Víðsvegar
RÚV Hlaðvörp
0
Gígja Hólmgeirsdóttir ferðast um Ísland og heimsækir bæði þéttbýli og dreifbýli, borgir og smærri bæi. Á hverjum stað kynnist hún fólkinu sem þar býr og tekur fyrir ýmis málefni sem skipta íbúana máli. Þættirnir gefa þannig heildstæða mynd af lífinu og málefnum víðsvegar um landið. Um er að ræða hlaðvarp frá RÚV.
Episodes
-
Hvernig nýtum við skógana okkar? 19.11.2026 49mSkógar á Íslandi hafa vaxið mikið á undanförnum árum og innan skamms gæti farið að myndast öflugur iðnaður í kringum þá. En hvernig nýtum við skógana í dag og hvað ber framtíðin í skauti sér?Viðmælendur: Hreinn Óskarsson, sviðstjóri hjá Landi og skógum.Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga.Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrabretta.Magnús Þorsteinsson, sölu- og innkaupastjóri Tandrabretta og skógarbóndi.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Öskjuhlíðartimbrið: Saga þess og örlög 12.11.2026 49mByrjað var að fella tré á afmörkuðu svæði í Öskjuhlíð í byrjun árs 2025 til að tryggja flugöryggi. Málið átti sér langan aðdraganda og margir fylltust söknuði þegar þeir sáu skóginn hverfa. En hver urðu örlög þessara trjáa í Öskjuhlíð? Og hver er saga skógræktar í hlíðinni?Viðmælendur:Hallgrímur Jón Hallgrímsson, yfirverkstjóri Borgarskóga hjá Reykjavíkurborg.Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandrabretta.Kári Gylfason, verkefna- og ritstjóri hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur.Hörður Guðmundsson og Jón Helgason, smiðir í Fljótsdal.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir - Rás 1. Hosted on Acast.... -
Hvað eru barnvæn sveitarfélög? 05.11.2026 50mVið kíkjum inn á Áhrifadaga ungmenna, ráðstefnu sem haldin var í Hofi á Akureyri í tilefni af tíu ára afmæli verkefnisins Barnvæn sveitarfélög. UNICEF á Íslandi hefur unnið að verkefninu í samstarfi við íslensk sveitarfélög. En hvað nákvæmlega eru barnvæn sveitarfélög? Og hvenær byrjaði þetta verkefni?Viðmælendur:Marín Rós Eyjólfsdóttir verkefnastjóri Barnvænna sveitarfélaga hjá UNICEF. Ragnheiður Alís Ragnarsdóttir ungmennaráðsfulltrúi hjá Akureyrarbæ.Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagastrandar.Auk þess heyrast stutt hljóðbrot og viðtöl við ungmenni úr ólíkum ungmennaráðu... -
Vegurinn yfir Öxi 29.10.2026 49mÍ þætti dagsins veltum við fyrir okkur Öxi, leiðinni á milli Djúpavogs og Egilsstaða. Hvaða áhrif þessi holótti og gamli malarvegur á líf ungs fólks á Djúpavogi og fjölskyldur þeirra.Við rifjum meðal annars upp þegar nemendur í 10. bekk Djúpavogsskóla lögðu af stað fótgangandi yfir Öxi einn laugardagsmorgun í apríl 2026. Flest nemendanna stefndu á framhaldsnám við Menntaskólann á Egilsstöðum og þurfa því að ferðast reglulega á milli. Með göngunni vildu þau meðal annars vekja athygli á bágu ástandi Axarvegar. En hvernig er hljóðið í þeim nú þegar þau eru byrjuð framhaldsskóla?Viðmælendur: Bergþ... -
Flakkað um Þjóðarbókhlöðuna 22.10.2026 51mVíðsvegar flakkar um Þjóðarbókhlöðuna, þessa merkilegu byggingu sem margir þekkja frá námsárum sínum. Í þættinum er spjallað við starfsfólk og gesti sem hafa alls konar sögur að segja.Umsjón Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Litið yfir farinn veg II 15.10.2026 52mRifjum upp valin brot úr ferðum Víðsvegar um landið frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Þekking að hverfa: Spjallað um torfhús í Skagafirði 08.10.2026 51mSífellt færri kunna að gera við torfhús og hvað gerist ef sú þekking hverfur alveg? Í dag kynnumst við systkinunum Sigríði Sigurðardóttur og Helga Sigurðssyni, sem ólust upp á bænum Stóru-Ökrum í Skagafirði. Þau hafa bæði lagt mikið af mörkum til varðveislu og viðhalds torfbæja. Helgi ferðast um allt land og hefur sérhæft sig í viðgerðum á torfbæjum. Sigríður var í tæp 32 ár safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, og í hennar starfstíð átti mikil uppbygging sér stað í Glaumbæ sem og hjá Byggðasafninu öllu. Sigríður hlaut á nýjársdag 2026 heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir varðveislu tor... -
