Bíddu Bara
Bíddu bara
0
Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧. Hlaðvarpið fjallar um lífið, foreldrahlutverkið og allt þar á milli með hlýju og húmor.
Episodes
-
Snjólaug Lúðvíks - frumbyrja við dauðans dyr 👵🏼 17.11.2026 1h 22mSnjólaug Lúðvíksdóttir, uppistandari, handritshöfundur og mamma, kom til okkar í skemmtilegt spjall.Snjólaug varð mamma 39 ára og hefur óspart gert grín að upplifun sinni af því að vera „gömul frumbyrja“ eða frumbyrja við dauðans dyr eins og hún segir í uppstandinu sínu 😂👵🏼. Við ræðum við hana um móðurhlutverkið og alls konar skemmtilegt sem fylgir lífinu eftir að hún varð mamma. -
Afmælisþáttur 🩵 Bíddu bara er 1 árs!! 🎂✨ 10.11.2026 39mBíddu bara er 1 árs!! 🩵🥳🎂Við lítum yfir farinn veg, spjöllum um árið sem er liðið og allt það sem við erum spenntar fyrir framundan. -
Hlutir sem við ætlum að ghosta 👻 03.11.2026 1h 8mÞað er kominn tími til að ghosta nokkra hluti 👻Mömmusamviskubit, samanburð, tiltektarkvíða og alls konar annað sem fylgir stundum mömmulífinu. Í þættinum förum við yfir það sem við viljum kveðja og röbbum að sjálfsögðu um allskonar annað líka. -
Fjóla uppeldisráðgjafi 💛 27.10.2026 1h 17mAngelia Fjóla Vilhjálmsdóttir, foreldrafræðari, uppeldisráðgjafi og höfundur bókarinnar Þegar hugurinn fer að blómstra, kom til okkar í virkilega áhugavert spjall 💛 Við ræddum bókina, hennar eigin sögu og allt á milli himins og jarðar þegar kemur að uppeldi barna. Skapofsaköst, skjátími, svefnþjálfun og margt fleira! -
Aðlögun og leikskólaspjall 20.10.2026 46mVið fórum yfir aðlögun í leikskóla og allar tilfinningarnar sem geta fylgt því hjá foreldrum. Ræddum líka lífið með leikskólabarn og fórum um víðan völl í allskonar skemmtilegar umræður 💛 -
Ásdís Björg - Járnskortur 🩸 13.10.2026 1h 20mÁsdís Björg Pálmadóttir er mamma, nýbökuð amma, stjörnuspekisnemi, íþróttakona, áhrifavaldur og margt, margt fleira. Hún kom til okkar og deildi sinni sögu af járnskorti sem á endanum leiddi hana alla leið til Bretlands í járngjöf, eftir að hafa upplifað að hún fengi ekki þá aðstoð sem hún þurfti hér heima.Miklar blæðingar, meðganga og mikil hreyfing eru meðal þess sem getur haft áhrif á járnbirgðir líkamans og margar konur upplifa einkenni járskorts.Þátturinn er í boði:🩵 Fjarðarkaup🩵 Vörður🩵 KIDS-WORLD -
Hvað er í matinn? 🍽️ 06.10.2026 57mHver kannast ekki við þessa spurning? og hausverkinn sem fylgir því að ákveða hvað á að vera í matinn, dag eftir dag, allt árið um kring. Sérstaklega þegar maður er í orlofi með barn sem er byrjað að borða og þarf allt í einu að hugsa um 4-6 máltíðir á dag. Lofum skemmtilegu jappi um mat og líka einhverjum höxum til að létta foreldrum lífið! -
Haust 🤎🍂 29.09.2026 46mHaustið, Halloween, kertaljós og kósý!Þátturinn er í boði:🩵 Fjarðarkaup🩵 KIDS-WORLD🩵 Vörður🩵 Child´s Farm -
Hlutir sem myndu senda aðrar mömmur í "coma" 🤯 22.09.2026 49mÍ þessum þætti afhjúpum við okkur aðeins sem mæður og deilum alls konar hlutum sem við gerum, höfum gert eða höfum einfaldlega ekki nennt að hafa áhyggjur af... og sem gætu mögulega sent aðrar mömmur í coma!Þátturinn er í boði:🩵 Vörður 🩵 Fjarðarkaup🩵 Kids-World🩵 Childs Farm -
Valgerður - stjúptengsl 15.09.2026 1h 22mÍ þessum ættir fengum við hana Valgerði Halldórsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa og konuna á bak við stjuptengsl.is til okkar. Við ræddum allt það sem getur reynst flókið í stjúpfjölskyldum og foreldrasamvinnu. Hvernig er að sameina fjölskyldur? Hvað gerist þegar upp koma árekstrar og ólíkar væntingar? Og hvernig getum við byggt upp góð tengsl innan fjölskyldunnar?Valgerður hefur bæði persónulega reynslu af stjúpfjölskyldum og faglega þekkingu á þessum málum, svo þetta varð virkilega skemmtilegt og fróðlegt spjall. -
