemi hans, og hvaða áhrif þessar breytingar geta haft á næringartengdar áherslur í fræðilegu samhengi. Við skoðum einnig hvar þekkingu skortir enn í dag og hvað þarf að rannsaka betur þegar kemur að samspili heilaskaða og næringar.Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:⁠https://www.nut...
  • 21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum
    21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum 03.08.2026 58m
    Í þessum þætti fjöllum við um átraskanir í íþróttum, efni sem stendur okkur sérstaklega nærri, þar sem Lilja glímdi sjálf við raskaðar fæðuvenjur og óheilbrigt samband við mat á sínum dansferli og er þátturinn því á persónulegri nótunum en oft áður.Við förum yfir hvort ástæðurnar á bakvið átröskun hjá íþróttafólki séu í eðli sínu ólíkar þeim sem liggja að baki átröskunum hjá almenningi. Við förum einnig yfir mismunandi tegundir átraskana og ræðum hvað er hægt að gera - bæði þegar kemur að forvörnum, en einnig til að búa til styðjandi umhverfi fyrir þau sem eru að glíma við raskaðar fæðuvenjur...
  • 20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive
    20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive 20.07.2026 1h 2m
    Við tölum oft um kolvetni eingöngu út frá orku og afköstum; eldsneytið sem heldur okkur gangandi á erfiðu eða löngu æfingunum. En það er hlið á kolvetnaneyslu sem fær sjaldnar athygli - tengslin við beinheilsu. Og þar leynist ýmislegt sem kemur á óvart.Í þessum þætti förum við á dýpið í rannsókn sem skoðar akkúrat þetta: Beineyðingu og beinmyndun, markera sem tengjast þessum þáttum og hvað þetta þýðir allt saman. Einnig skoðum við þetta í samhengi við æfingar og næringu - og þá sérstaklega í tengslum við kolvetnainntöku.Fyrir áhugasama er greinina að finna hér:https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/arti...
  • 19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli
    19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli 06.07.2026 59m
    Í þessum þætti fáum við til okkar Birnu Kristínu Kristjánsdóttur, landsliðskonu í frjálsum íþróttum. Birna ræðir af einlægni um óheilbrigt samband við mat og líkamsímynd, ásamt öðrum áskorunum sem hún hefur mætt á ferlinum.Hún segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu á Ítalíu og sigrinum á Smáþjóðaleikunum, sem hún vann aðeins 22 ára gömul. Þá deilir hún því hvernig henni tókst að færa hugarfarið frá þeirri hugmynd að hún þyrfti að vera grennri yfir í að nærast í takt við æfingaálag og setja frammistöðu í forgang fram yfir útlit. Birna fer einnig yfir undirbúningsrútínuna sína fyrir keppn...
  • 18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum?
    18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum? 22.06.2026 54m
    Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi.Í þessum þætti förum yfir algengustu mistökin sem fólk gerirþegar fólk fer úr því að æfa lítið (eða jafnvel kyrrsetu) og yfir í meira æfingaálag: vanmeta eigið form, elta þá bestu, leita skyndilausna í fæðubótarefnum, óttast kolvetni að óþörfu, og mæta í maraþon án þess að hafa nokkurn tíma prófað orkugel. Við ræðum einnig ofþjálfunarheilkenni og REDs, hvernigá að þekkja einkennin og hvað næringin hefur með málið...
  • 17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype?
    17. Peptíð: Kraftaverk eða markaðshype? 08.06.2026 47m
    Peptíð eru úti um allt þessa dagana, í snyrtivörum, fæðubótarefnum og á samfélagsmiðlum þar sem þau eru sögð gera ýmislegt - allt frá því að byggja upp vöðva og að því að snúa við öldrun. En hvað eru peptíð í raun og veru, og standast loforðin?Í þessum þætti köfum við ofan í hvað peptíð eru, hvernig þau virka í líkamanum og hvort þau séu örugg til inntöku. Við skoðum þau líka sérstaklega í samhengi við íþróttir og íþróttafólk, hvað vísindin segja og hvar mörkin liggja.Nú er heldur betur farið að styttast í útgáfu á appinu sem hefur verið í þróun á bak við tjöldin. Það er sérstaklega hannað fyr...
