Bara bækur

Bara bækur

RÚV
Country Iceland
Genres Arts
Language IS
Episodes 110
Latest 14.11.2026

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir. Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Episodes

  • Planterhaug, Skepnufólk, Veisla þrjú
    Planterhaug, Skepnufólk, Veisla þrjú 14.11.2026 53m
    Í þættinum hringjum við til Noregs. Bókmenntaverðlaun norðurlandaráðs fóru til Noregs eins og öll hin verðlaunin. Sigbjörn Skåden hlaut bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Planterhaug. Katla Tryggvadóttir bókmenntafræðingur er stödd í Noregi og ræðir við um Planterhaug og Skåden. Við leggjum svo upp í ferðalag yfir heiðina og hittum tvo rithöfunda á Selfossi. Hörpu Rún Kristjánsdóttur sem var að gefa út sína aðra skáldsögu, Skepnufólk - um lífið í íslensku sveitinni í nútímanum - og Steinunni Sigurðardóttur sem var að gefa út skáldsöguna Veislu þrjú, beint framhald af skáldsögunni Ból. Viðmæ...
  • Heiðríkja, Deig og Tengdasonur Íslands
    Heiðríkja, Deig og Tengdasonur Íslands 07.11.2026 53m
    Ljóðabókin Deig eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Í Deig eru ljóð sem finna undur og ævintýri í litlu fyrirbærum í kringum okkur en líka minningar og merkingu hluta sem menn sanka að sér og hlaðast upp. Undir niðri eru líka skírskotanir í stórar hugmyndir um samfélagið og tengls manna við eitthvað stærra, við óræða drauma og hverfulleikann. Og ljóðabókin Heiðríkja var að koma út hjá Ós Pressunni, fyrsta ljóðabók Miriam Petru Ómarsdóttur Awad sem áður hefur birt ljóð á netinu og smásögu í tímaritinu Stelk. Miriam yrkir um ástina þrána, hvor...
  • Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors
    Viðtal við Ocean Vuong, Haustsöngvar og Síðasta sumar Klingsors 24.10.2026 54m
    Bandarísk-víetnamska ljóðskáldið og rithöfundinn Ocean Vuong var sérstakur gestur á viðburði Reykjavík Poetics í Mengi fyrr í mánuðinum. Þar lásu nokkur skáld, meðal annars nýjasti Nóbelshafinn Anne Carson. Síðasta áratuginn hefur Ocean Vuong skipað sér í fremstu röð í bandarískum samtímabókmenntum, bæði sem ljóðskáld og skáldsagnahöfundur. Hann hefur myndað sterk tengsl við Ísland og dvalið hér við skrif sín og átt í góðu listrænu vinasambandi við Björk. Ocean Vuong verður gestur þáttarins. Sölvi Björn Sigurðsson segir frá ljóðaúrvalinu Haustsöngvar með þýðingum sínum á skáldskap franska skál...
  • Hverfa og Þrjátíu og sjö skáld í mynd
    Hverfa og Þrjátíu og sjö skáld í mynd 17.10.2026 51m
    Hverfa heitir nýjasta ljóðabók Melkorku Ólafsdóttur sem hefur jöfnum höndum gefið út verk í eigin nafni og með skáldahópnum Svikaskáldum. Síðasta ljóðabók Flagsól var heldur ekki aðeins merkt Melkorku því hún var unnin í samstarfi við myndhöfundinn Hlíf Unu Bárudóttur. En nú stendur Melkorka ljóðskáldið ein frammi fyrir öllu. Viðfangsefni bókarinnar eru djúp og breið, allt frá minnstu einingum og lífverum yfir í plánetur sólkerfisins. Hverfa er um kerfin allt í kringum okkur, hún eru hið lífræna efni, eðlisfræðilögmál og fegurðina í hinu óræða; undrin í því sem við sjáum og heyrum alla daga en...
  • Anne Carson og Max Porter
    Anne Carson og Max Porter 10.10.2026 53m
    Kanadíska skáldið og fræðikonan Anne Carson er handhafi bókemenntaverðlauna Nóbels í ár. Hún er skáldlegur fræðimaður og fræðilegt skáld, verk hennar eru oft á mörkum listgreina og forma - hún vinnur í samstarfi við ýmsa listamenn úr ólíkum greinar og úr verður landamæralaus list. Ljóðin hennar eru að mörgu leyti krefjandi en ótrúlega hrífandi. Carson hefur sterk tengsl við Ísland og listlífið hér. Bókabúðin Garg við Hofsvallagötu væri ekki til ef ekki væri fyrir Anne Carson og Helga Dögg Ólafsdóttir eigandi búðarinnar segir frá því. En við fáum líka innsýn í fræðahlið Carsons og Þorsteinn Vil...
  • Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription
    Undir þér jörðin, Húsið - hlýskeið og Transcription 03.10.2026 52m
    Kari Ósk Grétudóttir kemur í heimsókn hér rétt á eftir og segir frá nýrri ljóðabók, Undir þér jörðin. Í henni eru þrír ljóðabálkar þar sem jörðin og náttúran er viðfangsefnið út frá ýmsum sjónarhornum sem spegla sálarlíf mannsins, sem er í stöðugri leit að hlutverki hér og getur ýmist verið tortímingarafl eða bjargvættur á þessu stóra búsvæði, jörðinni undir honum. Á bjargi byggði hygginn maður hús, segir í textanum. Húsið – hlýskeið heitir nýjasta bók Hjálmars Sveinssonar þar sem allt hverfist um gamalt timburhús á Skólavörðuholti. Sögumaðurinn er í stórframkvæmdum, verið er að byggja heila...
  • Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan
    Ókunnugt fólk, 1984 með augum Júlíu og fylgiskáldsögutískan 26.09.2026 53m
    Við blöðum í nýútkominni skáldsögu, Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson. Það er saga af íslenskri samtímafjölskyldu sem er enn að kljást við afleiðingar af sárum missi í fjölskyldunni og nær hún ekki að tengjast á ný. Það ríkir þögn milli fimm náinna fjölskyldumeðlima sem hvert og eitt reynir að fylla upp í hana með ágiskunum og gremju. Rætt verður við Björn Halldórsson um hugmyndir og þemu verksins. Undanfarið hefur borið á tegund bókmennta sem nýta sér aðrar bækur, oft frægar, sem beinan efnivið. Þetta hefur verið kallað fylgiskáldsögur eða hliðstæðusögur, companion novels og er skylt fan-...
  • Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar?
    Antithesis, Dick vs. Lem og eru bækur sexí eða dauðadæmdar? 19.09.2026 52m
    Við lifum víst á öld ólæsis með dómsdags-PISA-kannanir eins og skríkjandi leðurblökuhjörð yfir okkur. Málsmetandi rithöfundar og blaðamenn boða öld ólæsis og myrkar miðaldir, Gutenberg-sviginn er að lokast og þar með prentöldin og jafnvel ritmálið eins og það leggur sig. En á sama tíma eru bækur sexí, að lesa er hot, bókaklúbbar eru á hverju strái – það eru allir að bookmaxxa og skrolla booktok og bookstagram. Hvað er rétt í þessu? Við ræðum við Maríu Elísabetu Bragadóttur rithöfund um hvað sé á seyði. Ljóðabókin Antithesis er fyrsta ljóðabók Jovönu Pavlović sem hefur hingað til kveðið sér hlj...
  • Tove Jansson segir skilið við Múmíndal og margverðlaunuð Olga Tokarczuk
    Tove Jansson segir skilið við Múmíndal og margverðlaunuð Olga Tokarczuk 12.09.2026 50m
    „Hér eru engir múmínálfar,“ skrifar listakonan finnsk-sænska Tove Jansson í bréfi til Tuulikki Pietilä konu sinnar þegar hún var að byrja að skrifa bók sem átti að slíta hana frá stóra sköpunarverkinu, Múmíndal og öllum íbúum hans. Dóttir myndhöggvarans kom fyrst út árið 1968 en var að koma út í þýðingu Gerðar Kristnýjar. Bókin samanstendur af 19 smásögum frá sjónarhorni barns og lýsa sögurnar æsku Tove á skáldlegan hátt, tilverunni á listamannaheimili sem er fullt af sköpun, gáska en líka hættum. Pólski rithöfundurinn og Nóbelshafinn Olga Tokarczuk hlaut í vikunni Alþjóðleg bókmenntaverðlaun...
  • Prumphænsnin eru víða: The Catcher in the Rye 75 ára
    Prumphænsnin eru víða: The Catcher in the Rye 75 ára 05.09.2026 54m
    Við týnumst í New York með Holden Caulfield í þætti dagsins. The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger er 75 ára í ár. Skáldsögunni fylgir ákveðinn sögulegur baggi, ára og sögusagnir, allt að því samsæriskenningar. Í heimalandinu Bandaríkjunum hefur bókin sums staðar verið blátt áfram bönnuð. Þetta uppsafnaða umtal hefur gert það að verkum að viðtökusaga bókarinnar er einn þyngsti hluti hennar sem litar afstöðu allra lesenda og verðandi lesenda. Og það er eins og það sé ekki hægt að ræða hana of mikið. Hún fyrst út í hlutum á árunum 1945-1946 en heildarútgáfan kom út hjá Little, Brown and Com...
