Tölvuleikjaspjallið
Podcaststöðin
0
Tölvuleikjaspjallið eru vikulegir þættir með almennum umræðum um tölvuleiki og leikjastefnur, umsögnum um leiki auk frétta úr tölvuleikjaheiminum.
Episodes
-
300. Tölvuleikjaspjallið LIVE! á Next Level Gaming 12.11.2026 3h 7mTAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ OKKUR Í HEILA 300 ÞÆTTI!Við fögnuðum með stæl á Next Level Gaming föstudaginn 6. nóvember. Við töluðum um tölvuleiki, hlóum, grétum á einum skemmtilegasta viðburði í okkar minnum.Þökkum öllum sem komu og horfðu á okkur, þökkum Next Level Gaming og þökkum öllum þeim fyrirtækjum, framleiðendum og góðkunningjum sem gáfu okkur varning til að gefa í vinninga.Þetta munum við gera aftur, það er ekki spurning! -
299. Elder Scrolls mun heita Sentinel, WOW Forever kominn út og smá um GTA VI - fréttir nóvember 04.11.2026 1h 23mSíðasti þáttur fyrir LIVE SHOW! Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á Next Level Gaming föstudaginn 6. nóvember! Stútfull dagskrá og fullt af skemmtilegum vinningum frá óteljandi fyrirtækjum. Annars er þáttur vikunnar fréttaþáttur og það er af nægu að taka! Elder Scrolls VI mun heita Sentinel og það eru 2+ ár í hann.EA valdi Battlefront frekar en Mass Effect og þess vegna lokaði Bioware.WOW Forever er að koma út og Gunnar er mjög spenntur.Þetta og meira í stútfullum þætti vikunnar! -
298. Bioware - rosaleg saga um fallið fyrirtæki 29.10.2026 1h 16mBioware var eitt sinn topp fyrirtækið þegar kom að RPG leikjum. Svo breyttist það. Af hverju?Arnór Steinn fer yfir sögu Bioware með Gunnari og Sölva. Hvernig byrjaði fyrirtækið, hvaða leikir voru að vekja athygli og hvað varð svo til þess að fyrirtækinu var lokað haustið 2026?Þetta og meira í stútfullum þætti!Minnum á LIVE ÞÁTTINN 6. nóvember í Next Level Gaming! Frítt inn, vinningar, tilboð á pizzu og margt fleira!Hver er þín uppáhalds Bioware minning? -
297. Nýjasta nýtt um GTA VI, Cyberpunk kvikmynd, Galactic Racer og fleiri fréttir + LIVE ÞÁTTUR Á NÆSTUNNI! 16.10.2026 1h 22mHvaða útvarpsstöðvar verða í GTA VI? Það er komið í ljós!Full mæting í stúdíóinu í kvöld, Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi ræða fréttir síðustu vikna. GTA VI, Cyberpunk kvikmynd á leiðinni og fleiri stórar fréttir.Einnig tilkynnum við loksins hvernig við munum fagna 300 þættinum okkar - það er með LIVE ÞÆTTI 6. NÓVEMBER NÆSTKOMANDI Á NEXT LEVEL GAMING!Stay tuned fyrir frekari upplýsingar ... -
296. Control Resonant - besti leikur ársins kominn út? 07.10.2026 1h 11mEkkert helst í skefjum að eilífu ...Framhaldið á hinum stórskemmtilega CONTROL frá 2019 er loksins komið út! Remedy er heldur betur búið að elda góðann mat handa okkur með CONTROL RESONANT og við ætlum að skoða fyrstu hughrif okkar í þætti vikunnar.Arnór Steinn og Sölvi ræða leikinn á alveg spoiler free hátt.. Hvernig er heimurinn, spilunin, hljóðið og svo margt, MARGT fleira. Ef þið eruð ekki búin að prófa Control Resonant .. breytið því undir EINS. Þetta er gjörsamlega FRÁBÆR tölvuleikur! -
