Rokkland
RÚV
2
Rokkland er músík-magasín í útvarpi sem fjallar um tónlist líðandi stundar, segir sögur af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallar við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi. Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson.
Episodes
-
Karnival ljóssins og útvarpshjartað 15.11.2026 1h 50mU2 og Kevin Cole í Rokklandi vikunnar! Í fyrri hluta þáttarins förum við lag fyrir lag í gegnum nýju plötu U2, Carnaval de Luz – fyrstu stóru plötu sveitarinnar í níu ár. Við hlustum á öll lög plötunnar og skoðum sögurnar á bak við þau, textana. Karnival ljóssins, Rosalía, trúin, frelsið, vonin, vináttan og óttinn við myrkrið. Hvað er U2 að segja okkur eftir 50 ára samveru? Eiga þeir enn erindi við samtímann? Í seinni hlutanum er sérstakur gestur: Kevin Cole frá KEXP í Seattle. Kevin er einn áhrifamesti útvarpsmaður Bandaríkjanna, fyrrverandi plötusnúður á First Avenue í Minneapolis þar sem ha... -
3toOne - Agent Fresco á Airwaves - Kevin Cole og Manowar 08.11.2026 1h 53mÞað er tutti frutti í Rokklandi vikunnar! Brynjólfur Þór Guðmundsson frétta&þungarokksmaður spjallar við Joey DeMaio stofnanda og bassaleikara bandarísku þungarokksveitarinnar MANOWAR sem spilar á Íslandi í desember. Við heyrum spjall við hljómsveitina 3ToOne sem byrjaði á plötu fyrir 30 árum sem var að koma út núna. 3toOne er súpergrúppa: Sigurður Gröndal, Ingólfur Guðjónsson sem voru í Rikshaw og Pláhnetunni á sínum tíma, og Egill Olafsson. Súpergrúppa sem spilaði meðal annars á UXA 1995 og tók síðan upp þessa plötu. Við heyrum smá pistil frá London – Hulda G. Geirsdóttir sá Manic Street Pre... -
Iceland Airwaves 1999-2026 01.11.2026 1h 49mRokkland vikunnar er einskonar upphitun fyrir Iceland Airwaves 2026 – og upprifjun. Rokkland hefur verið á Airwaves á hverju ári frá árinu 2000 og við rifjum upp eitt og annað. Meðal þeirra sem koma við sögu eru Árni Matthíasson, Grímur Atlason, Sinéad O'Connor, Of Monsters and Men, Kevin Cole, John Lydon, Dhani Harrison, Thorunn Antonia Magnusdottir, Hilmar Örn Agnarsson, Magnus Thor, Dóri Braga, Magnus Stephensen ofl. -
Drottningin af Færeyjum - þungarokk og Metallica 25.10.2026 1h 54mRokkland vikunnar er tvískipt. Í Fyrri hlutanum er Eivør í aðalhlutverki, en hún sem var að senda frá sér plötunaTungl sem er plata númer 11 hélt útgafutónleika í Eldborg á föstudagskvöldið fyrir fullu húsi. Á föstudagsamorguninn heimsótti hún Rokkland í std. 12 í útvarpshúsið – sagði frá nýju plötunni sem hún segir að sé einskonar afturhvarf til Færeyja, og svo spilaði hún 2 lög af plötunni á kassagítar og eitt eldra. Rokkland var á tónleikunum og við tölum um þá líka, en Eivør er á samningi hjá plötuútgáfunni Nuclear Blast sem einbeitir sér að þungarokki og Eivør sem er nýlega flutt heim til... -
Færeyjar - Hafnarfjörður - Akranes 18.10.2026 1h 51mÍ Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi. Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á Iceland Airwaves, var að senda frá sér nýja plötu sem heitir Sýrublað (Hundasúra) og hún ætlar að spila á 9 tónleikum hringinn í kringum Íslandi dagana 20. - 29. október. Við förum Þaðan til Hafnarfjarðar á gítarveislu Bjössa Thor sem fór fram í Ægi 220 helgina 2. og 3. október sl. Með Bjössa spiluðu t.d. Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Krummi Björgvins ofl auk Guðmundur Péturssonar sem... -
