Japp
Katrín Aagestad og Hildur Scheving
0
Katrín Aagestad og Hildur Scheving spjalla á léttu nótunum um allt sem er merkilegt og ómerkilegt.
Episodes
-
#23 List 🎭 Nakinn maður í kassa og prjónuð pítsa 🍕 16.11.2026 56mJapp um LIST 🎨 Er banani límdur á vegg list? Hvað með nakinn mann í kassa, ósýnilegt listaverk eða prjónaða pítsu? 🍌🍕Við ræðum óperur sem ætla aldrei að klárast, milljónaverk sem maður hefði getað gert sjálfur, íslenska gjörningalist og okkar eigin stórkostlegu hugmyndir að listaverkum.Þátturinn er í boði IDE House of Brands og Hydrate Cocowater 💜 -
#22 Áhugamál 09.11.2026 54mHvað telst eiginlega áhugamál? Er það rautt flagg að eiga engin áhugamál? Og myndirðu fá ick ef kærastinn þinn væri atvinnumaður í hobby horsing? Í þessum þætti jöppum við um allt frá frímerkjasöfnun, brimbrettum og heklun yfir í fuglaskoðun, skrítin áhugamál og þá eilífu freistingu að kaupa allan búnaðinn fyrir eitthvað sem maður ætlar að prófa. Þátturinn er í boði IDE House of Brands, Hydrate Cocowater og Indó. -
#21 Arnar Freyr og tölvuleikir 02.11.2026 58mArnar Freyr frá tölvuleikjahlaðvarpinu Checkpoint Podcast mætir í Japp og við förum um víðan völl í heimi tölvuleikjanna. -
#20 Spúkí 26.10.2026 56mAllt sem er spúkí og örlítið yfirnáttúrulegt 🎃 Íslenskar draugasögur, nornaveiðar, galdrabrennur og hryllingsmyndir sem hafa haldið fyrir okkur vöku. Nóg af hrolli, hjátrú og hlátri í þessum þætti 🕷️Jappið er í samstarfi við IDE House of brands 🤝 -
#19 Nostalgía 19.10.2026 55mNostalgíuferð aftur í gamla góða daga! Rifjum upp Juicy gallana, Spice Girls, sveitaböllin og dramatíkina í The O.C. Við ræðum tískuslysin, tónlistina, fyrstu skotin og allt það sem mótaði æsku okkar. -
#18 Árný Fjóla og sveitin 12.10.2026 1h 3mÍ þessum þætti fáum við okkar fyrsta gest, hana Árnýju Fjólu! Við förum í sveitina og spjöllum um allt milli súrheisturna og traktora! -
#17 Fegrunaraðgerðir 05.10.2026 54mJapp um útlit, fegurðarstaðla og allt sem við gerum til að líta aðeins betur út. Við rifjum upp hinn stórkostlega klikkaða raunveruleikaþátt The Swan, skoðum fegurðartrend í gegnum tíðina og veltum fyrir okkur hversu langt við erum tilbúin að ganga í leitinni að „fullkomna“ útlitinu. -
#16 Auglýsingar 28.09.2026 56mAuglýsingar sem við munum ennþá, slagorð sem sitja föst í hausnum og markaðsbrellur sem virka aðeins of vel. Af hverju munum við sumt í áratugi og hvað fær okkur eiginlega til að kaupa? -
#15 Sjórinn (sjávarfang og sæhestar) 21.09.2026 56mÍ þessum þætti jöppum við um sjóinn 🌊 Allt frá hafmeyjum og sjósundi yfir í Keikó og furðulegar staðreyndir úr djúpinu. -
#14 Afmæli eða sköpunardagar? 17.09.2026 53mÍ þessum þætti jöppum við um allt sem tengist afmælum 🎂 Afmælishefðir, afmælisstress, bestu og verstu afmælin, gjafir, veislur og allt sem fylgir því að eiga fæðingardag🎈 -
#13 Skvísu stærðfræði (e. girl math) 07.09.2026 50mHvenær verða peningar ókeypis og hver er raunverulegur máttur ókeypis heimsendingar? Sokkinn skvísukostnaður og skvísa rað. Allt þetta og meira til í nýjasta Jappinu! -
#12 Topp3 listar 31.08.2026 58mÍ þessum þætti er allt sett í topp 3. Allt frá því augljósa yfir í það sem enginn bað um að væri sett á lista. -
#11 Haustið og kósý maxxxing 24.08.2026 48mEndalaust japp um allt sem einkennir haustið, rútínu álag, súpur og pumpkin spice. -
#10 Já eða nei (EKKI UM ESB) 17.08.2026 59mEf þú vilt pásu frá Jágúst og Neigúst þá er þetta þáttur fyrir þig. Kjósum já eða nei um allt nema ESB. -
#9 Týpur 10.08.2026 52mJapp um allar þær týpur sem umkringja okkur. Skinkan, baby goons, týpan okkar og hvað kemur eftir millenial green? -
#8 Atvinna og fyrri störf 04.08.2026 58mHér jöppum við um undarleg störf, draumastörfin, önnur störf sem eru ekki endilega mjög spennandi og allt þar á milli. -
#7 Skammarkrókurinn 27.07.2026 48mHlutir, fólk og fyrirbæri sem við viljum senda í skammarkrókinn. -
#6 Ein stór samsæriskenning! 20.07.2026 51mJappað um hinar ýmsu kenningar og samsæri. Hvernig voru píramídarnir eiginlega byggðir, hvað varð um Avril Lavigne og er Monopoly karlinn með einglyrni eða ekki? -
#5 Gamla internetið, ADSL & GG 13.07.2026 47mJapp um gamla internetið og yfir í það nýja, söknuður betra.net tímanna og hvar er word bréfaklemman í dag?!? -
#4 Sólviskubit og íslenska sumarkonan 06.07.2026 50mHvað gera íslendingar þegar sumarið kemur? Allt undir miðnætursólinni er rætt í þessum þætti.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.