Flimtan og fáryrði

Flimtan og fáryrði

Gunnlaugur Bjarnason og Ármann Jakobsson
Country Iceland
Genres Arts, Books, Music
Language IS
Episodes 71
Latest 09.11.2026

Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda, og Gunnlaugur Bjarnason, óperusöngvari, ræða um óperur og íslenskar bókmenntir fyrri alda. Þeir tala um bæði þessi efni í þáttunum og þora að segja það sem aðrir þegja um.

Episodes

  • 75 – Er heimurinn eins og ég held að hann sé?
    75 – Er heimurinn eins og ég held að hann sé? 09.11.2026 52m
    Gunnlaugur og Ármann eru „vinir litla mannsins“ og ræða aukapersónur í íslenskum fornsögum og yfirleitt. Talið berst að þætti áheyrandans í sköpun merkingar og hvernig tilfinningarlíf griðkvenna og smalamanna eru ekki minnsta framlag höfundarins til sögunnar. Einnig ræða þeir samsömunarmöguleika forfeðra okkar, Derrick og Harry Klein, völvu Vikunnar, þægindarammann, smásögur í klámblöðum, kvíða ónefnda empatíska fólksins, langan upplestur og launhelgar fræðibókaheimsins. En er mikilvægt...
  • 74 - Þórðargleðin er besta gleðin
    74 - Þórðargleðin er besta gleðin 26.10.2026 48m
    Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntaflokka sem nefnast Sígildar sögur, hvort sem í myndum eða ekki, og hvernig persónuleg bókmenntasaga einstaklinga er bæði með innlendum og þýddum bókum. Einnig ræða þeir kaup á uppstoppuðum dýrum sem yfirbót, sýslumenn með stálminni, danska yfirburðamenn, Nóbelsverðlaun, Walter Scott og Eyrbyggju, hundahræðslu Ármanns, árin þegar Háskólabókasafnið var í sláturhúsi, götunöfn í Reykjavík og hve margir þingmenn hafi borið Gunnlaugsnafnið. En er Kenneth plebbaleg...
  • 73 - Gubbað á salerni
    73 - Gubbað á salerni 11.10.2026 41m
    Gunnlaugur og Ármann ræða meistaraverk Svövu Jakobsdóttur, Gunnlaðarsögu, skáldskaparmjöðinn og Sonatorrek Egils Skalla-Grímssonar. Talið berst m.a. að landi sektarinnar, skjallbandalögum, hinum dæmigerða Íslendingi, Snorra Sturlusyni, Clarice Lispector, hinu háleita, Stórbókum, Nietzsche og fólki sem lifir á því að þekkja frægt fólk. En hversu einstakur var skáldskapur Svövu? Hvernig eru systkinasambönd ólík öðrum? Fíla rithöfundar aðra höfunda? Og treystir Gunnlaugur sér til að tala m...
  • 72 — Jónas og hinir
    72 — Jónas og hinir 28.09.2026 48m
    Gunnlaugur og Ármann bregða af vananum með því að ræða þátt íslenskar bókmennta sem hvorugur hefur rannsakað, strákagengi og önnur burðarvirki menningarinnar á borð við „salon“ 19. aldar. Talið berst að Fjölnismönnum (íslensku bítlunum), Unuhúsi, skáldunum í Hveragerði 0g fleiri listamannahópum. Eins ræða þeir kvikmyndina The Odyssey, Kompuna í Þjóðviljanum, merkar heildarútgáfur og hina ævisögulega rannsóknaraðferð. Fram kemur að Jónas Hallgrímsson gat verið kvikindi, Gunnlaugur hlustar ekki...
  • 71 — Selshöfuð og samsæriskenningar
    71 — Selshöfuð og samsæriskenningar 21.09.2026 52m
    Flimtan og fáryrði tekur nú nýja stefnu og fjallar nú um íslenska bókmenntasögu í víðum skilningi. Gunnlaugur og Ármann ræða nú íslenskar hrollvekjur, einkum óvættina Selkollu og hið dularfulla Katanesdýr. Meðal annars er fjallað um merkingu stórra stafa og upphrópunarmerkja, martraðarlógík, miðdegisdjöfla, myndatökur lækna, munúðarþyrst vinnufólk og menningarlegt mikilvægi táninga í hryllingi. En eru álfar til? Hvað er líkt með hundi og nautgrip? Hví hafa hægrimenn tekið samsæriskenningar í ...