  • Köngurváfa og Mánahjörð
    Köngurváfa og Mánahjörð 29.08.2026 49m
    Tvær ljóðabækur reka á fjörur okkar í þætti dagsins. Ein er frá því í vor, hin er haustbók sem kom út um það leyti sem almyrkvinn umtalaði á sólu reið hér yfir. Bækurnar eiga sitthvað sameiginlegt, þær draga báðar fram myndir úr fortíðinni þar sem leitað er í æskuminningarnar og báðar hafa þær að geyma ljóð sem bregða á náttúruna nýrri birtu eða framandgera það sem alla jafna telst hversdagslegt og bæði skáld blanda saman raunsæi og fantasíu. Titlar beggja eru sóttir í fortíð, glataða menningu eða orðaforða sem tengir þær við hið goðsagnakennda. Þetta eru ljóðabækurnar Mánahjörð eftir Kára Tul...
  • Skrapp út, kem að vörmu kv. Ódysseifur
    Skrapp út, kem að vörmu kv. Ódysseifur 22.08.2026 52m
    Það er nánast alveg sama hvar leitað er í vestrænni bókmenntasögu, alltaf er von á því að mæta Ódysseifi í einhverri mynd, gríska kappanum, konungi Íþöku, sem hraktist um miðjarðarhafið í 10 ár á leið sinni heim eftir jafnlangt stríð við Trójumenn. Persónur, guðir og goðsagnir úr þessum elstu bókmenntatextum vesturlanda hafa vakið undrun og innblástur um aldir en líklega enginn eins og Ódysseifur, sem er ekki aðeins að finna í Ódysseifskviðu þar sem hann er söguhetjan og Illíonskviðu þar sem hann leikur líka stórt hlutverk heldur er hann goðsögn sem dúkkar upp reglulega í bókmenntasögunni, stu...
  • Drengur les sér til gagns
    Drengur les sér til gagns 11.04.2026 50m
    Við bókagrúsk í Bókakaffinu í Síðumúla hitti Jóhannes Ólafsson fyrir feðga sem spjölluðu saman og skoðuðu gamlar bækur. Drengurinn, ekki eldri en 12 ára, gekk út með Glæp og refsingu eftir Fjodor Dostojevskí undir hendinni. Það kom á daginn að þessi kornungi bókaormur er djúpt sokkinn í lestur heimsbókmennta og bókasöfnun. Röð tilviljana leiddu til þess að Jóhannes og drengurinn, Gabríel Haukur, hittust aftur og ræddu bókmenntir og lestur ungra drengja fyrir þáttinn Bara bækur. Það heyrast gjarnan fréttir um að ungir drengir séu sá þjóðfélagshópur sem geti varla lesið sér til gagns. Í Bara bók...
  • Hver er útlendingurinn í Útlendingnum?
    Hver er útlendingurinn í Útlendingnum? 21.03.2026 53m
    Útlendingurinn er líklega þekktasta verk fransk-alsírska nóbelshöfundarins Albert Camus og hefur í gegnum tíðina verið mikið teygð, túlkuð og kennd. Í grunninn er þetta einföld saga en um leið gríðarlega flókin og margir hafa gert atlögu að því að túlka hvað vakti fyrir Camus með henni. Aðalsöguhetjan sögunnar, sem skrifuð er í fyrstu persónu, er hinn ungi Meursault, sem fréttir af andláti móður sinnar í upphafi bókar. Lesendur fylgjast með líkvökunni og jarðarförinni og síðan hversdagslífi Meursault í Algeirsborg, kynnast nágrönnum hans og ástkonunni Marie. Hversdagsleikanum lýkur þó endanleg...
  • Fyrsta íslenska konan sem gefur út bók og milljón punda seðill
    Fyrsta íslenska konan sem gefur út bók og milljón punda seðill 14.03.2026 50m
    Mark Twain. Höfundur sem hefur oftsinnis verið þýddur á íslensku og það alveg frá samtíma Twains. Flestir þekkja eflaust sögurnar um Stikilsberja Finn eða Huckleberry Finn. Fyrir skemmstu kom út smásaga eftir Twain, Milljón punda seðillinn í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Það er Sverrir Kristinsson sem gefur út en hann hefur reglulega gefið út gamlar merkilegar bækur í stílhreinum útgáfum frá 2011. Þetta er þó ekki fyrsta þýðing þessarar sögu, sem er einskonar dæmisaga og samfélagsgagnrýni sem kom fyrst út 1893. Við ræðum við Guðna Kolbeinsson þýðanda. Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum var fyrst ís...
