hún hlaðvarp
Erna Hrund Hermannsdóttir
0
Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.
Episodes
-
hún hlaðvarp #24 Anna Steinsen 17.11.2026 1h 44mGestur þáttarins er Anna Steinsen, leiðtogaþjálfari, fyrirlesari, einn stofnenda og eigenda KVAN og stjórnarformaður UN Women á Íslandi.Í dag ætlum við að tala um leiðtogann sem býr innra með okkur öllum. Um stelpuna sem roðnaði fyrir framan bekkinn og þjálfar í dag leiðtoga, um fyrstu skrefin sem stjórnandi og kröfuna um að hafa öll svörin, um samanburðinn, ofurhetjurnar og gömlu hlutina sem við drögum á eftir okkur, um börn sem fá að gera mistök og um það að halda mörgum boltum á lofti, og um það hvernig sjálfstraust er æft en ekki meðfætt.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Ne... -
hún hlaðvarp #23 Hanna Birna Kristjánsdóttir 10.11.2026 2h 5mGestur þáttarins er Hanna Birna Kristjánsdóttir, meðstofnandi og stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga, ráðgjafi UN Women um forystu kvenna, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og innanríkisráðherra.Í dag ætlum við að tala um eina setningu, afhverju það er alltaf bara ein kona í einu. Um ellefu ár á bak við tjöldin í stjórnmálaflokki, um borg sem féll sex vikum eftir að hún tók við henni, um tónleikahús sem tveir andstæðir flokkar björguðu í janúar 2009, um rannsókn sem segir að þegar karl lendir í vandræðum missi hann traust en þegar kona lendir í vandræðum missi allar konur traust, um fi... -
hún hlaðvarp #22 Erla Ósk Ásgeirsdóttir 03.11.2026 1h 34mGestur þáttarins er Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Jafnvægisvogarráðs FKA, stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni og stjórnarkona í Bláa lóninu.Í dag ætlum við að tala um tengslanetið, bæði sem hnútinn og lausnina. Um formannsstóla sem konur hurfu úr og ráðningar sem fara fram í gegnum símtöl, um fyrsta stjórnarsætið og muninn á því að mæta á viðburð og að byggja raunverulegt samband, og um það hvernig konur lyfta hver annarri upp í stað þess að keppa um eitt sæti.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurð... -
hún hlaðvarp #21 Þórunn Inga Ingjaldsdóttir 29.10.2026 1h 42mGestur þáttarins er Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum, formaður stjórnar Votlendissjóðs og kennari í Executive MBA-námi Háskóla Íslands.Í dag ætlum við að tala um að skipta alveg um geira, ekki einu sinni heldur þrisvar. Um Nike, skipaflutninga og banka, um að leiða sérfræðinga þegar maður er sjálf nýja manneskjan, um móðurhlutverkið samhliða vaxandi ferli, um menntun sem breytir lífi kvenna, og um það hvernig tryggingar geta eflt konur.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardót... -
hún hlaðvarp #20 Ásdís Kristjánsdóttir 22.10.2026 1h 47mGestur þáttarins er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, iðnaðarverkfræðingur og hagfræðingur.Í dag ætlum við að tala um konuna á bak við embættið. Um stelpuna úr Breiðholti sem ætlaði að verða læknir, um móðurhlutverkið samhliða stjórnendastöðu, um samning um eldhúsið, og um það hvernig maður stígur enn lengra inn í sviðsljósið þegar maður þarf þess ekki.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur , Elko, Nespresso og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttirhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó -
hún hlaðvarp #19 Viktoría Hermannsdóttir 14.10.2026 1h 47mGestur þáttarins er Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, mannfræðingur og meistari í hagnýtri menningarmiðlun.Í þættinum tölum við um það hvernig atvinnuspyrjandi er sjálf spurð. Um barn sem fékk frí í skólanum til að fara í jarðarfarir með ömmu sinni og afa, um þrettán ára sölukonu sem var strax komin með sinn eigin kúnnahóp, um skólablað í Breiðholti sem seldi auglýsingar út um allt hverfið, um símtalið sem hún hringdi sjálf komin fimm mánuði á leið, um eitt útvarpsviðtal sem varð að verðlaunum, meistaragráðu og bíómynd, um draumaverkefni sem byrjar þegar hún er 39 ára og um... -
hún hlaðvarp #18 Jenna Huld Eysteinsdóttir 06.10.2026 2h 12mGestur þáttarins er Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir, doktor í læknavísindum, meðeigandi Húðlæknastöðvarinnar og stofnandi Húðvaktarinnar.Í dag ætlum við að tala um hvernig vísindakona verður frumkvöðull, í geira þar sem flestir láta sér nægja að vinna vinnuna sína. Um stærsta líffærið okkar, sem við tökum bara eftir þegar það er fallegt. Um biðlista sem varð að fyrirtæki, um doktorsritgerð sem var skrifuð með þrjú börn og lista af barnapíum, um sólarvörn í október og ljósabekki sem enginn hefur bannað, og um það hvernig kona lærir að segja hlutina upphátt.hún hlaðvarp er í boði: A... -
