38 umferðir

38 umferðir

38umferdir
Country Iceland
Genres Sports, Soccer
Language IS
Episodes 44
Latest 18.11.2026

38 umferðir er íslenskt hlaðvarp um Fantasy Premier League (FPL) í enska boltanum. Þáttastjórnendurnir Albert Guðmundsson og Sindri Kamban fjalla um draumaliðsleikinn, gefa ráð og ræða stöðuna í deildinni. Þættirnir fjalla um helstu atriði og brellur fyrir þátttakendur.

Episodes

  • Þú býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít
    Þú býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít 18.11.2026 1h 22m
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 11. umferð. Einar tæknimaður frá Livey kynnti nýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
  • Wayne Gretzky þekkir ekki Thierno Barry
    Wayne Gretzky þekkir ekki Thierno Barry 11.11.2026 1h 38m
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu til að kryfja 10. umferð og gefa hlustendum góð ráð farandi inn í landsleikjahléið. Einar tæknimaður frá Livey kynnti splúnkunýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd. Fotbolti.net er með draumaliðsdeild fyrir lesendur þar sem er til mikils að vinna. Fyrstu verðlaun innihalda 100 þúsund kr. gjafabréf upp í ferð á enska boltann með Visitor, 12 rútur af Thule, treyju frá Boltamanninum, gjafabréf á Bullseye og gjafabréf á Matarkjallarann. Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x...
  • Pálínuboð
    Pálínuboð 04.11.2026 1h 23m
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Sindri fékk frábæran gest í fjarveru Alberts. Hann og Pálína Njarðvík (farmlifeiceland) tylltu sér í Coke Stúdíóinu en Pálína er Frábær fantasy spilari og hefur farið vel af stað þetta tímabilið.
  • Aldrei treysta João Pedro
    Aldrei treysta João Pedro 27.10.2026 1h 38m
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við Joao Pedro og lögðu drög að 9. umferð.
  • Engilbert Aron special
    Engilbert Aron special 21.10.2026 1h 28m
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt fyrsta gesti vetrarins sem var enginn annar en Engilbert Aron fyrrum þáttastjórnandi Fantabragða. Engilbert Aron mætti í þáttinn á hentugum tíma þar sem hann átti frábæra umferð og fékk heil 97 stig. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 7. umferð, meistaradeildina og lögðu drög að 8. umferð.
  • Er of seint að kaupa De Cuyper?
    Er of seint að kaupa De Cuyper? 15.10.2026 1h 12m
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag
  • Wildcard og vítamín
    Wildcard og vítamín 07.10.2026 1h 29m
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Ingling, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
  • Er Thierno Barry næsti Thierry Henry?
    Er Thierno Barry næsti Thierry Henry? 23.09.2026 1h 18m
    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu.
  • Pascal engan undra hversu góður Groß er í Fantasy
    Pascal engan undra hversu góður Groß er í Fantasy 16.09.2026 1h 14m
    Uppgjör á 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Er The blue man group Þríeykið í Chelsea ómissandi, Er einhver Wissa í Newcastle liðinu og er nóttin ennþá ung fyrir þau okkar sem erum í sætum sem telja 6 tölustafi.
  • Kominn tími á að Hull fái á sig mörk
    Kominn tími á að Hull fái á sig mörk 09.09.2026 1h 23m
    Þeir Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og ótrúlega frammistöðu Hull City.
  • Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
    Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu? 02.09.2026 1h 24m
    Er hægt að selja Bruno eftir svona frammistöðu? Barcola, er það eitthvað? Og Verða Chelsea meistarar eftir að Martinez er kominn á milli stangana? Albert og Sindri leituðu meðal annars svara við þessum spurningum ásamt því að fara heilt yfir stöðuna í síðasta degi leikmannagluggans.Fresturinn til að gera breytingar fyrir umferð 3 er á föstudaginn kemur kl. 17:30 en umferðin hefst á leik Ipswich og Liverpool kl 19:00 á föstudagskvöld
  • Chelsea kom, João og sigraði
    Chelsea kom, João og sigraði 26.08.2026 1h 20m
    Albert og Sindri tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta sætið í fyrstu umferð náði sér í 102 stig hvorki meira né minna. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule léttöl, Visitor, Bullseye, Boltamaðurinn, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn. Taktu þátt í fantasy deild 38 umferða og fótbolta.net - Kóðinn er 10k1ov
  • Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag
    Síðasti upphitunarþátturinn áður en fantasy fer af stað á föstudag 18.08.2026 1h 26m
    Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov Þriðji þátturinn af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á helstu leikmönnum sem þeir eru að íhuga fyrir umferð 1 og fóru yfir liðin sín eins og þau líta út í dag, þó vissulega muni margt breytast þar þangað til fresturinn til að gera breytingar rennur út kl 17:30 á föstudag.Kóðinn í Fantasy deild 38 umferða x Fótbolta.net: 10k1ov
  • Haaland, eða ekki Haaland, þarna er efinn...
    Haaland, eða ekki Haaland, þarna er efinn... 12.08.2026 1h 34m
    Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á öllum 20 liðunum í deildinni og fóru yfir tvær mismunandi uppstillingar hvor sem þeir sjá fyrir sér að stilla upp í fyrstu umferð, eitt lið með Haaland og eitt lið án Haaland.Einnig tilkynntu félagarnir um gjafaleik sem er að fara af stað á Instagram og Tiktok miðlum 38 umferða. Glæsilegir vinningar frá Happatreyjum, Thule, Bullseye og Matarkjallaranum. Samstarfsaðilar 38 umferða eru Thule, Visitor, Bullseye, World Class, Íslenski barinn og Matarkjallarinn.
  • 38 umferðir framundan
    38 umferðir framundan 06.08.2026 52m
    Í fyrsta þætti tímabilsins settust strákarnir niður í Coke stúdíóinu og kynntu reglur leiksins fyrir hlustendum og fóru yfir sín fyrstu viðbrögð við breytingum leiksins í ár og verðlagningu lykilleikmanna. Félagarnir ræddu helstu félagsskiptin í enska boltanum sem munu hafa áhrif á komandi tímabil og helstu orðróma sem gætu fengið spilara til að endurskoða sína taktík fyrir tímabilið.
  • Lokauppgjör
    Lokauppgjör 26.05.2026 1h 24m
    Þá eru tímabilinu lokið og Albert og Sindri mættu í stúdíóið til að horfa yfir farin veg.
  • 38. umferðum síðar
    38. umferðum síðar 22.05.2026 1h 19m
    Þeir segja að þetta sé ekki búið fyrr en feita konan syngur, og þrátt fyrir að Arsenal hafi orðið sófameistarar í síðustu umferð þá hefur hún ekki upp raust sína fyrr en á næstkomandi sunnudag.
  • Tími til kominn að taka sénsa.
    Tími til kominn að taka sénsa. 14.05.2026 51m
    Nú þegar það eru bara tvær umferðir eftir af tímabilinu ræddu Albert og Sindri um hvaða lið hefðu eitthvað til að spila uppá og hvað lið væru mætt á ströndina.
  • Þessi tvöfalda umferð er tálsýn
    Þessi tvöfalda umferð er tálsýn 06.05.2026 42m
    Tvöföld umferð er yfirleitt fagnaðarefni í fantsy-heimum en er komandi tvöfalda umferð tálsýn ein?
  • Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial)
    Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial) 29.04.2026 1h 14m
    Albert fékk engan annan en Gunnar Hilmar Kristinsson eða Gunna bombu í settið til að taka stöðuna á milli 34. og 35. umferðar.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.