Hlaðvarp Myntkaupa

Hlaðvarp Myntkaupa

Myntkaup
Country Iceland
Language IS
Episodes 113
Latest 14.11.2026

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir.

Episodes

  • Nvidia hneyksli steypir mörkuðum niður - hræðsla mælist á ný öfgakennd í crypto
    Nvidia hneyksli steypir mörkuðum niður - hræðsla mælist á ný öfgakennd í crypto 14.11.2026 1h 2m
    Undanfarnar vikur hafa einkennst af linnulausum og hrottalegum lækkunum, ekki aðeins á crypto markaðnum, heldur mörkuðum almennt. Forstjóri Nvidia, Jensen Huang, hefur gerst sekur um mikinn afleik í einkalífi sínu með ástarsambandi við meintan kínverskan njósnara. Hann hefur nú sagt af sér sem forstjóri og markaðsvirði Nvidia hefur lækkað um stjarnfræðilegar fjárhæðir meðan þetta hefur geisað yfir. Þá voru verðbólgutölur neikvæðar og virðist nú aðeins spursmál hvort næsta vaxtaákvörðun verði 25 eða 50 punkta hækkun hjá seðlabankastjóranum í USA. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Bandarísk hlutabréf og crypto taka væna dýfu - HYPE og fleiri myntir bætast við vöruúrval Myntkaupa!
    Bandarísk hlutabréf og crypto taka væna dýfu - HYPE og fleiri myntir bætast við vöruúrval Myntkaupa! 07.11.2026 59m
    Meira en 1000 milljarðar dollara þurrkuðust út úr bandarískum hlutabréfum á fimmtudaginn og crypto markaðurinn tók væna dýfu samhliða. Nýjar atvinnutölur komu út í USA og sýndu fram á enn sterkara atvinnulíf en spár gerðu ráð fyrir. Rykið hefur að mörgu leyti sest í Binance málinu og var farið yfir það í þessum þætti. Myntkaup kynnti til leiks þrjár nýjar myntir, þar á meðal HYPE, TAO og NEAR og var fjallað um þær.
  • Stærsta rán crypto sögunnar - Markaðir nötra af hræðslu
    Stærsta rán crypto sögunnar - Markaðir nötra af hræðslu 31.10.2026 1h 2m
    Í þessum þætti er nær eingöngu fjallað um einn stæra viðburð crypto sögunnar, en um sex milljörðum dollara var stolið af Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims. Viðburðurinn er sögulegur fyrir margra hluta sakir og er farið yfir öll þau atriði sem fram hafa komið í þessum þætti.
  • Markaðir fá skell - Bitcoin berst við að halda 80k
    Markaðir fá skell - Bitcoin berst við að halda 80k 24.10.2026 1h
    Í þessum þætti er fjallað um það helsta sem gerðist í vikunni á mörkuðum. Meira og minna allir markaðir lækkuðu töluvert, einkum hlutabréfamarkaðir um allan heim. Bitcoin hefur sýnt þrautseigju og ljóst er að talsverður stuðningur er við 80k verðmiðann. Hvort hann haldi verður að fá að koma í ljós, en mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í lok vikunnar setti strik í reikninginn. Þá er farið yfir helstu fréttir, þar með talið bálkakeðjuverkefni JP Morgan og HSBC.
  • Áhyggjur af gervigreindinni hjaðna - Útflæði heldur áfram úr kauphallarsjóðum
    Áhyggjur af gervigreindinni hjaðna - Útflæði heldur áfram úr kauphallarsjóðum 17.10.2026 1h 3m
    Í þessum þætti er farið yfir hreyfingar markaðarins. Bitcoin fór undir 80k í stutta stund en náði sér aftur yfir 80k. Verðbólga heldur áfram að aukast í Bandaríkjunum. Útflæði heldur sömuleiðis áfram úr kauphallarsjóðunum, einkum ETH. Nýjar raddir heyrast í umræðunni um gervigreind og benda á að ekki sé tilefni til óðagots. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Bitcoin slær aðeins til baka - Gætu framfarir gervigreindar falið í sér ógn við crypto?
    Bitcoin slær aðeins til baka - Gætu framfarir gervigreindar falið í sér ógn við crypto? 11.10.2026 49m
    Í þessum þætti er farið yfir það helsta sem gerðist síðustu viku. Vikan einkenndist af talsverðum lækkunum og eftir mikið innflæði í ágúst og september hjá kauphallarsjóðunum hefur verið töluvert útflæði úr þeim í október. Aðalfrétt vikunnar er þó án efa sú að OpenAi birti upplýsingar um að óútgefin gervigreind á vegum þeirra hefur náð áður óhugsandi árangri við að leysa stærðfræðivandamál sem mönnum hefur ekki tekist að leysa. Í kjölfarið hafa vaknað áhyggjur um hvort gervigreind gæti leyst þá dulritun sem verndar cryptoveski. Rætt er talsvert um þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða
    Bitcoin heldur velli yfir 80k - Ekkert lát á innflæði kauphallarsjóða 03.10.2026 1h 1m