hún hlaðvarp #17 Safa Jemai 30.09.2026 1h 47mGestur þáttarins er Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur, forstjóri og meðstofnandi Treyst.ai, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Víkonnekt og kryddfyrirtækisins Mabrúka.Safa er fædd í Túnis árið 1994. Hún kom fyrst til Íslands sumarið 2017 sem sjálfboðaliði í gróðurhúsi í Hveragerði og fór heim með þá tilfinningu að hún ætti eitthvað óklárað hér. Ári síðar flutti hún, ein, lærði íslensku á fimm mánuðum, kláraði hugbúnaðarverkfræði í HÍ og stofnaði á meðan hún var enn í námi tvö fyrirtæki og vann Gulleggið með því þriðja. Hún var valin Rising Star of the Year á Nordic Women in Tech Awards 2023,... -
hún hlaðvarp #16 Lilja Birgisdóttir 23.09.2026 1h 25mGestur þáttarins er Lilja Birgisdóttir, listakona, ljósmyndari og ein af stofnendum og eigendum Fischersunds. Lilja er fyrsti gesturinn í Hún sem ég ætla að kjósa aðkalla listakonu, fyrst og fremst. Kona sem hefur breytt listinni sinni í rekstur. Fischersund byrjaði með einum ilmi í tómu, svörtu húsi í Grjótaþorpinu fyrir tæpum níu árum. Í dag eru ilmirnir seldir hjá yfir hundrað söluaðilum víða um heim, fjölskyldan hefur haldið ilmtónleika í París, Seattle og Kaupmannahöfn, og í fyrra var Fischersund valið verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Og samhliða öllu þessu heldur Lilja áfram að... -
hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir 15.09.2026 2h 3mGestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert einmitt það. Hún er forstöðumaður markaða hjá Arion banka og var áður framkvæmdastjóri þriggja lífeyrissjóða í einu og þá önnur af aðeins tveimur konum á landinu sem stýrðu lífeyrissjóði. Hún er iðnaðarverkfræðingur og ætlaði sér alls ekki að vinna í banka.Það sem mér finnst áhugaverðast við hana er ekki hverju hún stýrir, heldur hvernig. Hún segist hafa óskaplega gaman af því að tala,... -
hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir 09.09.2026 1h 44mGestur þáttarins í dag er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir. Konu sem hefur fært okkur margar af þekktustu fataverslunum Norðurlandanna. Í lítilli íbúð í Halmstad í Svíþjóð, einhvern tímanní kringum 2010, sat kona við eldhúsborð. Borðið var þakið innkaupapokum og pökkum. Hún var með fartölvu í kjöltunni og barn á brjósti og var að slá inn pantanir. Þegar maðurinn hennar kom heim úr vinnunni ýtti hún tölvunni frá sér og sagði: „Nei. Nú vil ég ekki taka við fleiri pöntunum. Þetta er of mikið."Hún var í fæðingarorlofi. Hún hafði flutt út til að hægja á sér, baka pönnukökur og njóta þess að vera með st... -
hún hlaðvarp #13 Eva Ruza Miljevic 01.09.2026 1h 51mGestur þáttarins í dag er Eva Ruza Miljević. Þið þekkið hanaaf sviði, úr útvarpi, af skjánum, konuna sem er alltaf með míkrófóninn, alltaf með húmorinn, alltaf með orkuna sem fyllir salinn og oftar en ekki öskursyngjandi. En það sem mig langar að tala um í dag er ekki bara sviðið heldur líka árin á undan. Trúin sem hún hafði á sjálfri sér áður en nokkur vissi hver hún var og hvað það kostaði hana að stökkva.Það er til gamalt myndband, tekið heima í stofu í Kópavogi,þar sem lítil stelpa er spurð hvað hún ætli að verða þegar hún verði stór. Hún svarar án þess að hika: „Ég ætla að verða fræg."Um... -
hún hlaðvarp #12 Dr. Þóranna Jónsdóttir 16.06.2026 1h 50mGestur þáttarins er Dr. Þóranna Jónsdóttir við tölum um konur í forystu, erfiðar ákvarðanir, áhrifin sem sjást ekki alltaf utan frá og hvað það þýðir að byggja sér leið, ekki með því að bíða eftir leyfi heldur með því að stíga inn. Sumar konur ganga ekki bara inn um dyrnar sem þeim er boðið inn um. Þær læra að opna nýjar dyr. Þær læra að sitja við borðin þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Og stundum þegar þær eru komnar þangað breyta þær reglunum svo fleiri komist inn á eftir þeim. En hvernig verður maður sú manneskja sem er hringt í þegar mikið liggur við? Þegar fyrirtæki þarf nýja stefnu. Þeg... -
