Konungssinnar í Kísildal

Konungssinnar í Kísildal

RÚV Hlaðvörp
Country Iceland
Language IS
Episodes 13
Latest 29.04.2026

Konungssinnar í Kísildal fjallar um byltingarhugmyndir tæknigeirans sem Donald Trump og Elon Musk styðjast við í endurmótun bandarísks samfélags. Umsjónarmennirnir Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson kafa ofan í hugmyndafræði konungssinna í Kísildal og þær róttæku breytingar sem þeir boða.

Episodes

  • 13. Ellison-feðgar eignast allt
    13. Ellison-feðgar eignast allt 29.04.2026 54m
    Larry Ellison er einn ríkasti maður í heimi. Auður hans er mestallur í hlutabréfum fyrirtækis sem hann stofnaði í Kísildalnum árið 1977. Fyrirtækið heitir Oracle og sérhæfir sig í hýsingu og vinnslu gagna. Hann á eyju, orrustuþotur og börn sem hafa áhuga á kvikmyndum og hafa gert sig gildandi í Hollywood. Ef að kaup Larry og sonar hans David á Warner Bros Discovery ganga í gegn munu þeir feðgar ráða yfir fjölmiðlaveldi. Þeir eiga fyrir Paramount, stóran hluta í TikTok og CBS, og eignist þeir Warner Bros Discovery bætist við fréttastofan CNN, HBO og fleiri þekktar sjónvarpsstöðvar.Og Donald Tru...
  • 12. Mannætukóngurinn Sam Altman
    12. Mannætukóngurinn Sam Altman 16.04.2026 54m
    Á næstu árum er óhjákvæmilegt að einhver muni þróa stórhættulega ofur-gervigreind. Það er spurning upp á líf og dauða hver það er sem muni stjórna þessari tækni. Sam Altman vill að við treystum honum fyrir því. Það eru þó ekki allir sammála því að stórhættulega ofur-gervigreindin sé óhjákvæmleg og finnst jafnvel önnur vandamál af völdum gervigreindar meira aðkallandi að leysa. Um þetta er fólk innan gervigreindargeirans ekki sammála. Altman er kurteis, strákslegur og hefur sakleysislegt yfirbragð. Hann hefur á undanförnum árum orðið að andliti gervigreindarbyltingarinnar, hann er maðurinn á ba...
  • 11. Gönguskíðagarpurinn Dr. Alex Karp
    11. Gönguskíðagarpurinn Dr. Alex Karp 01.04.2026 52m
    Hann er heimspekingur í Kísildal, en hann er ekki heimspekingur Kísildalsins. Þvert á móti þá sker hann sig úr og gerir í því að aðgreina sig frá öðrum tæknifyrirtækjum Kísildalsins.Við fjöllum um Alex Karp, framkvæmdastjóra Palantir. Áður en hann varð framkvæmdastjóri og síðar milljarðamæringur, þá var hann doktorsnemi í heimspeki við Goethe-háskóla í Frankfurt.Palantir er eitt umdeildasta fyrirtæki Bandaríkjanna í dag, enda tækni þess notuð af útlendingaeftirlitinu (ICE) til að finna innflytjendur sem stendur til að reka úr landi og til að finna heppilegustu skotmörkin í Íran. Karp sem talar...
  • 10. Sæðisgjafinn Elon Musk
    10. Sæðisgjafinn Elon Musk 05.06.2025 1h 12m
    Elon Musk hefur lýst yfir mikilli vanþóknun á nýju frumvarpi Bandaríkjaforseta, Big, Beautiful Bill, því það mun auka ríkisútgjöld og vinna gegn þeirri miklu niðurskurðarvinnu sem Musk og liðsmenn hans í DOGE, hagræðingahópnum, hafa staðið í síðastliðna 130 daga. Hvort þetta þýði að áhrif Musks fari minnkanndi í Hvíta Húsinu á eftir að koma í ljós. En fyrir hvað stendur hann, fyrir hverju berst hann og á hvað trúir hann? Hvernig tengist nýlenda á Mars börnunum 14?Efni sem var notað við gerð þáttarins:Ævisagan Elon Musk eftir Walter Isaacson (2023)Viðtöl við Elon Musk og fleira:Elon Musk: War,...
  • 9. Guðfræðingurinn J.D. Vance
    9. Guðfræðingurinn J.D. Vance 26.05.2025 57m
    Varaforseti Bandaríkjanna er kaþólskari en Páfinn. Hann fann trúna fyrir örfáum árum, skírðist til kaþólskrar trúar og segir það móta mjög sýn sína á pólitík. Áður en J.D. Vance hélt inn á hið pólitíska svið var hann metsöluhöfundur. Árið 2016 gaf hann út Hillbilly Elegy, þar sem hann lýsir uppvexti sínum í Ohio og Kentucky, þar sem hann bjó við óöruggar heimilisaðstæður en með hjálp ömmu sinnar og afa rættist úr honum. Það rættist ansi vel úr honum, eftir fjögur ár í hernum og tvö í háskóla hlaut Vance inngöngu í laganám hins virta Yale-skóla. Þar kynntist hann örlagavaldi í sínu lífi, fjárfe...
  • 8. Þeir ætla að lifa að eilífu
    8. Þeir ætla að lifa að eilífu 14.04.2025 51m
