Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Brotkast ehf.
0
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóða þeir upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.
Episodes
-
Viðreisn veikasti hlekkurinn | Harmageddon | S04E43 18.11.2026 18mÞað hriktir í stoðum ríkisstjórnarinnar og öllum á óvörum er Viðreisn orðin veikasti hlekkurinn í stjórnarsamstarfinu. Á kaffistofunum veltir fólk því fyrir sér hvert erindi flokksins sé nú þegar ESB-draumnum hefur verið hafnað og áherslur frjálslyndra hægrimanna hafa vikið fyrir auknum ríkisútgjöldum og skattahækkunum.Margir sjá nú fyrir sér formannsslag á næsta landsfundi Viðreisnar. Þar ber nafn Þorbjargar Sigríðar, dómsmálaráðherra, oftast á góma. Sumir telja hana geta komið flokknum út úr þeirri kreppu sem núverandi forysta hafi leitt hann í.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast... -
S04E69 - Eldur Smári vill að RÚV biðjist afsökunar 17.11.2026 19mEldur Smári Kristinsson kemur aftur í Spjallið með Frosta Logasyni, rétt áður en mál hans gegn RÚV og Bergsteini Sigurðssyni er tekið fyrir í Landsrétti. Tilefnið eru ummæli í kosningaviðtali þar sem sagt var að lögregla hefði fjarlægt Eld af skólalóð fyrir að mynda börn og starfsfólk í leyfisleysi. Eldur segir að þetta hafi aldrei gerst. Hann fer yfir hvers vegna hann áfrýjaði eftir að hafa tapað málinu í héraði, hvers vegna leiðréttingin á vef RÚV dugði honum skammt og af hverju opinber afsökunarbeiðni skiptir hann meira máli en miskabætur.Eldur segir líka frá kærum Samtakanna ’78 og dómsmál... -
S04E68 - Þorbjörg um hert útlendingalög: „Við ætlum að gera kröfur“ 16.11.2026 19mÞorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ræðir við Frosta Logason um útlendingamál og breytingarnar sem hún hefur lagt fyrir Alþingi á dvalarleyfiskerfinu. Hún segir að fólksfjölgunin á Íslandi, um fimmtíu þúsund manns frá 2017, hafi ekki byggt á neinni stefnu og að stjórnvöld hafi hvorki haft innsýn né yfirsýn yfir það hverjir væru að koma og hvaðan. Markmiðið sé að hætta með áberandi séríslenskar reglur og færa regluverkið nær því sem gerist á Norðurlöndunum.Frosti les upp dæmi úr gögnum um karlmann frá MENAPT-landi sem kom hingað árið 2020, fór beint á framfærslu og hefur aldrei u... -
Um styrkhæf sjónarmið meirihlutans | Harmageddon | S04E42 11.11.2026 3mTil er fólk sem telur að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda eigi eingöngu að ná til þeirra miðla sem ganga í takt við ákveðnar meginstraumslínur í umdeildum málum. Fjölmiðlar sem styðja ekki ákveðnar rétttrúnaðarstefnur skuli þannig fjársveltir á meðan þeir sem kyrja kórinn verði í áskrift að fjármagni skattgreiðenda. Slík sjónarmið eru í reynd sterkustu rökin fyrir því hvers vegna fjölmiðlar ættu aldrei að vera ríkisstyrktir. Við getum aldrei vitað hvers lags fólk mun koma til með að stjórna sameiginlegum sjóðum til framtíðar.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á htt... -
S04E67 - „ÞETTA ER SPILLING!“ – Brynjar Karl hjólar í Reykjavíkurborg 10.11.2026 18mBrynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari og forsvarsmaður íþróttafélagsins Aþenu, mætir í Spjallið og fer yfir harðvítugar deilur félagsins við Reykjavíkurborg um framtíð íþróttastarfs í Efra-Breiðholti.Brynjar Karl fer mikinn og sakar embættismenn borgarinnar um spillingu, vanrækslu og óeðlilega ráðstöfun opinbers fjár. Hann fullyrðir meðal annars að 89 milljónir króna hafi runnið frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar til ÍR á síðustu fjórum árum og kallar eftir svörum um hvernig þeim fjármunum hafi verið varið.Á sama tíma segir hann Aþenu hafa byggt upp öflugt íþrótta- og samfélagsstarf fy... -
Ísland verður eins og Svíþjóð! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E66 09.11.2026 19mÁstralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja, íslam og vaxandi áhrif íslamskrar hugmyndafræði á vestræn samfélög.Í þessu viðtali við Frosta Logason í Spjallinu fer Hill yfir þá þróun sem hann telur ógna framtíð Evrópu. Hann ræðir afbrotatíðni innflytjenda, kynferðisbrot, velferðarkerfi Norðurlandanna og rannsóknir sem hann segir sýna vaxandi róttækni meðal ungra múslima í Evrópu.Hill segist fá líflátshótanir nánast daglega vegna málflutnings síns og greinir frá því að sumar þeirra séu... -
