Fram og til baka
RÚV
0
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi ásamt hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður og fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu. Að því loknu fær hann góða gesti í Fimmuna, þar sem þeir segja frá fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra. Um er að ræða dagskrá í umsjón Felix Bergssonar í hlaðvarpsformi.
Episodes
-
Anna Bergljót Thorarensen og U-beygjur lífsins 21.11.2026 1h 57mAllir landsmenn þekkja Leikhópinn Lottu og fjölmargir leggja leið sína á aðventunni til að njóta Ævintýra í Jólaskógi. Færri vita kannski að konan á bak við þessi leikhúsævintýri er Anna Bergljót Thorarensen leikskáld og leikkona. Hún kemur í Fimmu dagsins og talar um breytingar í lífinu sem við köllum oft U-beygjur. Svo könnum við í tónlist hvað gerðist á deginum -
Diljá Pétursdóttir söngkona talar um áhrifavalda 14.11.2026 1h 57mDiljá Pétursdóttir skaust upp á stjörnuhimin íslenska poppsins þegar hún tók þátt í Eurovision í Liverpool árið 2023. Diljá hefur síðan unnið að ferli sínum sem söngkona auk þess að stunda nám í sjúkraþjálfun í Háskóla Íslands. Og nú hefur hún sent frá sér nýtt jólalag í samvinnu við Einar Örn Jónsson. Diljá kom í skemmtilega Fimmu. Svo kíkjum á það sem gerðist á deginum og tengjum við tónlistina -
Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves 07.11.2026 1h 57mFáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og fljótlega eftir það byrjaði hann sjálfur að troða upp með hljómsveitum sínum og svo sem hann sjálfur. Kaktus rifjar upp fimm hátíðir og við sögu koma írskir tvíburar, hómófóbískur túristi, John Grant og Damon Albarn og auðvitað fullt af músík. Svo kíktum við á það sem gerðist á deginum -
Ísleifur Þórhallsson og minningar frá Airwaves 31.10.2026 1h 57mÞað er hátíðartími hjá tónlistarunnendum því Iceland Airwaves stendur fyrir dyrum. Ísleifur Þórhallsson hjá Senu Live hefur haldið hátíðina með sínu fólki frá 2018 og þekkir söguna vel. Hann kom í fimmu um fimm minningar sem tengjast Airwaves og þar kom margt skemmtilegt upp úr hattinum. Hann talaði um hljómsveitir og listamenn sem hafa byrjað á pínulitlum tónleikastöðum á Airwaves en orðið risastór í kjölfarið. Covid kom við sögu og átakið sem farið var í til að ná í unga fólkið. Svo spiluðum við skemmtilega tónlist tengda hátíðinni í ár. -
Hildur Knútsdóttir rithöfundur í Fimmunni 24.10.2026 1h 57mSkugginn er nafn á nýrri bók rithöfundarins, náttúruverndarsinnans og handhafa Bjartsýnisverðlaunanna Hildar Knútsdóttur en hún var gestur Felix í fimmu dagsins. Fimman var auðvitað tengd bókmenntum og Hildur sagði frá fimm bókum sem höfðu áhrif á líf hennar. Þar kenndi margra grasa og sagan barst frá Þjóð bjarnarins mikla til Hobbitans með viðkomu í Isabel Allende. -
Katla Margrét Þorgeirsdóttir stórleikkona 17.10.2026 1h 57mEin vinsælasta leikkona landsins, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, fer á kostum þessa dagana í verki Maríu Reyndal, Svikasögum. Katla Margrét kom í Fimmu til Felix og sagði af fimm lögum sem hafa fylgt henni í gegnum lífið. Þar mátti heyra bossanova og sænska baráttusöngva og svo auðvitað Katrínu Halldóru í hlutverki Ellýjar. -
Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur 10.10.2026 1h 57mGestur dagsins í fimmunni, Eva Rún Þorgeirsdóttir, fékk á dögunum verðlaun kennd við Guðrúnu Helgadóttur fyrir nýja barnabók, Bestu vinir, sem hún skrifaði með Blævi Guðmundsdóttur. Í umsögn dómnefndar kemur fram að sagan sé vel skrifuð á góðu máli sem hæfi aldri væntanlegra lesenda. Sögupersónur séu vel skapaðar og sagan bæði spennandi og skemmtileg. Eva Rún hefur líka unnið á fjölmiðlum, m.a. í Stundinni okkar á RÚV og einnig á Stöð 2. Svo er hún líka jógakennari. Hún hefur því frá mörgu og skemmtilegu að segja. Í síðari hlutanum voru atburðir dagsins og afmælisbörn á dagskrá -
