Ljósmæðrarýmið
Hafdís og Oddný
0
Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu.
Episodes
-
#33 - 15 verkjastillingar í fæðingu 12.11.2026 54mHvað geturðu gert til þess að takast á við verki í fæðingu? Það er nefnilega mjög margt sem þú getur gert og hér ræðum við það í þaula.Ps. allt um mænurótardeyfingu í þætti #22.Þátturinn er í boði:KappahlNatracareLove to DreamLovemadeVertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirÖndun sem heldur taugakerfinu rólegu í fæðingu. -
#32 Hannah Davíðsdóttir og hennar 3 fæðingar 04.11.2026 1h 13mVARÚÐ - Vörum við að það er líklegt að þið krúttið yfir ykkur við hlustun á þætti dagsins! Krúttmundur mætti og bræddi alla í setti meðan mamma hans sagði okkur frá fæðingu sinni og systra sinna. Hannah vissi alltaf að hún ætlaði að verða mamma og byrjaði ung að reyna. Lukkan var með þeim parinu og hafa þau eignast 2 stelpur og lítinn krúttkall sem mætti auðvitað með í Ljósmæðrarýmið. Við elskum fæðingasögur og fyrir ykkur sem eruð sammála eru hér 3 flunkunýjar skemmtilegar og uppbyggilegar sögur.Þátturinn er í boði:KappahlNatracareLove to DreamLovemadeVertu með okkur á Instagram:Ljósmæðr... -
#31 Hvenær á ég að fara á fæðingarstað? 29.10.2026 44mÞað er stóra spurningin og í þessum þætti ætlum við að svara henni eftir bestu getu.Af því að hver nennir að fara fram og til baka fram og til baka í upphafi fæðingar.... já og ekki viljum við óvæntar heima eða bílafæðingar... það er ekki beint ideal.Það getur nefnilega verið fín lína á milli þess að fara of snemma og of seint, þannig að hvernig gerum við þetta?Hlustaðu og njóttu <3 Þátturinn er í boði:KappahlNatracareLove to DreamLovemadeVertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirÖndun sem heldur taugakerfinu rólegu í fæðingu. -
#30 Tvær fæðingasögur Alexöndru kíró 22.10.2026 1h 22mAlexandra, oft kölluð Alexandra kíró (eða kannski erum það bara við?) kemur í Ljósmæðrarýmið og deilir með okkur sínum 2 fæðingasögum, tvær skemmtilegar og góðar sögur af því þegar 19 marka stúlkurnar hennar komu í heiminn. Alexandra fer jafnframt yfir það sem hún gerir fyrir börn og konur á meðgöngu í sínu starfi og við mælum með hlustun fyrir ykkur sem eruð forvitin að heyra meira um kírópraktík fyrir ungabörn og konur á meðgöngu.Við lofum skemmtun, gæsahúð og aukinni trú á fæðingaferlinu eftir hlustun á elsku Alexöndru kíró!Þátturinn er í boði Kappahl, Natracare, Love to dream og Lovemade -
#29 5 ráð til að massa fæðinguna þína! 15.10.2026 56mHvernig geturðu undirbúið þig sem best fyrir stóra daginn?Í þessum þætti deilum við okkar bestu ráðum, sem geta hjálpað þér að takast á við fæðinguna þína.Við laumum mögulega á einu bónusráði með sem við viljum að allar verðandi mæður hafi í farteskinu.Njóðið vel! 🤎Þátturinn er í boði:KappahlNatracareLove to dreamLovemade -
#28 Fæðingarsögur Emblu 08.10.2026 1h 20mVarúð, fæðingarsögur dagsins gætu valdið alvarlegri gæsahúð!Embla segir frá báðum fæðingunum sínum á einlægan, jákvæðan og fáránlega fyndinn hátt. Við þáttastjórnendastöllur hlógum allavega, táruðumst OG gæsahúðuðum allan tímann.Þátturinn er í boði Kapphal, Natracare, Love to dream og lovemade, farið og nælið ykkur í lífræn gæðaföt, lífræn gæðabindi, gæða svefnpoka og lífrænan gæða barnamat -