Stríð og friður 11.10.2026 1h 50mÞað er friðarvika í Reykjavík þessa dagana – 40 ár frá fundi Reagan og Gorbachov í Reykjavík - Friðarsúlan í Viðey var tendruð á föstudaginn á afmælisdegi Lennons og stríð og friður er rauði þráðurinn í þessum þætti í dag. Séra Hildur Eir segir nokkur orð - Við minnumst leiðtogafundarins í Höfða 1986 Tölum um kjarnorkuvopn Ræðum við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í Viðey Yoko Ono talar ujm friðarsúluna og Ísland Jón Gnarr talar um Yoko Ono og frðarsúluna Vanessa O´Mara segir frá Power to the people festival í Maryland USA Tölum um Tom Morello sem stóð fyrir hátíðinni um síðustu helgi Sigurg... -
Á Móti Sól í 30 ár 04.10.2026 1h 50mHljómsveitin Á Móti Sól á 30 ára afmæli um þessar mundir og tekur yfir Rokkland vikunnar. Hljómsveitin var upphaflega stofnuð af vinunum bassaleikaranum Þóri og hljóðborðsleikaranum Heimi og tilgangurinn var að spila á böllum. Á Móti Sól hefur gefið út talsvert af sínum eigin lögum og spilað um allt land í 30 ár. Þeir komu í Rokkland í std. 12 í Útvarpshúsið - sögðu sögur og spiluðu vel valin lög. -
U2 50 27.09.2026 1h 50mU2 er 50 ára – föstudaginn 25. september voru liðin 50 ár – HÁLF ÖLD síðan Larry Mullen 14 ára og nokkrir aðrir strákar – 15 og 16 ára í Mount Temple Comprehensive School í norður-Dublin hittust í eldhúsinu heima hjá Larry og U2 varð til. Öllum þessum árum síðar eru sömu fjórir strákarnir í þessari hljómsveit. U2 er langlífasta hljómsveit heims með sömu liðsskipan. Það eitt er virðingavert. Það Þarf sérstaka og einstaka karaktera til að halda út svona „hjónaband“ með þremur öðrum í hálfa öld. Á föstudaginn sagði U2 að það væri ný plata (16. Hljóðversplatan) að koma í nóvember – Carnaval de luz... -
Hörður Torfason 20.09.2026 1h 49mTónlistarmaðurinn - leikarinn og leikstjórinn Hörður Torfason er gestur Rokklands vikunnar. Hann mætti í std. 12 í vikunni sem leið - við spjölluðum saman og hann spilaði nokkur lög. Við ræðum í þættinum um ástina - gamlar kærustur - búsáhaldabyltinguna - stofnun samtakanna 78 - foreldra og margt fleira. Hörður sem er fæddur árið 1945 hefur ekki mikið verið að halda tónleika undanfarið en brást vel við þegar við báðum hann um að koma og spila fyrir okkur - og spjalla. -
Rokkland mælir með / Deus kemur / Oasis í bíó 13.09.2026 1h 49mRokkland mælir með: september 2026 Belgíska hljómsveitin Deus kemur til landsins og spilar í Austurbæ - rifjum upp viðtal við Tom Barman úr DEUS frá 2006 þegar sveitin kom síðast til Íslands. Oasis - tölum um myndina Don´t look back in anger sem er verið að sýna í bíó um allan heim þessa dagana - líka á Íslandi. -
Magnús Jóhann 06.09.2026 1h 48mMagnús Jóhann lenti í þriðja sæti í Músíktilraunum fyrir áratug og síðan hefur hann gert ansi margt. Hann er búinn að spila inn á ótal plötur með hinum og þessum – stjórna upptökum á plötum hjá Flóna og Bubba Morthens - spila oftar en 30 sinnum í Gísla Marteini með allskonar fólki – gefa út margar plötur – þar af tvær með GDRN – spila með Stuðmönnum og Moses Hightower - gera tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands og nú eru framundan stórónleikar í Háskólabíó á afmælisdaginn þegar hann verður 30 ára. Magnús Jóhann er gestur Rokklands í dag. Tónlist frá útsendingarlogg 2026-09-07 SCRITTI POLITT... -