  • Fjöruverðlaunin og íslensku þýðingaverðlaunin
    Fjöruverðlaunin og íslensku þýðingaverðlaunin 07.03.2026 51m
    Við verðum með verðlaunagripi á lofti í þættinum, það er ýmislegt í íslenskum bókmenntum sem hefur verið verðlaunað á síðustu viku. Fyrir örfáum dögum voru Fjöruverðlaunin veitt, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára og í lok febrúar voru þýðingarverðlaunin afhent. Við förum yfir þær bækur sem voru verðlaunaðar að þessu sinni og heyrum brot úr umfjöllun Rásar 1 um bækurnar. Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Brynhildur Þórarinsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Áslaug Agnarsdóttir.
  • Bækur verða bíó: Röskun og Hamnet
    Bækur verða bíó: Röskun og Hamnet 28.02.2026 52m
    Við tökum með okkur bækur í bíósalinn í þætti dagsins. Bækur hafa orðið efni í kvikmyndir allt frá upphafi þeirrar listgreinar. Við lítum á tvær skáldsögur í dag sem komu út á svipuðum tíma og urðu að kvikmynd á svipuðum tíma. Það eru bækurnar Röskun eftir Írisi Ösp Ingjaldsdóttur sem kom út árið 2019 og varð að kvikmynd nú fyrir skemmstu. Og skáldsagan Hamnet eftir írska rithöfundinn Maggie O’Farrell sem kom út 2020 og varð að kvikmynd í lok síðasta árs. Viðmælendur: Íris Ösp Ingjaldsdóttir, Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Ingibjörg Ágústsdóttir og Sunna Dís Másdóttir.
  • Svikasjálf greifans, kristin hefnd og brúin yfir í heimsbókmenntir
    Svikasjálf greifans, kristin hefnd og brúin yfir í heimsbókmenntir 21.02.2026 52m
    Franski rithöfundurinn Alexandre Dumas er miðpunktur þáttarins í dag. Hann er langfrægastur fyrir bækurnar Greifinn af Monte Cristo, Skytturnar þrjár og Maðurinn með járngrímuna. En hann skrifaði heilan haug af öðrum bókum og leikritum, enda var hann lengi vel með her skósveina sem skrifuðu fyrir hann og með honum. Saga hans er líka svo áhugaverð, hann fæddist skömmu eftir aldamótin 1800 þegar allt var á stjórnmálalegum suðupunkti í Frakklandi eftir byltinguna; Napóleon, aftur yfir í konung, svo aftur Napóleon. Faðir Dumas barðist í byltingunni og var síðar virtur hershöfðingi í franska hernum...
  • Kæri fáviti og Ursula K. Le Guin
    Kæri fáviti og Ursula K. Le Guin 14.02.2026 50m
    Í upphafi fjöllum við um Ursulu K. Le Guin bandaríska furðusagnahöfundinum sem lést árið 2018, en hún átti langan og merkilegan feril að baki og braut blað í því að færa vísindaskáldskap og fantasíur upp um virðingarflokk. Rætt verður við aðdáanda bóka Le Guin, Þórhall Auð Helgason óperusöngvara sem hefur lesið verkin sum hver oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það verða einnig nokkur viðtalsbrot úr innslagi í Lestinni á sínum tíma, stuttu eftir að Le Guin lést. Í síðari hluta þáttar beinum við sjónum okkar að Frakklandi. Nýjasta bók rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Virginie Des...
  • Síðustu dagar skeljaskrímslisins og hrakfarir Hemingways
    Síðustu dagar skeljaskrímslisins og hrakfarir Hemingways 07.02.2026 52m
    Í þættinum í dag verðum við bæði í festum og á flakki. Við byrjum á suðurnesjunum í bát við bryggjuna og leitum að skeljaskrímslum með Steinunni G. Helgadóttur rithöfundi og myndlistarmanni. Steinunn var að gefa út sína fjórðu skáldsögu, Síðustu dagar skeljaskrímslisins. Svo höldum við suður á bóginn til Parísar og Pamplóna og lendum í hrakningum með Ernest Hemingway. 100 ár eru frá því að fyrsta skáldsaga nóbelshöfundarins og hrakfallabálksins bandaríska kom út 1926; The Sun Also Rises eða Og sólin rennur upp. Lilja Sigurðardóttir rithöfundur hefur lengi haft mikinn áhuga á Hemingway og segir...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.