    Árið einkenndist framan af af útflæði rafmyntakauphallarsjóðanna. Eftir látlaust innflæði undanfarið upp á fleiri milljarða dollara eru þeir nú komnir í nettó innflæði. Að öðru leyti var fremur tíðindalítið á rafmyntamörkuðum. Táknvæðing verðbréfa heldur áfram af fullum þunga. Einnig var farið yfir nokkrar makró efnahagstölur og margt fleira.
  • Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi
    Meira en milljarður dollara flæðir inn í kauphallarsjóðina á einum degi 26.09.2026 57m
    Mánudagurinn sá mesta innflæði á einum degi í rafmyntakauphallarsjóðina síðan október 2025. Tæplega milljarður dollara flæddi inn í BTC kauphallarsjóðina og um 270 milljónir dollara í ETH sjóðina. Í kjölfarið náði BTC yfir 87k og ETH yfir 2700$. Táknvæðing heldur áfram að gegna aðalhlutverki í umræðunni og nýjar fréttir um samstarf stórra aðila vekja athygli. Þá valdi Björn einnig skemmtilega bók í hinu mánaðarlega bókahorni. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?"
    Clarity frumvarpinu hafnað, stýrivextir hækkaðir í USA - Bitcoin segir "og hvað með það?" 19.09.2026 1h
    Síðastliðinn þriðjudag voru greidd atkvæði um framgang Clarity frumvarpsins í Öldungardeildinni, þ.e. hvort það yrði tekið í efnislega meðferð og færi síðan í atkvæðagreiðslu um hvort það yrði að lögum. Frumvarpið þurfti 60 atkvæði en fékk aðeins 49. Í vikunni hækkuðu stýrivextir í USA einnig um 25 punkta og eru nú 3,75-4%. Einnig frestuðust samningaviðræður í Óman vegna Hormússundsins, en markaðurinn hafði bundið vonir við að lausn væri í sjónmáli. Hins vegar tilkynnti SEC afgerandi undanþágur til fimm ára fyrir crypto iðnaðinn vegna táknvæddra verðbréfa og ekki er annað að sjá en að markaður...
  • Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd?
    Nýjar verðbólgutölur í USA - Er samkomulag um Hormússund í nánd? 12.09.2026 51m
    Síðustu verðbólgutölur í Bandaríkjunum voru birtar föstudaginn, 11. september síðastliðinn. Þær voru nokkurn veginn í samræmi við væntingar, en þó ögn verri má segja. Rökrétt hefði því verið að ætla að markaðir myndu lækka örlítið en þvert á móti þá urðu talsverðar hækkanir á sama tíma. Skýrist það af því að samhliða birtingu á verðbólgutölum bárust fréttir um að fundað yrði í Óman um mögulegt samkomulag gagnvart Hormússundi. Ekkert er þó í hendi enn. Þá var fjallað um hinar ýmsu fréttir vikunnar, þar á meðal 100 milljón dollara fjárfestingu Nasdaq í Kraken, nýjustu jarmmynt Hunter Biden, Lapt...
  • Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k
    Sterkar atvinnutölur í USA slá BTC niður fyrir 80k 05.09.2026 54m
    Í gær bárust tölur frá Bandaríkjunum sem sýndu fram á að störfum þar í landi hefði fjölgað umtalsvert meira en spár gerðu ráð fyrir. Fyrir vikið hafa líkur á hækkun stýrivaxta aukist töluvert og rafmyntamarkaðurinn seig nokkuð niður eftir gott gengi vikunnar. Innflæði í kauphallarsjóði helstu rafmynta var mjög sterkt í vikunni og svo virðist sem sífellt fleiri bankar og hefðbundin fjármálafyrirtæki séu í auknum mæli að vinna að stórum verkefnum á sviði bálkakeðjutækninnar.
  • Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst
    Innflæði BTC kauphallarsjóða nálgast þrjá milljarða USD í ágúst 29.08.2026 1h 1m
    Í vikunni sem var að líða var minna um fréttir, en rafmyntamarkaðurinn hélt áfram góðri siglingu. Solana náði rétt tæpum 110$, ETH fór yfir 2500$ og BTC hefur sveiflast yfir og undir 80.000$. Þá hefur innflæði í rafmyntakauphallarsjóði verið með því mesta á árinu hingað til. Kevin Warsh, seðlabankastjóri USA, flutti árlega ræðu sína í Jackson Hole á sama tíma og hlaðvarpið var tekið upp og verður efni hennar gert skil í næsta þætti.
  • Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k
    Nautin vakna til lífsins - BTC hótar 80k 22.08.2026 47m
    Í þessum þætti er rætt um atburðarás vikunnar sem leiddi til gífurlegra hækkana á öllum helstu rafmyntum. BTC fór næstum í 80.000$, en ETH fór í stutta stund yfir 2.500$ og Solana snerti 100$. Margir samverkandi þættir búa að baki, en allt byrjaði á því að fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti um aukin endurkaup á eigin ríkisskuldabréfum. Þá var einnig mikið innflæði í kauphallarsjóði, Trump var stóryrtur á blaðamannafundi um crypto, ásamt öðru.
  • Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni
    Verðbólga í USA sýnir merki um hjöðnun - Mikið útflæði úr kauphallarsjóðum í vikunni 15.08.2026 1h