  • Sumarþáttur — Vellíðan er aukaatriði
    Sumarþáttur — Vellíðan er aukaatriði 08.06.2026 1h 3m
    Gunnlaugur og Ármann fagna 70. þætti og ræða söngleikinn Koppafeiti (Grease), meðal annars Grís-æði vorsins 1979 og Grease Horror sýningu Fjölbrautarskóla Suðurlands sem þó er ekki djarfasta sýning söngleiksins á Íslandi. Talið berst að samskiptum í foreldrahópum, hugmyndum Schopenhauers um þjáningu og leiðindi, bók Ármanns um smápersónur, of fullkomnu fólki, hugarfari listaskólanema, method-leik Dustin Hoffman, himnaflugi og stjörnuhrapi Travolta, eldri konum í stjórnunarstöðum, áhrifum Marí...
  • 69 – Brosnan baular
    69 – Brosnan baular 05.04.2026 51m
    Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Kristínu Lilju Thorlacius til að ræða frægasta glymskrattasöngleik sögunnar, Mamma Mia sem Judy Craymer, Catherine Johnson og Phyllida Lloyd spunnu upp úr lögum Björns og Benny úr ABBA og er hugsanlega lægsti mögulegi tónlistarsamnefnarinn. Tvö af þremur eru afar hrifin af lögum ABBA en Gunnlaugur furðu ósnortinn. Talið berst að miklu viðskiptaviti Svíanna, hvernig ABBA fundu upp tónlistarmyndböndin, tregðu þeirra til endurfunda, flughræðslu Agnethu, aðdáun...
  • 68 – 18. aldar fuckboi
    68 – 18. aldar fuckboi 23.02.2026 50m
    Gunnlaugur og Ármann (oft kallaðir Statler og Waldorf óperuheimsins) ræða stórvirki Mozarts, Don Giovanni, og eru aldrei þessu vant frekar hrifnir þó að Mozart fari illa með tenórinn. Sönn iðrun, flókin sögusamúð, hefndarþyrstar aukapersónur og hinn nýlátni José van Dam koma við sögu en talið berst líka að auðginntum sveitapiltum, líkindum Leporello og Fígaró, allsnöktum púkum og RÚV-börnum sem þrá efni frá Stöð 2. En hvor er betri, Anthony Hopkins eða Brian Cox? Er Don Giovanni heitari en He...
  • 67 – Byltingin er eilíf
    67 – Byltingin er eilíf 26.01.2026 58m
    Gunnlaugur og Ármann ræða nú óperu John Adams, Nixon in China (1987) og um leið kínverk stjórnmál 1960–1980 og hvernig kaldrifjað útspil á kosningaári tryggði framhaldslíf mannkynsins. Talið berst einnig að hinum erótíska sjónvarpsþætti Heated Rivalry, hipp og kúl rithöfundum, mönnum sem svitna mikið, stórleikaranum Paul Giamatti, kvikmyndinni Tillsammans, Maófötum 8. áratugarins, svarthvítum kvikmyndum um atómvísindamenn, ódýrum vinsældum listrænna markaðsafurða, fólki sem tekur hvatningu mj...
  • 66 – Geta Þjóðverjar dansað?
    66 – Geta Þjóðverjar dansað? 06.10.2025 48m
    Gunnlaugur og Ármann eru komnir til New York og búnir að kynna sér Sögu úr Vesturbænum (West Side Story) sem upphaflega hét East Side Story og hefur tvisvar verið kvikmynduð og auk heldur verið flutt á Íslandi. Þeir ræða líka tegundaflokkun sviðsverka með miklum söng, stöðu Puerto Rico í Bandaríkjunum, hið mikla nef Bernsteins, muninn á grínmyndum og Green-myndum, þjóðerni Morgan Kane, dularfullan dauða Natalie Wood, Two Set Violin grínistana og nýja fjórtán binda skáldsögu Ármanns. En hvað m...