295. Wolverine (2026) 30.09.2026 1h 16mÞrjár klær á hvorri hendi og ótakmarkað magn af bræði ... velkomin í Wolverine ...Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fara í saumana á nýjasta útspili Insomniac. Spilunin, karakterarnir, plottið og margt fleira!Sölvi rifjar einnig aðeins upp eldri þætti af Tölvuleikjaspjallinu, en hann er að taka maraþon á öllum þáttunum. Er eitthvað sem við gerðum í fyrri þáttum sem við gerum ekki lengur? -
294. Er nýja Resident Evil myndin ömurleg? 22.09.2026 1h 13mStutta svarið er nei. Langa svarið er þessi þáttur.Arnór Steinn, Gunnar og Sölvi fá RES EVIL sérfræðing Tölvuleikjaspjallsins til að ræða nýjustu tölvuleikjakvikmyndina.Strákarnir fengu boð á VIP sýningu Game TíVí og fóru bókstaflega BEINUSTU leið í stúdíó að taka upp þátt.Karakterinn, uppvakningarnir, blóðið og ruglið og MARGT fleira í geðveikum þætti.Spoiler free upp að mínútu 30!FARIÐ Á ÞESSA MYND Í BÍÓ!!! -
293. Kynnum NÝJAN þáttastjórnanda og ræðum Zero Company - hvað er gaman við turn based strat leiki? 17.09.2026 1h 13mGlöggir hlustendur hafa tekið eftir því að góðkunningi þáttarins Sölvi Santos hefur dúkkað upp í fleiri þáttum en venjulega upp á síðkastið ...... það er vegna þess að við ætlum að bæta honum í róteringu þáttastjórnenda Tölvuleikjaspjallsins!Nú erum við þrír! Fleiri þættir, fleiri gestir, fleiri leikir og meiri gleði.Tökum smá strategy leikjaspjall og tölum aðallega um STAR WARS: ZERO COMPANY! -
292. Batista leikur Kratos, styttist í Wolverine og fleiri GTA VI pælingar - fréttir september 10.09.2026 1h 9mEr búið að tala nóg um GTA VI? Ekki alveg ...Arnór Steinn og Sölvi taka helstu fréttir haustsins í brakandi ferskum þætti. God of War: Laufey, Wolverine og margt fleira! -
291. GTA VI gameplay loksins komið út - fyrstu hughrif 28.08.2026 1h 7mÞó að það sé búið að leka þessu öllu þá samt - LOKSINS erum við komin með official GTA VI gameplay!!!Gunnar og Sölvi horfðu á alla kynninguna og ýttu bókstaflega á REC þegar hún kláraðist. Hughrifin verða ekki ferskari en þetta.Hvað fannst þér um GTA VI kynninguna? VIð munum svo taka fleiri þætti í haust til að hita upp fyrir leikinn sjálfann! -
290. Bee Space - íslenskur leikur - demo komið á Steam! 28.07.2026 39mÞú ert býfluga og þarft að byggja jörðina upp á nýtt. Bee Space er íslenskur leikur væntanlegur á seinni hluta ársins frá framleiðandanum Polykite.Arnór Steinn settist niður með Palla og Frey frá Polykite og fékk að vita allt sem hægt er að vita um leikinn.Tjékkið á demoinu á Steam og smellið leiknum á wishlist. Njótið viðtalsins! -
289. Fallout New Vegas endurgerð STAÐFEST! plús fleiri fréttir 20.07.2026 27mHættið öllu sem þið eruð að gera, NEW VEGAS FÆR ENDURGERÐ: STAÐFESTArnór Steinn réð ekki við sig og gerði smá sóló þátt í kjallaranum. Hvað þýðir tilvonandi endurgerð á FNV og hvað er í gangi hjá Bethesda?Smá greining á nýjustu fréttum. -
288. Sony hættir með diska, Xbox rekur fullt af fólki og GTA VI kostar peninga - síðasti þáttur fyrir sumarfrí! 08.07.2026 1h 1mTölvuleikjaspjallið er í banastuði í síðasta þætti sínum fyrir langþráð sumarfrí!Tökum saman stærstu fréttir ársins, helstu leiki og tölum um að þetta er sex ára afmælisár Tölvuleikjaspjallsins!Í haust kemur þáttur númer 300 út! Hvernig eigum við að fagna?Takk fyrir að vera með okkur öll þessi ár <333 -
