Stígamóta hlaðvarpið

Stígamóta hlaðvarpið

Stígamót
Country Iceland
Language EN
Episodes 6
Latest 09.11.2026

Stígamóta hlaðvarpið er fræðsluþáttur um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi, þar sem fjallað er um hvað slíkt ofbeldi er, hverjar afleiðingarnar eru og hvaða bjargráð standa til boða. Viðmælendur eru ráðgjafar Stígamóta og fleiri sem koma að málaflokknum í stuttum þáttum. Þátturinn kynnir einnig þjónustu Stígamóta, sem bjóða öllum ókeypis viðtöl, ráðgjöf fyrir fagfólk, aðstandendur brotaþola og gerendur. Hægt er að panta viðtal í gegnum netfangið stigamot@stigamot.is eða í síma 562 6868.

Episodes

  • Um vændi - Sveina endurómar óskir kvenna í vændi 09.11.2026 30m
    Sveina Hjördís Þorvaldsdóttir segir frá fordómum, jaðarsetningu og óskum um úrræði eftir viðtöl sín við 14 íslenskar konur sem hafa verið í vændi. Ein af fágætum rannsóknum sem hafa verið gerðar um aðstæður fólks í vændi á Íslandi. 
  • Um vændi - Anna Þóra segir frá afleiðingum vændis 05.11.2026 29m
    Anna Þóra, sálfræðingur og ráðgjafi hjá Stígamótum segir frá veruleika þeirra sem koma til Stígamóta til að vinna úr afleiðingum vændis. Hún hefur bæði stýrt sjálfshjálparhópum, veitt ráðgjöf og rannsakað þennan hóp brotaþola sérstaklega. 
  • Um vændi - Brynhildur fjallar um veruleika kvenna í vændi 02.11.2026 50m
    Talskona Stígamóta ræðir við Brynhildi Björnsdóttur sem skrifaði frásagnir íslenskra kvenna í vændi í bókinni „Venjulegar konur". Hlaðvarpið er hluti af fræðsluherferð Stígamóta um skaðsemi vændis og kröfu um að betur sé gert til að tryggja öryggi og aðstoða fólk úr vændi og að þeir sem valdi skaða þurfi að axla ábyrgð. 
  • Um vændi - viðtal við dómsmálaráðherra 29.10.2026 22m
    Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um hertar refsingar við vændi. Drífa Snædal talskona Stígamóta ræðir við ráðherra um skaðsemi vændis, tengsl við mansal og skipulagða brotastarfsemi og áætlanir hennar til að sporna við því. 
  • 5. Ofbeldismenn 18.12.2025 31m
    Talskona Stígamóta ræðir við Hjálmar ráðgjafa hjá Stígamótum um þá sem beita ofbeldi, hvað vitum við um þá, af hverju beita sumir ofbeldi og hvað er hægt að gera í því. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum, þeim sem beita ofbeldi og fleirum.
  • 4. Karlarnir á Stígó 03.12.2025 16m
    Talskona Stígamóta ræðir viðHjálmar ráðgjafa hjá Stígamótum um karlana sem sækja stuðning til Stígamóta, hvaða stuðning og ráðgjöf er hægt að sækja og hvernig. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum og fleirum.
  • 3. Að mæta til Stígamóta í fyrsta sinn 24.11.2025 18m
    Talskona Stígamóta ræðir við Sigrúnu Elsu, sem er brotaþoli sem leitaði ráðgjafar hjá Stígamótum og vinnur nú sjálf sem ráðgjafi, um hvernig það var að taka fyrstu skrefin til Stígamóta. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum og fleirum.  
  • 2. Afleiðingar kynferðis- og kynbundins ofbeldis 24.11.2025 17m
    Talskona Stígamóta ræðir við Önnu Rakel ráðgjafa hjá Stígamótum um helstu afleiðingar kynferðis- og kynbundins ofbeldis, hvernig þær blasa við ráðgjöfum hjá Stígamótum og hvernig er unnið með þær. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum og fleirum.
  • 1. Eru Stígamót fyrir mig? 24.11.2025 17m
    Talskona Stígamóta ræðir við Önnu Þóru ráðgjafa hjá Stígamótum um hver sækja stuðning til Stígamóta, hvaða stuðning og ráðgjöf er hægt að sækja og hvernig. Þátturinn er ætlaður brotaþolum kynbundins- og kynferðislegs ofbeldis, fagfólki, aðstandendum og fleirum.

Popular in

The podcast also appears in the podcast charts of these countries.