hún hlaðvarp #11 Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir 09.06.2026 1h 36mGestur þáttarins er Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, kona sem eflaust þarf ekki að kynna fyrir mörgum enda ein þekktasta sjónvarsp- og fjölmiðla kona landsins. Í dag situr hún í framkvæmdastjórn &starfar sem markaðs- & upplifunarstjóri Hagkaupa en þar hefur hún skapað sér nýtt hlutverk, ekki með því að loka á það sem hún var, heldur með því að byggja ofan á það.Í þættinum tölum við um hugrekki, sjálfsmynd, breytingar, metnað, móðurhlutverkið, pressuna sem fylgir því að vera kona í sviðsljósinu og hvað það þýðir að leyfa sér að byrja aftur og breyta til.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvöru... -
hún hlaðvarp #10 Bókaklúbbur og trúnó 28.05.2026 1h 9mÍ þessum þætti förum við aðeins yfir hvað mér fannst standa uppúr í síðustu viðtölum. Ég kynni til leiks bækurnar fyrir nýja bóka klúbbinn okkar, Aspire, Lean in og Leiðin heim, en hugmyndin er að taka svo fyrir hverja bók fyrir sig og ræða hana og áhrifin sem hún hefur. Ég hvet ykkur til að lesa þær í sumar, ég er búin með bókina Leiðin Heim og fékk höfundinn hana Karitas Sigurðardóttur til mín í smá spjall. Loks svara ég svo alls konar spurningum frá ykkur og frá mér sjálfri í takt við þær sem viðmælendurnir hafa svarað, kominn tími til að gefa ykkur ennþá meiri innsýn inn í minn hugarheim.... -
hún hlaðvarp #9 Sesselía Birgisdóttir 19.05.2026 1h 42mSesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum, hefur byggt feril sinn á breytingum, uppbyggingu og umbreytingu. Hún hefur farið inn í ólíkar atvinnugreinar, tekið að sér hlutverk sem voru oft ný eða í mótun, og aftur og aftur unnið með það sem er annaðhvort að verða til, eða þarf að breytast. Í þættinum fáum við að kynnast konunni á bak við verkefnin. Heyrum hvernig maður fer inn í nýja heima, byggir frá grunni, leiðir fólk í gegnum breytingar, og lærir að treysta því og hlusta þegar næsti kafli kallar.hún hlaðvarp er í boði: Bloom, Elko, Vichy og Mango... -
hún hlaðvarp #8 Arna Harðardóttir 05.05.2026 1h 34mArna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health, fyrirtækis sem vinnur að því að tengja saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta þjónustu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Arna hefur þurft að taka stórar ákvarðanir á stuttum tíma, byggja upp traust hratt og leiða fólk í gegnum breytingar. Hún gerir það á sinn hátt, af yfirvegun, sannfæringu og með skýra sýn á það að sjúklingurinn sjálfur sé ein mikilvægasta, en jafnframt vannýttasta, auðlind heilbrigðiskerfisins.Í þessu samtali förum við yfir leiðtogahlutverkið, ábyrgðina, gildin og lærdóminn sem fylgir því að stíga inn í stór v... -
hún hlaðvarp #7 Edda Konráðsdóttir 28.04.2026 1h 26mEdda Konráðsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Edda hefur helgað ferilinn sinn nýsköpun og sprotum, hún er annar stofnenda Iceland Innovation Week og rekur viðburða og hugmyndastúdíóið Milk & Kleina. Mér fannst tilvalið að fá hana Eddu til mín í spjall nú þegar IIW er einmitt að hefjast. Edda stýrði Gullegginu sem er elsta frumkvöðlakeppni Íslands þar sem mörg fyrirtæki hafa tekið sín fyrstu skref. Það var virkilega áhugavert að heyra hennar sýn á hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að fyrstu skrefum í heimi nýsköpunar, hvernig hún nálgast erfiðar aðstæður og það stendur uppúr að hey... -
hún hlaðvarp #6 Salóme Guðmundsdóttir 21.04.2026 1h 23mSalóme Guðmundsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Ísorku, situr í þónokkrum stjórnum og er stofnandi og formaður konur í stjórnum.hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango.Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís SigurðardóttirUpphafsstef: Kolbrún ÓskarsdóttirSérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarssonhún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó -
hún hlaðvarp #5 Guðrún Aðalsteinsdóttir 14.04.2026 1h 23mGuðrún Aðalsteinsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Krónunnar með eftirtektarverðum hætti. Guðrún er svo sannarlega leiðtogi með skýra sýn og fyrir mér hefur alltaf verið greinilegt að hún hefur sterka sannfæringu og trú á að það sem hún er að gera skiptir máli - sem er svo sannarlega rétt. Guðrún er sýnilegur leiðtogi bæði fyrir starfsfólkið sitt en einnig fyrir fólkið í landinu. Hún hefur haldið gildum sínum á lofti í gegnum sín störf þar sem allir eiga að upplifa að þeir og þeirra störf skipti máli, það eigi að koma eins fram við alla og allir...
Popular in
The podcast also appears in the podcast charts of these countries.