Spor
RÚV Hlaðvörp
0
Spor er íslenskur hlaðvarpsþáttur þar sem Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og leitar í hversdeginum að sannleikskornum um hver við erum í dag. Í þættinum kynnist hún alls konar fólki og spyr tilvistarspurninga um spor í nútíð, fortíð og framtíð – sporin sem við skiljum eftir okkur og sporin sem heimurinn markar í okkur. Fjallað er um tækni, vísindi, umhverfið, samtímann og söguna. Hlusta má á þáttinn í hlaðvarpi RÚV.
Episodes
-
Fólkið sem hætti með snjallsímanum 18.11.2026 57mFlest viljum við verja minni tíma í símanum en gengur það upp í nútímasamfélagi að losa sig við hann? Geta foreldrar ungra barna skipt yfir í takkasíma? Í þættinum kynnumst við fólki sem hefur sagt skilið við snjallsímann. Við rýnum í samfélagsleg áhrif snjallsímans, hugmyndir og andóf en líka tísku og nostalgíu ungs fólks fyrir árunum í kringum 2000. Viðmælendur í þættinum eru Ágúst Elí Ásgeirsson, nemi í ritlist við Háskóla Íslands, Kristjana Ellen Úlfarsdóttir, nemi í íslensku við sama skóla, Magnea Steiney Þórðardóttir, félagsráðgjafi og kennari, Ármann Elías Jónsson, kennari og uppeldis o... -
Ég veit alltaf hvar þú ert! 04.11.2026 57mSífellt fleiri fylgjast með staðsetningu fjölskyldumeðlima sinna í rauntíma í gegnum öpp á borð við Life 360. Börn fylgjast með foreldrum og foreldrar með börnum, fólk rekur ferðir náinna ættingja eða vina, jafnvel ókunnugs fólks. Hvaða áhrif hefur þessi þróun á okkur og samskipti okkar hvert við annað? Er vöktunin praktísk, jafnvel nauðsynleg í hættulegum heimi eða erum við að verða hálfgerðir eltihrellar?Í þættinum prófar Arnhildur Hálfdánardóttir, þáttastjórnandi Þessa nútímalífs, appið og ræðir við Írisi Eik Ólafsdóttur, fjölskyldufræðing og réttarfélagsráðgjafa, þær Bergþóru Hildi Andradó... -
Föstudagar fortíðar: „Það er ágætt að lenda í kulnun fjórtán ára, þá lendir maður ekki aftur í því“ 21.10.2026 56mKrakkarnir sem mótmæltu aðgerðaleysi í loftslagsmálum á Austurvelli vikum, mánuðum, jafnvel árum saman eru orðnir fullorðnir. Hvaða augum líta þau þátttöku sína í Loftslagsverkfallinu nú? Sjá þau eftir einhverju? Í þættinum skoðum við loftslagsverkföllin á Íslandi í baksýnisspeglinum og heyrum sögur þeirra Idu Karolinu Harris og Egils Hermannssonar sem bæði tóku virkan þátt í umhverfishreyfingunni og loftslagsverkföllum á vegum Föstudaga fyrir framtíðina. Þetta er saga af hlýnun jarðar og kulnun mótmælahreyfingar. Í þættinum er einnig rætt við Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við H... -
Allt sem ég lærði á því að vinna fyrir algóriþmann 07.10.2026 55mHvernig er að vinna í gigghagkerfinu, harkhagkerfinu, nú eða úllen dúllen doff hagkerfinu? Hagkerfi þar sem ófyrirsjáanlegur algóriþmi ræður því hver fær verkefni og hver ekki? Getur algóriþmi verið sanngjarn? Hvað getur talist vinna og hvað er bara hangs? Í þættinum kynnumst við veruleika Wolt-sendla á Íslandi, sérstaklega honum Mani sem rúntar með okkur um götur Reykjavíkur, segir okkur frá starfi sínu fyrir Wolt, áhyggjum og framtíðardraumum, já og því hvers vegna sendlarnir hanga svona oft í Fellsmúlanum. Við ræðum við forsvarsmann Wolt á Íslandi og í Noregi, nýkjörinn talsmann Wolt-sendla... -
Verði þinn greiðsluvilji 23.09.2026 57mHvaða þýðingu hefur það fyrir neytendur og fyrirtæki að verð séu orðin sérsniðin? Hvers eiga unglingar og fólk í viðskiptaferðum að gjalda? Í þættinum skoðum við heim verðlagningar sem er að breytast hratt. Það er ekki lengur eitt verð, það eru mörg verð. Viðmælendur í þættinum: Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum.Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarseturs HR í markaðsfræði og neytendasálfræði.Þórarinn Stefánsson, framkvæmdastjóri Mobilitus og stjórnarmaður í Neytendasamtökunum. **... -
Óreiðan sem gerir okkur brjáluð 16.09.2026 55mHvers vegna fær sumt fólk kikk út úr því að losa sig við mörg hundruð hluti á einu bretti á meðan aðrir upplifa djúpa vanlíðan við að henda einum hlut?Umsýslan með hlutunum sem við eigum er orðin stór partur af annarri og þriðju vaktinni, markaðsöflin eru búin að kveikja á perunni og það fjölgar í hópi skipuleggjara sem bjóðast til að hjálpa fólki við að ráða fram úr draslinu á heimili sínu.Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk um mannlegt eðli og það að losa sig við hluti.Viðmælendur í þættinum:Arnrún Árnadóttir skipuleggjariMarkús Þórhallsson fr... -
Þegar búslóðin fuðrar upp 01.09.2026 51mHvers virði eru efnislegir hlutir? Afhjúpar það að missa alla búslóðina á einu bretti eitthvað um þýðinguna sem hlutir hafa fyrir okkur? Nær maður sér af slíku? Í þættinum ræðir Arnhildur Hálfdánardóttir, frétta- og dagskrárgerðarmaður, við fólk sem missti stóran hluta veraldlegra eigna sinna í stórbrunanum í Geymslum árið 2018 í þeim tilgangi að skilja betur mannlegt eðli og mikilvægi hlutanna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.