287. GTA: San Andreas 24.06.2026 1h 4mAh shit, here we go again ...Tölvuleikjaspjallið dýfir tánnum oní nostalgíuvötnin með því að kíkja á einn besta tölvuleik allra tíma: San Andreas.VIð erum að hita upp fyrir komu GTA VI með því að skoða alla gömlu góðu GTA leikina. Bílarnir, borgirnar, karakterarnir, útvarpsstöðvarnar og MARGT fleira í stútfullum endurminningarþætti! -
286. Er Diablo IV ennþá góður? - með Sigga Sören 17.06.2026 1h 5mHatur ... volæði ... glundroði ... Diablo IVÞessi þriggja ára gamli leikur er enn að spilast út um allan heim. Tveir stórir aukapakkar, þrír nýir klassar ... nóg að gera!Diablo sérfræðingur Tölvuleikjaspjallsins Siggi Sören mætir og ræðir við Arnór Stein um leikinn. Klassarnir, djöflarnir, breytingarnar og margt fleira í stútfullum þætti vikunnar.Ert þú að spila Diablo IV? Endilega segðu okkur frá því! -
285. 007: First Light - fyrstu hughrif 10.06.2026 47mNafnið er Spjallið ... Tölvuleikjaspjallið.Nýjasti 007 leikurinn er kominn út og við erum HRIFNIR!Arnór Steinn og Gunnar ræða sín fyrstu hughrif af þessum eftirvænta leik. Algjörlega spoiler free!Hvað finnst okkur um bardagakerfið, byssurnar, staðsetninginn, Bondarann og fleira!Er Bond kominn í þína tölvu? Segðu okkur hvað þér finnst! -
284. State of Play með LIVE COMMENTARY! 02.06.2026 1h 17mState of Play var að klárast rétt í þessu og við gerðum smá tilraun. Við höfðum sýninguna í gangi og tókum upp þátt á meðan við horfðum! Þannig þetta er live commentary fyrstu viðbrögð Arnórs Steins og Gunnars á öllum kynningunum!Það er smá skrýtið að horfa án samhengis en ekkert ómögulegt ... Ef þið viljið vera á sama stað og við þá skuluð þið horfa á official Sony YT rásar videoið og hafa á pásu á mínútu 29:45 og ýta á play þegar Arnór segir play í þættinum!Hvernig gekk þetta hjá okkur? Endilega látið vita ef þið fíluðuð þetta format eða ekki! -
283. Lego Batman: Legacy of the Dark Knight - með Sölva Santos 27.05.2026 1h 9mVar besti Lego leikur allra tíma að droppa?Mögulega. Arnór Steinn fékk góðvin þáttarins Sölva Santos til að ræða nýja Lego Batman leikinn! Hvað gerir leikurinn rétt? Hvað er öðruvísi? Er þetta geitin?Ef þið eruð búin að prófa nýja Lego Batman megiði endilega senda á okkur og segja hvað ykkur finnst!Þátturinn er í boði Pixelwear.is -
282. Saros 20.05.2026 54mÞáttur vikunnar er um Saros.Þáttur vikunnar er um Saros.Þáttur vikunnar ...... þið fattið hvað málið er. Roguelike leikur þar sem markmiðið er að deyja og verða betri. Hvað finnst Arnóri Steini og Gunnari um þennan ágæta leik? Arnór er mjög tapsár og Gunnar hatar roguelike. This should be good ...Þátturinn er í boði PixelWear.is -
281. Fable seinkað, Elden Ring kvikmynd og Bond lag með Lana Del Rey - fréttir maí 29.04.2026 50mVerður Fable seinkað? Var Lana Del Rey að droppa top 5 Bond lagi?Þetta og margt fleira í stútfullum fréttaþætti!
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.