    Í áttunda þættinum sökkvum við okkur ofan í baráttuna gegn dauðanum sem er háð þessa dagana í Kísildalnum og mögulega í heilbrigðisráðuneyti Donalds Trump. Peter Thiel, Jeff Bezos, Sam Altman og fleiri tækniforstjórar moka peningum í rannsóknir á langlífi. Þeir ætla að lifa að eilífu. Andlit þessarar hugmyndafræði er Bryan Johnson, undir formerkjunum Don’t Die, ekki deyja. Við skoðum tengsl Trans-húmanisma við MAHA-hreyfinguna svokölluðu, Make America Healthy Again. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 7. Hannes Hólmsteinn og bandaríska hægrið
    7. Hannes Hólmsteinn og bandaríska hægrið 03.04.2025 54m
    Hannes Hólmsteinn Gissurarson er prófessor emeritus í stjórnmálafræði og hefur sérhæft sig í frjálshyggju. Hann þekkir til í Silicon Valley, hefur hitt Peter Thiel og einnig marga helstu hugsuði frjálshyggjunnar. Hann hefur rætt við Thatcher og Hayek og Milton Friedman. Fáir þekkja hægristefnuna jafn vel og hafa barist jafn mikið fyrir sjónarmiðum frjálshyggjunnar hér á landi, í ræðu og riti. Við ræðum Trump-stjórnina, ólíkar stefnur innan bandaríska hægrisins, muninn á frjálshyggju og liberalisma (sem er víst það sama) og Kísildalinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more informatio...
  • 6. Crypto-keisarinn David Sacks
    6. Crypto-keisarinn David Sacks 27.03.2025 52m
    Á dögunum var David Sacks útnefndur gervigreindar og rafmynta-keisara hvíta hússins, semsagt helsti ráðgjafi Trump í þessum málefnum. Sacks er gamall skólafélagi Peter Thiel og JD Vance hefur sagt hann sinn nánasta félaga í Kísildalnum. Sacks eignaðist umtalsverða peninga eftir að hann tók þátt í að koma Paypal á koppinn, og hefur æ síðan verið áhugasamur um rafmyntir. Í þessum þætti sökkvum við okkur ofan í heim rafmynta og þá hugmyndafræði sem liggur honum til grundvallar - trúna á að tími ríkisvalds og skattheimtu sé að líða undir lok. Þessar hugmyndir koma meðal annars fram í forvitnilegri...
  • 5. Starfsneminn Marc Andreessen
    5. Starfsneminn Marc Andreessen 21.03.2025 54m
    Í þætti dagsins kynnum við okkur hugmyndir fjárfestisins Marc Andreessen. Marc hefur þangað til nýlega verið yfirlýstur demókrati en nú styður hann Trump. Hann tók þátt í því að hjálpa Trump að velja inn starfsfólk í nýju Trump-stjórnina og kallar sig ólaunaðan lærling hjá D.O.G.E. Hvað gerðist? Hverjar eru skoðanir Marc Andreessen, sem hefur stundum verið kallaður hugmyndafræðingur Kísildalsins? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 4. Libbar og amerískt lýðræði
    4. Libbar og amerískt lýðræði 14.03.2025 1h 7m
    Fjórði þátturinn er með óvenjulegu sniði. Við fáum til okkar viðmælendur sem hjálpa okkur að skilja stofnun bandaríska lýðveldisins og frjálslyndisstefnuna, liberalismann, sem Peter Thiel og fleiri álíta að sé komin á endastöð.Viðmælendur: Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur og Páll Rafnar Þorsteinsson heimspekingur. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 3. Borgarskipulagsfræðingurinn Balaji Srinivasan
    3. Borgarskipulagsfræðingurinn Balaji Srinivasan 10.03.2025 55m
    Við fjöllum um útópískar hugmyndir Kísildalsins, meðal annars Netríkið, Network State, sem Balaji Srinivasan hefur talað fyrir. Við ræðum meðal annars GAZA Inc, Prospera og tilraunir Praxis til að kaupa Grænland. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 2.  Bloggarinn Curtis Yarvin
    2. Bloggarinn Curtis Yarvin 10.03.2025 53m
    Curtis Yarvin er tölvunarfræðingur og bloggari. Hann er líka maður myrku upplýsingarinnar, eða Dark Enlightenment og hann hefur lengi talað fyrir því að Bandaríkin þurfi að taka upp konungsveldi. Við kynnum okkur hugmyndir Curtis Yarvin eða Mencious Moldbug, eins og hann kallaði sig áður, og tengsl hans við Hvíta húsið. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
  • 1. Frumkvöðullinn Peter Thiel
    1. Frumkvöðullinn Peter Thiel 10.03.2025 54m
    Við fjöllum við um þýsk-amerísk-nýsjálenska fjárfestinn Peter Thiel, læriföður varaforsetans JD Vance og fyrsta áhrifamanninn úr Silicon Valley sem studdi við Donald Trump.Það efni sem við notuðum við gerð þáttarins var meðal annars eftirfarandi:Textar eftir Peter Thiel:- Zero to One: Notes on Startups, Or How to Build the Future (2014)- Education of a Libertarian (2009):https://www.cato-unbound.org/2009/04/13/peter-thiel/education-libertarian/- The Straussian Moment (2007):https://gwern.net/doc/politics/2007-thiel.pdfViðtöl við Thiel:- Triumph of the Counter-Elites (2024):https://podcastnotes...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.