Liverpool 04.08.2026 1h 47mRokkland með Hljómum og The Beatles í Liverpool. -
Download 2010 19.07.2026 1h 44mRokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 20. Júní 2010 og hann stendur undir nafni í dag vegna þess að í dag er Rokklandið tileinkað Rokk-hátíð með stóru R-i – nefnilega Download þungarokkshátíðinni 2010. Þar komu fram margar af stærstu rokksveitum sögunnar - AC/DC – Rage Against The Machine - Motörhead, Megadeth og Aerosmith - Lamb Of God - Stone Temple Pilots - Stone Sour - Bullet For My Valentine - Saxon, Slash og Billy Idol t.d. Rokkland var á Download. -
Sálin hans Jóns míns 05.07.2026 1h 42mRokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 14. desember 2008 og gestir þáttarins eru þeir Stebbiog Gummi úr Sálinni hans Jóns Míns. Þegar þátturinn var frumfluttur var Sálin að fagna 20 ára starfsafmæli og af þvi tilefni gaf útgáfufyrirtæki þeirra - Sena frá sér þrjár afurðir sem allar bera heitið “Hvar er draumurinn”. Sálin kom fram í fyrsta skipti í mörg ár á 60 ára afmælistónleikum Stebba í Eldborg í Hörpu um síðustu helgi. -
Queens of the Stone Age 28.06.2026 1h 51m -
David Byrne 21.06.2026 1h 53m -
Bergmál Kaleo 14.06.2026 1h 51m -
Bubbi og við 07.06.2026 1h 50mBubbi Morthens er maður dagsins í Rokklandi en hann ætlar ekki að segja margt sjálfur í dag. Við eigum öll okkar uppáhalds Bubba – hann er búinn að vera yfir og allt um kring síðan við vorum börn svo mörg – hann er alltaf þarna- eins og Esjan. Stundum finnst okkur hann frábær og stundum kannski ekki - en við höfum alltaf skoðun á honum – alveg eins og hann hefur skoðun á öllu. Eiríkur Örn Norðdahl skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær: "Tónlistina þarf ekkert að ræða. Hún er fyrir löngu handan þess að vera góð eða slæm – við debaterum ekki klassíkina –hún er einsog norðanáttin og sumar... -
Miðstöðin Grafarvogi - Ívar Klausen - Sonny Rollins RIP 31.05.2026 1h 51mÍ Rokklandi dagsins komum við við á þremur stöðum- Í seinni hlutanum kynnumst við starfsemi Miðstöðvarinnar í Grafarvogi, en Miðstöðin er einskonar school of rock Í Grafravogi. Skólameistari Miðstöðvarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari og kennari en hann hefur innréttað iðnaðarhúsnæði sem er í senn ævingahúsnæði fyrir hljómsveitir – hljóðver – tónlistarskóli og félagsmiðstöð fyrir ungt fólk sem ætlar sér að vera í músík og vera í hljómsveit. Miðstöðin hefur alið af sér hljómsveitir eins og White Signal – Karma Brigade – 5K sem spilar meðal annars á Kaleo tónleikunum á Þingvöllum – og Dóraog... -
Bob Dylan í 85 ár - Hver er þessi maður eiginlega? 24.05.2026 1h 50mBob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík. Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára eða þar um bil. Hann var hafinn upp til skýjanna af ungu fólki um allan heim þegar hann kom fram fyrst fyrir meira en 60 árum – rétt rúmlega tvítugur spámaður með gítar sem söng fyrst og fremst um óréttlæti heimsins og illsku mannanna. Hann olli mörgum miklum vonbrigðum þegar hann fór af þeirri braut nokkrum árum síðar og fór að spila einskonar Bítlarokk – syngja illskiljanlega texta – og...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.