27. Hlutir "Worth the money" fyrir fæðingu og sængurlegu 01.10.2026 50mÞarftu að kaupa allan heiminn fyrir komu barnsins þíns?Við segjum nei.Hvað þarftu í alvöru að kaupa fyrir barnið þitt?Í þessum þætti förum við yfir það sem er must have fyrir komu barnsins og hvað er nice to have, því það er stór munur þar á. Við deilum okkar reynslu sem mæður og ljósmæður oooog erum mögulega með ákveðnar skoðanir á sumu!Þátturinn er í boði Kappahl og Lovemade 🤎Öndun sem heldur taugakerfinu rólegu í fæðingu.Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar 03.09.2026 58mÍ þætti vikunnar fáið þið að heyra þrjár mismunandi fæðingarsögur sem við lesum fyrir ykkur og ræðum!Gangsetning á LSH, þrátt fyrir upphafleg plön um að eiga á Selfossi, heimafæðing sem tók líka óvænta stefnu og tvíburafæðing við miklar bráða aðstæður.Við förum um víðan völl en “take home message” er kannski að þú getur haft óskir fyrir fæðinguna án þess að halda svo fast í þær að allt hrynji ef planið breytist.Njótið vel 🤎Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðirÖndun í fæðingu:https://www.sofabordaelska.is/ondun -
#25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni? 27.08.2026 1h 2mJákvæðni í fæðingu getur skipt sköpum 💛✨Í þessum þætti kemur Sigríður til okkar og segir frá sinni fæðingarreynslu, meðal annars hvernig hún hélt í jákvæðnina og hvernig maðurinn hennar var duglegur að minna hana á hana alla leiðina 😄Við tölum um mikilvægi þess að skapa ró, öryggi og góða stemningu í fæðingu – og hvernig það getur stutt við losun oxýtósíns, hormónsins sem gegnir svo mikilvægu hlutverki í fæðingu.Og svo… herðanuddið! 🙌 Sigríður deilir trixi sem virkaði ótrúlega vel fyrir hana og við förum aðeins nánar í það í kringum 33. mínútu. Kannski eitthvað sem vert er að skrifa niður... -
#24 Fæðingarplan, er það sniðugt? 21.08.2026 47mÞetta getur verið hot topic hvort þú eigir að gera fæðingarplan eða leyfa þér bara að go with the flow…?Við kryfjum þetta til mergjar í þætti vikunnar þangað til þetta er orðið kýrskýrt.Linkur á myndband um öndun í fæðingu:https://www.sofabordaelska.is/ondunVertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#23 Alexandra - Tvær heimafæðingar 13.08.2026 1h 15mElsku Alexandra, þroskaþjálfi og mikill snillingur, kom til okkar í svo skemmtilegt spjall um sínar tvær ólíku heimafæðingar.Hvað varð til þess að hún valdi heimafæðingu?Hvernig gengu þær fyrir sig?Áður en hún varð ólétt af fyrsta barni var hún frekar hrædd við að fæða, en eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði val um hvar og hvernig hún fæddi barnið sitt, byrjaði hún að vera spennt fyrir fæðingunni.Hún átti góða upplifun þrátt fyrir krefjandi lokakafla í fyrri fæðingu, sem endurtók sig heldur betur ekki í seinni fæðingunni.Njótið vel 🤎Vertu með okkur á Instagram:Ljósmæðrarýmið... -
#22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita 07.08.2026 51mMænudeyfing, mænurótardeyfing, utanbastdeyfing eða hvað sem þú vilt kalla hana, hér kemur góð umfjöllun um kosti, galla, fylgikvilla og verkun deyfinga í fæðingum á Íslandi. Hvenær er best að fá sér deyfingu?Hvað breytist þegar ég fæ mér deyfingu?Og margt margt fleira.Og ekki hafa neinar áhyggjur, að sjálfsögðu tölum við um kúk og piss líka og hlæjum mikið mikið af sjálfum okkur í leiðinni. Allt sem ÞÚ þarft að vita til að taka upplýsta ákvörðun fyrir þig og þína fæðingu!Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#21 Hildur Grímsdóttir 30.07.2026 1h 26mTW Þáttur dagsins krefst þess að við setjum Trigger Warning við en Hildur fer yfir allar 5 fæðingarnar sínar, þar á meðal andvana fæðingu sonar síns Hergeirs Þórs sem fæddist eftir 25 vikna meðgöngu.Hildur lýsir á einlægan hátt erfiðri, sárri en jafnframt fallegri reynslu þegar Hergeir Þór kom í mömmufang. Ef þú treystir þér til mælum við eindregið með að hlusta á þessa fallegu fæðingu og fund yndislegs lítils drengs við mömmu og pabba. Að auki á Hildur 4 skemmtilegar upplifanir af fæðingum sem allar eiga sameiginlegt að byrja með keimlíkum hætti.Mannleg, skemmtileg, einlæg og hress, það er Hi... -
#20 Arna Ýr 16.07.2026 1h 53mArna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli. Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A.Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti.Getur hver sem er leyft sér að stefna að upplifunum eins og Örnu, fæðing utan sjúkrahúss með fyrsta barn, bað fæðingar og auðvitað blómafæðingarlaugin fræga? Er það óraunhæft eða á færi allra með góðum undirbú... -
#19 Foreldrajátningar 09.07.2026 45mHefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu? Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli. -
#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið 02.07.2026 1h 34mÍ þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða.Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu.Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar eftir að taka upp og við vonum að sagan hennar Dýrleifar geti veitt ykkur innblástur.Njótið vel 🤎Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar 25.06.2026 1h 13mMissir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir.Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem hún nýtti í þeim aðstæðum. Við ræðum einnig sorgarferlið sem fylgir því að missa barn snemma á meðgöngu. Þegar þú þarft að kveðja litla krílið þitt og þá framtíð sem þú varst búin að sjá fyrir þér og p... -
#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara 18.06.2026 1h 11mÍris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf er á. Hún ræðir upplifun sína af fæðingunum, andrúmsloftinu á skurðstofunni og aumingja manninn sinn sem var bitinn í magann, af henni.Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða... -
#15 Hvar vorum við og hvert erum við að fara? 11.06.2026 44mVið erum mættar aftur eftir stutta pásu! Ferskari en nokkru sinni fyrr.Hvert fórum við? Hvert erum við að fara með hlaðvarpið?Pælingar: Af hverju heyrum við og sjáum lang mest af hryllingssögum um fæðingu en sjaldan góðu sögurnar?Af hverju ákváðum við að synda svolítið gegn straumnum og skapa vettvang fyrir jákvæðar fæðingarupplifanir?🎧 Njóttu vel!Vertu með okkur á Instagram:LjósmæðrarýmiðSofa borða elskaOddný ljósmóðir -
#14 Forstig fæðingar - Hvað gerist þegar fæðingin er að byrja? 03.04.2026 27mEr þetta að byrja… eða ekki alveg strax?Í þessum örþætti talar Oddný um eitt ruglingslegasta og oft vanmetnasta stig fæðingarinnar: forstigið.Þegar líkaminn er að undirbúa sig fyrir fæðingu, en ekkert er alveg komið í gang ennþá.Verkir geta komið og farið, orðið þéttari og dottið svo niður. Tilfinning um að eitthvað sé að gerast en þú veist ekki alveg hvað. Rætt er um:– hvernig forstigið getur litið út – hvað er að gerast í líkamanum á þessu stigi– hvað er eðlilegt – hvað þú getur gert á þessu stigi til að vinna með líkamanum þínum Þetta er þáttur fyrir þig sem vilt skilja líkamann þinn betur...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.