Áslaug - Lífið er kynlíf ❤️ 08.09.2026 1h 17mÁslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur kom til okkar og ræddi kynlíf og sambönd fólks á barneignaraldri. Það getur verið krefjandi fyrir sambandið að ganga í gegnum meðgöngu, fæðingu og fyrstu árin með ung börn, þegar tími og orka fara oft í annað en sambandið sjálft. -
Sara Scime - bleyjulaust uppeldi og koppaþjálfun 👶🚽 01.09.2026 1h 20mFengum til okkar Söru Anítu Scime, betur þekkta sem Koppagelluna á TikTok! Sara byrjaði að venja strákana sína tvo á kopp aðeins nokkurra vikna gamla og segir okkur frá bleyjulausu uppeldi, eða "elimination communication", sem getur sparað manni ansi margar bleyjur og bleyjuskipti!Mjög áhugavert spjall þar sem Sara gefur góð ráð fyrir börn á öllum aldri. Það er nefnilega aldrei of seint að byrja ✨ -
Sara Davíðsdóttir - erfið meðganga og hreiðurgerð í flutningum ✈️🏡 25.08.2026 1h 36mFengum til okkar Söru Davíðsdóttur, einkaþjálfara, flugfreyju og mömmu💛 Sara segir frá afar krefjandi meðgöngu þar sem hún glímdi við mikla ógleði og upplifði að meðgangan færi ekki alveg eins og hún hafði séð fyrir sér.Við ræðum líka flutningana hennar frá Barein til Íslands og hvernig það reyndist mun flóknara en hún bjóst við að flytja tvo hunda með sér heim 🐶🐶 -
Helena Guðrún – missir á meðgöngu og Gleym Mér Ei 🕊️ 18.08.2026 1h 43mHelena Guðrún deilir með okkur persónulegri og áhrifamikilli sögu sinni af missi á 15. viku meðgöngu, sorginni sem fylgdi í kjölfarið og lífinu eftir slíka reynslu.Helena situr í stjórn styrktarfélagsins Gleym Mér Ei, sem styður við foreldra og fjölskyldur sem missa á meðgöngu eða í og eftir fæðingu. Í þættinum ræðum við um sorgarferlið, mikilvægi stuðnings og hvernig félagið vinnur að því að litlu ljósin fái að lifa áfram í minningunni. -
Þórhildur Þorkels - Tæland í fæðingarorlofinu 🏝️ 11.08.2026 1h 22mVið fengum Þórhildi Þorkels til okkar í spjall en hún fór með fjölskyldunni sinni til Taílands í fæðingarorlofinu. Hún fer yfir hvernig það var að ferðast með lítið barn, undirbúninginn og allt það sem við kemur svona ferðalagi. Þórhildur deilir fullt af gagnlegum ráðum og reynslu fyrir þá sem dreyma um að skella sér í svipað ævintýri, hvort sem það er í fæðingarorlofi eða á öðrum tímapunkti í lífinu. Skemmtilegt mömmuspjall um algjöra draumaferð! 🏖️✈️☀️ -
Orðablik 04.08.2026 1h 3mFengum Ásdísi og Hjördísi, stofnendur Orðabliks, í spjall um málþroska barna. Hjördís er talmeinafræðingur og Ásdís er með bs í sálfræði. Þær segja okkur frá Orðabliki, deila gagnlegum ráðum til að styðja við góðan málþroska barna og ræða hvernig við getum nýtt daglegar stundir til að efla málþroskann. Við förum einnig yfir skjátíma, þær áskoranir sem foreldrar standa frammi fyrir í dag og hvernig hægt er að fjölga gæðastundum fjölskyldunnar án þess að skjár komi til sögu. -
Hlutir sem eru peningana virði💰 28.07.2026 1h 3mÍ þessum þætti förum við yfir það sem okkur finnst raunverulega vera peningana virði, bæði fyrir börnin og okkur sjálfar 💸👶 -
Mýtur 21.07.2026 53mFörum yfir mýtur sem við höfum heyrt í gegnum tíðina um meðgöngu, börn og uppeldi. Er virkilega hægt að sjá kyn barnsins á lögun bumbunnar? er satt að börn fái hita þegar þau taka tennur? -
Þriðji þriðjungur meðgöngu 14.07.2026 49mLokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi. -
Annar þriðjungur meðgöngu 07.07.2026 50mAnnar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði, breytingarnar sem eiga sér stað og deilum okkar eigin reynslu á leiðinni💛
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.