Jón Ólafs á spjallinu
Jón Ólafsson
0
Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á.
Episodes
-
47.þáttur: Vilhjálmur Guðjónsson 21.10.2026 1h 53mÞað er óhætt að segja að Vilhjálmi Guðjónssyni sé margt til lista lagt. Hann teflir 3-4 skákir á hverjum degi og þeysir þess á milli á mótorhjólinu út um allar koppagrundir. Vilhjálmur nýtur mikillar virðingar í íslenskum tónlistarheimi enda einn fjölhæfasti tónlistarmaður sem Ísland hefur alið. Nánast öll hljóðfæri leika í höndunum á honum þó saxófónninn og gítarinn séu þar fremst í flokki. Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita, allt frá rokktríóum til stórsveita; samið fyrir leikhús og kvikmyndir auk þess sem hann átti um árabil 80-90% allra auglýsingastefja sem við heyrðum á öldum ljósvakanna. Vilhjálmur er einn af frumherjum Tónlistarskóla FÍH og þeir eru ófáir tónlistarmennirnir sem hann hefur kennt á löngum ferli. -
46.þáttur: Sr. Davíð Þór Jónsson 14.10.2026 2h 29mDavíð Þór Jónsson varð fyrir einelti þegar hann flutti, ungur drengur, í Hafnarfjörðinn og því linnti ekki fyrr en hann skipti um lið og gerðist gerandi sjálfur. Hann fann hamingjuna í Flensborgarskóla þar sem hann kynntist sínum bestu framtíðarvinum við félagsmálastörf. 18 ára gamall eignaðist Davíð sitt fyrsta barn og var í litlu sambandi við dóttur sína lengi framan af ævi hennar en í dag eru þau góðir vinir. Þrisvar sinnum sótti hann um inngöngu í Leiklistarskóla Íslands en var hafnað í öll skiptin. Þeir Steinn Ármann fóru svo í útvarpið og þátturinn þeirra hlaut nafnið Radíus og til urðu þá Radíusbræður sem skemmtu landsmönnum í mörg ár með húmor sem í dag þætti með öllu óviðeigandi. Nú starfar Davíð Þór Jónsson sem prestur í Laugarneskirkju og en sinnir jafnframt kveðskapnum sem hann hefur stundað í áratugi. Svo fer hann stundum í Taekwondo. -
45.þáttur: Karen Kjartansdóttir 30.09.2026 1h 25mKjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru. Hún var óhrædd að liðsinna umdeildum fyrirtækjum og samtökum og er með tandurhreina samvisku. Í dag starfar hún hjá Veðurstofu Íslands og unir sér vel. Skrif hennar á fésbók um ólíklegustu málefni eru eftirtektarverð enda á hún til að greina hlutina í þaula áður en hún lætur eitthvað frá sér. Karen gekk fyrir skemmstu yfir Grænlandsjökul og gerir ekki lítið úr þeirri þrekraun. -
44.þáttur: Eyþór Gunnarsson 18.09.2026 2h 1mEyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar. Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí. Þar kynntist hann Ellen Kristjánsdóttir sem síðar varð eiginkona hans. Saman hafa þau hjón gengið í gegnum súrt og sætt og kvöddu Bakkus fyrir margt löngu sem var þeirra besta ákvörðun. Á næsta ári verða liðin 50 ár frá því að þeir Eyþór, Friðrik Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson stofnuðu hljómsveitina Mezzoforte og stendur ýmislegt til. -
43.þáttur: Lalli töframaður 14.09.2026 1h 45mLalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim. Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette. Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rúmar. Lalli hefur gefið út plötu, skrifað bók og er ávallt reiðubúinn í sínum grunnbúning að skemmta fólki - stundum með nær engum fyrirvara! -
42.þáttur: Rán Flygenring 02.09.2026 1h 50mRán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu. Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og höfundur. Þetta gekk aldeilis upp en eftir tæpan áratug flutti hún aftur heim til Íslands, reynslunni ríkari. Rán hefur sent frá sér fjölda bóka og myndskreytt fyrir sjálfa sig og aðra. Hún er að læra á píanó auk þess sem hún spilar á selló. Rán er mikill hvalavinur og hefur beitt sér gegn hvalveiðum á Íslandi. Sundfíkn hefur litað líf hennar en hún ber höfuðið hátt. -
41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir 20.08.2026 1h 39mVið höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin. Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í afbrotafræðunum. Hún vann í nokkur ár sem barþjónn áður en hún sótti um starf á útvarpsstöðinni FM 957 án þess að hafa nokkurn tímann hlustað á útvarpsstöðina. Við tóku nokkur ár á ljósvakamiðlum en um þrítugt skellti hún sér í háskólanám. Margrét hefur fjallað um viðkvæm málefni afbrotafræðinnar og er eftirsóttur álitsgjafi á sínu sviði. -
40.þáttur: Jónatan Garðarsson 05.08.2026 1h 52mJónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við. Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska. Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar. Í áratugi hefur hann frætt okkur um tónlist á margvíslegan hátt í ljósvakamiðlum RUV, í dagblöðum og ritstýrt menningarþáttum. Jónatan fellur seint verk úr hendi og hann hefur setið í hinum ýmsu nefndum og ráðum og koma þar trúmál, tónlist og náttúruvernd helst við sögu. -
39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson 28.07.2026 2h 26mÓskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik. Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki. Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall. Þá hóf hann að skrifa um knattspyrnu í dagblöð og sinnti með tíð og tíma ýmsum yfirmannsstörfum í fréttamennsku og var hvað lengst hjá 365 miðlum auk þess sem hann skrifaði skáldsögu árið 2010. Óskar Hrafn var ekkert á leiðinni í þjálfun þegar hann fékk afdrifaríkt símtal úr vesturbænum og síðan hefur þjálfunin átt hug hans allan. -