Ólukka ríkisstjórnarflokkanna | Harmageddon | S04E41 04.11.2026 11mStórfurðuleg atburðarrás sem hófst á undarlegu tísti framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins hefur leitt til harðrar deilu á milli fyrrverandi forseta Íslands. Komið hefur fram að stigmögnun í kjarnorkustríð er ekki opinber stefna Flokks fólksins heldur eingöngu persónuleg skoðun framkvæmdastjórans sem þó er talið miklu léttvægara heldur en að Ólafur Ragnar hafi endurtíst skjali Rússlands um pólitík norðurslóða.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ -
Kærleikurinn sem flæmdi kennara út | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E64 02.11.2026 19mFrosti Logason og Helga Dögg Sverrisdóttir ræða starfslok hennar sem dönskukennara við Síðuskóla á Akureyri og aðdraganda þeirra. Helga rekur viðbrögð við grein sinni um kyn og fræðslu barna, en að sögn Helgu urðu skrifin upphaf að ágreiningi og breyttum samskiptum á vinnustaðnum.Í umræðunni segir Helga frá fundi með skólastjóra og mannauðsstjóra þar sem Eva Hauksdóttir lögmaður aðstoðaði hana. Að sögn Helgu var farið fram á að hún takmarkaði opinber skrif sín um málefni trans fólks. Þau ræða tjáningarfrelsi kennara og viðbrögð samstarfsfólks sem Helga upplifði sem einelti og útskúfun.Þá ræða... -
Teitur Atlason - Er fjölmenningin að bresta? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E63 29.10.2026 19mFrosti Logason og Teitur Atlason ræða mótmæli og óeirðir í Evrópu og velta fyrir sér hvað liggi að baki óánægjunni. Þeir ræða húsnæðisvanda, lífskjör, ferðaþjónustu og innflytjendastefnu og greinir meðal annars á um stöðu innviða álfunnar.Innflytjendamál eru fyrirferðarmikil í samtalinu. Þeir ræða aðlögun, atvinnuþátttöku, afbrot og velferðarkerfið og kalla eftir gögnum um stöðu ólíkra hópa. Einnig berast brottflutningar og styrkir til heimferða í tal, ásamt þeirri áherslu að aðstoð við nýja íbúa fylgi kröfur um tungumálanám og sjálfsbjörg.Umræðan beinist jafnframt að stríðinu á Gaza, ábyrgð H... -
Tjáningarfrelsi á útsölu | Harmageddon | S04E40 28.10.2026 9mHér á Íslandi er til fólk í áhrifastöðum sem vill henda þeim í fangelsi sem tjá sig um áhyggjur sínar af þróun útlendingamála. það er ekkert nýtt að róttæklingar vilji misnota lög í pólitískum tilgangi en það er verra þegar kjörnir fulltrúar á Alþingi eru komnir þangað.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ -
Frakkland er fallið | Harmageddon | S04E39 23.10.2026 6mFjölmiðlar hér á landi sem erlendis reyna enn að selja okkur þá hugmynd að óeirðirnar í Frakklandi séu fyrst og fremst mótmæli framhaldskólanema. Að loftslagsbreytingar séu að gera nemendum svo erfitt fyrir og ekki sé hægt að taka samræmd próf í svo miklum hita. Þess vegna sé verið að brenna niður opinberar byggingar, verslanir og bíla. En nú hefur forseti Frakklands reyndar gefið það út að skemmdarvargarnir séu fyrst og fremst öfgasinnaðir vinstrihópar sem vilja knésetja franska lýðveldið.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ -
Jóhannes Loftsson - Þetta gæti verið mun verra en við höldum! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E62 21.10.2026 19mGeta afleiðingar COVID-bólusetninganna verið að koma fram fyrst núna, fimm árum síðar? Og hvers vegna hefur ekki farið fram ítarlegra uppgjör á sóttvarnaraðgerðum og ákvörðunum heilbrigðisyfirvalda?Jóhannes Loftsson, verkfræðingur og stjórnarmaður í Heilsuvon, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Jóhannes var áberandi í gagnrýni á sóttvarnaraðgerðir á COVID-tímanum og hefur undanfarin ár beitt sér fyrir því að vekja athygli á fólki sem telur sig hafa orðið fyrir alvarlegum aukaverkunum bóluefna.Í viðtalinu fer Jóhannes yfir niðurstöður könnunar sem Heilsuvon lét Maskínu framk... -
Ofbeldi og eyðilegging | Harmageddon | S04E38 20.10.2026 7mÓeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stórhættuleg. Vonandi eru einhverjir loksins að vakna. En svo eru auðvitað þeir vinstrimenn sem hafa slíkt horn í síðu vestrænna gilda að þeir virðast helst fagna ástandinu. Og láta sig dreyma um að íslensk ungmenni taki sér óeirðaseggina til fyrirmyndar. Við fjöllum um þetta og miklu meira í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ -
Reynir Grétarsson - Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E61 12.10.2026 16mReynir Grétarsson er einn af athyglisverðari frumkvöðlum og fjárfestum Íslands. Hann var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði ásamt félögum sínum fyrirtækið Lánstraust, sem síðar varð Creditinfo, og átti eftir að vaxa langt út fyrir landsteinana.Í þessu viðtali við Frosta Logason fer Reynir yfir ævintýralegt lífshlaup sitt, allt frá fyrstu skrefunum í íslensku viðskiptalífi á tíunda áratugnum til uppbyggingar alþjóðlegs fyrirtækis. Hann segir frá því hvernig þrír ungir menn hófu rekstur með aðeins tvær milljónir króna, mættu tortryggni bankakerfisins og þurftu að sannfæra valdamikla menn um að þe... -
Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E60 08.10.2026 15mHvað gerist þegar pólitísk hugmyndafræði fær að ráða för í vísindum og fjölmiðlar birta niðurstöður rannsókna án þess að spyrja gagnrýninna spurninga?Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni.Tilefnið er umdeild skýrsla hugveitunnar Equimundo um viðhorf íslenskra karla til jafnréttis, karlmennsku og ofbeldis. Niðurstöðurnar vöktu mikla athygli í íslenskum fjölmiðlum en sættu síðar harðri gagnrýni félagsvísindamanna vegna alvarlegra annmarka á rannsókninni.Kolbeinn gagnrýnir bæði rannsóknina og hvernig fjölmiðlar... -
„Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E59 05.10.2026 15mGunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst frá því hann settist síðast niður með Frosta til að ræða eitt dularfyllsta viðfangsefni samtímans.Undanfarin misseri hafa fyrrverandi starfsmenn bandaríska hersins og leyniþjónustustofnana stigið fram með ótrúlegar frásagnir af óþekktum fljúgandi fyrirbærum, meintum endurheimtum flýgildum og verum sem eiga ekki að vera af mannlegum uppruna. Samhliða hafa málefni UAP-fyrirbæra ratað inn í bandaríska þingið og opinber gögn og myndbönd verið birt.Gunnar hefu... -
Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E37 01.10.2026 12mÍ Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki þess að ætla ná þeim tökum á efnahagsmálum sem þau voru kosin til að gera. Við ræðum líka um mikinn árangur sem Já-hliðin náði fram í nýlegri þjóðaratkvæðagreiðslu með drjúgri aðstoð úr sjóðum skattgreiðenda og fjöllum um óhóflega notkun Íslendinga á sterkum geðlyfjum, þrátt fyrir að vera ein hamingjusamasta þjóð heims. Allt þetta og miklu meira í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni... -
Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E58 29.09.2026 13mÓli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni.Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun, en samtalið vindur fljótt upp á sig og verður að víðtæku uppgjöri við íslensk stjórnmál og þróun samfélagsins undanfarna áratugi.Óli Björn ræðir hvers vegna hægrimenn misstu sjálfstraustið og hugmyndafræðilegan kraft, hvernig Sjálfstæðisflokkurinn fjarlægðist hluta af sínum gömlu rótum og hvers vegna hann telur hörð hugmyndafræðileg átök nauðsynleg í heilbrigðu lýðræðissamfélagi.Rætt er um r... -
Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E36 23.09.2026 13mFyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í Evrópusambandinu. Nú hefur náðst farsælt samkomulag um Grænland, allir eru hæstánægðir og stærsta röksemdin fyrir inngöngu Íslands í ESB virðist hafa gufað upp. Við fjöllum um þetta og fleiri mál líðandi stundar í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ -
Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E57 21.09.2026 19mJón Helgi Egilsson, doktor í peningamálahagfræði, segir að Ísland geti boðið húsnæðislán með föstum vöxtum til mun lengri tíma en nú tíðkast. Hann tók þátt í vinnu á vegum fyrri ríkisstjórnar sem miðaði meðal annars að því að gera tíu ára vaxtafestingu að raunhæfum valkosti fyrir íslenska lántakendur. Sú vinna hafi hins vegar verið stöðvuð eftir að Daði Már Kristófersson tók við embætti fjármálaráðherra.Í viðtalinu ræðir Jón Helgi hvers vegna eigin gjaldmiðill sé mikilvægt hagstjórnartæki fyrir lítið og opið hagkerfi og segir upptöku evru jafngilda fastgengi sem henti Íslandi illa. Hann telur...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.