Tengivagninn

Tengivagninn

RÚV
Country Iceland
Genres Arts
Language IS
Episodes 84
Latest 13.08.2026

Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar. Þættirnir taka á ýmsum menningarviðburðum, listum og skemmtunum sem eiga sér stað á Íslandi. Hver þáttur kynnir áhugaverða viðburði og viðtöl við þátttakendur. Markmiðið er að halda hlustendum upplýstum um menningarlífið yfir sumartímann.

Episodes

  • Heyrðu mig, Jose Luis er Andervel, Anaxagóras og íslenskan 13.08.2026 1h 24m
    Við byrjum þáttinn á sagnfræðilegum fróðleik í boði Illuga Jökulssonar, sem segir okkur frá Anaxagórasi, fæddum 500 fyrir Krist, sem bjó til kenningar um meðal annars, sólmyrkva. Svo er rætt við tónlistarmanninn Andervel. Nýlega kom út platan Ironclad and Palm trees. Bárujárn og pálmatré. Þetta er fyrsta plata tónlistarmannsins en titillinn er annars vegar vísun í bárujárnið sem klæðir húsin í Reykjavík og hins vegar pálmatré sem stóð í garði ömmu hans í Mexíkó, þar sem hann ólst upp. Við hittum mæðgurnar Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og Diljá Sveinsdóttur, sem eru að klára að undirbúa sig undir frumsýningu á nýju dansverki, Heyrðu mig, sem verður sýnt á Ásmundarsal. Sveinbjörg er höfundur verksins, og er það samið um líf þeirrar Diljáar, sem dansar í verkinu. Diljá fæddist heyrnalaus en fékk síðar heyrn með aðgerð og heyrnatækjum og er sú lífsreynsla kveikjan að verkinu. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir flytur sinn síðasta pistil um tenginguna milli Írlands og Íslands, og sömuleiðis Arndís Þórarinsdóttir, um íslenskuna.
  • Almyrkvi í beinni á Echolalia 12.08.2026 1h 48m
    Við verjum aðdraganda almyrkvans í hópi tónleikagesta á Echolalia, reivi og listahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Sólmyrkvahátíðin er skipulögð af Björk og er samstarf við Listasafn Íslands, en þar stendur uppi sýning á verkum hennar með sama nafni, og Smekkleysu, sem fagnar 40 ára afmæli á árinu. Sólmyrkvinn var ekki sjáanlegur frá Víðistaðatúni, en við upplifum myrkrið, stystu nótt lífs okkar, í grennd við sviðið, þar sem Björk steig svo á svið strax og hafði birt aftur, og hóf að spila sitt sett við mikinn fögnuð tónleikagesta.
  • Örn Karlsson og Villistrákarnir, hinsegin kvikmyndir, bókameðmæli úr Grafarvogi 11.08.2026 1h 16m
    Í tilefni nýafstaðinna Hinsegin daga og Pride, verður hinseginleikinn þráður í þætti dagsins. Við erum með hugann við bókmenntir og kvikmyndir. Við hefjum þáttinn á viðtali sem Kristján Guðjónsson tók við Örn Karlsson, myndlistamann og þýðanda. Þýðing Arnar á bókinni Villistrákar eftir William S. Burroughs kom nýverið út, en hún var áratugi í bígerð. Bókin segir frá dulrænum skæruher hömlulausra hinseginn ungmenna sem segja siðmenningu Vesturlanda stríð á hendur. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, mælir með nokkrum höfuðverkum hinsegin kvikmyndasögu, og dregur fram þá hinsegin leikstjóra sem hafa skarað fram úr. Að lokum heimsækir Pétur Magnússon bókabúðina í Hverafold í Grafarvogi, og fær bókameðmæli frá eiganda hennar Pétur Viðarsson.
  • Evrópa, yfirnáttúrulegir staðir, nýlendusaga í myndlist 06.08.2026 1h 45m
    Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, ræðir við okkur um Evrópu. Hvað er Evrópa? Hvenær varð hún til? Hvaða jarðvegur var til staðar fyrir stofnun Evrópusambandsins? Þó forn Grikkir hafi fyrstir gefið þessu landfræðilega og menningarlega afmarkaða svæði fyrstir nafn þá skoðum við söguna sem er nær okkur í tíma í leit að svörum. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir flytur pistil um tengsl Írlands og Íslands, að þessu sinni skoðar hún yfirnátturlega staði, annars heims upplifanir og goðsagnir. Svo heyrum við af sýningu sem nýlega var opnuð í Verksmiðjunni á Hjalteyri, sýning sem heitir Sýni. Þessi sýning er sprottin af samstarfi listamanna frá Íslandi, Grænlandi, Danmörku og Jamaíku – og fjallar meðal annars um nýlendusögu þessara þjóða og tengingar þeirra við þrælahald. Meðal þeirra listamanna sem standa fyrir sýningunni er Bryndís Björnsdóttir, við ræðum við hana.