  • 16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun
    16. Hvað gerðist? Síðustu mánuðir, hlaðvarpslægð & appróun 25.05.2026 45m
    Í þessum þætti förum við yfir af hverju við höfum ekki gefið út hlaðvarpsþátt í að verða ár, hvað við erum búin að vera að gera og hvað er framundan í þessari hlaðvarpsseríu. Einnig förum við aðeins yfir appþróun sem er búin að vera í gangi síðustu árin, erfiðleika sem hafa komið upp í ferlinu og eiginleika sem verða til staðar í appinu. Ef þú vilt skrá þig á póstlistann til að vera fyrst/ur til að vita þegar við gefum appið út geturðu fylgt hlekknum hér að neðan:https://www.nutreleat.is/ntrlt-postlistiEkki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endile...
  • 15. Gæði rannsókna & pseudoscience
    15. Gæði rannsókna & pseudoscience 30.06.2025 1h 9m
    Í þessum þætti tökum við fyrir gæði rannsókna og pseudoscience. Eins komum við inná mýtur sem hafa orðið til útfrá rangri túlkun á rannsóknum. Við vonum að hann hjálpi þér að öðlast betra vísinda- og næringarlæsi, ásamt því að átta þig betur hvaða upplýsingar um (íþrótta)næringu eru traustvekjandi og hvers konar upplýsingar ber að varast.Hér eru hlekkir á hlutina sem við ræddum í þættinum:Instagram reikningur dr. Matthew Nagra: https://www.instagram.com/dr.matthewnagra/Útskýring á The Dunning Kruger effect (þó hægt að finna fleiri myndir sem sýna að þó þú sért orðinn sérfræðingur á tilteknu vi...
  • 14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim
    14. Doping áhættur í íþróttum & leiðir til að minnka líkur á þeim 12.05.2025 52m
    Í þessum þætti tökum við fyrir doping áhættur í íþróttum, hvað þær fela í sér og hvaða afleiðingar þær geta haft. Þá ætlum við einnig að fara yfir hvernig hægt sé að minnka líkur á því að fremja slík brot. Við vekjum athygli á því að eftir smá bið erum við loksins búin að opna aftur fyrir skráningar á grunnnámskeiðið okkar ‘Leggðu grunninn að þinni íþróttanæringu’. Næsti hópur fer af stað 11. Júní og verður þetta jafnframt SÍÐASTI hópur þessa árs. Ef ÞÚ ert metnaðarfullur íþróttaeinstaklingur, foreldri ungs íþróttaeinstaklings eða ert að stunda einhverskonar þjálfun t.d. hlaup, crossfit, hyrox...
  • 13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera
    13. Algeng & dýrkeypt næringartengd mistök sem við sjáum íþróttafólk gera 03.04.2025 51m
    Í þessum þætti tökum við fyrir algeng mistök sem við sjáum íþróttafólk gera og hvaða afleiðingar þau geta haft í för með sér. Við fengum líka álit frá sérfræðingum erlendis varðandi mistök sem þau sjá oft í sinni vinnu.Við erum því miður búin að loka fyrir skráningar í einstaklingsmiðaða íþróttanæringarráðgjöf fram til júní og mögulega fram til næsta hausts. EN fyrir þau sem vilja byrja að gera jákvæðar breytingar á sinni íþróttanæringu SEM FYRST erum við núna að bjóða uppá KAUPAUKA þegar þú skráir þig í áskriftarleiðina okkar í apríl eða maí. En það er aðgangur að Pre- & post-training næringa...
  • 12. Örþáttur: Beta alanín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & fyrir hverja er það?
    12. Örþáttur: Beta alanín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & fyrir hverja er það? 14.01.2025 19m
    Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem færri kannast e.t.v. við, samanborið við kreatín - en það er afkastaaukandi fæðubótarefnið beta alanin. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Til að fá upplýsingar um ráðlagðan dagskammt, leiðbeiningar varðandi inntöku og yfirlit yfir lotuprófaðar tegundir af...
