Víðsjá

Víðsjá

RÚV
Country Iceland
Genres Arts
Language IS
Episodes 572
Latest 28.10.2026

Víðsjá er íslenskur menningarþáttur sem fjallar um listir og menningu. Umsjónarmennirnir Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir varpa ljósi á það sem efst er á baugi hverju sinni, skoða menningu nær og fjær frá ólíkum sjónarhornum og setja skapandi miðla undir smásjána.

Episodes

  • Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan II 28.10.2026 54m
    Í Víðsjá dagsins klárum við yfirferð okkar á Íslandsklukkunni í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness. En í síðustu viku hófum við yfirferðina með leikkonunni og skemmtikraftinum Söndru Barilli. Íslandsklukkan kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar.
  • Kristín Ómarsdóttir, hinÓperan 27, Bíddu bara þetta reddast/rýni 27.10.2026 51m
    „Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru oft mjög einsleitar. Og ég fór að spyrja mig hvort að ég ætti heima í óperuheiminum sem hinsegin söngkona,“ segir Íris Björk Gunnarsdóttir söngkona og framleiðandi hjá hinÓpera, nýs óperukompanís sem hefur það að markmiði að skapa óperulist sem endurspeglar samfélagið eins og það er. Hópurinn frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu á föstudag en hún segir ástarsögu eins frægasta bóhemapars 20. aldarinnar: Gertrude Stein og Alice B Toklas. Íris Björk, Herdís Anna Jónasdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir eru gestir Víðsjár í dag, þar sem þær segja frá verkinu og syngja einn ástardúett. Einnig verður rætt við Kristínu Ómarsdóttur um Móðurást: Lausnargjaldið og Sjöfn Asare rýnir í sýninguna Bíddu bara; þetta reddast sem sýnd er í Bæjarbíói.
  • Hrund Atla á Mokka, persnesk mál, Atómstöðin, Högg 26.10.2026 57m
    Á sýningunni Allt í klessu á Mokka, sýnir Hrund Atla 28 verk unnin með olíupastel litum á flauelispappír. Hrund hefur lengi starfað á mörkum myndlistar og kvikmyndagerðar en eftir að hafa unnið lengi framan við tölvuna segist hún finna frelsi í því að leggja aðeins tækninni og sofa ein í tjaldi uppi á hálendi með skissubók. Við mælum okkur mót við Hrund yfir kaffibolla á Mokka. Haukur Þorgeirsson málfræðingur og pistlahöfundur, heldur áfram að ræða frænkur íslenskunnar. Að þessu sinni skoðar hann persnesk tungumál en á ferðalagi sínu mun hann einnig gaumgæfa boðskap Saraþústra spámanns. Næsta skáldsaga í bókaklúbbnum Aldrei las ég Laxness verður hin umdeilda Atómstöð. Við gröfum upp gamlan hugleiðingarpistil Margrétar Björnsdóttur frá Neistastöðumum um Atómstöðina í þættinum. Karl Ágúst Þorbergsson, leikhúsrýnir, segir frá sýningunni Högg eftir James Graham sem sýnd er um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu.
  • Úkraínskir íkonar, nýjar plötuútgáfur, Undir sömu stjörnu/rýni 22.10.2026 54m
    Listasafn Íslands opnaði um liðna helgi sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás. Þar gefur að líta fjölda íkona frá 12 og fram á 19 öld, úr safneign Listasafns Úkraínu í Kænugarði. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi einstöku listaverk eru sýnd utan heimalandsins. Við heyrum í Ingibjörgu Jóhannsdóttur safnstjóra í þætti dagsins Nýstofnuð þjóðarópera hóf formlega göngu sína á dögunum í Hofi á Akureyri og heldur tónlega víðsvegar um landið á næstu vikum. Trausti Ólafsson, leikhúsrýnir Víðsjár var staddur fyrir norðan um liðna helgi og mætti á þennan merkisviðburð Það er heilmikil vinna sem fellst í því að vekja athygli á sér sem tónlistarmaður í umhverfi sem gerir miklar kröfur til markaðs og kynningarmála, þar sem pönkarar jafnt og popparar þurfa að tileinka sér tungumál viðskiptaheimsins. Hugsjónin er ávallt drifkraftur tónlistarútgáfu en það getur verið gagnlegt að hafa ákveðinn merkimiða - eða label – sem sameinar stefnur, hópa, eða tíðaranda. Tvær nýjar plötuútgáfur skutu upp kollinum í sumar, plata og blaðran. Víðsjá kynnir sér starfsemi þeirra í þættinum.