Ragnar Jónasson, lönd og leyndardómar 03.10.2026 1h 57mglæpasagnahöfundurinn Ragnar Jónasson hefur náð frábærum árangri heima og heiman og selt ótrúlegan fjölda af bókum. Þessum ferli hafa fylgt ferðalög og Ragnar segir hlustendum Fram og til baka af fimm löndum sem hafa haft áhrif á hann og líf hans. Þar kennir sannarlega margra grasa þegar við förum frá Bútan til Seychelles eyja með viðkomu í heimalandi Agöthu Christie Í síðari hlutanum hyllum við afmælisbarnið Jake Shears og heyrum sögu glyshljomsveitarinnar Scissor Sisters. -
Adda Baldurs knattspyrnuhetja 26.09.2026 1h 57mFimma dagsins er frá Öddu Baldursdóttur knattspyrnukonu og sérfræðingi sem segir okkur af fimm leikjum sem breyttu lífinu. Og þeir leikir eru sannarlega af ýmsum toga, allt frá erfiðu tapi yfir í leiki sem færðu liðinu Íslandsmeistaratitil. Svo tölum við líka um allt hitt, fjölskyldulífið og fötluð börn. Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður það sem gerðist á deginum -
Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur 19.09.2026 1h 57mÞættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu merkilega safni. Gunnar Tómas var gestur Felix í Fimmunni að þessu sinni og talaði auðvitað um fimm kvikmyndir en spjallið fór um víðan völl að vanda. -
Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin 12.09.2026 1h 57mUppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar pælingar um lífið og tilveruna og hún var gestur Felix í Fimmunni. Hún talaði um fimm uppistönd sem breyttu lífinu og þar kenndi sannarlega margra grasa, allt frá fyrsta uppistandinu í London sem reyndist mikið frægðarför yfir í versta uppistand allra tíma í matsalnum í Borgarholtsskóla. Í síðari hlutanum fjallaði Felix um það sem gerðist á deginum -
Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins 05.09.2026 1h 57mBergur Ebbi Benediktsson hefur sent frá sér nýja bók um Öld ímyndunaraflsins og hann kom í Fimmu hjá Felix og ræddi fimm tölvur sem höfðu áhrif á líf hans og fjölskyldunnar. Spjallið fór eins og vera ber um víðan völl og við sögu komu ýmis ævintýri á magnaðri ævi. Í síðari hlutanum minntist umsjónarmaður látinna snillinga, Dolly Parton, Tim Curry og Freddy Mercury en hann hefði orðið áttræður í dag. Að auki koma Harpa Þorvaldsdóttir úr hljómsveitinni Brek í spjall með nýtt lag undir hendinni -
10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST 29.08.2026 1h 57mÞennan laugardaginn í Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín þá Snorra Þór Stefánsson og Hauk Örn Brink sem saman skipa dúettinn HAUSST, en þeir gáfu út sitt fyrsta lag nú á dögunum. Við ræddum við þá um tilkomu samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum. Þá fengu umsjónarmenn þáttarins líka góða heimsókn frá þeim Söru Rut Arnardóttur og Stefáni Gunnlaugi Jónssyni frá Improv Ísland. Þau fóru í saumana á því hvað spuni er og kynntu okkur fyrir dagskrá haustins hjá grínhópnum sem fagnar einmitt 10 ára afmæli þetta árið. -
Tónaflóð og enski boltinn 22.08.2026 1h 57mÍ þessum þætti af Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín sparkspekingana Kjartan Atla Kjartansson og Kristjönu Arnarsdóttur til að ræða enska boltann sem fór af stað um helgina. Svo er Menningarnótt haldin hátíðleg um helgina og Tónaflóð, tónleikar Rásar 2, verða á sínum stað á Arnarhóli. Þar kemur fram úrvalslið tónlistarmanna, þar á meðal JóiPé og Króli, sem kíktu í stúdíó til Nönnu og Felix þar sem þau ræddu til að mynda upphaf samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum. -
