Skattaspjallið
Samtök skattgreiðenda
0
Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.
Episodes
-
#31 - Erlendur kostnaður menntakerfisins 06.07.2026 29mGreining Samtaka skattgreiðenda á kostnaði vegna íbúa af erlendum uppruna heldur áfram. Að þessu sinni beinum við sjónum okkar að því hver áhrif íbúa af erlendum uppruna séu á kostnað íslenska menntakerfisins. Í nýlegri greiningu þeirra Arnars Arinbjarnarsonar, Kristins Sv. Helgasonar og Róberts Bragasonar er reynt að áætla slíkan kostnað með tilliti til fjögurra stiga skólakerfisins: leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, fyrir bæði ríkissjóð og sveitarfélög. Þeir Kristinn og Róbert koma í Skattaspjallið að þessu sinni og ræða forsendur útreikninganna og hvernig þeir unnu þá gagnvinnu sem er að baki.Óhætt er að segja að greiningar þeirra félaga komi á óvart. Í fyrsta lagi vegna þess að enginn hefur unnið slíkar samantektir á nýlegum og síkvikum útgjaldaliðum sem kosta nú skattgreiðendur árlega háar upphæðir. En ekki síður vegna þeirra niðurstaðna sem þeir hafa dregið fram.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#30 - Skattar og gjöld ferðaþjónustunnar 14.06.2026 20mFerðaþjónustan er sú grein sem skilar mestum gjaldeyristekjum í þjóðarbúið eða um 650 milljörðum króna á ári. Um leið er skattspor ferðaþjónustunnar um 200 milljarðar króna. Enn er greinin í uppbyggingar- og fjárfestingarfasa en á sama tíma dynja skattahækkanir og ný gjöld á greininni. Til að ræða þetta kemur Bjarnheiður Hallsdóttir í Skattaspjallið til okkar en hún lét af störfum sem formaður Samtaka ferðaþjónustunnar eftir sex ára setu árið 2024. Hún hefur um áratugaskeið rekið ferðaskrifstofuna Kötlu DMI sem sérhæfir sig í að flytja þýska ferðamenn til Íslands. Fáir þekkja rekstrarumhverfið betur en Bjarnheiður sem skrifaði nýlega grein þar sem hún talaði um galna skattheimtu ríkisstjórnarinnar. Hún segir að nýlegar og fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu muni hafa gríðarlega slæm áhrif á samkeppnishæfni greinarinnar og þar með aðstöðu hennar til verðmætasköpunar um landið allt.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#29 - Hvað kostar sveitarfélagið þitt? 29.05.2026 22mSamtök skattgreiðenda hafa gefið út tvö ný gagnvirk mælaborð og Arnar Arinbjarnarson verkfræðingur og sérfræðingur Samtaka skattgreiðenda kemur til okkar í þáttinn til að fræða okkur um þetta. Fyrra mælaborðið nær yfir öll 62 sveitarfélög landsins með gögnum úr ársreikningum sem ná aftur til ársins 2002 og fram til 2024. Viðmótið er skýrt og notandi velur sveitarfélag og fær fullbúna sundurliðun á útgjöldum, tekjum, skuldum, lýðfræði og þróun síðustu rúmlega tveggja áratuga.Síðara mælaborðið gerir notendum kleift að leita beint í 1,1 milljón greiðslna sem Reykjavíkurborg hefur innt af hendi frá 2014 til 2025. Heildarútgjöld borgarinnar á tímabilinu eru rúmir 1.018 milljarðar króna. Hægt er að velja birgja, svið, deild, ÍSAT-atvinnuflokk, tegund kostnaðar eða tímabil - og rýna í einstaka birgja með nákvæmri sundurliðun eftir árum og sviðum. Mælaborðið byggir á sömu hönnun og opnir reikningar ríkisins sem samtökin gáfu út fyrr á árinu og hafa verið vinsælasta efni okkar.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#28 - Sveitastjórnir og samsærið gegn skattgreiðendum 29.04.2026 22mSveitarstjórnarkosningar eru fram undan en víðast hvar eru skattstofnar keyrðir í botni. Hvergi þó eins og í stærsta sveitarfélaginu, sjálfri höfuðborginni. Kjartan Magnússon hefur áratugareynslu af setu í borgarstjórn Reykjavíkur og þekkir vel sögu skattahækkana og útþenslu borgarbáknsins. Hann er gestur Skattaspjallsins í dag. Eiga skattgreiðendur einhverja möguleika þegar kjörnir stjórnmálamenn og embættismenn snúa bökum saman um að stækka báknið? Líklega ekki, en Kjartan rekur þessa sögu í Reykjavík og fer yfir nokkur dæmi um hvernig löggjafinn hefur sett af stað ferli sem skilar sér í gríðarlegum hækkunum til borgaranna. Er þetta sjálfvirkt ferli kostnaðar- og skattahækkana eða er þetta samsæri gegn skattgreiðendum?Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#27 - Velferðarkerfið á krossgötum 16.04.2026 25mÍ dag renna um 53 prósent allra ríkisútgjalda til velferðarmála, svo sem örorku- og atvinnuleysisbóta, málefna fjölskyldna og aldraðra, auk heilbrigðisþjónustu, en þetta hlutfall var um 46 prósent í upphafi aldarinnar. Slík útgjöld eru líkleg til að vaxa hratt á næstu árum vegna öldrunar þjóðarinnar sem og vegna aukinnar þátttöku íbúa af erlendum uppruna í hinum ýmsu bótaflokkum velferðarkerfisins. Þessi þróun getur teflt fjárhagslegri sjálfbærni íslenska velferðarkerfisins í tvísýnu. Hver eru áhrif íbúa af erlendum uppruna á kostnað íslenska velferðarkerfisins?Til að ræða þetta kemur dr. Kristinn Sv. Helgason, sérfræðingur í opinberri stefnumótun og fyrrverandi starfsmaður Sameinuðu þjóðanna, í Skattaspjallið að þessu sinni. Kristinn hefur víðtæka reynslu eftir að hafa starfað víða um heim, lengst af við kostnaðargreiningar vegna þróunarmála. Hann hefur mikilvæga innsýn í hvert stefnir á Íslandi.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#26 - Þversögn í sölu ríkisins á áfengi 01.04.2026 26mSkattgreiðendur landsins hljóta stöðugt að spyrja sig hvar verkefni ríkisins eigi að vera og hvort réttlætanlegt sé að greiða niður starfsemi sem einkaaðilar geta sinnt, oft með það á vörum að það sé „skynsamlegt“ fyrirkomulag eða stutt „lýðheilsusjónarmiðum“. Það á sannarlega við um sölu ríkisins á áfengi í gegnum verslunarrekstur ÁTVR sem í dag rekur 53 smásöluverslanir með áfengi, allar með tapi. Gestur Skattaspjallsins að þessu sinni er ötull baráttumaður gegn ríkisrekstri og sóun fjármuna skattgreiðenda. Arnar Sigurðsson, eigandi og stofnandi vínbúðarinnar Sante, þekkir vel að eiga við einokunarstöðu ríkisins. Arnar ræðir þá baráttu sem sjálfstæðar vínbúðir standa í við hið opinbera en um leið ætlar hann að fara yfir dulda skattheimtu og sóun opinberra fjármuna. Arnar liggur ekki á skoðunum sínum og alltaf fræðandi að hlusta á hann.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#25 - Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti? 18.03.2026 20mSamtök skattgreiðenda hafa sent Fjársýslunni og Fjármálaráðuneytinu erindi þar sem samtökin bjóðast til þess að taka að sér að birta öll opinber gögn um allar greiðslur hins opinbera, skattgreiðendum að kostnaðarlausu. Þetta gerist um leið og annað mælaborð Samtaka skattgreiðenda hefur verið birt, en að þessu sinni er um að ræða betrumbætt viðmót á opna reikninga ríkisins (opnirreikningar.is). Komið hefur í ljós að þrátt fyrir fögur fyrirheit er hinu opinbera ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti – alltaf þarf að fela eitthvað fyrir skattgreiðendum. Í Skattaspjalli við þá Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason, sérfræðinga Samtaka skattgreiðenda, er farið yfir þessa sögu.Samtök skattgreiðenda fá mikinn fjölda ábendinga um hvernig megi fara betur með opinbert fé og einnig berast upplýsingar um umdeilanlega gjörninga. Þannig var upplýst að ein og sama manneskjan hefur fengið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála þrjú ár í röð um leið og viðkomandi hafi tilkynnt um framboð sitt í komandi borgarstjórnarkosningum. Það undarlega er að þessi verkefni lúta að því að auka kosningaþátttöku innflytjenda sem setur frambjóðandann í óheppilega stöðu.