  • Europe 2031, tomi g og feminísk þýðing á Ódysseifskviðu 05.08.2026 1h 43m
    Europe 2031 er skálduð sviðsmynd um framtíð Evrópu ef álfan breytir ekki um stefnu í gervigreindarmálum. Framtíðarsýn höfunda er svört. Evrópa verður vanmáttugur eftirbátur Bandaríkjanna og Kína og Evrópubúar ófærir um að verja gildi sín og viðhalda hinu evrópska velferðarkerfi. En er eitthvað til í þessari framtíðarsýn? Við ræðum málin við Halldóru Mogensen, sem á sæti í vísindanefnd Evrópusambandsins um gervigreind. Við heimsækjum líka unga tónlistarmanneskju sem heitir tomi g og flytjum pistil frá Guðrúnu Úlfarsdóttur um feminíska þýðingu Emily Wilson á Ódysseifskviðu.
  • Heimsókn til Maó og kattarins Kókos, Hinsegin dagar, Skálda, lestur 04.08.2026 1h 47m
    Maó Alheimsdóttir, skáld, leiðsögumaður, tungumálakennari og kattaeigandi, tekur á móti okkur og kynnir okkur fyrir kettinum sínum Kókos. Kókos er lítil og sæt læða, sem kann best við sig uppi á skáp. Stundum kíkir hún út í garð og leikur sér þar. Hún á sér nokkuð dramatíska upprunasögu, en hefur það ansi gott í dag. Við fáum pistil frá Arndísi Þórarinsdóttur, að þessu sinni er hún að velta fyrir sér lestri í nútímanum. Flettum í dagskrá Hinsegin daga, sem voru settir í dag og ræðum við Önnu Gyðu Sigurgísladóttur og Uglu Stefaníu Kristjönudóttur, sem taka báðar þátt í dagskránni í ár. Kíkjum líka í bókabúðina Skáldu á Vesturgötu og fáum meðmæli frá bóksalanum Einari.
  • Megas jarðsunginn, írsk list og Meðan borgin blánar 30.07.2026 1h 28m
    Í dag, 30. júlí, er Magnús Þór Jónsson, jarðsunginn. Að því tilefni ætlum við að minnast hans. Við ræðum við Diddu skáldkonu um Megas, lífið og dauðann. Við ræðum við Jakub Stachowiak um nýja ljóðabók sem kom út hjá Forlaginu í síðustu viku og heitir Meðan borgin blánar. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, listfræðingur, sýningarstjóri og pistlahöfundur fjallar um samband írskrar og íslenskar listar.
  • Skriða á Patreksfirði, Barn í skólabíl á Flateyri 29.07.2026 1h 25m
    Pétur heimsækir Birtu Ósmann prentsmiðjuna og bókaútgáfuna Skriðu á Patreksfirði. Lóa ræðir við Harald Jónsson, myndlistarmann, um verkið Barn, sem var fyrst innsetning í leikskólanum Tjarnarborg í Reykjavík en hefur nú öðlast nýtt líf í gömlum skólabíl á Flateyri.
  • Hundalabb með Spessa, Bóksala Stúdenta og tíminn 28.07.2026 1h 18m
    Lóa hittir ljósmyndarann Spessa og hundinn Múskat í Laugardal. Pétur spjallar við bóksala um glæpasögur, rómantasíur og sumarlestur í Bóksölu Stúdenta. Arndís Þórarinsdóttir flytur pistil um tímann.