  • 11. Birna Varðardóttir: Hlutfallslegur orkuskortur í íþróttum & áhrif á frammistöðu og heilsu íþróttafólks
    11. Birna Varðardóttir: Hlutfallslegur orkuskortur í íþróttum & áhrif á frammistöðu og heilsu íþróttafólks 23.12.2024 59m
    Í þessum þætti fengum við hana Birnu Varðardóttur, doktor í íþrótta- & heilsufræðum, til okkar til að ræða um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, hvaða áhrif hann getur haft á frammistöðu og heilsu íþróttafólks, rauð flögg sem iðkendur, þjálfarar og fagaðilar sem vinna með íþróttafólki þurfa að vera meðvitaðir um og hvaða skref er hægt að taka til að leiðrétta ástandið.Við viljum vekja athygli á því að í janúar munum við bjóða uppá ókeypis rafrænan fyrirlestur um næringu íþróttafólks sem þú vilt ekki missa af - þú getur tekið frá þitt pláss HÉR.Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúi...
  • 10. Intra nutrition (næring við þjálfun) - hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku, tegund og magni?
    10. Intra nutrition (næring við þjálfun) - hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku, tegund og magni? 09.12.2024 43m
    Í þessum þætti tökum við fyrir næringu við þjálfun eða intra nutrition - og skoðum hvernig það getur haft áhrif á frammistöðu, hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að inntöku og nokkrar mýtur í tengslum við þetta viðfangsefni.Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.isEkki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback!Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.
  • 09. Örþáttur: Kreatín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & er það öruggt til inntöku?
    09. Örþáttur: Kreatín - hvernig virkar það, hvað sýna rannsóknir & er það öruggt til inntöku? 25.11.2024 22m
    Í þessum örþætti tökum við fyrir efni sem mörg eru farin að kannast við - en það er einmitt afkastaaukandi fæðubótarefnið kreatín. Í þættinum fer Arnar Sölvi yfir virkni þess í líkamanum, í hvaða aðstæðum það gæti gagnast, hvað rannsóknir sýna þegar kemur að áhrifum og hvort það sér öruggt til inntöku. En þetta eru einmitt spurningar sem brenna á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Greinar um kreatín fyrir áhugasama: https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/10694141/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/9627907/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/11708707/ https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/12701816/ Ef þ...
  • 08. Hafrún Rakel Halldórsdóttir, landsliðs- & atvinnukona í knattspyrnu
    08. Hafrún Rakel Halldórsdóttir, landsliðs- & atvinnukona í knattspyrnu 11.11.2024 55m
    Í þessum þætti tökum við skemmtilegt og einlægt spjall við Hafrúnu Rakel Halldórsdóttur, landsliðs- og atvinnukonu í fótbolta, þar sem við förum aðeins yfir boltann og lífið, hvernig það var að skipta úr uppeldisfélaginu, fá kallið inní landsliðið og flytja milli landa þegar hún fór yfir til Brøndby. Hún deilir einnig með hlustendum hvernig hún undirbýr sig fyrir leik og fer þar m.a. yfir næringuna og hugarfarið ásamt því að gefa yngri iðkendum nokkur ráð. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónust...
  • 07. Þarf íþróttafólk fæðubótarefni eða er matur nóg?
    07. Þarf íþróttafólk fæðubótarefni eða er matur nóg? 28.10.2024 43m
    Í þessum þætti tökum við fyrir viðfangsefni sem snýr að fæðubótarefnum fyrir íþróttafólk - hvort að það sé eitthvað sem íþróttafólk þarf að huga að almennt eða hvort matur sé einfaldlega nóg. En þetta er einmitt viðfangsefni sem brennur á mörgum og við fáum oft spurningar varðandi. Ef þú stundar þína íþrótt af kappi og ert tilbúin/n/ð til að taka þína íþróttanæringu uppá næsta level geturðu lesið meira um okkar þjónustu inná www.nutreleat.is Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega fá þitt feedback! Vonum að þú njótir, -Nutreleat teymið.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.