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#24 - Hagræðing og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis 04.03.2026 25mHver heldur hagsmunum skattgreiðenda á lofti í sölum Alþingis þegar flestir flokkar styðja aukna útþenslu ríkisins og skattahækkanir? Fjárlagafrumvarpið var samþykkt með hvorki meiri né minni en 143 milljarða hækkun á fjárheimildum milli ára. Þetta jafngildir 9% hækkun en skattar eru hækkaðir um rúmlega 30 milljarða króna en ríkissjóður afgreiddur með 28 milljarða halla. Skattgreiðendur framtíðarinnar fá sinn reikning því skuldir aukast. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir settist inn á þing fyrir Miðflokkinn að loknum síðustu kosningum og hefur gert sig að eindregnum talsmanni hagræðingar og sparnaðar í ríkisrekstri. Í Skattaspjallinu í dag ræðir Nanna Margrét hvernig það er að berjast við allt að því sjálfvirka útgjaldaþörf ríkisins og hvernig það er að orða hagræðingu og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#23 - Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði? 18.02.2026 31mSamspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og annarra opinberra stuðningskerfa er flókið og verður í raun stöðugt flóknara. Yfirsýn er því lítil og um margt skortir heildstæða gagnasöfnun sem varð til þess að sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, þeir Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hafa tekið saman mikið yfirlit um það hvort að Íslendingar hafi yfirhöfuð efni á að vera á vinnumarkaði? Niðurstaða þeirra er að það skorti fullkomlega á yfirsýn og að endurskoða þurfi bótakerfin frá grunni, án aðkomu stofnana og sérfræðingastétta sem staðið hafa fyrir hönnun núverandi kerfis. Þá kemur í ljós að kjör öryrkja eru mjög ólík eftir kyni og fjölskyldugerð. Öll umræða um kjör öryrkja sem ekki tekur tillit til fjölskyldubóta missir því marks.Sláandi niðurstöður úr kerfinu sýna að til að ná sömu ráðstöfunartekjum eftir húsnæðiskostnað og einstæð þriggja barna móðir á örorku þarf þriggja barna einstæð móðir á vinnumarkaði að hafa um 1,4 milljónir á mánuði í heildartekjur. Gríðarlegur fjárhagslegur hvati er því fyrir foreldra barna að komast á örorku en þó sérstaklega fyrir einstæðar mæður.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#22 - Peningar skattgreiðenda út í loftið 04.02.2026 22mTekjur af sköttum tengdum loftslagsmálum aukast jafnt og þétt, bæði hér á landi og í Evrópusambandinu. Í haust fékk þingmaðurinn Karl Gauti Hjaltason svar við fyrirspurn þar sem hann spurði um þá fjármuni sem veitt er til loftslagsmála árlega. Svarið sem Karl Gauti fékk var á margan hátt ófullnægjandi en þó eru ýmsar tölur þar sláandi. Upplýst var að á tímabilinu 2017 til 2024 hefðu runnið 144 milljarðar króna til loftslagsmála eða rúmlega 20 milljarðar á ári. Um leið var sagt að áætlanir gerðu ráð fyrir að á næstu fimm árum verði enn gefið í og upphæðin verði rúmlega 113 milljarðar. En í hvað fara peningarnir? Um það er heldur fátt um svör. Karl Gauti kemur í Skattaspjallið og ræðir flæði lofts og peninga.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#21 - Hættumerki í velferðarkerfinu 21.01.2026 24mMiklar breytingar hafa orðið á velferðarkerfinu á undanförnum áratug en nú er svo komið að fjórða hver kona á vinnualdri þiggur örorkubætur. Róbert Bragason, sérfræðingur hjá Samtökum skattgreiðenda, kemur í Skattaspjallið til að rýna í tölur úr velferðarkerfinu og við ræðum hvernig breytingar á samfélaginu birtast í gegnum útgjöld þar. Nýjar upplýsingar sýna að hlutfall Íslendinga af báðum kynjum á vinnualdri sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri hækkar úr 13% árið 2012 í 18% árið 2025. Þar munar um mest að hlutfall kvenna á vinnualdri, sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri, fer úr 17% í 23% á sama tímabili og hlutfall karla úr 10% í 13%.