  • Aldrei las ég Laxness / Íslandsklukkan I 21.10.2026 56m
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Íslandsklukkan sem kom út í þremur bindum árin 1943-1946 og segir hrakfallasögu Jóns Hreggviðssonar, rekur pólitískt tilhugalíf Snæfríðar Íslandssólar en fer einnig ofan í saumana á handritasöfnun Arnasar Arneusar. Gestur Aldrei las ég Laxness að þessu sinni er Sandra Barilli, leikkona og skemmtikraftur. Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir
  • Karólína Rós um Lífskán, Brotnar línur/rýni, Djöflar/rýni 20.10.2026 51m
    Lífskán nefnist ljóðsaga úr smiðju Karólínu Rósar Ólafsdóttur en hún fjallar um líkamann, tungumálið og manneskjuna andspænis heilbrigðiskerfinu. Sjúkdómsgreind kona, kaldur læknir og hömlulaus þýðandi eiga þar stórleik þar sem þau reyna að greiða úr þéttum vef tungumála og tákna mismunandi kerfa. Karólína verður gestur okkar í þætti dagsins. Sölvi Halldórsson rýnir í Brotnar línur eftir Védísi Evu Guðmundsdóttur. Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Djöfla eftir Lars Norén í Borgarleikhúsinu.
  • Brynhildur Þorgeirsdóttir, Natasha S./pistill, Fasteignamartröðin/rýni 19.10.2026 54m
    „ Sko. Þegar maður er orðin 71 árs fyrirvinnulaus myndhöggvari, sem fær tæpar 39 þúsund krónur frá lífeyrissjóðnum á mánuði og á fullt að listaverkum á lager, þá þarf að grípa til einhverra ráða,“ segir Brynhildur Þorgeirsdóttir myndhöggvari en hún opnaði sýningu á Korpúlfsstöðum um liðna helgi. Þar gefur að líta að líta höggmyndir frá löngum ferli en Brynhildur sýnir ekki eingöngu verk því hún hefur í raun fært alla vinnustofuna sína inná Korpúlfsstaði. Og þetta er ekki bara heimildasýning sem veitir innsýn í ævistarf Brynhildar heldur er þetta einnig sölusýning, þar sem Brynhildur kynnir til leiks nýja viðskiptahugmynd: “Buy my art before I die”. Meira um það í Víðsjá dagsins. Natasha S. flytur fyrsta pistil í seríu um endurtekningu og Sjöfn Asare rýnir í Fasteignamartröðina sem Leikfélag Akureyrar sýnir um þessar mundir.
  • Sally Rooney, Hugvekja um söfn og samfélag, Ókunnugt fólk/rýni 15.10.2026 48m
    Ætti Þjóðminjasafnið að kaupa úlpu sem Ágústa Johnson reynir að selja á facebook? Af hverju gengur illa að varðveita torfbæi? Eru söfn í nægu samtali við samtímann? Þetta eru nokkrar þeirra fjölmörgu spurninga sem dúkka upp við lestur bókarinnar Hugvekjur um söfn og samfélag eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði. Þar tekur hann saman skrif frá þrjátíu ára ferli, en í bókinni eru ekki eingöngu fræðilegar pælingar heldur einnig persónuleg afstaða þar sem höfundur teflir fram gagnrýnum viðhorfum sem fara um víðan völl. Greinarnar snerta á menntun, eignarhaldi, inngildingu, ferðaþjónustu og sjálfbærni svo eitthvað sé nefnt. Við ræðum við Sigurjón Baldur i þætti dagsins. Við kynnum okkur einnig mál írska rithöfundarins Sally Rooney, en bækur hennar hafa verið teknar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við Palestine Action. Og Gauti Kristmannsson rýnir í Ókunnugt fólk eftir Björn Halldórsson.
  • Konur í ljósmyndun, Halldór Eldjárn og kliðharpa, Húsið hlýskeið/rýni 14.10.2026 53m
    Halldóri Eldjárn er margt til lista lagt og virðist vera forvitinn um allt, en kannski sérstaklega allt sem tengist hljóði og rafmagni. Þessi tvö áhugasvið hans sameinast í hljóðfærum sem hann hefur dundað sér við að smíða frá grunni upp á síðkastið, rafpípuorgeli og rafhörpu, og sem koma við sögu á tónleikasýningu í kvöld. VIð heimsækjum Halldór í þætti dagsins. Einnig er rætt við þær Æsu Sigurjónsdóttur og Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur um konur í ljósmyndun en út er komin bókin Striving for indipendence, Nordic Women Studio Photograpers 1860-1920. Sölvi Halldórsson rýnir í Húsið hlýskeið eftir Hjálmar Sveinsson.