Matarmenning á Akureyri 01.10.2026 51mÍ þætti dagsins flökkum við um Akureyri og spjöllum um matarmenningu staðarins, að fornu og nýju. Allt frá hefðbundnum heimilismat, að bernaissósu og frönskum á milli, yfir í fínni veitingastaði.Viðmælendur: Inga Þöll Þórgnýsdóttir, Baldvin Sigurðsson, Rakel Elín Garðarsdóttir, Þorgerður Jóhanna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Bergmann, Snæbjörn Bergmann og Reynir Gretarsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Vopnafjörður: Breskir veiðimenn, sláturhús og ferðaþjónusta 24.09.2026 50mVíðsvegar er enn á ferðalagi um Vopnafjörð, þennan nyrsta fjörð Austfjarða. Nú er ætlunin að forvitnast um sögu breskra veiðimanna í Hofsá, nýlegt sláturhús og ferðaþjónustu í uppsveitum fjarðarins. Þetta er þriðji og síðasti þátturinn í þessari Vopnafjarðarseríu, sem varð til eftir flakk um fjörðinn mánudaginn 31. ágúst.Viðmælendur: Sigríður Dóra Sverrisdóttir, Skúli Þórðarson, Gíslína Skúladóttir, Karen Hlín Halldórsdóttir og Sölvi Krisinn Jónsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Vopnafjörður: Lífið við höfnina, fótbolti og sýn sveitarstjóra á framtíðina 17.09.2026 50mVíðsvegar heldur enn til á Vopnafirði, þar sem við kynnumst staðnum og veltum fyrir okkur hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu þar að finna.Viðmælendur: Kristinn Ágústsson, Sara Líf Magnúsdóttir, Íris Edda Jónsdóttir, áhöfnin á Indriða Kristins BA 751 og Heiðar Kristbergsson.Í þættinum er spilað brot þætti Berglindar Häsler „Frá Vopnafirði til vesturheims“ frá 2009. Þar ræddi hún við Ágústu Þorkelsdóttur. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Vopnafjörður: Daglegt líf íbúa og spjall um tækifærin í framtíðinni 10.09.2026 49mFerðinni er heitið á norðausturhorn landsins, nánar tiltekið til Vopnafjarðar. Kynnumst staðnum og spjöllum við fólk á förnum vegi – og spyrjum hvernig framtíðin blasi við og hvaða tækifæri séu að finna í Vopnafirði.Viðmælendur: Stefán Guðnason, Thorberg Einarsson, Berglind Ósk Wiium, Þórhildur Sigurðardóttir, Berghildur Fanney Hauksdóttir og Kristinn Ágústsson.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Flakkað um Hrísey 10.06.2026 52mÍ dag liggur leiðin út í Hrísey í Eyjafirði. Þangað fór þáttastjórnandi Víðsvegar mánudaginn 8. júní, flakkaði um og spjallaði við fólk á förnum vegi.Viðmælendur: Peter ferðamaður frá Hollandi, Björgvin L. Pálsson, Aron Trausti Sigurbjörnsson, Dröfn Teitsdóttir, Theódóra Kristjánsdóttir, Þórunn Björk Arnórsdóttir, Ásrún Ýr Gestsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir.Þetta var síðasti þáttur Víðsvegar, í bili. Þátturinn fer nú í sumarfrí en snýr aftur í september og þá byrjar flakk okkar aftur. Og ef þið eruð með ábendingar um skemmtilega viðmælendur, sögur eða staði má alltaf senda línu á netfang... -
Litið yfir farinn veg 03.06.2026 50mÞessi þáttur er sá næstsíðasti áður en Víðsvegar fer í sumarfrí — og því ætlum við að líta yfir farinn veg og rifja upp brot úr viðtölum frá því þátturinn hóf göngu sína í byrjun mars.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Tvö verðlaunabú í Eyjafirði og framkvæmdastjóri á tímamótum 27.05.2026 53mÍ þetta skipti erum við komin í Eyjafjörð þar sem ætlunin er að forvitnast aðeins um landbúnað í firðinum. Við heimsækjum kúabúið á Espihóli og svínabúið á Sölvastöðum. Bæði þessi bú eru í Eyjafjarðarsveit en eiga það líka sameiginlegt að hafa nýlega fengið verðlaun frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar. Nautgriparæktarverðlaun ársins fóru á Espihól og svínabúinu á Sölvastöðum var veitt Hvatningarverðlaun sambandsins. Einnig er rætt við framvkæmdastjóra Búnaðarsambands Eyjafjarðar sem stendur á tímamótum. Viðmælendur: Sigurgeir B. Hreinsson, Ástþór Örn Árnason, Svana Ósk Rúnarsdóttir og Ingvi Stefán... -