    Í þessum þætti er farið yfir nýjustu verðbólgutölur í USA, hvernig þær stóðust væntingar og hvaða áhrif þær virðast hafa á markaðinn. Þá er farið yfir uppfærða stöðu Clarity frumvarpsins, en það verður að teljast á brattann að sækja að ætla að ná að gera það að lögum á þessu ári. Þá er einnig fjallað talsvert um öryggismál og samspil þeirra við gervigreind. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár
    Clarity frumvarpið verður líklega ekki að lögum í ár 08.08.2026 52m
    Innflæði hefur einkennt síðustu daga hjá kauphallarsjóðunum. Þeir félagar taka aftur fyrir Coldcard hakkið og gera því betur skil. Sömuleiðis er rætt um stöðu Clarity frumvarpsins hjá öldungardeildinni en allt lítur út fyrir að það verði ekki að lögum í ár. Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vitnaði í Satoshi þegar hann tjáði sig um mikilvægi þess að Bandaríkin myndu taka af skarið og leiða crypto markaðinn. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard
    Hræðsla brýst út vegna öryggisbrests hjá Coldcard 01.08.2026 55m
    Í vikunni bárust fréttir af því að um 38m USD virði af BTC hefði verið stolið af köldu veskjunum Coldcard vegna öryggisbrests hjá framleiðandanum. Mikil hræðsla brast út í kjölfarið og í kjölfarið vaknar spurningin: Hvernig geymir maður rafmyntir sínar með öruggum hætti? Í öðrum fréttum má nefna að Seðlabankinn í Bandaríkjunum ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum þar í landi í 3,5-3,75%. Þá hafa áhyggjur aukist af svokölluðum DAT fyrirtækjum, sem ganga út á það að kaupa BTC og hafa á efnahagsreikningi sínum, en fjölmörg þeirra hafa neyðst til að selja BTC til þess að geta staðið við skuldbindi...
  • Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans
    Magnús Karl ræðir Nassim Taleb og ritverk hans 25.07.2026 1h 11m
    Í þessum þætti mætir Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðingur, í annað sinn í stúdíóið. Viðfangsefni þáttarins er fjárfestirinn og tölfræðingurinn Nassim Taleb, sem hefur gefið út fjölda ritverka sem miða að því að efla lesendur í ákvarðanatökum á mörkuðum. Taleb skrifaði formálann í The Bitcoin Standard en svo virðist sem undanfarin ár hafi hann misst trú á Bitcoin. Fjallað er um fjórar af hans helstu bókum og þær settar í samhengi við rafmyntamarkaðinn.
  • Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin
    Góðar verðbólgutölur í USA gefa Bitcoin byr í seglin 18.07.2026 1h 3m
    Vikan hófst á mjög góðum verðbólgutölum í USA og markaðir tóku við sér. Segja má að það sem hafi fylgt á eftir hafi þó dempað viðbrögðin talsvert, en Kevin Warsh, seðlabankastjóri í USA, sagði að of snemmt væri að tala um fullnægjandi grundvöll fyrir vaxtalækkanir. Þá hefur versnandi ástand í átökum Bandaríkjanna og Írans leitt til áhyggna af því að olíuverð hækki á ný sem gæti hleypt verðbólgunni aftur upp. Áfram heldur jákvæð þróun við að færa raunheimaeignir á bálkakeðjur. Citadel Securities fjárfestir í einu stærsta cryptofyrirtæki heims. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k
    Óvissuástand skapast á ný milli Írans og USA - Bitcoin reynir að halda sér yfir 60k 11.07.2026 53m
    Í þessum þætti ræða þeir félagar um það helsta sem gerst hefur frá því að þeir spjölluðu saman síðast. Er vopnahléi lokið milli USA og Írans? Það virtist mega lesa út úr orðum forseta Bandaríkjanna, en málið er kannski ekki svo einfalt eins og fjallað er um í þættinum. Áfram halda vandræði Saylor og Strategy, en Strategy seldi rúmlega 3500 BTC í tapi. Þá vakti umfjöllun Viðskiptablaðsins athygli Kjartans og ekki síst það sem blaðið fjallaði ekki um í tengslum við CASP starfsleyfi á grundvelli MiCA. Þetta og margt fleira í þessum þætti.
  • Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það?
    Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það? 04.07.2026 1h 1m
    Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og EES. Töluvert hátt hlutfall af áður starfandi þjónustuveitendum hefur ekki tekist að tryggja sér starfsleyfið innan frestsins og ber þar helst að nefna stærstu rafmyntakauphöll heims, Binance. Farið er yfir nokkur grundvallaratriði sem fylgja MiCA og hvaða þýðingu þetta hefur fyrir neytendur. Einnig er...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.