  • Jórunn Viðar og tónlist haustsins 13.10.2026 56m
    Við hugum að haustlegri tónlist með tónlistarmanninum Pétri Ben og þá sérstaklega plötunni Time (The Revelator) sem bandarísku tónlistarmennirnir Gillian Welch og David Rawlings sendu frá sér árið 2001. Pétur Eggertsson ræðir við Árna Heimi um nýútkomna ævisögu Jórunnar Viðar, en Jórunn kom víða við á ferlinum og samdi margar helstu perlur íslenskra tónbókmennta - en ævi hennar hefur ekki áður verið gerð jafn ítarleg skil þrátt fyrir þau miklu áhrif sem hún hafði á tónlistarlífið.
  • Svört orkídea, Sex ed, Öld ímyndunaraflsins og Fegursta blómið 12.10.2026 53m
    Fegursta blómið er breiðskífa sem tónskáldið Helgi Rafn Ingvarsson sendir frá sér á næstunni. Á plötunni vefur hann tónlist sína saman við texta eftir rómantísk, módernísk og gleymd skáld. Í upphafsverkinu Fegursta blómið fléttar hann til dæmis saman textabrotum úr skáldsögum Halldórs Laxness við kórflutning Schola Cantorum. Platan er væntanleg á streymisveitur á á vínyl. Bergur Ebbi gef nýverið frá sér bók sem kallast Öld ímyndunaraflsins, þar sem gervigreindin er meðal annars viðfangsefnið, en bókin er hugmyndaferðalag um nútímann, nýliðna sögu og framtíðina, eins og segir á bókakápu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í verkið í þætti dagsins. Við heyrum einnig leikhúsrýni, en Sjöfn Asare Hauksdóttir fór á kynfræðslukarnivalið Sex Ed sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Ljóðabókin Svört Orkídea eftir hina færeysku Vónbjörtu Vang hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra. Bókin er þriðja ljóðabók Vang, en áður hafa komið út Millumlendingar 2011, og Djúpini 2017. Það er vestfirska bókaútgáfan Skriða sem gefur út Svarta Orkídeu, og Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir sem þýddi. Rætt er við Móheiði í þættinum.
  • Anne Carson og Ölver 08.10.2026 52m
    Kanadíska skáldið Anne Carson hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum í dag fyrir djörfung og nýjungagirni í höfundaverki sínu, en með glettnu samtali við hina klassísku hefð hafi henni tekist að skapa nýja tegund samtímabókmennta. Við kynnumst nýja nóbelskáldinu í dag, ræðum við Ragnar Helga Ólafsson, rithöfund, sem hefur gefið út og þýtt verk hennar og rifjum upp rýni Gauta Kristmannssonar í verk hennar; Albertine æfingarnar. Þá komum við einnig við á sportbarnum Ölveri í Glæsibæ en á morgun verður hægt að fara þangað að sjá fótboltadanssýninguna “Ég er kominn heim” eftir Birtu Ásmundsdóttur. Við ræðum við hitti danshöfundinn Birtu og tvo aðra aðstandendur verksins, þær Ingu Maríu Olsen dansara og Önnu Róshildi Benediktsdóttur Böving, tónskáld.
  • Steinunn Þórarins í Úkraínu, Fuglinn bókaforlag, Íslandsklukka, Gunnella/rýni 07.10.2026 54m
    Við fáum óvenjulega ferðasögu frá Steinunni Þórarinsdóttur í þætti dagsins en hún opnaði nýverið sýningu á stríðsminjasafninu í Kænugarði. Þar sýnir hún verkið Brynjur, sem var fyrst sett upp í New York árið 2018 en hefur ferðast um heiminn síðan. Ný skáldsaga Steinars Braga, Frelsarinn, kemur út hjá bókaforlaginu Fuglinum í ár en að útgáfunni standa þeir Halldór Armand og Einar Aðalsteinsson. Þeir segja að fyrirkomulag ríkisstyrkja til bókmennta ýti nú höfundum út í útgáfubransann. Við heyrum í Halldóri í þætti dagsins. Einnig verður rætt við Halldór Guðmundsson um Íslandsklukku Laxness og Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Gunnellu í Tjarnarbíói.
  • Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill 06.10.2026 52m
    Nína okkar kærasta Nína er titill sýningar sem stendur yfir á Listasafni Reykjanesbæjar. Á sýningunni er ljósi varpað á Nínu Sæmundsson sem hinsegin listamann og eru mörg verk frá ferli Nínu til sýnis, en einnig var starfandi listafólki úr hinsegin samfélaginu boðið að vinna verk á sýninguna út frá verkum Nínu. Sýningarstýrurnar, þær Viktoría Guðnadóttir og Ynda Eldborg segja frá í þætti dagsins. Heimildamyndin Eyríki eftir Nikolai Galitzine er portrett af Grímsey og óður til fólksins sem hana byggir og elskar. Þegar best lét, bjuggu þar 120 manns en nú er framtíð byggðarinnar tvísýn. Dögg Mósesdóttir, framleiðandi myndarinnar, lítur við. Og Haukur Þorgeirsson fjallar um Tokkarísku, Indó-Evrópska tungu sem hvarf af vörum fólks fyrir meira en 1000 árum.
  • Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson 05.10.2026 52m
    Skúli Sverrisson byrjaði ungur að leika á rafbassa. Hann stundaði nám við tónlistarskóla FÍH en samferða námi lék hann með hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, djasspíanóleikara, fyrir dansi í naustinu. Síðar nam Skúli bassaleik við Berkley College of Music í Boston en að loknu námi flutti hann til New York borgar og bjó þar um árabil en heldur nú til í miðborg Reykjavíkur. Á ferli sínum hefur Skúli komið víða við. Hann hefur gefið út margar plötur undir eigin nafni og starfað með listamönnum á borð við Lou Reed, Laurie Anderson, Ryuichi Sakamoto, Allan Holdsworth, Blonde Redhead, Jóhanni Jóhannssyni og Hildi Guðnadóttur. Skúli hefur þá einnig samið tónlist fyrir kvikmyndir og leikhús sem og stýrt plötuupptökum. Hann er einn af stofnendum plötuútgafunnar og listarýmisins Mengis og hefur verið listrænn stjórnandi staðarins frá upphafi.
  • Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía 01.10.2026 51m
    „Soldið eins og ef Prúðuleikararnir myndu sjá um kynfræðslu,“ segir Margrét Erla Maack, sviðslistakona og ein af driffjöðrum fullorðinssirkússins Sex Ed sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu annað kvöld. Í verkinu sameinast íslenska kabarettsenan senunni frá New York, en bandaríski hópurinn Visceral Abstractions lýsir sér sem absúrdísku sirkus- og brúðuleikhúskollektívi sem blandar saman brúðum, líkama, loftfimleikum, húmor og súrrealískri sviðslist. Við ræðum þetta og meira til við Margréti Erlu í þætti dagsins; líkamleika á tímum gervigreindar, áhrif hægri sveiflu á burlesque heiminn, fæðingarþunglyndi og fíflaskap. Einnig verður rætt við Unu Sveinbjarnardóttur um nýlega plötu hennar Ea Fantasíu, sem hljóðrituð var um hávetur í Reykholtskirkju og svo heyrum við rýni í nýja ljóðabók Jakobs Stachowiak, Meðan borgin blánar.
  • Víðsjá þrítug 30.09.2026 51m
    Í tilefni af 30 ára afmæli Víðsjár flökkum við vítt og breitt í tíma með hjálp tækninnar. Heyrum erindi frá Víðsjárkempum síðustu þrjátíu ára.
  • Netárásir, Svikasögur, Pollar 28.09.2026 55m
    Netárásir hafa verið áberandi í íslenskum bókmenntaheimi undanfarnar vikur. Undanfarna daga hafa átt sér stað árásir á bókmenntavefsíðurnar Lestrarklefann, norðdahl.org og Starafugl. Við mælum okkur mót við umsjónarmenn Lestrarklefans sem og Eirík Örn Norðdahl og ræðum þessar árásir. Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Svikasögur eftir Maríu Reyndal sem frumsýnt var í síðustu viku í Borgarleikhúsinu. Elísabet Brynhildardóttir segir frá Pollum, nýju útilistaverki sínu sem prýðir almenningsgarð á gamla strætóreitnum í Borgartúni.
  • Haustbækur, Bríet Bjarnhéðins, Ástin ein taugahrúga 24.09.2026 50m
    Á sunnudag verður haldið verður upp á afmæli Bríetar Bjanhéðisdóttur, sem fæddist á þessum degi fyrir 170 árum. Það er félagið Leikhúslistakonur 50+ sem hafa gert dagskrá af þessu tilefni, sem kallast - Bríet, blómin og Hannes. Edda Þórarinsdóttir leikkona og Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur segja frá í þætti dagsins. Við heyrum rýni Trausta Ólafssonar á kammeróperunni „Ástin ein taugahrúga: enginn dans við ufsaklett“ og fáum meðmæli með góðum haustbókum.
  • Aldrei las ég Laxness / Heimsljós II 23.09.2026 53m
    Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Í síðustu viku komumst við aðeins hálfa leið með stórvirkið Heimsljós sem fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga og vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Í þessum seinni þætti ræðum við Bára Gísladóttir, tónskáld, um seinni bindin tvö: Hús skáldsins og Fegurð himinsins. Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið. Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.