Íslenski Draumurinn

Íslenski Draumurinn

Íslenski Draumurinn
Country Iceland
Language IS
Episodes 52
Latest 16.11.2026

Íslenski Draumurinn er hlaðvarp um fyrirtækjarekstur, fjármál, fjárfestingar og persónulegan þroska. Í þáttunum ræða þeir við íslenska frumkvöðla og viðskiptamenn sem hafa elt drauma sína. Farið er yfir sögur þeirra, velgengni og mistök. Þátturinn hvetur hlustendur til að verða besta útgáfan af sjálfum sér.

Episodes

  • 52. Hilmar Veigar Pétursson - Fenris Creations, áður CCP
    52. Hilmar Veigar Pétursson - Fenris Creations, áður CCP 16.11.2026 1h 46m
    Í þessum þætti af Íslenska draumnum ræðir Sigurður við Hilmar Veigar Pétursson, forstjóra Fenris Creations, áður CCP, sem hefur staðið í brúnni hjá einu þekktasta tölvuleikjafyrirtæki Íslands í meira en tvo áratugi. Hilmar segir frá fyrstu tölvunni sem hann safnaði fyrir með blaðburði, lærdómsárunum hjá OZ og ævintýrinu á bak við EVE Online. Hann ræðir opinskátt um tímabil þegar starfsfólk vann mánuðum saman án launa, velgengnina sem leiddi til ofþenslu og erfiðu ákvarðanirnar sem fylgdu í kj...
  • 51. Baksýnisspegillinn og vegvísirinn fram á við
    51. Baksýnisspegillinn og vegvísirinn fram á við 30.12.2025 13m
    Þátturinn í dag er aðeins öðruvísi. Við lítum í baksýnisspegilinn og drögum saman helstu lærdóma ársins. Við heyrum brot úr mest hlustuðu þáttum ársins og kynnum til leiks markmiðaheftið fyrir 2026. Heftið er hannað til að hjálpa þér að setja skýr markmið, halda fókus og ná alvöru árangri. Ef þú vilt fá heftið sent, sendu okkur línu á Instagram hjá Íslenska draumnum. Gleðilega hátíð og takk kærlega fyrir hlustunina á árinu.
  • 50. Ingvi Þór Georgsson - Aflamiðlun
    50. Ingvi Þór Georgsson - Aflamiðlun 16.12.2025 1h 50m
    Í þessum þætti af Íslenska Draumnum ræðir Sigurður við Ingva Þór Georgsson, mann sem hefur farið óhefðbundna leið í atvinnulífinu og byggt upp ótrúlega fjölbreyttan feril. Í þættinum opnar Ingvi á fyrstu skrefum sínum, ævintýrunum í kringum Aflamiðlun, verkefnunum sem spruttu út frá því og þeirri þrautseigju sem hefur haldið honum áfram, verkefni eftir verkefni: borðspilaútgáfu, Alfreð, Pardus, hlaðvarpsrekstur Sýnar, Pyngjan, fyrirtækjasala, hugbúnaðarrekstur og jafnvel þjóðbúningaframleiðsl...
  • 49. Helga Sigrún Hermannsdóttir - Dottir Skin
    49. Helga Sigrún Hermannsdóttir - Dottir Skin 02.12.2025 1h 59m
    Gestur Íslenska Draumsins þessa vikuna er Helga Sigrún Hermannsdóttir, meðstofnandi og yfirmaður vísinda og vöruþróunar hjá Dottir Skin, hefur vakið athygli fyrir einstaka nálgun sína á snyrtivörur, þar sem sameinast djúp þekking á efnafræði, eigin reynsla af húðvandamálum og vilji til að skapa raunverulegar lausnir. Hún hefur alla tíð verið heilluð af húð, innihaldsefnum og þeirri spurningu hvað virkar í raun. Vegferð hennar sem frumkvöðull hófst ekki með fjárfestafundi eða viðskiptaáætlun, ...
  • 48. Árni Jón Pálsson - Alfa Framtak
    48. Árni Jón Pálsson - Alfa Framtak 18.11.2025 1h 57m
    Í nýjasta þætti af Íslenska Draumnum tekur Sigurður á móti Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtaks, sem deilir einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverðasta og öflugasta framtakssjóð landsins í dag.
  • 47. Íslenski Draumurinn er kominn aftur
    47. Íslenski Draumurinn er kominn aftur 04.11.2025 3m
    Við kynnum til leiks nýjan og stærri draum. Nýtt stúdíó og stærri hugmyndir. Í þessum stutta kynningaþætti tilkynnum við að Íslenski Draumurinn er hafinn á ný eftir stutt hlé. Við heyrum einnig hljóðbrot úr næstu tveimur þáttum, sem þú mátt ekki missa af. Fyrsta hljóðbrotið er úr þættinum með Árna Jóni Pálssyni, meðstofnanda og fjárfestingastjóra Alfa Framtak. Í þættinum deilir hann einlægri og heillandi sögu sinni frá fyrstu skrefum í viðskiptalífinu yfir í það að leiða einn áhugaverða...
  • 46. Hekla Arnardóttir - Crowberry Capital