Þá hefur fjöldi einstaklinga með erlendan bakgrunn sem fá endurhæfingar- eða örorkulífeyri sexfaldast frá árinu 2012 en sé litið til kvenna eingöngu hefur fjöldinn sextánfaldast á sama tíma. Þessar tölur vekja athygli en ekki síður sú staðreynd að framkvæmdavaldið veitir ekki upplýsingar um barnalífeyrisgreiðslur í nýlegu svari til þingmanns. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#20 - Áramótaglaðningur til skattgreiðenda 07.01.2026 28mStjórnendur í atvinnulífinu fá gjarnan glaðning frá skattayfirvöldum um áramót þegar skattar og gjöld hækka og nýr veruleiki blasir við. Hermann Guðmundsson, forstjóri og stofnandi verslunarfyrirtækisins Kemi, er einn harðasti talsmaður einkaframtaksins hér á landi. Hann er gestur Skattaspjallsins í dag og ræðir aukna skattheimtu, vaxandi ríkisumsvif og þverrandi mátt í atvinnulífinu. Hermann telur að það séu miklar áskoranir framundan fyrir viðskiptalífið og kallar eftir því að ríkisstjórnin sýni að henni sé alvara þegar kemur að hagræðingu og sparnaði í ríkisrekstri. Hermann segir það áhyggjuefni hve umsvif hins opinbera aukist nánast sjálfkrafa og að ekki sé hugað nægilega að öðrum lausnum þegar kemur að verkefnum ríkisins, svo sem einkarekstri.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#19 - Guðspjall skattgreiðenda 24.12.2025 37mSkattgreiðendur fengu sannarlega kartöflu í skóinn þegar fjárlagafrumvarpið var samþykkt með hvorki meiri né minni en 143 milljarða hækkun á fjárheimildum milli ára. Þetta jafngildir 9% hækkun en skattar eru hækkaðir um rúmlega 30 milljarða króna og ríkissjóður afgreiddur með 28 milljarða halla. Skattgreiðendur framtíðarinnar fá sinn reikning því skuldir aukast um 82 milljarða á næsta ári. Því má spyrja hvort barátta Samtaka skattgreiðenda sé til einhvers? Til að ræða það kemur Skafti Harðarson, formaður Samtaka skattgreiðenda, í Skattapjallið nú þegar jólin eru að koma. Skafti segist oft vera spurður að því hvort baráttan fyrir lækkun skatta og minni ríkisumsvifum sé ekki harla tilgangslítil. Hann bendir á að hugsanlega væri ástandið enn verra ef ekki væri fyrir baráttu þeirra sem þó reyna að andæfa sjálfvirkri aukningu ríkisútgjalda. Í spjalli við Sigurð Má Jónsson fer Skafti yfir það sem hefur gerst hjá Samtökum skattgreiðenda sem hafa eflst mjög undanfarið. Um leið bendir hann á að mikil vinna sé framundan í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Það er því mikilvægt að hlusta á jólaguðspjall skattgreiðenda.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#18 - Hitinn hækkar hjá skattgreiðendum 16.12.2025 31mGrænir skattar hafa aukist jafnt og þétt undanfarin ár og skattheimta undir merkjum loftslagsmála hvílir þungt á einstaklingum og atvinnulífinu. Um leið rísa stofnanir og félagasamtök verða til sem taka við þessum fjármunum, oft undir heldur óljósum formerkjum. Frosti Sigurjónsson rekstrarhagfræðingur hefur gefið út bókina Hitamál sem hefur vakið mikla athygli. Hann er gestur Skattspjallsins í dag og fer yfir þá skattheimtu sem fer fram undir merkjum loftslagsmála og hvernig óviss vísindi eru látin styðja við aukna skattheimtu. Loftslagshópur Samtaka skattgreiðenda heldur því áfram að spyrja gagnrýnna spurninga. Þegar spurt er um kostnað vegna loftslagsaðgerða koma almenn og ógreinileg svör en verkefnisstjórn loftslagsaðgerða á að skila framvinduskýrslu árlega en hefur sleppt því árin 2023 og 2024. Síðasta skýrsla verkefnisstjórnarinnar kom út árið 2022. Frosti fer yfir þetta allt saman í þættinum.