  • 65 – Maðurinn sem æpti bravó!
    65 – Maðurinn sem æpti bravó! 22.09.2025 50m
    Gunnlaugur og Ármann geta ekki haldið sig frá Verdi og nú er það óperan sem mörgum finnst sú besta í heiminum, Rigoletto, sem var fyrsta íslenska óperusýningin hjá Þjóðleikhúsinu árið 1951. Talið berst meðal annars að sjálfum Stefanó Íslandi, líkindum Rigoletto við Ölkofraþátt, tyrkneskum teppasölumönnum, hörðum kennurum, dauðarómantík 19. aldar og Íslandsmeti Guðmundar Jónssonar í löngum tón. En er Rigoletto aðeins Figaro fátæka mannsins? Er Pavarotti sannfærandi í dulargervi? Hvað er líkt m...
  • 64 – Batman á heima á Selfossi
    64 – Batman á heima á Selfossi 17.06.2025 51m
    Ármann og Gunnlaugur ræða frægustu leðurblöku menningarsögunnar, þ.e. Die Fledermaus eftir sjálfan valsakónginn Johann Strauss yngri sem hugsanlega fann upp söngleikinn. Eins hvernig snobb og lágkúra fara saman eða hvernig góð gagnrýni eigi að vera. Þá berst talið að íslensku uppfærslunni 1999 sem látin var gerast í Grafarvoginum, rússablæti tveggja metra Íslandsvinarins Rolf Rippert, hundinum Snoopy og brennuvarginum Eduard Strauss. En hvað gerist þegar dívurnar Lucia Popp og Gruberova eru s...
  • 63 – Pavarotti rekur tána í
    63 – Pavarotti rekur tána í 27.05.2025 48m
    Gunnlaugur og Ármann halda alla leið til Egyptalands að ræða frumsýningu Aidu sem Ismail khediv pantaði af Giuseppe Verdi þegar Súezskurðurinn var opnaður. Talið berst einnig að brottför Roberto Alana úr sýningu Zeffirellis, Sam Wanamaker og dóttur hans, Oddi lögmanni og Gyldenløve stiftamtmanni, hinum austur-evrópska framburði á þ og eina núlifandi konung heimsins sem ekki man eftir ríkisári sínu. Að sjálfsögðu er líka rætt um Íslandsvininn Pavarotti, besta vin Kryddpíanna, og þeir reyna eft...
  • Páskaþáttur – Guð er með öll spilin á hendi
    Páskaþáttur – Guð er með öll spilin á hendi 20.04.2025 53m
    Gunnlaugur og Ármann eru uppfullir af heilögum anda þegar þeir ræða rokkóperuna Jesus Christ Superstar sem fyrst var konseptplata og hefur verið sýnd um heim allan og er líka afar „meta“. En þeir ræða líka eina nótt í Bangkok með öllu nema Yul Brynner, dansverkið Hringi Orfeusar, Amal og næturgestina, Getsemane-falsettuna, þrjá of fjórum meðlimum ABBA, sjakalagaul Sebastians Bach og byltingar sem fara út af sporinu, En hvernig voru helgileikir í Langholtsskóla haustið 1976? Hvor syngur betur,...
  • 61 – Puccini og kynlífsbyssurnar
    61 – Puccini og kynlífsbyssurnar 14.04.2025 59m
    Nú eru Gunnlaugur og Ármann komnir að hinum tilfinningasama stórreykingamanni Puccini og óperu hans Madame Butterfly sem Malcolm McLaren gerði fræga á ný árið 1984 og varð síðar að söngleiknum Miss Saigon. Talið berst einnig að leikriti David Hwang, tónleikaflutningi á aríum, menningarnámi Gwen Stefani, Susan Boyle og háa tóninum, Chuck og Bob í Löðri, „the willing suspension of disbelief“ og að fílnum í herberginu (sem er ekki endilega bleikur). En er sjónvarpsgerðin af Flimtani og fáryrðum ...