    46. Hekla Arnardóttir - Crowberry Capital 24.06.2025 1h 32m
    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins ræðir Sigurður Sindri við Heklu Arnardóttur, meðstofnanda Crowberry Capital, sem hefur átt óvenjulega vegferð úr vélaverkfræði yfir í heim fjárfestinga og frumkvöðlastarfsemi. Hekla hefur starfað við fjárfestingar í nýsköpun í fjölda ára, fjárfest í fjölbreyttum hópi tæknifyrirtækja, og komið að byggingu sprotafyrirtækja sem hafa vaxið út fyrir landsteinana.
  • 45. Sindri Már Finnbogason - TIX
    45. Sindri Már Finnbogason - TIX 10.06.2025 1h 56m
    Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski Draumurinn ræðir Sigurður Sindri við Sindra Má Finnbogason, stofnanda og frumkvöðulinn á bak við miðasölukerfið Tix. Í þættinum greinir Sindri frá fyrstu kynnum sínum af forritun, uppbyggingu eigin hugbúnaðarfyrirtækis, og þeirri alþjóðlegu útrás sem fylgdi í kjölfarið. Ferill hans spannar þrjá áratugi og ber vott um óvenjulegan sjálflærdóm, seiglu og víðsýni í rekstri.
  • 44. Litið til baka
    44. Litið til baka 03.06.2025 31m
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins lítum við aftur á þrjá áhrifamikla gesti sem komu í fyrstu þáttunum – hver með sína einstöku sögu, sýn og leið að árangri. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa lagt ótrúlega vinnu í að byggja upp rekstur frá grunni og eru allir ólík dæmi um hvað frumkvöðlastarf getur falið í sér. Hvort sem það er í hótelrekstri, bílaleigum eða fasteignastarfsemi – þá er eitt sem skín í gegn: þrautseigja, framtíðarsýn og drifkraftur. Í þessum þætti lítum á þegar Steinþór Jónsso...
  • 43. Árið 2025 - Fyrri helmingur
    43. Árið 2025 - Fyrri helmingur 27.05.2025 34m
    Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Íslenski draumurinn stígur Sigurður Sindri Magnússon skref til baka og fer yfir þrjá eftirminnilega viðmælendur sem hafa komið fram á árinu: Jónas Hagan Guðmundsson, Kristján Inga Mikaelsson og Hjálmar Gíslason. Þátturinn er áminning um breiddina og dýptina í íslensku frumkvöðlaumhverfi – og hversu mikla innblástur er að finna í þeim sem þora að láta til sín taka.
  • 42. Hjálmar Gíslason - GRID
    42. Hjálmar Gíslason - GRID 20.05.2025 1h 38m
    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn fáum við innsýn í ævintýralegt og lærdómsríkt ferðalag Hjálmars Gíslasonar – eins reynslumesta frumkvöðuls Íslands og stofnanda GRID, sem vinnur að næstu byltingu í töflureiknum. Hjálmar hefur áratugareynslu af því að umbreyta hugmyndum í raunverulegar vörur og fyrirtæki, og í þættinum deilir hann einlæglega sinni sögu – frá því að selja fyrsta tölvuleikinn sinn 14 ára gamall, yfir í að selja hugbúnaðarfyrirtæki sitt til stórfyrirtækis í Bandaríkjunum.
  • 41. Emin Kadri - At­vinnu­maður í hnefaleikum
    41. Emin Kadri - At­vinnu­maður í hnefaleikum 13.05.2025 1h
    Í nýjasta þættinum af Íslenski draumurinn kynnumst við Emin Kadri, 22 ára atvinnuboxara sem þrátt fyrir ungan aldur er þegar orðinn þekkt nafn í íslenskri íþróttasenu. Emin hefur barist tvo atvinnubardaga – og unnið þá báða – og margir sjá hann sem einn efnilegasta hnefaleikamann Íslands. Lestu meira og skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
  • 40. Valgerður Hrund Skúladóttir - Sensa
    40. Valgerður Hrund Skúladóttir - Sensa 06.05.2025 1h 24m
    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins hittum við Valgerði Hrund, framkvæmdastjóra Sensa og einn af stofnendum fyrirtækisins. Hún hefur í áratugi verið í fararbroddi íslenskrar upplýsingatækni og lýsir í viðtalinu ótrúlegri vegferð sinni frá Vesturbæ Reykjavíkur til þess að stýra alþjóðlegu tæknifyrirtæki með yfir 160 starfsmenn í 12 löndum. Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is
  • 39. Jónas Karl - Markmiðaþáttur - Ertu á réttri leið?
    39. Jónas Karl - Markmiðaþáttur - Ertu á réttri leið? 29.04.2025 48m