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#17 - Loftslagsskattar út í bláinn og börn án blóðbanda 27.11.2025 24mHvað kosta loftslagsskattar og -gjöld skattgreiðendur landsins? Það er eins og enginn viti það almennilega og þegar fyrirspurnum er beint að ríkinu verður fátt um svör. Til að ræða þetta koma þeir Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson, sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, í settið. Ætlunin er að setja á stofn loftslagshóp Samtaka skattgreiðenda og því beina þeir til þeirra hlustenda sem hafa áhuga á eða þekkingu á loftslagsmálum að vera í hópi á vegum samtakanna um loftslagsmál sem stefnt er á að hittist reglulega. Þegar spurt er um kostnað vegna loftslagsaðgerða koma almenn og ógreinileg svör en verkefnisstjórn loftslagsaðgerða á að skila framvinduskýrslu árlega en hefur sleppt því árin 2023 og 2024. Síðasta skýrsla verkefnisstjórnarinnar kom út árið 2022. Komið hefur í ljós að á annan tug barna sem komið hafa til landsins á grundvelli fjölskyldusameiningar eru eða hafi verið í forsjá yfirvalda eftir að í ljós kom að börnin hafi engin blóðtengsl við þá einstaklinga sem þau eru hér að sameinast. Ótrúlegt mál en Samtök skattgreiðenda eru með útistandandi fyrirspurnir og gagnabeiðnir frá því í sumar vegna þessara útgjalda sem Barna og fjölskyldustofa hefur ekki svarað enn þrátt fyrir ítrekanir.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#16 - Stærð ríkisins og þjáning skattgreiðandans 14.11.2025 29mHver eru mörk ríkisútgjalda og hvað eiga einstaklingar að fá að halda eftir af sjálfsaflafé sínu. Þegar einhver andhæfir gegn útgjöldum hins opinbera er sá hinn sami gjarnan spurður hvort hann vilji ekki mennta börnin, lækna sjúka eða sinna öldruðum. Því er þá gjarnan bætt við að menn eigi ekki að láta peningana taka völdin þegar aðrir eru að reyna að byggja upp manneskjulegt samfélag. Oftast er það þó þannig að þeir sem mest tala um mennsku og manneskjulegt samfélag eru þeir sem vilja stunda mesta tilfærslu fjármuna í samfélaginu og þá auðvitað hafa sjálfa sig í miðju þessu millifærslukerfi. Þegar við ræðum stærð og umfang hins opinbera erum við oft að ræða heimspekilegar spurningar og fáir eru betri til að svara því en Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og virkur þátttakandi í stjórnmálaumræðum á Íslandi um langt árabil. Hannes er kunnur að eindregnum stuðningi við frjálshyggju og hefur manna mest lagt sig eftir því að ræða hlutverk ríkisvaldsins og stærð þess. Hannes er gestur Skattaspjallsins í dag.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#15 - Skaflajárn á skattgreiðendur? 04.11.2025 15mEnn á ný ræðum við hvað skattgreiðendur fá fyrir peninginn! Nýlega skall á íbúa höfuðborgarsvæðisins mikill snjóstormur og til að umferðin gangi áfallalaust fyrir sig þurfti að ryðja götur og moka snjó. Getur verið að kostnaður við snjómokstur hafi margfaldast á föstu verðlagi hjá einstaka sveitarfélögum? Finnst fólki að það skili sér í betri þjónustu? Til að ræða þetta koma þeir Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson, sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, í settið en þeir hafa safnað saman upplýsingum úr bókhaldi sveitarfélaganna sem dregur fram athyglisverða þróun í útgjöldum vegna snjómoksturs. Um leið eru Samtök skattgreiðenda að vinna að nýju mælaborði sem sýnir í hvað útsvarsgreiðslur skattgreiðenda fara. Gamla mælaborðið úr reikningum ríkisins er til umræðu en fljót leit þar dregur fram allan sannleikann um gríðarlega útgjaldaaukningu hjá umtalaðasta embætti landsins, embætti Ríkislögreglustjóra. Allt um það í þættinum.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á upplysingar@skattgreidendur.is
-