  • 60 – Krípí stelpur og kexát
    60 – Krípí stelpur og kexát 02.04.2025 56m
    Gunnlaugur og Ármann hafa afar misjafnar skoðanir á Töfraflautunni, hinstu óperu Mozarts, en eru sammála um ágæti kólóratúrsöngkonunnar Cristinu Deutekom. Talið berst að sjálfsögðu að frímúrurum, stolnum jólalögum, Hanswursthefðinni, þrítölunni, Rokklingunum, rassabókum, Herra Bean og „krípi stelpunni“. Um leið upplýsa þeir ungviðið um hvað ipod var, lýsa yfir aðdáun á ódýrum páskaeggjum, ræða eftirhermuleik og glæpastarfsemi á Jersey, og Ármann fær tækifæri til að viðra aðdáun sína á Valdima...
  • 59 – Í þessum mjúka þræði ...
    59 – Í þessum mjúka þræði ... 17.03.2025 52m
    Fáir tengja Gilbert og Sullivan við hrollvekjur en Gunnlaugi og Ármanni tekst samt að gera það í þessum þætti þar sem rætt er um The Mikado, Savoy-óperuna, „patter song“, grínbarítóna, rímsnilld Gilberts og fleiri einkenni þessara ágætu bresku samstarfsmanna. Talið berst einnig að framlínustarfsfólki, samfélagsmiðlahegðun James Blunt, gaslýsingum Mary Poppins, sjálfsmorðshugleiðingum lítilla fugla og hættunni á að mannkynið þróist aftur í apa. En fann Egill Skalla-Grímsson upp endarímið? Eru ...
  • 58 – Brúðkaupið!
    58 – Brúðkaupið! 10.03.2025 53m
    Gunnlaugur og Ármann eru á leið í brúðkaup og fyrir því stendur sjálft undrabarnið Wolfgang (ásamt Lorenzo Da Ponte). Brúðkaup Fígarós er iðulega talin besta ópera allra tíma þó að aðalandstæðingarnir reynist óvænt vera foreldrar söguhetjunnar. Talið berst einnig að tegundaflokkun gamanópera, endurnýtingu óperustefja, fornu bakkelsi og eldri talsetningarhefðum, mistryggum aðlögunum og gagnrýni, prima noctis reglunni alræmdu, löngu týndum föðurbræðrum, gröðum unglingum, tólf ára hjákonum, fegu...
  • 57 – Húmor flyst ekki alltaf vel
    57 – Húmor flyst ekki alltaf vel 10.02.2025 52m
    Gunnlaugur og Ármann gæða sér á tournedos og ræða þriðja frægasta Jóakim nútímans, tónskáldið Rossini og hina vinsælu óperu hans, Rakarann í Sevilla. Rossini sló snemma í gegn en þróaðist frá opera buffa yfir í ellisyndir á langri ævi og var jafnan spaugsamur lífsnautnamaður. Talið berst einnig að 18. aldar ævintýramanninum Beaumarchais, mikilvægi dulargerva fyrir gamansögur, samskiptum Rossini og Beethoven, þekktum ólífuolíum, fornu barnabókunum um Kim, Greifanum af Montecristo, tönnum og há...
  • Jólaþáttur V: Kjöthleifsát og kynusli
    Jólaþáttur V: Kjöthleifsát og kynusli 23.12.2024 1h 1m
    Ármann og Gunnlaugur snúa aftur í fimmta jólaþátt þessa langlífa, sívinsæla og sumir myndu segja sígilda hlaðvarps en sérstakur gestur þessa sögulega þáttar er Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir kvikmyndafræðingur og eiginkona Gunnlaugs. Í tilefni jólanna er ekki rætt um óperur heldur söngleikinn The Rocky Horror (Picture) Show og næstum samnefnda kvikmynd. Auk þess er rætt aðeins um konfekt og kjötsvita, bandaríska neytendavernd, framburð Englandsdrottningar, þátttökusýningar og hvernig a...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.