Töðugjöld á Hellu og hátíðir um land allt 15.08.2026 3h 17mFram og til baka tyllti niður fæti á Töðugjöldum á Hellum í þætti dagsins en Felix hitti gesti og gangandi í Íþróttahúsinu þar sem samfélaginu var boðið í morgunmat í tilefni af hátíðinni. Hafdís Sigurðardóttir Söring og Eiríkur V Sigurðsson settust hjá honum í spjall. Við heyrðum líka í Unni Birnu Bassadóttur sem tekur þátt í Blómstrandi dögum í Hveragerði og Nanna Guðrún hringdi í Kára Viðarsson á Hellissandi en þar stendur yfir mikil sólmyrkvahátíð. Að lokum skoðuðu umsjónarmenn kvikmyndir sumarsins og hámhorf haustsins með kvikmyndablaðamanninum Oddi Ævari Gunnarssyni. -
Hinsegin gleði, Leikur einn og Hvanneyrarhátíð 08.08.2026 3h 17mHinsegin dagar ná hápunkti um helgina og settu sinn svip á lagavalið í þætti dagsins hjá Felix og Nönnu. Í tilefni hátíðarinnar fengu þau til sín tónlistarmanninn Torfa sem ætlar einmitt að koma fram á Pride balli í Gamla bíó í kvöld ásamt Páli Óskari, Álfgrími og fleiri góðum gestum. Þá leit uppistandarinn og fræðarinn Sóley Kristjánsdóttir einnig við og ræddi við þau um ferilinn og spennandi verkefni á döfinni. Þá voru auðvitað fleiri hátíðir í gangi víða um land. Umsjónarmenn þáttarins hringdu vestur á Suðureyri í Elfar Loga Hannesson sem kemur að skipulagningu hátíðarinnar Act Alone sem fe... -
Neistaflug, Innipúkinn og Unglingalandsmót UMFÍ 01.08.2026 3h 17mVerslunarmannahelgin og íslensk tónlist var í hávegum höfð hjá þeim Felix og Nönnu í þætti dagsins. Þau slógu á þráðinn hjá Maríu Bóel Guðmundsdóttur sem er stödd í Neskaupsstað þar sem Neistaflug fer fram um helgina. Þá fengu þau til sín þau Kolbrúnu Óskarsdóttur og Hrannar Mána Ólafsson, Kusk og Óvita, í hljóðver en þau ætla að koma fram á Innipúkanum í kvöld. Þar verður líka Unnsteinn Manúel og félagar í Retro Stefson en umsjónarmenn þáttarins vöktu hann með símtali í morgunsárið og fengu að heyra af stemningunni í Vestmannaeyjum þar sem hljómsveitin spilaði í gær. Svo er líf og fjör á Ungl... -
Ódysseifskviða og Bræðslan á Borgarfirði Eystri 25.07.2026 3h 17mÍ þætti dagsins voru umsjónarmennirnir Felix og Nanna á sitt hvorum enda landsins. Nanna var á sínum stað í Efstaleitinu en Felix var staddur á Borgarfirði Eystri þar sem Bræðslan fer fram um helgina. Þangað fékk hann til sín góða gesti. Hann ræddi við Ásgeir Heiðar Áskelsson, skipuleggjanda Bræðslunnar og Jódísi Skúladóttur, fyrrverandi þingmann og formann Hinsegin hátíðarinnar á Austurlandi sem fer fram þessa dagana. Þá komu ekki síður góðir gestir í hljóðverið í Efstaleitinu. Þangað fékk Nanna til sín Sigrúnu Mathiesen, kvikmyndagerðarkonu sem sagði frá upplifun sinni af setti á tökum á kvi... -
Þjóðhátíðarlögin og grasasnarnir í Jackass 18.07.2026 3h 17mÍ þessum þætti af Fram og til baka skoða Felix og Nanna hátíðir víða um land. Franskir dagar á Fáskrúðsfirði fagna 30 ára afmæli og í tilefni þess heyrðu þau í Alberti Eiríkssyni og ræddu hátíðina. Þau fengu til sín Bergsvein Arilíusson og fóru yfir árin með Pöpum sem koma fram á bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar um helgina. Það styttist í þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og í tilefni þess tóku umsjónarmenn snúning á þjóðhátíðarlögum. Þá kíkti til þeirra Margrét Júlía Ingimarsdóttir, eyjakona, sem hefur aldrei látið sig vanta í dalinn og ræddi meðal annars hvað gerir gott þjóðhátíðarlag. Að lokum... -
Heimsmeistaramótið og hátíðir um land allt 11.07.2026 3h 17mUmsjónarmenn Fram og til baka kynntu sér hátíðir á landinu og ræddu við Áskel Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Landsmóts hestamanna sem fer fram þessa helgina á Hólum í Hjaltadal. Þá fengu þau til sín söngdívurnar Selmu og Hönsu sem ræddu samstarfið í gegnum árin og sumardjassinn á Jómfrúnni. Heimsmeistaramótið í fótbolta er á allra vörum þessa dagana og til þess að ræða fótboltann kíkti meðal annars Kári Tulinius, fótboltanörd, til þeirra í stúdíó sem hefur verið að skrifa skemmtilega fótboltapistla fyrir Guardian. Að lokum kíkti blaðamaðurinn Erla María Markúsdóttir við sem hefur fylgst g...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.