  • Ódysseifskviða, bútasaumsteppi í Hrísey, bókumbók og menningartengsl Írlands og Íslands 23.07.2026 1h 28m
    Í þætti dagsins förum við til Hríseyjar og ræðum við Dröfn Teitsdóttur, sem var að setja upp sýningu á bútasaumsteppum með myndum af fuglum. Við heimsækjum bókaverslunina Bókumbók í miðborg Reykjavíkur. Kolbeinn Rastrick rýnir í stórmynd Christophers Nolan, Ódysseifskviðu. Við heimsækjum bókabúðina Bókumbók í miðbæ Reykjavíkur og flytjum pistil eftir Þórhildi Tinnu Sigurðardóttur um menningartengsl Írlands og Íslands.
  • Þýðandinn Larissa Kyzer, Hómer og hexameter, á rúntinum með borgarstjóra 22.07.2026 1h 19m
    Larissa Kyzer er bandarískur bókmenntafræðingur og þýðandi úr íslensku yfir á ensku. Hún hefur þýtt fjölda íslenskra skáldsagna, sem margar hverjar hafa hlotið góðar viðtökur, þar má nefna Merkingu eftir Fríðu Ísberg og Elínu, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur. Við hringjum til Brooklyn og ræðum þýðingarvinnuna, hvers vegna hún kemur til Íslands, og erindi íslenskra bókmennta við hinn enskumælandi heim. Svo fáum við annað innslag frá Magnúsi Sigurði Jónassyni, nema í MH, í dag fer hann á rúntinn með borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, og tekur tímann hvað hún er lengi að fá stæði í miðborginni. Við fræðumst einnig um Hómer og kviður hans í tilefni þess að kvikmynd Christopher Nolan, The Odyssey, er nú í bíó.
  • Kómedíuleikhúsið, hvaða lag fær þig til að dansa? Og Steven Spielberg 21.07.2026 1h 17m
    Elfar Logi Hannesson, leikari, rekur Kómedíuleikhúsið í Haukadal, ásamt Marsibil G. Kristjánsdóttur, listakonu, en þau eru einnig hjón. Elfar og Pétur Magnússon ræða leikhúsið, Act Alone, dýrfirskar draugasögur og nýlega endurvakið félag vestfirskra listamanna. En sá félagsskapur fer stækkandi. Kolbeinn Rastrick, kvikmyndafræðingur og gagnrýnandi, rekur upphafið að ferli Stevens Spielberg, en saga hans er samofin sögu Hollywood. Og svo hlustum við á tónlist sem fær fólk til að dansa. Dagmar Lilja Stefánsdóttir, nemi í versló og dansari, fer um bæinn og spyr fólk þessarar einföldu spurningar: Hvaða lag fær þig til að dansa?
  • Leitað að bílastæði, Íslandssaga, gervigreind og Skruggubúð 16.07.2026 1h 19m
    Í dag fer Magnús Sigurður Jónasson í bíltúr með Silju Sóleyju Birgisdóttur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins, til að leita að bílastæði og ræða samgöngumál. Við fáum pistil frá Arndísi Þórarinsdóttur, þar sem hún fjallar um gervigreind. Við ræðum við Jón Kristin Einarsson, doktorsnema í sagnfræði, um nýtt hlaðvarp um sögu Íslands frá landnámi til bankahruns. Að lokum rifjum við upp umfjöllun um Medúsuhópinn og galleríið Skruggubúð.
  • K.Óla og ungurorri 15.07.2026 1h 17m
    Við tölum við tvo tónlistarmenn í þætti dagsins. Katrín Helga Ólafsdóttir kemur gjarnan fram undir listamannsnafninu K.Óla en hefur líka verið í hljómsveitum á borð við Milhouse og Arfa. Við heimsækjum stúdíóið hennar í Hafnarfirði í fyrri hluta þáttar. Við fáum líka til okkar ungan rappara sem heitir Evald Orri Sæmundsen, kallaður ungurorri. Hann er 17 ára og var að gefa út sína fyrstu plötu.
  • Hundalabb með Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Garg 14.07.2026 1h 21m
    Í dag göngum við um Búrfellshraun með Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og hundunum hennar, Bellu og Lottu. Við heimsækjum líka tvo bóksala í bókabúðinni Garg við Hofsvallagötu og ræðum sumarlestur.