#14 - Er bíllinn þarfasti skattgreiðandinn? 15.10.2025 25mEr bíllinn þarfasti skattgreiðandinn? Það er erfitt að segja en Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, skildi eftir 8 milljarða króna gat þegar fjárlögin voru kynnt sem að bílaeigendum er ætlað að brúa. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, er gestur Skattspjallsins í dag en FÍB hefur gagnrýnt áform fjármálaráðherra harðlega og telur að sem fyrr sé verið að færa óeðlilegan kostnað yfir á bifreiðaeigendur. Runólfur segir að FÍB sé fylgjandi þeirri meginhugsun að bíleigendur greiði í samræmi við afnot af vegakerfinu, að teknu tilliti til loftslagsmarkmiða stjórnvalda. FÍB telur eðlilegt að gjaldið miðist við þyngd og koltvísýringsútlosun ökutækja sem endurspeglar slit á vegum og umhverfisáhrif. Vel undirbúið kílómetragjald sem tryggir jafnræði greiðenda er einföld og hagkvæm leið til þess en hann telur að framkvæmdin mótist því miður af ráðaleysislegri og óskilvirkri stjórnsýslu.Nánari upplýsingar eru á skattgreidendur.isHægt að er að fylgjast með starfi samtakanna og skrá sig á póstlista á skattgreidendur.is og með því að fylgja samtökunum á Facebook eða X.Samtökin reiða sig á frjáls framlög einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að styrkja starf samtakanna hér: skattgreidendur.is/styrkja
-
#13 - Listin að láta aðra borga 01.10.2025 20mUmræða um útgjöld ríkisins til menningar og listar getur komið róti á marga eins og nýleg úttekt Samtaka skattgreiðenda á ritlaunum listamanna undanfarin 25 ár sýndi. Mikil umræða fór af stað um úttektina og sýndist sitt hverjum. Úttekt samtakanna var unnin upp úr opinberum gögnum frá Rannís og því var eingöngu um opinberar tölur að ræða. Af hverju kemur slík samantekt jafn illa við marga? Er ekki eðlilegt að fjalla um útgjöld sem þessi? Til að ræða þetta koma þeir Róbert Bragason og Arnar Arinbjarnarson, sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, í settið. Margir hafa fagnað úttektinni og hvatt til þess að samtökin haldi áfram að skoða útgjöld til menningar og lista með slíkum hætti. Þá verður farið yfir þær úttektir sem eru í gangi á vegum samtakanna en fjölmargar upplýsingafyrirspurnir eru nú til meðhöndlunar hjá hinu opinbera. Það verður spennandi að sjá hvaða svör sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda fá. Nánari upplýsingar eru á skattgreidendur.isHægt að er að fylgjast með starfi samtakanna og skrá sig á póstlista á skattgreidendur.is og með því að fylgja samtökunum á Facebook eða X.Samtökin reiða sig á frjáls framlög einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að styrkja starf samtakanna hér: skattgreidendur.is/styrkja
-
#12 - Ragnar Árnason 17.09.2025 28mHvert er hlutverk hins opinbera í hagkerfinu og hvernig hefur það þróast í gegnum tíðina? Til að ræða þetta kemur Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, í Skattaspjallið til Sigurðar Más Jónssonar. Ragnar ætti ekki að þurfa að kynna en hann hefur verið farsæll og virtur fræðimaður og áberandi álitsgjafi í þjóðfélagsumræðunni. Ragnar fer í spjallinu yfir hvaða áhrif umsvif hins opinbera hafa á frelsi fólks, heimila og einstaklinga og hvað fræðin segja um vaxandi ríkisumsvif í hagkerfum og þá sérstaklega á Íslandi. Einnig fer Ragnar yfir það hve afskaplega léleg skilvirkni hins opinbera er þegar kemur að ráðstöfun opinbers fjár. Hvað kostar það samfélagið? Þá fer hann yfir þróun í hlutdeild hins opinbera af vergri landsframleiðslu. Árið 1945 tók hið opinbera til sín 19% en á síðasta ári var hlutfallið komið upp í 47% af VLF. Hvaða áhrif hefur það og eru skattgreiðendur að fá allt fyrir peninginn? Nánari upplýsingar eru á skattgreidendur.isHægt að er að fylgjast með starfi samtakanna og skrá sig á póstlista á skattgreidendur.is og með því að fylgja samtökunum á Facebook eða X.Samtökin reiða sig á frjáls framlög einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að styrkja starf samtakanna hér: skattgreidendur.is/styrkja
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.