38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir 22.07.2026 2h 4mSviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika. Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún hafi nú bara haft gott af þeirri höfnun. Hún ákvað að nema heimspeki við Háskóla Íslands auk þess að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar og læra þar vísnatónlist af innfæddum. Vigdís syngur og semur lög og texta með kvennahljómsveit sinni Flott og kemur fram sem uppistandari. Frammistaða hennar í sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað og kvikmyndinni Ljósvíkingar er eftirminnileg og Vigdís er svo sannarlega fjölhæf og hæfileikarík. -
37.þáttur: Gói 11.07.2026 1h 54mGuðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann. Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi. Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur. Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini. Hann er þakklátur fyrir hlutskipti sitt og elskar að starfa í leikhúsinu. -
36.þáttur: Pétur Pétursson 03.07.2026 2h 10mPétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna. Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd. Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR. Pétur starfaði um árabil sem ljósmyndari og rak eigin ljósmyndastofu. Hann þjálfaði kvennalið Vals árin 2017-2024 sem hampaði ófáum titlunum undir hans stjórn. Þrátt fyrir þennan afbragðs árangur fékk hann að lokum reisupassann. Pétur er mikill áhugamaður um tónlist og hefur látið sig dreyma um að læra hljóðupptökur, bassa- og gítarleik þó ekkert hafi enn orðið af því. -
35.þáttur: Gunnar Árnason 25.06.2026 1h 53mGunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar og er margverðlaunaður. Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann. Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn helsta örlagavald í bransanum og fyrir nokkrum árum gaf hann besta vini sínum nýra. -
34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir 19.06.2026 1h 50mBrynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd. Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt um ævina. Þættir hennar, Hold, sem hún gerði fyrir Rás 1 hafa vakið mikla athygli. -
33.þáttur: Björn Stefánsson 11.06.2026 1h 30mBjörn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus. Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009. Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku. Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki. Alkóhólískt heimilishald hafði mikil áhrif á æsku- og unglingsár Björns sem er með bók í smíðum. -
32.þáttur: Helga Möller 01.06.2026 1h 35mHelga Möller hefur oft verið nefnd Diskódrottning Íslands. Samt voru þau Jóhann Helgason ekkert sérstakt áhugafólk um diskótónlist þegar þau sungu inn á fyrstu plötuna sem Þú & ég. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og hefur talað opinskátt í fjölmiðlum um mjög persónuleg málefni enda upplifað erfiða hluti eins og dótturmissi. Helga á enn eftir að gera plötuna sem hana hefur alltaf langað til að gera. -
31.þáttur: Guðmundur Pétursson 20.05.2026 1h 44mGuðmundur varð landsfrægur í einu vetfangi þegar hann birtist landsmönnum í kosningasjónvarpinu aðeins 14 ára gamall. Honum líkaði ekkert sérstaklega við að vera kallaður undrabarn eða snillingur en víst er að hæfileikar tónlistarmannsins eru einstakir. Ungur missti hann móður sína og lærði að standa á eigin fótum og taka engu sem gefnu. -
30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir 12.05.2026 1h 47mGuðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við. Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim. Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í röð okkar fremstu söngkvenna með sinni áheyrilegu rödd. Það lá fyrir henni að starfa í fjölmiðlum og hefur hún stýrt ýmsum þáttum á ljósvakamiðlum landsins. Í dag er það "Mannlegi þátturinn" sem hún stýrir ásamt Gunnari Hanssyni á Rás 1. -
29.þáttur: Andrea Jónsdóttir 28.04.2026 1h 45mAndrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands. Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist. Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og elti þá síðastnefndu á röndum landshorna á milli. Hún starfaði lengi sem prófarkalesari á Þjóðviljanum og kunni vel við sig innan um kommana enda alin upp af félagshyggjufólki. Andrea hefur starfað sem plötusnúður á Dillon í 26 ár og er hvergi nærri hætt, 77 ára gömul. -
28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason 17.04.2026 1h 41mUm miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari. Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn. Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður. Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10 ára gömul. Þessa dagana heimsækir hann fólk og vinnustaði enda í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.