  • Evrópsk hugmyndasaga, Ellefistar, Sagrada Familia 09.07.2026 1h 28m
    Henry Alexander Henrysson er gestur þáttarins í dag. Við ræðum við hann um hugmyndasögu Evrópu, hvað teljast sem evrópskar hugmyndir og eru sameiginlegir þræðir sem binda hugmyndir þessarar álfu saman? Guðrúnu Úlfarsdóttur er tíminn hugleikinn, tímasjónarhornið, Gaudi og Sagrada Familia. Við fáum pistli frá henni um það. Og svo heyrum við raddir frá síðustu öld. Ellefestar, fastakúnnar Ellefunnar, á sjötta áratugnum, lýsa stemmingunni á þessum stað, eftir að honum hafði verið lokað. Laugavegur 11 var samkomustaður listafólks, skálda og háskólafólks, og nokkuð alræmdur staður í huga sumra, en nánast eins og annað heimili margra. Þátturinn er í umsjón Páls Heiðars Jónssonar og er frá 1974.
  • Íslenskur grínisti í New York og 17 ára tónsmiður 08.07.2026 1h 23m
    Í þætti dagsins setjumst við niður með Hrannari Björnssyni, sem skrifar sketsa og gerir grín í New York. Hann hélt uppistandssýningu í Reykjavík í síðustu viku og er núna á túr um Bandaríkin með sketsahópnum Tiny Idea. Við ræðum hversdaginn um New York, alternative-grínsenuna í borginni, sketsa, og handritaskrif. Við ræðum líka við Láru Eggertsdóttur, sem er að hefja sitt lokaár í menntaskóla. Hún er bæði í MH og í Menntaskólanum í tónlist, þar sem hún er að læra tónsmíðar. Hún er búin að gefa út tónlist á SoundCloud (hlekkurinn) og Spotify, spila á Prikinu og Kaffibarnum, Hátíðni og Sampl í Iðnó og hefur vakið athygli. Við ræðum tónsmíðarnar, gigginn, fyrirmyndirnar innlendar og erlendar og kannski aðeins um kynjaðar hugmyndir um tónlistarfólk.
  • Hundalabb með Ófeigi og Greifa, Kanínuholan mælir með... 07.07.2026 1h 22m
    Við höldum upp á Hólmsheiði, lausagöngusvæði fyrir hunda, og hittum þar Ófeig Sigurðsson rithöfund og skuggan hans, Greifa. Greifi er 7 og hálfs mánaðar gamall þýskur fjárhundur, sætur, loðinn og góður. Í hundalabbinu á Hólmsheiðinni ræðum við samband manns og hunds, hvort hundar eigi að sofa uppí og hvort störf þýska fjárhundsins eigi eitthvað sameiginlegt með störfum rithöfundarins. Í síðari hluta þáttarins förum við á stúfana og reynum að fá svör við því hvaða bækur við eigum að lesa í sumar. Við munum heimsækja nokkrar sjálfstæðar bókabúðir og byrjum í Holtunum í Kanínuholunni. Þar tekur á móti okkur bóksalinn og bókaunnandinn, Móeiður Hlíf Geirsdóttir.
  • Ástin sem eftir er, sveppir, einleikir og Laxness í Hollywood 14.08.2025 1h 48m
    Í síðasta Tengivagni sumarsins ræðum við Hlyn Pálmason og Anton Mána Svansson um kvikmyndina Ástin sem eftir er, sem frumsýnd er í dag. Katla Ársælsdóttir rýnir í einleiki á Act alone-hátíðinni á Suðureyri, Kolbeinn Rastrick pælir í Hollywood-för Halldórs Laxness og Halla Harðardóttir fer í sveppamó. Tónlist: Ana Lua Caiano - Deixem O Morto Morrer Charlotte Adigéry & Bois Pupul - Blenda
  • Dínamískt jafnvægi, stuttbuxur og Safnasafnið 13.08.2025 1h 49m
    Í dag heimsækjum heimsækjum við Þórbergssetur á Hala í Suðursveit og ræðum við Maríu Sjöfn, myndlistarmann, um samsýninguna Dínamískt jafnvægi. Sýningunni er fléttað inn í umhverfi Hala og aðrar sýningar í Þórbergssetri, einna helst fyrirferðamikla sýningu um líf og verk Þórbergs Þórðarsonar. Við fáum líka pistil frá Ásdísi Sól Ágústsdóttur um sumarið og sumarfatnað. Að lokum heyrum við frá heimsókn Tengivagnsins í Safnasafnið við Svalbarðseyri í Eyjafirði. Tónlist úr þættinum: Locust - No one in the world Emilíana Torrini - Heartstopper Amaarae - Girlie-Pop! Oracle Sisters - Marseille

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.