Flakkað um Ólafsfjörð 20.05.2026 49mÍ þessum þætti er haldið til Ólafsfjarðar - sem er annar tveggja þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Ætlunin er að flakka um bæinn og ramba á skemmtilegt og áhugavert fólk sem getur sagt okkur frá daglegu lífi á Ólafsfirði. Við kíkjum til dæmis í fjárhús, fáum að heyra af fjölgun barna í leikskólanum, forvitnumst um lífið í menntaskólanum, kíkjum í Pálshús - eitt elsta húsið í bænum, ræðum við harðduglegan verslunareiganda sem rekur verslun sem opin er allan sólarhringinn, forvitnumst um hvað er að gerast á hafnarsvæðinu og heyrum þar af nýrri samfélagsmiðstöð og listarými. Viðmælen... -
Menning og ferðaþjónusta á Akureyri 13.05.2026 47mÍ dag lítum við inn á opna vinnustofu sem var haldin á Akureyri í byrjun maí og bar titilinn „Menning og ferðaþjónusta á Norðurlandi“. Markmiðið með viðburðinum var að styrkja samstarf og samtal milli menningar- og ferðaþjónstuaðila á svæðinu.Vinnustofan var á vegum Safnafræði við Háskóla Íslands, Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, Félags íslenskra safna og safnafólks, Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Samtaka ferðaþjónustunnar.Viðmælendur: Guðrún Dröfn Whitehead, Vera Vilhjálmsdóttir, Dagrún Ósk Jónsdóttir, Helga Nína Helgadóttir, Halldór Óli Kjartansson, Katrín Harðardóttir, Steinunn María Sv... -
Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga 06.05.2026 48mÞátturinn er að þessu sinni helgaður undirbúningi og framkvæmd sveitarstjórnarkosninga, en að því verkefni koma mörg hundruð manns.Spjallað verður við þrjá formenn kjörstjórna, á mismunandi tímapunktum í ferlinu. Þannig fáum við innsýn í verkefni kjörstjórna í ólíkum sveitarfélögum á mismunandi tímum við undirbúning kosninga. Við endum síðan þáttinn á skrifstofu landskjörstjórnar og forvitnumst um þeirra aðkomu að ferlinu.Viðmælendur: Sveinn Gestsson í Dalabyggð, Helga Eymundsdóttir á Akureyri, Sveinbjörn Eyjólfsson í Borgarbyggð og Skorradalshreppi, og Ástríður Jóhannesdóttir hjá landskjörstj... -
Fjöruferð og þörungarannsóknir 29.04.2026 51mÍ þættinum í dag förum við í fjöruferð og fáum að kynnast þörungarannsóknum við Ísland. Um miðjan apríl var haldið þörunganámskeið á vegum Hafrannsóknastofnunar. Námskeiðið var ætlað þeim sem starfa víða um land við vöktun eða rannsóknir á fjörum og grunnsævi. Við slógumst í för með þeim. Viðmælendur: Karl Gunnarsson, Svanhildur Egilsdóttir, Sindri Gíslason, Hólmfríður Jakobsdóttir, Viktor Árnason og Valtýr Sigurðason.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Flakkað á milli þriggja almenningsbókasafna 22.04.2026 53mÍ þetta skipti verður þátturinn helgaður almenningsbókasöfnum. Við flökkum á milli þriggja sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Mosfellsbæjar, Kópavogs og Hafnarfjarðar - og kynnumst bókasafninu á hverjum stað fyrir sig. Viðmælendur: Auður Halldórsdóttir og Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir á Bókasafni Mosfellsbæjar, Lísa Zachrison Valdimarsdóttir og Eyrún Ósk Jónsdóttir á Bókasafni Kópavogs, og Sigrún Guðnadóttir og Hugrún Margrét Óladóttir á Bókasafni Hafnarfjarðar.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. -
Áherslur eldri borgara fyrir kosningar 15.04.2026 52mÍ dag eru það málefni eldri borgara sem verða til umfjöllunar, nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Landssamband eldri borgara hefur tekið saman nokkrar áherslur og hvetur aðildarfélög sín til að bjóða framboðum á opna fundi. Í þættinum verður spjallað við formann landssambands eldri borgara og slegið á þráðinn til stjórnarmanna í þremur félögum eldri borgara víða um land. Viðmælendur: Björn Snæbjörnsson, Guðrún Kristín Jóhannsdóttir, Magnús J. Magnússon og Ragnheiður Hjálmarsdóttir.Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.