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins býður Sigurður upp á sérstaka útgáfu sem tengist markmiðasetningu – grunnstoð allra þeirra sem vilja ná árangri, hvort sem er í lífinu eða í viðskiptum. Þátturinn er framhald af fyrsta markmiðaþætti ársins og nú fer Sigurður dýpra í efnið með tilkomu nýs markmiðaheftis sem allir geta nálgast frítt á islenskidraumurinn.is. Í heftinu má finna skýrar spurningar, lista og verkfæri sem hjálpa þér að setja þér markviss og framkvæmanleg markmið – og komast alla lei...
  • 38. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 2
    38. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 2 22.04.2025 1h 44m
    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins heldur samtal Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi áfram. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
  • 37. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets  & MGMT Ventures - Part 1
    37. Kristján Ingi Mikaelson - VISKA Digital Assets & MGMT Ventures - Part 1 15.04.2025 1h 44m
    Í nýjasta þætti Íslenska draumsins er fyrsti partur samtals Sigurðar við Kristján Inga Mikaelsson – frumkvöðul, fjárfesti og einn af fyrstu talsmönnum Bitcoin á Íslandi. Í þættinum fer Kristján yfir einstakan feril sem spannar tvo áratugi í tæknigeiranum, upphafið í forritun sem ungur maður og leiðina að því að stýra sjóðum og fjárfesta í framtíðarfyrirtækjum. Skráðu þig á póstlistann á islenskidraumurinn.is
  • 36. Sölvi Tryggvason - Fjölmiðlamaður & rithöfundur
    36. Sölvi Tryggvason - Fjölmiðlamaður & rithöfundur 08.04.2025 1h 59m
    Nýr þáttur af Íslenska draumnum er kominn út og að þessu sinni er gestur Sigurðar enginn annar en fjölmiðlamaðurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og rithöfundurinn Sölvi Tryggvason – betur þekktur sem Sölvi Tryggva. Sölvi hefur verið áberandi í íslensku fjölmiðlalífi í yfir tvo áratugi og deilir hér ótrúlegri og fjölbreyttri vegferð sinni. Lestu meira um Sölva og skráðu þig á póstlistann á íslenskidraumurinn.is
  • 35. Guðmundur Birkir Pálmason - Kírópraktor & áhrifavaldur
    35. Guðmundur Birkir Pálmason - Kírópraktor & áhrifavaldur 01.04.2025 1h 32m
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Guðmund Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró. Guðmundur hefur byggt upp stærstu kírópraktorstofu Íslands, rekið fyrirtæki í Svíþjóð, opnað hárgreiðslustofu og orðið að áhrifavaldi með sitt eigið fatamerki. Í þættinum fer hann yfir ferðalagið sem liggur að baki þessu öllu – ásamt því að ræða sjálfsvinnu, sjálfsrækt og þörfina til að hjálpa öðrum. Lestu meira um Gumma kíró og skráðu þig á póstlistann á íslenskidraumurinn.is
  • 34. Karel Ólafsson - PreppUp, Preppbarinn & Lamb Street Food
    34. Karel Ólafsson - PreppUp, Preppbarinn & Lamb Street Food 25.03.2025 1h 17m
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við Karel Ólafsson, frumkvöðulinn á bak við PreppUp, Preppbarinn og Lamb Street Food. Karel hefur fetað óvenjulega leið inn í veitingarekstur en með hugrekki, áræðni og sterka framtíðarsýn hefur hann skapað holla og sjálfbæra veitingamenningu á Íslandi. Skráðu þig á póstlistann og lestu meira á islenskidraumurinn.is
  • 33. Guðjón Már Guðjónsson - OZ
    33. Guðjón Már Guðjónsson - OZ 18.03.2025 2h 18m
    Í nýjasta þætti Íslenska Draumsins ræðir Sigurður við einn af mest áhrifamestu frumkvöðlum Íslands, Guðjón Má Guðjónsson. Guðjón hefur verið á fullu í nýsköpunarheiminum síðan hann var aðeins 14 ára gamall og hefur á ferli sínum stofnað og byggt upp mörg af stærstu tæknifyrirtækjum landsins. Hann hefur unnið á fjölbreyttum sviðum – allt frá fjarskiptum yfir í gervigreind og útvarpslausnir fyrir íþróttir. Í viðtalinu segir Guðjón frá ferli sínum, áskorunum og stórum sigrum – frá fyrstu skrefun...

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.