Besta platan

Besta platan

Hljóðkirkjan
Country Iceland
Language IS
Episodes 280
Latest 06.11.2026

Umræða um bestu plötu hljómsveitar og tónlistarfólks. Nýtt meistaraverk í hverri viku.

Episodes

  • #0304 Testament - Practice What You Preach
    #0304 Testament - Practice What You Preach 06.11.2026 1h 36m
    Fimmta „stóra“ þrassbandið? Um það má deila en í öllu falli kann kálhorníska hljómsveitin sína list upp á tíu - og gott betur. Ferill hinnar máttugu Testament fer hér undir smásjá BP og ýmislegt fróðlegt var þar að finna. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – UmræðuhópurViltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
  • #0302 Neil Young - After The Gold Rush
    #0302 Neil Young - After The Gold Rush 23.10.2026 1h 18m
    Það er gaman og gott að ganga á hólm við risana endrum og eins og hér er einn slíkur, maður sem slær hvergi af eftir meira en sextíu ár í bransanum. Neil Young er sólkerfi út af fyrir sig og að mörgu að huga eins og heyra má…Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – UmræðuhópurViltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
  • #0300 BP300: Yanni
    #0300 BP300: Yanni 09.10.2026 53m
    Alveg frá upphafi hefur bókstaflega RIGNT inn fyrirspurnum um það hvenær við ætlum eiginlega að taka fyrir gríska hjartaknúsarann Yanni. Nú er komið að því!Ef þið fáið ekki nóg af Bestu plötunni, verið þá með okkur á Patreon og fáið þátt í hverri viku!
  • #0298 Bonnie Tyler - Faster Than The Speed Of Night
    #0298 Bonnie Tyler - Faster Than The Speed Of Night 25.09.2026 1h 33m
    Bonnie heitin Tyler aflaði mikilla vinsælda á sinni tíð sökum kraftmikillar, rámrar raddar, sem þótti minna á sjálfan Rod Stewart. BP-teymið vottar þessari gegnheilu dívu virðingu sína í vönduðum þætti sem skæðasti sólmyrkvi gæti ekki unnið á.Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – UmræðuhópurViltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
  • #0296 Todmobile – Todmobile
    #0296 Todmobile – Todmobile 11.09.2026 1h 21m
    Todmobile er með allra merkilegustu poppsveitum Íslandssögunnar, bræðingur sveitarinnar á straumum og stefnum sem á pappír áttu ekki að geta átt samleið gerðu það samt í meðförum þessa framsýna þríeykið. Toppi var náð á plötu númer tvö, samnefndri sveitinni. Eða hvað?Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – UmræðuhópurViltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
  • #0294 Violent Femmes – Violent Femmes
    #0294 Violent Femmes – Violent Femmes 28.08.2026 1h 30m
    Eru til skemmtilegri, hressari, meira lífsfyllandi, brjálaðri, pönkaðri, hamingjusamari, hræðilegri, melódískari og hreint og beint sturlaðri frumburðir en fyrsta plata bandarísku þjóðlagapönksveitarinnar Violent Femmes? Varla…Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – UmræðuhópurViltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
  • #0292 Gunnar Þórðarson (1945–2026)
    #0292 Gunnar Þórðarson (1945–2026) 14.08.2026 1h 16m
    Fótspor, handbragð og hugsun meistara Gunnars Þórðarssonar liggur bókstaflega út um allt er kemur að íslenskri tónlistarmenningu. Við BP-liðar vottum honum hér virðingu okkar. Fylgið Bestu plötunni á öllum helstu hlaðvarpsveitum og takið þátt í umræðunni á Besta platan – UmræðuhópurViltu heyra meira? Kíktu á okkur inni á Patreon.
  • #0290 The Doors – Strange Days
    #0290 The Doors – Strange Days 31.07.2026 2h 2m
    Fáar rokksveitir í sögunni hafa verið jafn áhrifaríkar, dýrkaðar og umdeildar og The Doors. Þar hélt Jim Morrison nokkur um hljóðnema og lak kynþokkinn af hverri sellu hans og það strítt. Besta plata sveitarinnar er plata tvö, Strange Days, og er það doktorinn sem fer fram með það val og er það ekki nema sæmilega umdeilt.
  • #0288 Ariana Grande – Dangerous Woman
    #0288 Ariana Grande – Dangerous Woman 17.07.2026 1h 10m
    Gleymið Adele, Sam Smith og Rihönnu. Þegar kemur að hreinræktuðum sönghæfileikum eru þessar poppstjörnur eins og kófdrukknir, trallandi fjósamenn á sveitaballi í samanburði við Ariönu Grande. Nei, þeir eru ekki margir poppararnir sem skáka henni á söngsviðinu. En hvernig er músíkin?
  • #0286 Van Halen – Van Halen
    #0286 Van Halen – Van Halen 03.07.2026 1h 34m
    Van Halen gerði út frá Kálfatjörníu og er ein algerasta rokksveit sögunnar. Það er allt þarna mætti segja, hæðir, lægðir, partístand, vitleysisgangur, linnulaus ranaímokstur og svo að sjálfsögðu trukkandi rokk og ról sem á fáa sína líka …
  • #0284 Avril Lavigne – Let Go
    #0284 Avril Lavigne – Let Go 19.06.2026 1h 24m
    Popppönkprinsessan Avril Lavigne toppaði sig tónlistarlega strax á fyrstu breiðskífunni, Let Go (2002). Áhrif hennar sem poppmenningaríkons eru mikil og farið verður í saumana á því öllu saman í brimafullum þætti…
  • #0282 Nýdönsk – Himnasending
    #0282 Nýdönsk – Himnasending 05.06.2026 1h 24m
    Popptónlist 9. áratugarins var af mörgum talin yfirborðskennd, einnota og vélræn. Það var því sannkölluð „himnasending“ að fá Nýdönsk fram á sjónarsviðið undir lok eitísins. Tónlistin var vönduð, listræn og leitandi. Grípandi án þess að vera eitthvað blöðrupopp. Fullorðna fólkið var mætt í partíið.
  • #0280 Faith No More – Angel Dust
    #0280 Faith No More – Angel Dust 22.05.2026 1h 29m
    Ein merkasta jaðarþungarokkssveit allra tíma, Faith No More, er á borði Bestu plötunnar þessa vikuna. Sitt sýnist hverjum um uppsöfnuð afrek hennar og voru umræðurnar fróðlegar svo ekki sé meira sagt!
  • #0278 Angine de Poitrine – Vol. II
    #0278 Angine de Poitrine – Vol. II 08.05.2026 1h 14m
    Doppóttu míkrótónal-gosarnir í Angine de Poitrine voru óþekkt stærð í upphafi árs. Rúmum mánuði síðar voru þeir á allra vörum — og hæpið stendur enn yfir. En er eitthvað í þessu?Taktu þátt í umræðunni á Besta platan - Umræðuhópur.Styddu við Bestu plötuna, komdu í áskrift á Patreon og fáðu tvöfalt fleiri þætti.
  • #0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951–2026)
    #0277 Frímínútur – Björgvin Halldórsson (1951–2026) 01.05.2026 51m
    Í þessum þætti heiðrum við minningu hins eina sanna Björgvins Halldórssonar sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Hafnarfirði þann 9. apríl síðastliðinn. Blessuð sé minning þessa risa íslenskrar dægurtónlistar.
  • #0276 Nick Drake – Pink Moon
    #0276 Nick Drake – Pink Moon 24.04.2026 1h 11m
    Nick Drake lést langt fyrir aldur fram, hafandi ekki hugmynd um þau áhrif sem stuttur tónlistarferill hans myndi hafa á fjölmargar kynslóðir á eftir honum. Þriðja og síðasta platan hans, Pink Moon frá 1972, er sú besta.Athugið að í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins á 1717.is.
  • #0275 Killing Joke – Night Time
    #0275 Killing Joke – Night Time 17.04.2026 1h 24m
    Killing Joke er ein ógurlegasta síðpönksveit sögunnar, algerlega einstök mætti segja, og áhrifarík fyrir allan peninginn. Að velja hina poppuðu „Night Time“ sem bestu plötuna mun strjúka einhverjum öfugt en gefum BP-liðum færi á að útskýra sitt mál (doktornum aðallega).
  • #0274 Frímínútur – Tónleikatryllingur
    #0274 Frímínútur – Tónleikatryllingur 03.04.2026 59m
    Það er hægt að hjakka endalaust í einhverjum plötum, en að þessu sinni ákváðu þáttastjórnendur að rifja upp bestu tónleika sem þeir hafa sótt. Þrír topp-5 listar og ekkert rugl. Gleðilega páska!
  • #0273 Lenny Kravitz – Mama Said
    #0273 Lenny Kravitz – Mama Said 27.03.2026 1h 13m
    Lenny Kravitz er ekki bara tónlistarmaður, hann er einslags fyrirbæri, menningarlegt skurðgoð, rokkið holdið klætt og bætið endilega við lýsingum eftir smekk. Hann toppaði hljóðversplötulega séð á annarri plötu sinni, Mama Said, en það má sosum deila um það val og það er nákvæmlega það sem við erum að fara að gera.
  • #0272 Phil Collins – No Jacket Required
    #0272 Phil Collins – No Jacket Required 20.03.2026 1h 36m
    Platan No Jacket Required frá 1985 átti stóran þátt í því að gera Phil Collins að einni allra holdugustu poppskepnu 10. áratugarins. Hún er jafnframt sú besta frá Phil.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.